Morgunblaðið - 22.07.2000, Síða 60

Morgunblaðið - 22.07.2000, Síða 60
$0) LAUGARDAGUR 22. JÚLÍ 2000 MORGUNBLAÐIÐ * + r HASKOLABIO HASHSOLABID Hagatorgi, sími 530 1919 ókus ekkert vninna KVW1VIYMDI.R.IS Sýnd kl. 4,5.30, 8 og 10.30. B. i. 14. Vitnr. 105. ■TMGirAL FRUMSYNING Sýnd kl. 2,4,6,8 og 10. Leyfð öllum aldushópum. Vitnr. 109. ■Ewgital Sýnd kl. 2,4 og 6. Islenskt tal. Vit nr. 103. ■EMGnAL Sýnd kl. 2,4, 6, 8,10. Enskt tal. Enginn texti. Vit nr. 108. Sýnd kl. 10. B. i. 12. Vít nr. 102. ifaree toTango Sýnd kl. 4,6 og 8. Vit nr. 83. (sl.talkl. 1.50 og 3.45. Vit nr. 70. TXIzan Kaupið miða í gegnum VITÍð. Nánari upplýsingar á vlt.is Sýnd kl. 2 vi,nr'1 1rrt Morgunblaðið/Halldór Kolbeins Mick Hucknall verður varla í smókingnum á íslenska sveita- ballinu - eða hvað? Stórstjarnan Mick Hucknall staddur hér á landi Sveitaball ineð Simply Red SÚ SAGA flýgur nú fjöllum hærra að fríður flokkur erlendra stór- stjama sé staddur hér á landi í þeim erindagjörðum að skemmta sjálfum sér og öðrum valinkunnum íslenskum gestgjöfum þeirra. Nafn- togaðasta stjaraan sem nefnd hefur verið í þessu sambandi er vafalitið Mick Hucknall, söngvari og prímus- mótor hinnar heimsfrægu bresku sáiarsveitar Simply Red, og ku hann fyrst og fremst vera staddur hér í veiðiferð. f kvöld er sfðan áformað að halda glæsilegt sveita- ball i félagsheimili f nágrenni Reykjavíkur og kvisast hefur út að Hucknall hafi í hyggju að bregða sér upp á svið til að taka nokkra þekkta sveitabaliaslagara. Hvernig 'í*píli hann fari með „Utihátfð" Greif- anna? Lúdó sextett hitar upp fyrir Utangarðsmenn í kvöid P-ið sem Hæstirétt- ur dauðadæmdi Hann setti tvistinn út og breytti í spaða en nú er bara að sjá hvernig Utangarðsmennirnir svara þeim leik. Því í kvöld hitar Lúdó sextettinn upp fyrir Bubba og félaga í Laugardalshöllinni. Birgir Öm Steinarsson spjallaði við Stefán Jónsson söngvara um kvöldið og árin 40 í tónlistar- flórunni. ÞAÐ HLÝTUR að liggja í augum uppi að ef einhver endist í fjönitíu ár svamlandi um í tónlistarflóru Islands og það ekki með björgunarkút þá hlýtur sá hinn sami að hafa fundið ævilangan sálufélaga í tónaflóðinu. Það er líklegast ekki til afi eða amma á þessu landi sem ekki veit hver Stefán Jónsson er og hans framlag til þess að lyfta upp lífsanda þjóðarinnar ásamt sextettinum Lúdó. Það eru þó eitthvað færri af seinni tíma rokkkynslóðum sem hafa fengið almennilegt færi á því að sveifla fótum sínum um dansgólf- ið. En það er alls ekki of seint í gæs- ina gripið því svo einkennilega viil til að Lúdó sextett er ein þeirra þriggja sveita sem kemur til með að hita upp fyrir tónleika Utangarðsmanna í Laugardalshöllinni í kvöld. Aðrar sveitir sem ætla að koma hitastigi hallarinnar nægilega langt upp til þess að skallinn á Bubba svitni eru hljómsveit Páls Rósinkrans og góð- mennin í Kanada. Sextettinn og silfurbræðslan „Við köllum okkur ennþá „sextett" þó svo að við séum einum færri en við vorum á „gullaldarárunum" svoköll- uðu,“ útskýrir Stefán Jónsson þegar blaðamaður rekur augun í það að sextettinn er í raun kvintett. Stefán virkar sem óvenjulega góðlyndur piitur og þrátt fyrir að blaðamaður sé ekki einu sinni hálfdrættingur miðað við hann hvað aldur varðar þá kveikir hann strax á því hvað liggur á bak við Fjörutíu árum glottið sem amma hans setur upp þegar hún hlustar á tónlist kappans. Hljómsveitin Lúdó sextett er sú eina hér á landi sem hefur þurft að breyta nafni af beinni skipun yfir- valda. „Fyrst hét sveitin Plútó kvint- ett en varð svo síðar sextett," útskýr- ir Stefán. „Við urðum að leggja það niður vegna málaferla. Það er enn vitnað í þetta mál sem eitt af fáran- legri dómum Hæstaréttar.“ Málavextirnir voru þeir að Silfur- bræðslan Plútó sendi hljómsveitinni tilmæli um að leggja niður nafn sitt vegna samheitisins. Hljómsveitin breytti þá snögglega nafni sínu í Plúdó sextett og taldi að þar væri málið afgreitt. En svo var ekki og silf- urbræðslueigandinn fór með málið fyrir dóm og vann. „Já, hann fór í mál og það undarlega gerðist að þó svo að hljómsveitin okkar héti Plútó sextett, semna, enn með sveifluna a h reinu. eftir hundinum og plánetunni, en verksmiðjan hans Silfurbræðslan Plútó þá vorum við dæmdir til þess að leggja niður nafnið með þeim rökum að Islendingar gerðu engan greinar- mun í framburði á bókstafnum D og T,“ segir Stefán lúmskur. „Þetta var nú samt eiginlega dómur sem fólk gat ekki annað en brosað að.“ Það er því Hæstarétti að þakka að það er Lúdó en ekki Plúdó sem hitar upp fyrir Utangarðsmennina í kvöld. Elsta hljómsveit landsins „Gullaldarár" Lúdó sextettsins, eins og Stefán kallaði þau, voru árin 1962-1965. Fjórir meðlimir sveitar- innar í dag hafa a.m.k. verið með ann- an fótinn í sveitinni síðan þá. Ásamt Stefáni eru það þeir Berti Möller, Arthur Moon og Hans Jensson. Aðrir Lúdó sextett og Stefán á „gullaldarárunum“. meðlimir sveitarinnar í dag eru Elvar Berg og Hallvarður Óskarsson sem báðir hafa verið meðlimir til langs tíma. „Kjaminn hefur alltaf verið sá sami,“ segir Stefán, „þó að margir hafi nú verið innanborðs í gegnum tíðina, örugglega hátt í 30 manns.“ Hljómsveitin hefur aldrei lagt upp laupana á þessu fjörutíu ára tímabili og samkvæmt þeim heimildum sem blaðamaður gat aflað sér er hún elsta starfandi íslenska hljómsveit dagsins í dag. Stefán segir aðal ástæðuna fyr- ir langlífinu vera sterk vinabönd meðlima og spilagleði. Um daginn spilaði sextettinn fyrir ungmenni á staðnum Sirkús á Vita- stíg. Þar vöktu þeir það mikla lukku að leitað var til þeirra til þess að hita upp fyrir Utangarðsmennina í kvöld. En hvað fannst Stefáni um hljóm- sveitina og Bubba á sínum tíma? „Ég hef nú lítið fylgst með Bubba fyrir utan það sem hann hefur gert sem trúbadúr sem hann gerir Ijóm- andi vel,“ segir Stefán. „Þegar þeir komu fram vorum við eiginlega á allt öðrum kvarða en hans trylltu Utan- garðsmenn. Mér finnst öll tónlist eiga tilverurétt, en það er ekki þar með sagt að ég sé jafn hriíinn af henni allri.“ Þegar blaðamaður spurði Stefán hvemig honum fyndist að leika með sveitinni var hann ekki lengi að draga út ásinn úr jakkaerminni. „Mér finnst það bara Ijómandi gott. Fyrst og fremst höfum við gaman af þessu og ef einhveijir hafa gaman af okkur þá er þrautin unnin, segi ég.“

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.