Morgunblaðið - 22.07.2000, Qupperneq 56
.>56 LAUGARDAGUR 22. JÚLÍ 2000
MORGUNBLAÐIÐ
FÓLK í FRÉTTUM
Futurice í Bláa lóninu 11.-12. ágúst
>-piN VIÐAMESTA tískusýn-
1-^ ing sem haldin hefur verið á
1 A íslandi verður sett á svið í
Bláa lóninu dagana 11. og 12. ágúst
næstkomandi. Borið verður á borð
það sem hæst ber í íslenskri fata-
hönnun um þessar mundii- og munu
allir færustu hönnuðir landsins taka
þátt í sýningunni auk heimsþekktra
hönnuða á borð við Jeremy Scott og
Tristan Webber.
Þórey Viihjálmsdóttir og Asta
Kristjánsdóttir, framkvæmdastjórar
Eskimo models, eru forsprakkar að
Futurice sem haldin er í samvinnu
'~Ttvið Reykjavík, menningarborg
Evrópu árið 2000 og er einn af
stærstu dagskrárliðum hennar.
Til þess að gera sýninguna sem
besta úr garði leituðu þær til Daggar
Baldursdóttur sem rekur eigið íyrir-
tæki í London, Élan Fashion Pro-
motion, sem sér um framkvæmd
tískusýninga af þessu tagi og hefur
margra ára reynslu við uppsetningu
á sýningum frægustu hönnuða heims
á borð við Versace, Tommy Hillfiger,
Moschino og fleiri. Auk þess starfaði
Dögg um árabil hjá fyrirtæki sem sér
um framkvæmd tískuvikunnar í
London sem haldin er tvisvar á ári og
hlýtur gífurlega athygli í fjölmiðlum
um allan heim.
~ -Jf"
Það sem best gerist
í íslenskri hönnun
„Markmiðið með Futurice er að
kynna það sem best gerist í íslenskri
hönnun og koma landinu á framfæri
sem marktæku landi hvað varðar
hönnun, tónlist og annað sem tengist
því,“ segir Dögg.
Hún segir að samstarf hennar og
Eskimo models í þessu tilfelli sé til
komið vegna þess að ekki er til íyrir-
tæki á íslandi sem hefur þá reynslu
og þekkingu sem þarf til þess að
• setja á svið tískusýningu á heims-
mælikvarða eins og ætlunin er að.
gera með Futurice. Hún segir það þfi
skiljanlegt að sérþekking sem þessi
sé ekki til á Islandi þar sem markað-
urinn er jafn lítill og raun ber vitni.
„Við vildum hins vegar nýta eins
mikið af íslensku vinnuafli og mögu-
legt er, án þess þó að þurfa að gefa
nokkurs staðar eftir.“
íslenskir fagmenn erlendis
fengnir til samstarfs
Stofnað var til samstarfs við færan
íslenskan hárhönnuð og förðunar-
meistara sem starfar í London, Karl
Berndsen, og Steinunni Sigurðar-
dóttur sem starfaði fyrir Tom Ford
^j-hjá Gucci-tískuhúsinu. Steinunn hef-
ur verið að aðstoða íslensku hönnuð-
ina sem taka þátt í sýningunni við
Mi:i> FIILLIU RKISX
Sýnt í Tjarnarbíói
Sýningar hefjast kl. 20.30
Frumsýning í kvöld fös. 21/7. Uppselt.
2. sýn. sun. 23/7, örfá sæti laus
3. sýn. fös. 28/7
4. sýn. lau. 29/7
5. sýn. fös. 11/8
6. sýn. lau. 12/8
Miðapantanir í síma 561 0280.
Miðasala er opin í Tjamarbíói,
Tjarnargötu frá kl. 12—18.
Miðinn aildir sem 2 fvrir 1 á Araentínu steikhús.
^ Ath. ósóttar pantanir, seldar 2 dögum f. sýn.
IJBIKFÉLAG íslands
INn 5523000
THRILLER sýnt af NFVÍ
fös. 28/7 kl. 20.30 aukasýning
530 303O
tfð BJÖRNINN — Hádegisleikhús
með stuðningi Símans
4 jftfJA lau. 22/7 kl. 12
Í IPIlU mið. 26/7 kl. 12
fim. 27/7 kl. 12
fim. 3/8 kl. 12
þri. 15/8 kl. 12
ATH Aðeins þessar sýningar
Miðasalan er opin frá kl. 12-18 I loftkastalanum
og frá kl. 11-17 (Iðnó. Á báðum stöðum er opiö
fram að sýningu sýningarkvöld og um tielgar þegar
sýning er. Miðar ðskast sóttir I viðkomandi leíkhús.
(Loftkastalinn/lðnó).
Ath. Ósóttar pantanir seldar 3 dögum fyrir sýningu.
fLondon
Tíska og tdnlist á
heimsmælikvarða
*
I ágúst mun eiga sér stað einn stærsti hérlendi tískuviðburður
frá upphafí, Futurice, sem haldinn verður í Bláa lóninu og munu
færustu hönnuðir landsins sýna þar afrakstur erfiðis síns. Dögg
Baldursdóttir, sem rekur eigið fyrirtæki í London sem sérhæfir
sig í framkvæmd tískusýninga, er einn af skipuleggjendum
sýningarinnar. Sigríður Dögg Auðunsdóttir hitti hana í
____heimsborginni og fræddist um viðburðinn.
þeirra vinnu. Dögg segist vera
himinlifandi yfir því að hafa
fengið framúrskarandi íslenskt
fagfólk til liðs við verkefnið.
„Það er alveg frábært að hafa
náð saman þeim fáu íslend-
ingum sem hafa margra ára
reynslu í að vinna við tísku-
sýningar erlendis og að geta
nú nýtt þá reynslu til að
koma Islandi á framfæri,"
segir hún.
„Það er mikilvægt í verk-
efni sem þessu að kóma upp
ákveðnum kjama af fólki
sem eru sérfræðirigar á
sínu sviði. Það er ekki hægt
að halda góða tískusýningu
án þess að geta byggt á
góðu fólki. Strax frá upp-
hafi var ákveðið að sýn-
ingin yrði fyllilega sam-
bærileg því sem best
gerist erlendis og hvergi
yrði slakað á í kröfum.
Því völdum við færasta
fólk sem völ var á í hvert
lykilhlutverk, en þurft-
um einnig að leita út
fyrir landsteinana að
fólki með nægilega
reynslu."
Munu flytja inn
nokkur módel
Sem dæmi þarf að
flytja inn um sex af
tuttugu og fjórum
sýningarstúlkum
sem munu taka þáttí
tískusýningunni. „I
hverri sýningu
byggist sýningarhóp-
urinn á nokkrum mjög vönum sýn-
ingarstúlkum sem gera ekkert nema
sýna alla daga,“ útskýrir Dögg og
ymnga.
Dö^Baidursddttfrrekurf -
Tilboð til klúbbfélaga
Landsbanka íslands hf.
Rex__________________________________
Tveir fyrir einn á kvöldverði á Rex.
Tilboðið gildir frá sunnudegi til fimmtudags.
Afsláttur í golf_____________________
Félagsmenn Vörðunnar, Námunnar,
Sportklábbs og Krakkaklábbs
Landsbankans njáta 25% afsláttar af
vallargjöldum hjá GR.
Orlando------------------------------
Vörðufélagar fá ferð til Orlando í 8 eða 15
daga á einstökum kjörum 6. nóv. og til
baka 14. eða 21. nóv.
Hundar étnir í Kína__________________
Vörðufélagar fá afslátt á myndina Hundar
étnir í Kína (I Kina spiser de hunde) í
Háskólabíói - miðinn á 450 kr.
Öll tilboðin fást gegn framvísun debet-
korts/félagskorts í viðkomandi klúbbi.
Ymiss önnur tilboð og afslættir bjáðast
klúbbfélögum Landsbanka íslands hf. sem
finna má á heimasíðu bankuns,
www.landsbanki.is
segir að erfitt hafi reynst að finpa
nógu margar reyndar stúlkur á ís-
landi. „Sýningin stendur og fellur að
miklu leyti með módelunum," segir
hún, „og því urðum við að setja mark-
ið hátt og gera miklar kröfur. Það er í
raun ekki undarlegt að ekki tókst að
finna öll módelin á íslandi, því flestar
sýningarstúlkur þar vinna við sýn-
ingarstörf í hlutastarfi og hafa því
ekki þá reynslu sem til þarf.“
„Módelin einskorðast ekki við
Eskimo models-skrifstofuna," segir
Dögg, „heldur var haldið svokallað
„Open Casting“.“ Auglýst var eftir
þátttakendum sem síðan fengu tæki-
færi til að reyna að komast í hóp.sýji-
ingarstúlkna á Futurice. , ý{>
Jákvætt að fá erlent
fagfólk tíl landsins
„Það er í rauninni afar jákvætt að
fá fagfólk á þessu sviði til landsins
sem getur síðan miðlað af þekkingu
sinni,“ segir Dögg ennfremur. Hún
ætlar jafnframt að taka með sér
svokallaða skápadömu, eða „war-
aFfr
■
drobe mistress", sem sér algjörlega
um að skipuleggja aðstoð við sýning-
arstúlkurnar þegar þær klæða sig.
„Á tískusýningum erlendis eru
mjög skýrar vinnureglur varðandi
þetta,“ útskýrir Dögg. „Fjöldi eldri
kvenna, sem kallaðar eru „dressers11,
starfar eingöngu við að klæða sýn-
ingarstúlkumar baksviðs og gera
það undir stjórn „wardrobe mist-
ress“. Fyrir Futurice munum við
vinna með íslenskum konum til þess
að aðstoða við að klæða en mjög vön
skápadama mun kenna þeim hand-
brögðin og fræða þær um vinnuregl-
ur.“
Einnig kemur til landsins einn
færasti ljósahönnuður heims á sviði
tískusýningá að sögn Daggar. Hann
mun sjá um ijósahönnun sýningar-
innar en sér til aðstoðar verður hann
með íslenska ljósamenn.
Sambland af
skipulagningu og sköpun
Starf Daggar felst í alhliða sviðs-
setningu á sýningunni, allt frá bygg-
M
Mk UMHimirr Landsbankinn EIEiEia Opia frá 9 til 19
Nœturgatinn
sími 587 6080
Dúndrandi dansleikur með hljómsveitinni
Sín.
Næturgalinn, alltaf lifandi danstónlist
ingu á sviði til vals á sýningarstúlk-
um. Hún segir það sambland af
skipulagningu og sköpun þar sem oft
sé hún einráð um val á fötum á sýn-
ingunum sem hún stjómar.
Ennfremur sér hún um kynningu
á sýningunni og aðstoðar við að koma
henni á framfæri við fjölmiðla. Hins
vegar séu yfirleitt ráðin sérstök al-
mannatengslafyrirtæki sem sjá al-
farið um fjölmiðlatengsl og það sé
ennfremur gert í þessu tilfelli.
„Eitt hið mikilvægasta við
tískusýningar er val á dagsetningu,"
segir Dögg, „og það er það fyrsta
sem þarf að ákveða. Síðan þarf að
velja nafn á sýninguna og skapa
heildarhugmynd fyrir hana. Það þarf
að ákveða hvert sé markmiðið með
sýningunni og nákvæmlega hvað sé
verið að kynna. í þessu tilfelli viljum
við koma Islandi á framfæri sem
virku landi á sviði tísku og tónlistar,"
útskýrir hún.
Mikið til af góðum íslenskum
hönnuðum
Hún segir að mikið sé um góða ís-
lenska hönnuði um þessar mund-
ir en vandamál þeirra sé hversu
erfitt er að koma sér á framfæri.
Af 70 umsækjendum voru fjór-
ir hönnuðir valdir úr hópnum. Það
eru SVO, Aftur, Sæunn og Ragna
Fróða og munu þær allar sýna
fatnað sinn á föstudagskvöldinu
auk Jeremy Scott. Þá mun Móa
flytja tónlist auk Gus Gus og einnig
mun Björk leggja sitt af mörkum til
þess að gera kvöldið sem eftir-
minnilegast.
A laugardag verður haldin sam-
sýning sjö óþekktra, ungra hönnuða
sem voru valdir úr hópi umsækjenda.
Það eru þær Þuríður Rós Sigurþórs-
dóttii-, Hugrún Dögg Arnadóttfr,
María Ólafsdóttir, Ragnheiður Guð-
mundsdóttir, Þórbjörg Valdimars-
dóttir, Bergþóra Magnúsdóttir og
Brynja Emilsdóttir.
Éinnig munu hönnuðir frá Hels-
inki og Bergen taka þátt í sýningunni
fyrir tilstuðlan Nordic kultur fund og
ennfremur mun Tristan Webber
sýna á laugardaginn en að sögn
Daggar hefur hann hlotið heims-
frægð á skömmum tíma vegna frá-
bærra sýninga á tískuvikum í
London. Bang Gang munu sjá um
tónlistarflutning á laugardag.
Umgjörð sýningar-
innar mikilvæg
„Til þess að vekja áhuga á íslensk-
um hönnuðum þarf að kynna um-
gjörð sýningarinnar þannig að fjöl-
miðlar sjái ástæðu til að mæta. Fjórir
óþekktir íslenskir hönnuðir einir sér
laða ekki að sér mikinn fjölda blaða-
manna nema umgjörðin sé því
áhugaverðari," segir Dögg.
„Ennfremur þarf að skipuleggja
nokkuð stífa dagskrá milli sýninga
þannig að það henti fjölmiðlafólkinu
og viðhaldi áhuga þeirra."
Sýningin er sérstaklega sniðin
með erlenda gesti í huga. Dögg segir
fjölmiðla í Bretlandi hafa sýnt sýn-
ingunni einstakan áhuga og raunin
sé sú að færri komist að en vildu. Á
sýninguna munu mæta fulltrúar
tímarita á borð við breska og banda-
ríska Vouge, Marie Claire, Elle, ID,
Numero, Visionaire, Nova, Face,
DazeD & Confused og dagblaða á
borð við Times, Telegraph, Observer
og Guardian. Einnig verða kvik-
myndatökuhópar frá MTV og
Channel 4 í Bretlandi á staðnum.
Fulltrúar fjölmiðlanna munu taka
þátt í þéttskipaðri dagskrá sem teyg-
ir sig yfir alla helgina og felur í sér
ýmislegt fleira en tískusýninguna
eingöngu. „Farið verður með fólk í
jöklaferðir, hestaferðir og aðra úti-
vist, auk þess sem haldnar verða
veislur að loknum sýningum," segir
Dögg.
Hún segir að neyðst hafi verið að
snúa fólki frá, því húsnæðið taki ekki
nema takmarkaðan fjölda. „Futurice
verður hins vegar hér eftir gert að
árlegum viðburði og munum við
skipuleggja sýninguna á næsta ári í
samræmi við þann gífurlega áhuga
sem henni var sýnd í ár. Sýningin á
næsta ári verður því enn stærri og
viðameiri en sú sem verður haldin
núna.“