Morgunblaðið - 22.07.2000, Page 64
Palm
Lófatölvur
563 3000 + www.ejs.is
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI1,103 REYKJAVÍK, SÍMI5691100, SÍMBRÉF 5691181, PÓSTHÓLF 3040,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 5691122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRl: KA UPVANGSSTRÆTI1
LAUGARDAGUR 22. JÚLÍ 2000
VERÐ í LAUSASÖLU 150 KR. MEÐ VSK.
HEKLA
— ÍJóryxtuánýrrtbld!
MITSUBISHI
CRRISMR
MITSUBISHl
dcmantar í umferö
■ í sporum Snorra/26
Maður b.jargaðist l)egar bátur sökk á Breiðafírði
Sj ómaðurinn komst
naumlega frá borði
Morgunblaðið/Jón Sigurðsson
Drög að verklagsreglum fyrir fjármálafyrirtæki
Viðskipti með óskráð
bréf verða óheimil
SÉRSTAKAN regluvörð skal til-
nefna innan fjármálafyrirtækis til að
tryggja eftirfylgni við verklagsregl-
ur. Regluverði er ætlað að hafa eftir-
lit með því að ákvæðum reglnanna sé
fylgt, hafa forgöngu um túlkun á
reglunum og taka ákvarðanir í sam-
ræmi við reglumar. Þetta kemur
fram í drögum að leiðbeiningum um
efni verklagsreglna sem Fjármála-
eftirlitið (FME) hefur birt.
Viðskipti starfsmanna fjármála-
fyrirtækja með óskráð verðbréf eru
óheimil. Unnt er að heimila undan-
tekningu vegna þátttöku í útboði þar
sem stjóm Verðbréfaþings hefur
samþykkt að hlutafélagið fái skrán-
ingu að útboði loknu, að því er fram
kemur í leiðbeiningunum. Þá kemur
til greina að kveða á um undanþágur
vegna eignarhalds á óskráðum hluta-
bréfum í félögum sem engin virk við-
skipti em um og ekki hafa fjárfest-
ingar að markmiði.
Hægt að banna viðskipti
starfsmanna án skýringa
Eftirlit regluvarðar lýtur ekki ein-
vörðungu að viðskiptum starfsmanna
heldur einnig að virkni svonefndra
kínamúra og viðskiptum fyrirtækis-
ins sjálfs, að því er fram kemur í
drögunum. Regluvörður hefur vald
til að banna viðskipti starfsmanna
með ákveðin verðbréf án skýringa
eða tímamarka á banninu. Er
ákvæðið réttlætt með því að ástæða
kunni að vera til að banna viðskipti
með tiltekin verðbréf, t.d. vegna þess
að fjármálafyrirtækið sjálft hafi
hagsmuna að gæta eða búi yfir trún-
aðarupplýsingum og viðskipti starfs-
manna því tortryggileg á þeim tíma.
■ Viðskipti/16
Morgunblaðið/Orri Páll
Stigaþrep
Snorra
FORNLEIFAFRÆÐINGAR
vita nú fyrir víst að niðurgröfnu
göngin sem fundust við upp-
gröft í Reykholti eru frá elleftu
til þrettándu öld. Liggja þau frá
Snorralaug inn að gamla bæjar-
stæðinu. Þetta er niðurstaða úr
greiningu á birkigrein sem
fannst á efsta þrepinu sem ligg-
ur upp úr göngunum en þrepin
komu í ijós fyrir skemmstu.
Mjög líklegt er því að Snorri
Sturluson hafi notað göngin.
„Við höfum nú mun betri
mynd af því hvemig göngin eru
gerð að innan nyrst þar sem þau
tengjast tóftunum. Þau beygja
snögglega til austurs þar sem
þau liggja inn í hom á byggingu
sem þar er og í þeim eru stein-
þrep. Við höfum fundið sex þrep
í göngunum sem eru mjög vel
byggt mannvirki, allt að tveir
metrar á hæð. Það er mjög
sjaldgæft að finna svona vold-
ugar byggingar hér á landi,“
segir Guðrún Sveinbjamardótt-
ir, stjómandi rannsóknarinnar.
Göngin em afar þröng, um
sjötíu sentímetrar á breidd.
SIVí
höndum
veiði-
stióra
MANNBJÖRG varð er báturinn
Víglundur SÁ frá Rifi sökk um
hálftvöleytið í gær. Báturinn var
staddur á Breiðafirði, norðaustur
af Rifi, í svokölluðum Álum.
„Ég var að draga línu og var
búinn að draga inn fimm bjóð þeg-
ar ég lenti í festu, línan var semsé
föst í botninum. Báturinn fór strax
að halla. Ég var með yfir 700 kfló á
dekki í tveimur kemm. Fyrst fór
annað karið út í hliðina sem hallaði,
þá hallaði báturinn enn meir. Síðan
fór hitt karið strax á eftir og á mig.
Ég átti í erfiðleikum með að kom-
ast frá karinu, sem var yfir 200
kfló, og það stórsér á löppinni á
mér,“ sagði Þórir Kristjánsson sjó-
maður, sem var um borð í bátnum,
í samtali við Morgunblaðið.
Þórir segir atburðina hafa gerst
mjög hratt og báturinn sokkið á
nokkmm mínútum. „Sjórinn bara
æddi inn. Ég rétt náði að losa
björgunarbátinn og hann fór beint
Morgunblaðið /Arnaldur
Þdrir Kristjánsson
í sjóinn. Ég varð að fara í sjóinn
líka. Ég þorði ekki annað en að
fara úr bátnum vegna þess að það
var komin svo mikil slagsíða á hann
og ég hélt að honum myndi hvolfa,
sem varð reyndar ekki. Hann seig
bara rólega niður. Fyrst að aftan
og svo fór stefnið niður. Þetta
gerðist allt bara á nokkmrn mínút-
um. Ég náði ekki einu sinni að fara
í talstöðina."
Var orðinn kaldur og hrakinn
Þórir segist hafa skotið upp
tveimur neyðarblysum, ekki áttað
sig strax á að senda neyðarskeyti,
sem er í björgunarbátnum. Það var
svo um tvöleytið sem Landhelgis-
gæslunni barst neyðarskeyti. Þyrla
Landhelgisgæslunnar var send af
stað og kom hún að bátnum rúm-
lega þrjú. Þá var hvalaskoðunar-
skipið Brimrún SH búið að finna
björgunarbátinn.
„Við vomm á leið af stað í hvala-
skoðunarferð þegar Tilkynninga-
skyldan hafði samband við okkur,“
sagði Jóhann Garðarsson skipstjóri
í samtali við Morgunblaðið. „Við
fómm strax í átt að staðnum sem
þeir gáfu upp, sáum björgunarbát-
inn fljótlega og vorum komin að
honum rúmlega þrjú. Þyrla Land-
helgisgæslunnar kom þá að og við
létum hana taka manninn, sáum að
hann var blautur og hrakinn. Við
tókum hins vegar bátinn."
Þórir segir það hafa verið mikinn
létti að sjá bátinn nálgast. „Maður
var orðinn kaldur og hrakinn. Ég
fór ekki strax í pokann sem er í
björgunarbátnum til að halda á
manni hita, var lengi í gallanum,
sem ég hefði ekki átt að gera.“ Þór-
ir var fluttur á slysadeild Sjúkra-
húss Reykjavíkur en útskrifaður
um áttaleytið í gærkvöldi. Bátur-
inn, sem er fjögurra tonna flat-
botna bátur, var í eigu sonar Þóris,
Kristjáns.
Bjargað úr
sjónum
UNGRI stúlku var í gærkvöldi
bjargað úr sjónum við Seltjarnarnes.
Hún hafði lagst til sunds skammt
vestan við Eiðistorg. Neyðarlínunni
var tilkynnt atvikið, en talið er að sá
sem það gerði hafi verið með stúlk-
unni er hún stakk sér til sunds. Um
tíu mínútur liðu frá því tilkynningin
-’~%arst þar til stúlkan var komin um
borð í gúmmíbát lögreglunnar, en
hún var komin talsvert langt frá
ströndinni. Stúlkan var flutt á slysa-
deild til rannsóknar. Lögregla og
slökkvilið voru með mikinn viðbúnað
á staðnum.
Hópur manna frá Náttúrufræði-
stofnun Islands hefur unnið kapp-
samlega undanfarna daga að þvi
að fanga gæsir á vestanverðu
Norðurlandi og merkja þær með-
an þær eru í sárum. I gær voru
þeir á Blönduósi og fönguðu 118
gæsir við lögreglustöðina og
merktu þær. Arnór Þórir Sigfús-
son fuglafræðingur stjórnaði að-
gerðum en á myndinni má sjá Áka
Ármann Jónsson veiðistjóra bera
gæs sem hlotið hefur merkinguna
SIV. Yfirmaður Áka er Siv Frið-
Ieifsdóttir umhverfísráðherra, en
hvort nafnið á gæsinni tengist því
eitthvað skal ósagt látið. Það má
a.m.k. með sanni segja að um-
hverfísmálin séu tekin föstum
tökum á norðvestanverðu landinu
þessa dagana og getur umhverfis-
ráðherrann, Siv Friðleifsdóttir,
verið stolt af sínum mönnum.