Morgunblaðið - 22.07.2000, Page 45

Morgunblaðið - 22.07.2000, Page 45
MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR LAUGARDAGUR 22. JÚLÍ 2000 45 íyrst inn á heimili hennar og Agnars tengdapabba hve hlýtt viðmót við mér blasti og ég fann fljótt að ég var velkomin á þeirra heimili. Ég gleymi aldrei einu atviki sem mér þótti ekki sjálfsagt, það var þegar hún bauð mér í mat hjá þeim og hún vissi að ég var ekki hrifin af því að borða lifur, en hún hafði þá tvírétta máltíð svo ég gæti borðað líka, þetta þótti mér sér- stakt. Einu sinni þegar ég og vinkona mín, Guðný, vorum hjá henni vorum við að tala um jogginggalla sem okk- ur langaði svo mikið í og voru í tísku, þá bauð hún okkur að hún skyldi sauma þá íyrir okkur, við skyldum bara kaupa efni því þetta væri ekki mikið mál enda var hún alvön að sauma. Margar stundir áttum við saman bæði nýlega og áður, það var oft at- hyglisvert að spjalla við hana og hlusta á hvað hún hafði að segja, bæði frá gamla tímanum og hennar búskaparárum á Heiði. Ásta tengdamamma var afskap- lega skapgóð, rösk og vildi hafa reglu á hlutunum, henni var líka annt um að fólkinu sínu liði vel og hefði það gott. Alltaf var ég velkomin hvenær sem var og ávallt tekið vel á móti mér. Ég er afar þakklát fyrir allar þær stundir sem hún var hjá okkur þegar hún kom suður. í dag kveð ég Ástu tengda- mömmu, í huga mínum er þakklæti fyrir allt sem hún gerði fyrir mig og allar þær stundir sem við áttum sam- an. Legg ég nú bæði líf og önd, ljúfi Jesú í þína hönd. Síðast þegar ég sofna fer, sitji Guðs englar yfir mér. (Hallgr.Pét) Guð geymi þig, elsku Ásta. Sigurbjörg Sigurðardóttir. Þá hefur sómakonan hún Ásta kvatt okkur. Þó ég hafi ekki þekkt hana lengi og kannski ekki mikið, tókst með okkur ágætur vinskapur. Hún var glettin kona sem gott var að heimsækja á allan hátt. Ég á örugg- lega eftir að sakna þess að sitja hjá henni í eldhúsinu norður á Sauðár- króki og gæða mér á sykruðum pönnukökum með rjóma. Helst vildi hún vita með smáfyrirvara ef von var á mér til að eiga örugglega pönnu- kökur eða annað góðgæti til handa mér. Þó að lífshlaupið hafi ekki alltaf gengið snurðulaust fyrir sig átti hún alltaf til glettni og oft mátti hagræða sanleikanum örlítið ef það varð til að krydda tilveruna. Ég vil að lokum óska Ástu góðs gengis á þeirri braut sem hún hefur lagt út á og megi hún njóta blessunar við þau störf sem hennar bíða þar. Gunnar Magnússon. Elsku besta amma mín. Takk fyrir allt sem þú hefur kennt mér og gefið mér gegnum árin. Ég man þegar ég var lítil hvað ég hlakkaði til að fara að heimsækja þig og afa, hvað það var gaman að koma til þín og vita af þér í garðinum og afa í bflskúrnum að flétta hesta- tauma eða sitjandi í rauða stólnum sofandi með kveikt á útvarpinu og sjónvarpinu í einu. Mér fannst svo gaman að hjálpa þér í garðinum og leika mér þó að ég vissi að ég þyrfti að fara varlega svo garðurinn þinn héldist eins fallegur og áður. Ég man að ég var alltaf að fylgjast með jarðarberjunum og þegar þau voru þroskuð þá stalst ég stundum í þau, „þetta eru bestu jarð- arberin í öllum geiminum", hugsaði ég. Síðan leyfðirðu mér alltaf að horfa á „Nonna og Manna“ eða „Heilsubælið“ sem voru uppáhalds sjónvarpsefnið mitt þá. Ég man ég horfði á þetta aftur og aftur og það var alltaf jafn skemmtilegt, þú furð- aðir þig oft á því hvað ég gat horft á þetta oft og hvað ég gat hlegið að því sama aftur og aftur. Og síðan alltaf áður en ég fór að sofa varð ég að sjá þig taka úr þér fölsku tennumar og bursta þær, því alltaf áður þá settirðu þær alveg fremst í munninn og léks hest, þetta fannst mér svo fyndið. Einu sinni þegar ég frétti að Lilla og Una voru að fara afur til Sauðár- króks, ég var eitthvað um 3ja ára, þá grátbað ég mömmu um að leyfa mér að fara með, ég var ein lítil frekja sem fékk allt og auðvitað fékk ég að fara með. Ég ein hjá ömmu og afa, það var eitthvað sem mig hafði langað lengi, en ekki of lengi, ég var nú bara þriggja. Og það var svo gaman og þegar ég þurfti að fara heim fannst mér vera kominn heimsendir, þvi nú gat ég bara talað við þig í síma og ég fékk ekki að sjá fyndnu fölskutanna- sýninguna áður en ég fór að sofa, fékk ekki að horfa á „Nonna og Manna“ eða „Heilsubælið" né horfa á afa flétta hestatauma. Þegar ég var sex ára, að fara í skóla, frétti ég að afi væri dáinn, það var eitthvað sem ég skildi nú ekki al- veg þá. En ég fann samt eitthvað koma yfir mig, eitthvað sem ég vissi ekki hvemig átti að sýna (tilfinn- ingalega). Síðan þegar við komum á Krókinn sá ég hve leið þú varst en vissi bara ekki út af hverju, jú auð- vitað hafðirðu misst afa en ég hélt að það væri allt í lagi að deyja því nú gat hann verið hjá Guði og englunum, sem þeir sem eru ekki dánir fá ekki. Þegar ég fór í kistulagninguna og fékk að strjúka afa um vangann þá fann ég hvað hann var kaldur og aft- ur kom þessi tilfinning yfir mig, það fyrsta sem ég spurði mömmu var: „Af hverju er afi svona kaldur?" Mamma sagði að núna væri sálin hans afa komin til Guðs og það væri hún sem héldi honum lifandi og heit- um. Og þegar í kirkjuna var komið vom allir grátandi, sem skiljanlegt er, en ég sex ára, skildi ekki. Eg hugsaði bara; af hverju em allir svona grátandi og leiðir? Afi er núna hjá Guði að dansa við englana. En seinna þegar ég varð eldri fór ég að skflja dauðann og hvemig átti að bregðast við þessari tilfinningu sem alltaf kom yfir mann þegar ein- hver náinn deyr. Ég held bara að ég hafi farið að skilja það eftir að afi dó og ég fór að fylgjast með þér, hvað þú varst leið og óhamingjusöm fyrsu dagana, vikumar, mánuðina. Mér líður svo illa að vita að ég get ekki verið við jarðarförina þína og kvatt þig með öllum ættingjum mín- um og fengið bara að sjá þig einu sinni enn áður en þú verður jörðuð. Ég veit og ég get alveg séð fyrir mér hvað þú verður glöð og ánægð að sjá afa aftur, og auðvitað Fríðu, Fúsa og Sigga. Því þá veist þú að ekkert getur slitið ykkur í sundur. Og eftir allavegana 50 ár verður öll fjölskyldan þín komin til þín og eftir önnur 50 ár verða flest bamabörnin komin til þín og svona koll af kolli. Ég hef svo mikið að segja og svo mikið að þakka fyrir að ég gæti skrif- að heila framhaldssögu, en ég ætla nú ekki að verða rithöfundur heldur barnalæknir og ég veit að þú verður stolt af mér þegar að því kemur. Ég bið góðan Guð að geyma þig og takk fyrir allt! Ég bið líka að heilsa afa, Fríðu, Fúsa og Sigga og ég veit að þið eigið eftir að verða hamingjusöm. Síðan sjáumst við bara eftir svona 80 ár eða svo. Lilja Hlín Ingibjargardóttir. Elsku besta amma mín, takk fyrir allt sem þú hefur gefið mér í gegnum tíðina. Takk sérstaklega fyrir kleinurnar, ullarsokkana og bara allt. Síðast þegar við vomm hjá þér hjálpaðir þú mér að prjóna, þú sagðir mér líka að ég ætti að vera sterkur og stór og ekki gráta, en núna þegar ég veit að ég sé þig ekki aftur er erf- itt að vera sterkur og stór og ekki gráta. Ég veit að afi hefur verið glaður að fá þig til sín og Fríða frænka og Fúsi og Siggi strákarnir þínir og afa. Ég bið algóðan Guð að blessa þig og ég veit að nú ertu laus við allar þrautir ogverki. Elsku amma mín, takk fyrir allt sem þú kenndir mér. Steingrímur Sigurðarson. Elsku amma. Það er svo notalegt að hugsa um allar þær stundir sem við áttum saman, sérstaklega þykir mér vænt um þær stundir þegar við vomm bara tvær saman. Þú varst alltaf að kenna mér eitthvað sniðugt, t.d. þegar þú kenndir mér að prjóna og þú varst svo þolinmóð við mig þegar ég var að klaufast og allt fór í hnút, svo kom ég oft til þín og við bökuðum saman kleinur og rúg- brauð og þú gafst mér svo uppskrift- irnar, það var æðislegt. Endalaust gat ég spurt þig og hlustað á sögur sem þú sagðir mér frá því í gamla daga eða þegar pabbi og systkini hans vom lítil á Heiði. Það var svo skemmtilegt því ýmislegt var bauk- að í sveitinni. Þegar ég gisti hjá ykk- ur afa í Raftahlíðinni fannst mér svo gaman því þið fómð alltaf frekar seint að sofa og fenguð ykkur oft eitthvað í svanginn fyrir svefninn. Það var alltaf svo fróðlegt að spjalla við þig um lífið og tilverana því þú vissir svo mikið. Þegar þú komst til okkar núna í maí vomm við mikið saman og spjölluðum heilmikið um hitt og þetta, það var dýrmætur tími með þér, amma mín. Takk fyrir allt og guð geymi þig, elsku amma. Vertu yfir og allt um kring með eilífri blessun þinni, sitji guðs englar saman í hring sænginniyfirminni. (Sig. Jónsson frá Presthólum.) Sigrún Hildur Sigurðardóttir. Elsku amma. Löngu æviskeiði þínu er lokið, í dag verður þú lögð til hinstu hvflu og þú vafalaust hvfldinni fegin. Veikindi hafa tekið sinn toll undanfarin ár en samt hélstu alltaf í gleðina og góða skapið. Við minnumst með gleði í hjarta stundanna sem við systkinin höfum átt með þér og afa. Sérstaklega minnumst við heimsókna ykkar í Efri-Múla þegar við vomm minni. Þá fylgdum við ykkur eins og skuggar og gleyptum í okkur allan þann fróð- leik sem þið miðluðuð til okkar m.a. í formi frásagna frá fyrri tímum. Einnig minnumst við heimsókna til ykkar bæði á Einarsnesið og svo síð- ar i Raftahlíðina þar sem þú bauðst ávallt upp á kleinur og annað heima- bakað góðgæti með bros á vör. Ég er sérstaklega þakklát fyrir tímann sem við tvær áttum saman á Svalbarðseyri síðastliðið haust. Þar sem við ræddum um lífið og tilver- una fyrr og nú, flæktumst um og styrktum böndin á milli okkar. Elsku 'amma, við eigum eftir að sakna þín en það er léttir að vita að nú ertu hjá afa og við vitum að ykkur líðurvel. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. GekkstþúmeðGuði, Guð þér nú fylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt (V. Briem.) Elsku pabbi, mamma og aðrir aðstandendur, guð styrki okkur í sorginni. Ingibjörg Margrét, Einar Hólm, Agnar Þór og Qölskyldur. Nú ertu farin frá okkur, Ásta mín, og þá langar mig að bera fram nokk- ur vanmáttug orð. Við höfum nú ekki þekkst nema rúm tíu ár, sem er ekki stór hluti af þinni löngu ævi. En mig langar að þakka þér fyrir hvað þú tókst mér vel þegar ég kom inn í fjöl- skylduna. Því þótt þú hefðir nokkuð ákveðnar skoðanir á mönnum og málefnum kom okkur fljótlega vel saman. Við tókum hvor annarri með jafnaðargeði; með kostum og göllum. Og þú gafst mér hlutdeild í lífi þínu, í lífi konu sem hefur lifað tímana tvenna og reynt svo margt um langa ævi. Nú þegar þú ert farin sé ég svo ljóslega verkin þín allt í kringum mig og þau minna mig á þig. Þú varst sjaldan iðjulaus og hjálpaðir mér æv- inlega þegar þú komst í heimsókn, enda vissirðu sem var, að sauma- skapur, pijón og bakstur vora ekki mínar sterku hliðar. Oft kom ég líka í heimsókn til þín með sitthvað sem þurfti að laga og alltaf tókstu mér vel og varst ekki spör á handtökin, þótt þau væm orðin mörg hjá þér um æv- ina. Svo í fyrrasumar þegar ég eign- aðist drenginn minn komstu til okk- ar og við áttum yndislegar stundir saman og þú miðlaðir mér af reynslu þinni. Þú dróst hvergi af þér; pijón- aðir litla leista, bakaðir fyrir skímina hans, saumaðir fyrir mig og gerðir við, þó að heilsan væri farin að bila og kjarkurinn stundum líka. Sagðir mér líka margt yfir kaffibollanum úti í garði, margt sem ég óttast nú að gleyma þar sem ég get ekki spurt þig aftur í bráð og ekkert verður af því að ég sæki þig í aðra heimsókn í sum- ar, eins og ég var þó búin að lofa. Ég reyni nú samt að vera ekki með eftirsjá heldur vera þakklát fyr- ir þann tíma sem við þekktumst. Ég veit að eftir langt dagsverk hlýtur hvfldin að vera góð og ljúft að fara á vit Föðurins. Þar bíða líka ástvinir sem þú saknaðir svo mikið, þar tekur Agnar þinn á móti þér og börnin þrjú sem þú lifðir. Um síðir kem ég líka og þá getum við spjallað aftur, um hvernig lífið gengur í sveitinni. En þangað til segi ég: Þakka þér fyrir og góða ferð. Þín Eydís. Fallin er frá mikil sómakona, hún Ásta á Heiði. Okkur systkin langar til að minnast hennar með þakklæti í örfáum orðum, hennar sem bætti við sinn stóra barnahóp okkur systkin- um úr Reykjavík til sumardvalar í mörg sumur, og sinnti okkur sem sín eigin væm. Á Heiði var alla jafna vel á annan tug heimilisfólks og fátt ef nokkuð af nútímaheimilistækjum til að létta störfin og segir sig sjálft að vinnudagur húsfreyju hefur oftast verið langur og frídagar fáir ef nokkrir. En Ásta bjó vel að fyrri gerð, kemur úr stómm systkinahópi og hefur snemma þurft að axla ábyrgð enda var allt sem hún tók sér fyrir hendur leyst af stakri prýði og jafnlynd var hún á hverju sem gekk. Ekki verður Ástu minnst án þess að geta Agnars eiginmanns hennar enda vora þau ævinlega nefnd í sömu andrá. Agnar var þessi klettur sem fátt haggaði, traustur, glaðlyndur og einstaklega barngóður. Saman unnu þau hjón hvarvetna virðingu sam- ferðafólks síns fyrir samheldni og gestrisni. Saman unnu þau úr sorg- inni ekki síður en gleðinni, þau misstu aldrei sjónar af hinum rétta vegi. , c Alla tíð fylgdist Ásta með gengi okkar systkina enda trygg sínum. Eftir að þau hjón bragðu búi, hehn- sóttum við Ástu nokkmm sinnum í Raftahlíðina á Króknum, þar hafði hún ræktað garðinn sinn og þar var sama handbragðið sem við þekktum frá fyrri tíð. Börnum hennar og fjölskyldum þeirra sendum við innilegar samúð- arkveðjur. Vertu sæl og blessuð sé minning þín. Bára og Óskar. Elsku amma, það var svo sárt að heyra að þú værir farin frá okkur, en við vitum að nú líður þér betur og hann afi okkar hefur tekið vel á móti þér. Það gleymist aldrei þegar við komum til ykkar afa í Einarsnesið með strætó og kisan Monsa var með okkur í ferðinni innanklæða. Við minnumst þess þegar afi fór með okkur strætóhringinn með leið 5 en okkur fannst það mjög gaman. Við munum líka eftir því að hvað Sonju þótti gaman að fá að fara í bað hjá ömmu sinni og afa þegar hún kom í heimsókn, og leika sér að kubbunum og spila með afa sínum og ömmu. Eftir að þið fluttuð aftur norður var Palli hjá ykkur eitt sumar en þá var hann að vinna í unglingavinnunni fyrir norðan en þeim tíma er ekki hægt að gleyma þar sem amma var alltaf tflbúin með Ijúffengan mat þegar hann kom heim úr vinnunni. Síðan vora það allar lopapeysurn- ar, vettlingamir og sokkamir sem amma pijónaði á okkur og gaf okkur svo í afmælis- eða jólagjöf því afmæl- um okkar gleymdi hún aldrei. Það var alltaf svo gaman að koma til þín hvenær sem var og em það '* ógleymanlegar stundir. Aldrei geta þessar góðu stundir gleymst. Þær verða ávallt í huga okkar. Megir þú hvfla í friði, elsku amma. Sonja og Páll. + Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma, dóttir og systir, NÍNA GUÐRÚN SIGURJÓNSDÓTTIR innheimtustjóri, Vegghömrum 6, Reykjavík, lést föstudaginn 21. júl(. Jarðarförin verður auglýst síðar. Kjartan Reynir Hjaltason, Linda K. Páisdóttir, Stella Ósk Hjaltadóttir, Halldór Gunnlaugsson, Alexander, Aðalsteina Líf og Ágúst Freyr, Sigurjón K. Níelsen, Elfn Sæmundsdóttir, Gísli Sigurjónsson, Jóhanna H. Bjarnadóttir, Guðmundur P. Sigurjónsson, Þóra B. Ágústsdóttir, Birgir Sigurjónsson, Laufey Sigurðardóttir, Ósk Sigurjónsdóttir, Stefán Ö. Magnússon, Sigurjón S. Níelsen, Helga Hillers. + Elskulegur eiginmaður minn, faðir, stjúpfaðir, tengdafaðir, frændi og afi, BIRGIR STEINÞÓRSSON, Hvassaleiti 58, Reykjavfk, andaðist á Landspítalanum í Fossvogi fimmtudaginn 20. júlí. Kristín Ingimundardóttir, Brynja Ríkey Birgisdóttir, Garðar Berg Guðjónsson, Ragnheiður Magnúsdóttir, Birgir Aðalsteinsson, Steinunn Guðjónsdóttir, Kristfn Stefánsdóttir, Ólafur Ingþórsson, Anna Bryndís Óskarsdóttir, Birgir Karl Óskarsson, Alexander Berg Garðarsson, Birgitta Ríkey Garðarsdóttir, Ylfa Rakel Ólafsdóttir, Arna Rín Ólafsdóttir.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.