Morgunblaðið - 05.09.2000, Síða 2
2 ÞRIÐJUDAGUR 5. SEPTEMBER 2000
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Kjaraviðræður stéttarfélaga opinberra starfsmanna hafnar
Stefnt er að gerð nýrra
samninga fyrir októberlok
UNDIRBÚNINGUR fyrir gerð nýrra kjarasamn-
inga opinberra starfsmanna hjá ríki og sveitarfélög-
um er nú kominn í fullan gang. Að sögn Gunnars
Bjömssonar, formanns samninganefndar ríkisins,
er búið að ganga frá viðræðuáætlunum við nær öll
félög og samtök starfsmanna hjá rílrinu en þar er
alls um að ræða rúmlega 60 stéttarfélög.
Fólu flest aðildarfélög BSRB og BHM heildar-
samtökunum að annast gerð samræmdra viðræðu-
áætlana fyrir sína hönd. Einnig hefur verið gerð
viðræðuáætlun við Reykjavíkurborg skv. upplýs-
ingum Ögmundar Jónassonar, formanns BSRB.
Samningar stéttarfélaga ríldsstarfsmanna renna
út 31. október en samningar hjá sveitarfélögum
losna um áramót. Hafa samningsaðilar sett sér það
markmið að endumýjun kjarasamninga verði lokið
þegar eldri samningar renna úr gildi.
Kjarasamningar framhaldsskólakennara, sem
semja við ríkið, renna út í lok októbermánaðar en
samningar grunnskólakennara, sem semja við
sveitarfélögin, losna um áramót.
Byrjað á viðræðum um réttindamál
Skv. viðræðuáætlunum er að því stefnt að á
fyrstu stigum verði rætt um réttindamál og önnur
atriði sem ekki snerta launamál s.s. fæðingarorlofs-
mál, veikindarétt, tryggingamál o.fl. Er að því
stefnt að þessum viðræðum verði lokið fyrir lok
þessa mánaðar og að eiginlegar kjaraviðræður hefj-
ist um næstu mánaðamót.
„Þetta er allt í fullum gangi. Félögin hafa verið að
koma saman til að funda og móta sínar kröfur,“
sagði Ögmundur Jónasson. Hann sagði að áherslur
félaganna í réttindamálunum væru svipaðar og
hefðu félögin ákveðið að ganga frá sumum atriðum
þeirra sameiginlega.
Aðildarfélögin fara hins vegar sjálf með launa-
málin og vinna þessa dagana að frágangi kröfu-
gerða.
Að sögn Gunnars Bjömssonar er stefnt að því að
samningum hjá ríkinu verði lokið fyrir 31. október.
Þó sé gert ráð fyrir fyrir því að eftir miðjan október
geti samningsaðilar endurmetið stöðuna og ákveðið
hvort ástæða sé til að framlengja viðræðuáætlanir
eða vísa deilunni til ríkissáttasemjara.
Segir samninga á almenna
markaðinum ekki leggja línu
Aðspurður hvort samningar sem gerðir hafa ver-
ið á almenna vinnumarkaðinum legðu línumar fyiir
opinbera starfsmenn sagði Ögmundur svo ekki
vera. „Hvert félag hlýtur að skoða þetta á eigin
gmnni. Það var aldrei gerð nein tilraun til að fara í
að móta heildstæða línu,“ sagði hann.
Harpa Ingólfsdóttir og Jón Viktor
Gunnarsson Islandsmeistarar í skák
Morgunblaðið/Kristján Örn
Harpa Ingólfsdóttir og Jón Viktor Gunnarsson urðu íslandsmeistarar í skák 2000.
Hörð barátta í báðum flokkum
Island 33
stigum
undir gegn
Póllandi
ÍSLENSKA liðið á Ólympíu-
mótinu í brids er 33 stigum und-
ir í leik gegn Pólverjum í átta
liða úrslitum þegar 16 spilum af
80 er ólokið. Síðasta lotan verð-
ur spiluð í dag en sigurvegarinn
í leiknum kemst í undanúrslit
sem heíjast síðdegis.
Atta liða úrslitin hófust í gær-
morgun og byrjaði íslenska liðið
mjög illa, tapaði fyrstu 16 spila
lptunni 4-68. Næstu lotu unnu
íslendingar 24-20 og þá þriðju
57-36 og höfðu þá náð að minnka
muninn í 28 stig. Pólveijar unnu
fjórðu lotuna 40-34 og hafa for-
ustu í leiknum, 153-120.
Staðan í öðmm viðureignum
er sú að Italar hafa ömgga for-
ustu gegn Brasillumönnum,
Englendingar em yfir gegn
Noregi og Bandaríkin hafa yfir
gegn Austurríki.
■ Erfið staða/32
Leik frestað
vegna
slagsmála
BLÁSA varð af leik Breiða-
bliks og utandeildarliðs þegar
kom til slagsmála tveggja leik-
manna á sandgrasvellinum í
Smáranum í Kópavogi I gær-
kvöldi.
Lögregla var kvödd til en
þegar hún kom á vettvang
hafði leikmönnunum að mestu
mnnið reiðin og því þurfti ekki
að hafa afskipti af þeim. Ekki
er ljóst hvað olli deilunum en
samkvæmt upplýsingum lög-
reglu var leiknum ekki haldið
áfram eftir stimpingarnar.
HARPA Ingólfsdóttir og Jón Viktor
Gunnarsson urðu Islandsmeistarar
í skák en Skákþingi íslands lauk í
fyrradag. Keppni var hörð og
spennandi í báðum flokkum.
Harpa Ingólfsdóttir sagði í við-
tali við Morgunblaðið að baráttan
hefði verið talsvert hörð í kvenna-
flokki. Hún mætti of seint til leiks í
fyrstu umferð og tapaði þeirri
skák. „Ég féll á tíma af því ég hélt
að taflið ætti ekki að byrja fyrr en
klukkan fimm en það hafði byxjað
klukkan fjögur. En þá reyndi ég
bara að vanda mig uppfrá því og
tapaði engri skák en einu sinni varð
jafntefli,“ segir Harpa. Á loka-
sprettinum var einvígi milli Hörpu
og Áslaugar Kristinsdóttur sem
stóðu jafnar að vígi. Voru tefldar
tvær skákir í senn og alltaf voru
þær jafnar. Næst var ein skák látin
nægja og þar náði Harpa sigri.
Harpa stundar nám í Mennta-
skólanum í Reykjavík og kvaðst
hún aðspurð hafa teflt frá því hún
var 10 ára og tekið þátt í mótum
hérlendis, þrisvar í heimsmeistara-
mótum og einu sinni í Evrópumeist-
aramóti. Framundan er síðan Ól-
ympiuskákmótið í Istanbúl en
þangað fara þrír keppendur úr
kvennaflokki og einn til vara og
verður Harpa ein þeirra. Hún sagði
stífar æfingar framundan vegna
mótsins og þegar að því kæmi yrði
hún að sleppa þremur vikum úr
skólanum.
Þröstur með aðra
hönd á bikarnum
Jón Viktor Gunnarsson segir að
þeir Þröstur Þórhallsson hafi háð
hálfgert maraþoneinvígi og stóð
Jón Viktor uppi með fjóra og hálfan
vinning á móti þremur og hálfum
Þrastar. „Þröstur vai' kominn tvisv-
ar með aðra höndina á bikarinn því
hann var yfir og honum hefði dug-
að jafntefli," segir Jón Viktor.
Hann kveðst hafa byrjað sjö ára
kringum 1987 á laugardagsæfing-
um og síðan hefði hann bara haldið
áfram. Hann er í Fjölbrautaskólan-
um við Ármúla en tekur sér frí
þessa önn, m.a. til að taka þátt í Ól-
ympíuskákmótinu í Istanbúl. I
karlasveitinni eru fjórir og tveir
varamenn. Jón Viktor sagði því
framundan að æfa stíft og heldur
hann næstu daga til Færeyja á mót í
hálfan mánuð og síðan ætlar hann
að halda áfram undirbúningi fram
eftir hausti.
■ Jón Viktor/52
Embætti hæsta-
réttardómara
Tillaga um
Arna Kol-
beinsson
GERÐ hefur verið tillaga um skipan
Arna Kolbeinssonar, ráðuneytis-
stjóra í fjármálaráðuneytinu, sem
hæstaréttardóm-
ara. Sólveig Pét-
ursdóttir, dóms-
og kirkjumála-
ráðherra, kynnti
það á sérstökum
ríkisstjómar-
fundi sem boðað
var til klukkan
hálfsex í gær.
Arnljótur
Björnsson hæstaréttardómari lét af
störfum um mánaðamótin og sóttu
fjórir um stöðuna, Ingibjörg Bene-
diktsdóttir héraðsdómari, Ólöf Pét-
ursdóttir dómstjóri og Sigríður
Ingvarsdóttir héraðsdómari auk
Áma Kolbeinssonar. Forseti íslands
skipar í stöðuna.
Hæstiréttur hefur gefið umsögn
um umsækjendur og að henni feng-
inni ákvað dómsmálaráðherra, sam-
kvæmt heimildum Morgunblaðsins,
að leggja til að Árni yrði skipaður.
--------------------
Forseti Kína á
boð um Islands-
heimsokn
FORSETI íslands, Ólafur Ragnar
Grímsson, hefur boðið Jiang Zemin,
forseta Kína, í opinbera heimsókn
hingað til lands. Var boðið rifjað upp
í opinberri heimsókn Li Peng, for-
seta kínverska þingsins, til íslands
og jafnframt getið um það í Dagblaði
alþýðunnarí Kína.
Vigdís Finnbogadóttir forseti fór í
opinbera heimsókn til Kína fyrir um
fimm ámm. Ólafur Ragnar skrifaði
kínverska forsetanum bréf fyrir
tæpum tveimur áram og bauð hon-
um í opinbera heimsókn til íslands,
meðal annars til að endurgjalda
heimsókn Vigdísar. Á fundinum með
forseta íslands þakkaði Li Peng boð-
ið fyrir hönd Jiang Zemin. Ekki mun
hafa komið fram staðfesting á að kín-
verski forsetinn hefði þegið boðið.
--------------------
Vinmislys
í Vogum
HÁLFSEXTUGUR karlmaður féll
um þrjá metra, klukkan rúmlega sex
í gær, er hann var við vinnu við stál-
grindahús sem verið er að reisa í
Vogum á Vatnsleysuströnd. Að sögn
lögreglu í Keflavík féll maðurinn aft-
ur fyrir sig en óljóst er um orsakir
slyssins.
Maðurinn kenndi til eymsla í
mjöðm og var fluttur með sjúkrabíl á
Sjúkrahús Suðurnesja í Keflavík.
Þaðan var hann fluttur á Landspítal-
ann-Háskólasjúkrahús í Reykjavík
þar sem hann gekkst undir aðgerð.
Að sögn vakthafandi læknis á bækl-
unardeild var líðan mannsins eftir
atvikum góð í gærkvöldi.
Sérblöð í dag
4©Stollli
Á ÞRIÐJUD
Heimili
Morgunblað-
inu í dagfylglr
augiýslnga-
blaðfrá ACO.
Blaðinu verð-
ur dralft á höf-
uðborgar-
svæðinu.
Guðrún Arnardóttir í áttunda
sæti á heimslistanum / B1
Brenton Birmingham
á ný tii Njarðvíkur / B2
Fylgstu
með
nýjustu
fréttum
www.mbl.is