Morgunblaðið - 22.07.2000, Qupperneq 55
MORGUNBLAÐIÐ
I DAG
Arnaö heilla
A A ÁRA afmæli. í dag,
iU laugardaginn 22. júlí,
verður fertug Olöf Heiður
Þorsteinsdóttir skrifstofu-
maður, Vindási 4, Reykja-
vfk. Ólöf er að heiman í dag.
BRIDS
llin.sjón GuAmnndur
Páll Aruurson
HÉR er enn eitt spilið úr
hinum mikilvæga leik
Norðmanna og Israels-
manna á EM ungmenna. I
gær sáum við Norðmenn
vinna 15 IMPa í sögnum,
en hér tapa þeir 12 IMPum
í spili, sem vekur ekki síður
„sagnfræðileg" álitamál og
spurningar um sekt og sak-
ieysi:
Norður gefur; enginn á
hættu.. „
Norður
* KD74
¥ Q82
♦ AK107
* 96
Vestur Austur
* G109853 a Á
¥ K64 ¥ 1053
♦ 2 »98
A ÁG7 A KD108542
Suður
A 62
¥ ÁD97
♦ DG6543
A 3
Lokaður salur:
Vestur Norður Austur Suður
Schneider Charlsen Roll Ellestad
- 1 tígull 3 lauf Dobl *
Pass 3 spaðar Pass 4 tíglar
Pass Pass Pass
Fjórir tíglar unnust slétt -
130 til Norðmanna - sem
er í sjálfu sér góður árang-
ur hjá Charlsen og Elle-
stad. Dobl Ellestad var
neikvætt og hann var að
vonast eftir hjartasögn frá
makker, en þegar hún kom
ekki hrökklaðist hann í
fjóra tígia og þar við sat.
Þetta lítur út eins og „full-
kominn brids“, en einhvers
staðar er eitthvað að.
Hvar?
Hvers vegna í ósköpun-
um þegir vestur? Af hverju
lyftir hann að minnsta kosti
ekki í fjögur lauf? Það má
vinna fímm lauf í AV með
því að trompsvína fjmir KD
í spaða, en það virðist all-
tént óhætt að setja nokk-
urn þrýsting á mótherjana
með þvi að hækka í fjögur.
Það var í opna salnum
sem ósköpin dundu yfir:
Vestur Norður
Harr Vax
1 tígull
3 spaðar Pass
ð spaðar Dobl
Austur Suður
Kvangraven Amit
2 lauf 3 lauf *
Paas 4 tíglar
Pass Pass
Kvangraven velur að segja
tvö lauf, frekar en þrjú,
sem er spurning um stíl.
Amit gefur þá áskorun í
tígulgeim með þvi að melda
ofan í lit austurs og síðan
blandar Harr sér í málin
með þriggja spaða sögn?
Spurning: Lofar sú sögn
óbeint stuðningi við laufíð?
Kannski hefur Harr litið
svo á, því varla er hægt að
skilja fjögurra spaða sögn
hans í næsta hring nema í
því ljósi. Vörnin gegn fjór-
um spöðum var miskunnar-
laus og ísraelar uppskáru
800.
Leikurinn endaði með 16-
14 sigri Norðmanna, í síð-
ustu umferðinni unnu þeir
Itah 20-10 og tryggðu sér
þar með 1. sætið.
Q ff ÁRA afmæli. I dag, laugardaginn 22. júlí, verður átta-
O tJ tíu og fimm ára Benedikt Þorvaldsson, húsasmiður
frá Hólmavík, Dvergabakka 4, Reylgavík. Eiginkona hans
er Matthildur Guðbrandsdóttir frá Broddanesi í Stranda-
sýslu. Þau eiga einnig fimmtíu og fimm ára hjúskaparafmæli
24. desember nk. I tilefni afmælanna bjóða þau ættingjum og
vinum til afmælishóf í sal Félags sjálfstæðismanna, Hvera-
fold 1-3, Grafarvogi, frá kl. 17-20 í kvöld.
Q A ARA afmæli. I dag,
OU 22. júlí, verður átt-
ræður Már Jóhannsson,
skrifstofusijóri Sjálfstæðis-
flokksins. Eiginkona Más er
Helga Sigfúsdóttir. Þau
hjónin munu eyða deginum í
návist vina og vandamanna í
brúðkaupi sonardóttur sinn-
ar, Sigrúnar Helgu Ómars-
dóttur og Svein Erik Rud.
f7A ÁRA afmæli. í dag,
I U laugardaginn22.júlí,
verður sjötug Guðný Kristfn
Guðnadóttir, Aðalgötu 3,
Suðureyri. Eiginmaður
hennar er Einar Guðnason,
skipstjóri. Þau verða með
heitt á könnunni í sal Verka-
lýðs- og sjómannafélagsins
Súganda frá kl. 15-18 á af-
mælisdaginn.
P A ÁRA afmæli. í dag,
O VI laugardaginn 22. júlí,
verður fimmtugur Daniel
Júlfusson, rafeindavirki,
Leynisbrún 1, Grindavík.
Eiginkona hans er Elísabet
Sigurðardóttir. Daníel
verður að heiman á afmælis-
daginn.
DEMANTSBRÚÐKAUP. í dag, laugardaginn 22. júlí, eiga
60 ára hjúskaparafmæli hjónin Gunnhildur Jónsdóttir og
Guðmundur Pétursson frá Ásgarði í Miðneshreppi, nú bú-
sett í Miðhúsum í Sandgerði. Þau eignuðust 11 börn, 9
þeirra eru á lífi og afkomendur þeirra eru nú orðnir 62.
UOÐABROT
SVANURINN MINN SYNGUR
Svanurinn minn syngur.
Sólu ofar hljóma
ljóðin hans og heilla
helgar englasveitir.
Blómin löngu liðin
líf sitt aftur kalla.
Fram úr freðnum gljúfrum
fossar braut sér ryðja.
Svanurinn minn syngur
sumarlangan daginn:
Svífur sælli’ en áður
sól um himinboga. -
Ein er þó, sem unni
of-heitt til að kætast;
svansins löngu leiðir
laugar hún í tárum.
Halla Eyjólfsdóttir.
STJÖRNUSPÁ
eftir Frances Urake
KRABBI
Afmælisbam dagsins:
Þú ert djarfur oghraustur
og það fellur félögum þínum
vel ígeð, nógu vel til þess að
líta fram hjá göllunum.
Hrútur
(21. mars -19. apríl)
Fólk lítur til þín um forustu og
þú vilt ógjaman valda því von-
brigðum. En stundum verður
þú að hugsa um sjálfan þig og
láta annarra hagsmuni róa.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Það er oft lærdómsríkt að vera
baksviðs og fylgjast með því
sem gerist á bak við tjöldin.
Forðastu umfram allt árekstra
við samstarfsmenn þína.
Tvíburar _
(21. ihaí - 20. júní) An
Þú þarft ekkert að óttast það
að heQa samræður um hin
ýmsu málefni því þótt þér
finnist annað þá ert þú vel
undir rökræður búinn.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Það skiptir öllu máli að þér
takist að halda þér utan við
deilur sem geysa á vinnu-
staðnum. Hafðu þitt á hreinu
og fáðu fyrirskipanir skriflega
ef með þarf.
Ljón
(23.júh'-22. ágúst) m
Það er ekkert vit í öðru en að
þú reynir að safna saman fólki
sem sækir að sama markmiði
og þú því þótt þú sért
hæfileikaríkur þá er þetta
ekki eins manns verk.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.) (filL
Eins og það er gaman að um-
gangast aðra þá er líka nauð-
synlegt að vera einn út af fyrir
sig og fara í gegnum málin í
rólegheitum frá a til ö.
(23. sept. - 22. okt.) m
Það er um að gera að ráðast
strax á vandamálið en láta það
ekki breiða sig út yfir allt og
alla. Láttu þér ekki bregða þótt
miklar kröfúr séu til þín gerðar.
Sporðdreki
(23. okt.-21.nóv.)
Það er ekki nema ein leið til
þess að tryggja árangur og
hún er að búa sig sem best
undir framkvæmdina og
skiptir þá engu máli hvort
verkið er stórt eða smátt.
Bogmaður _.
(22. nóv. - 21. des.) cllO
Þú þarft að tryggja að skoðan-
ir þínar komist á framfæri.
Talaðu tæpitungulaust svo öll-
um megi vera ljóst erindi þitt
hvort sem þeim hkar það bet-
ur eða verr.
Steingeit
(22. des. -19. janúar)
Einhveijir brestir komnir í
persónuleg sambönd þín svo
þér er eins gott að bregðast
við hart og ganga þannig frá
málum að þú þurfir ekkert að
óttast.
Vatnsberi
(20.jan.-18. febr.)
Þótt þér falli hlutimir vel í geð
er ekki þar með sagt að aðrir
séu jafn hrifnir. Láttu það þó
ekkert á þig fá því það er þín
tilfinning sem skiptir mestu
máli.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Það er einhver ringulreið í
lanngum þig og þú mátt hafa
þig allan við til að verjast
ágjöfinni. Haltu ró þinni hvað
sem á dynur.
Stjömuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindaíegra staðreymda.
LAUGARDÁGUR 22. JÚLÍ 2000 55^
FRETTIR
Frá heyannadegi 1999.
Heyannir í Árbæ
TÚNIÐ við Árbæ verður slegið
með orfi og ljá sunnudaginn 23.
júlí á milli klukkan 14 og 17 ef
veður leyfir. Þá verður rakað, rifj-
að, tekið saman og bundið í bagga.
Gestir eru hvattir til að taka þátt í
heyskapnum.
Einnig verður hefðbundin dag-
skrá, gullsmiður smíðar og sýnir
skart í húsinu Suðurgötu 7 og í
Árbænum verða bakaðar lummur.
Á baðstofulofti verður roðskógerð
og pijónaskapur. Um klukkan
fimm verður kýrin Skrauta hand-
mjólkuð. Harmóníkan verður þan-
in við Árbæ og Dillonshús en þar
er boðið upp á ljúffengar veiting-
ar.
Söngnámskeið
í Borgarnesi
MARIA Teresa Uribe, alþjóðlegur
listamaður, kemur til að leiðbeina
borgfirskum söngvurum og söng-
nemendum dagana 27. júlí til 10.
ágúst. Námskeiðið verður haldið í
Borgarnesi.
Maria Teresa er fædd og uppalin í
Chile, en stundaði söngnám í Fránz
Liszt-tónlistarakademíunni í Buda-
pest. Eftir útskrift þaðan starfaði
hún sem óperusöngvari við Ríkis-
óperuna þar í borg til margra ára,
auk þess að taka þátt í óperu-
uppfærslum víða í Evrópu. Hennar
helstu óperuhlutverk eru Aida í
samnefndri óperu, Leonora í Valdi
örlaganna og Trúbadomum eftir
Verdi auk margra annarra. Fyrir
tveimur árum fékkhún stöðu sem
kennari við Kennaradeild Franz
Liszt-tónlistarakademíunnar.
Fyrsti dagur námskeiðsins hefst
Aðsendar greinar á Netinu
vf§> mbl.is
kl.10 og er opinn öllum þar sem sér-
stök áhersla verður lögð á hreyfingu
og tjáningu með söng í hópi og einn
á sviði. Söngtímamir em ætlaðir
söngvumm og lengra komnum nem-
endum (5. stig og ofar) en almenn-
ingi er boðið til áheymar.
Að námskeiðinu stendur Dagrún
Hjartardóttir, söngkennari við
Tónlistarskóla Borgarfjarðar.
\LLTAf= eiTTHVAÐ /SiYTT
TS]
Heiðmörk 50 ára
Skógarganga
Sunnudaginn 23. júlí kl. 13.30 verður
ganga um skóglendi Heiðmerkur, skóg-
urinn skoðaður og nánasta umhverfi.
Yfirskriftin er Skógur í sumarbún-
ingi. í ferðinni verða skógfræðingar
ásamt umsjónarmönnum svæðisins.
Boðið verður upp á rútuferð frá Mörk-
inni 6 kl. 13.00. Gengið verður frá plan-
inu sem er austast á Heiðarvegi. Þeir
sem koma á einkabílum mæti þar. (Sjá
kort á www.heidmork.is)
Ferðafélag íslands
Skógræktarfélag Reykjavíkur
Skógræktarfélag íslands
www.heidmork.is.