Morgunblaðið - 22.07.2000, Síða 57

Morgunblaðið - 22.07.2000, Síða 57
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 22. JÚLÍ 2000 57 . - .......... mmf ' MYNDBOND Fullmikil gelgja Fallnir englar (Dogma) Gamanmynd ★★ Leikstjjóm og handrit: Kevin Smith. Aðalhlutverk: Linda Fiorentiono, Ben Affleck, Matt Damon, Alan Rickman, ofl. (128 mín) Bandaríkin, 1999. Skífan. Bönnuð innan 16 ára. KEVIN Smith hefur markað sér bás í óháða kvikmyndageiranum í Bandaríkjunum með húmorískum myndum sem uppteknar eru af af- þreyingarmenningu og mis-gáfuleg- um samtölum. Um leið höfða myndir hans kannski einna best til unglings- pilta, en það á tví- mælalaust við nýj- ustu mynd hans, Dogma. Hér er um mjög hugmynda- ríka sögusmíð að ræða, en aðalper- sónur myndarinn- ar flækjast inn í innanríkismál himnaríkis og kunna afleiðingamar að reynast ansi alvarlegar fyrir jarð- arbúa. Aðalskaðvaldamir em tveir fallnir englar sem leggja á ráðin um að komast aftur inn um Gullna hliðið. Smith bregður á leik með kennisetn- ingar kaþólsku kirkjunnar án þess að ýkja djúp hugsun liggi alltaf að baki. Myndin er skemmtileg framan af en fatast flugið í seinni hlutanum og sérstaklega em endalokin óstíl- hrein og valda vonbrigðum. Leikarar era prýðilegir en þeir félagar Jay og Þögli-Bob, sem þekktir era úr fyrri myndum Smiths, eiga illa heima í þessari sögu. Þegar öllu er á botninn hvolft er það gelgjuleg meðhöndlun Smiths á nokkuð efnilegri sögu sem situr eftir og verður henni að falli. Heiða Jóhannsdóttir Tryggðaböndin rofín Snaran (Noose)__________________ Spennumynd ★★% Leikstjóri: Ted Demme. Handrit: Mike Armstrong. Aðalhlutverk: Denis Leary, Famke Janssen, Ian Hart. (90 mín.) Bandaríkin 1998. Háskólabíó. Bönnuð innan 12 ára. IToosei EINHVERS staðar var þetta lát- lausa glæpadrama kallað „hið írska Mean Streets“. Ekki get ég nú skrif- að undir þá samlíkingu þótt efnivið- urinn sé vissulega af svipuðu sauða- húsinu. Eitt eiga myndimar þó sam- eiginlegt - þjóðar- einkennatuggum- ar margtuggðu. Scorsese hefur margsinnis verið borið að sök að mála ítalska inn- flytjendur einhæf- um litum. Ted Demme leikstjóri Snörannar fellur í sömu gryfju og gerir sig margsinnis sekan um nokk- uð sem Irar kalla „blameý1, eða ein- hvers konar írskar þjóðareinkenna- kiisjur. Denis Leary leikur hér af miklum krafti smákrimma úr írska hverfinu í Boston. Fyrir smáaura fremur hann spellvirki fyrir stórlax hverfisins ásamt æskuvinum sínum, aðallega í því skyni að fjármagna sukksamt lífemi sitt. Þegar stórlax- inn gengur frá einum félaganna stendur Leary frammi fyrir þeirri samviskuspurningu hvort hann eigi að rjúfa tryggðaböndin við yfir- manninn eða vinskapinn við æskufé- lagann. Þetta er nokkuð spennandi framvinda sem býður upp á tals- verða dramatík. Leikm- skemmti- legrar blöndu af Bretum og Banda- ríkjamönnum ber hana þó uppi og gerir hana viðviksins virði. Skarphéðinn Guðmundsson FÓLK í FRÉTTUM SLIM-LINE Nýr leikari tekur við í X-Fiies Ráðgátan leyst MARGIR HAFA verið nefndir sem eftirmenn hins dularfulla Fox Mulder í Ráðgátunum. í áttundu þáttaröðinni verður nefnilega Fox karlinn numinn á brott af geimver- um og kemst þá vonandi aftur í faðm fjölskyldu sinnar. Til að hjálpa rauðbirknu leyniþjónustu- konunni Scully við leitina að Muld- er hefur leikarinn Robert Patrick verið ráðinn til starfans. Robert hefur helst unnið það sér til frægð- ar að hafa barist við vöðvafjallið Schwarzenegger í dómsdagsmynd- inni um Tortímandann þar sem hann var í hlutverki illa vélmennis- ins og hamskiptingsins úr framtíð- inni sem hafði það eitt að markmiði að drepa aumingja Edward litla Furlong, bjargvætt mannkyns. Þessi bakgrannur Roberts hefur líklega gert út um samkeppnina því hvað hefur pattaralegi söngvarinn úr La Bamba hann Lou Diamond Phillips til að bera gegn morðóða vélmenninu hans Roberts? Það á eftir að koma í ljós hvern- ig nýi liðsmaðurinn reynist Scully og eins gott að hún muni varnar- orðin góðu „treystu engum.“ Fingur réttvísinnar á lofti, dömubuxur frá gardeur Oáuntv tískuverslun v/Nesveg, Seltj., s. 561 1680 Meðgöngufatnaður Þuinalína, Pósthússtr. 13, súni 551 2136

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.