Morgunblaðið - 05.09.2000, Blaðsíða 72
ATLANTSSKIP
- ÁREIÐANLEIKI í FLUTNINGUM -
Leitið upplýsinga í síma 520 2040
www.atlantsskip.is
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNl 1,103 REYKJAVÍK, SÍMl6691100, SÍMBRÉf5691181, PÓSTHÓLF3040,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 5691122, NETFANG: RITSIJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆin 1
ÞRIÐJUDAGUR 5. SEPTEMBER 2000
VERÐ í LAUSASÖLU150 KR. MEÐ VSK.
"V
Neyðarástand að skapast á dvalar- og hjúkrunarheimilum
A annað hundrað
starfsmenn vantar
AÐ MATI stjómenda dvalar- og
hjúkrunarheimila á höfuðborgar-
svæðinu er neyðarástand að skapast
víða vegna skorts á ófaglærðu starfs-
fólki. Talið er að vanti vel á annað
hundrað starfsmenn til að fullmanna
allar stöður. Þegar er farið að tak-
marka innlagnir og fækka rúmum.
Jóhann Amason, framkvæmda-
stjóri Sunnuhlíðar í Kópavogi, segir
að líklega hafi ástandið aldrei verið
jafnslæmt og nú og i svipaðan streng
tekur Hrefna Sigurðardóttir, fram-
kvæmdastjóri Skógarbæjar í
Reykjavík og Víðiness á Kjalamesi.
Hún segir að ástandið í sumar hafi
verið sérlega slæmt og illa gangi að
ráða í þær stöður sem nú em lausar.
Stjómendur þessara stofnana
telja að launaþróun hjá ófaglærðum
hafi ekki verið í samræmi við hinn al-
menna vinnumarkað og því sé eðli-
legt að starfsfólkið leiti annað.
Kjarasamningur breytti engxi
Nýlega var gerður kjarasamning-
ur við Eflingu sem á þriggja ára
samningstíma á að hækka laun ófag-
lærðra um 30% að meðaltali. Stjóm-
endur heimilanna telja þennan
samning hafa litlu breytt. Fólk leiti í
betur borguð störf. Dagvinnulaun
ófaglærðs starfsmanns á heilbrigðis-
stofnun, eftir sex mánaða starf, era
um 85 þúsund kr. á mánuði.
Þórann Sveinbjörnsdóttir, 1. vara-
formaður Eflingar, telur ástandið nú
á vinnumarkaði ófaglærðra vera
svipað og árið 1987. Kjarasamningur
Eflingar hafi hlotið takmarkaða
kynningu og t.d. sé enn verið að
koma launabreytingum í gegn á spít-
ulunum.
■ Neyöarástand/10
Morgunblaðið/Jim Smart
Það rigndi hressilega á forseta íslands og Litháens, Ólaf Ragnar Gríms-
son og Valdas Adamkus, við Gullfoss í gær.
Heimsóknum lýkur
og nýjar hefjast
Þannig er nýfarinn af landinu
Wolfang Thierse, forseti þýska
Sambandsþingsins, og í dag lýkur
opinberum heimsóknum Li Peng,
forseta kínverska þingsins, og
Valdas Adamkus, forseta Litháens,
auk þess sem hér er staddur forseti
Vestur-Evrópusambandsins, Klaus
Buhler. I dag mun Gerhard
Schröder, kanslari Þýskalands,
eiga hér stutta viðdvöl og með hon-
um í för er meðal annars Joschka
Fischer utanríkisráðherra. Þá
verða margir áhrifamenn á al-
þjóðlegu málþingi um öryggismál á
Norður-Atlantshafi sem hefst í
Reykjavík á morgun, meðal annars
George Robertson, aðalfram-
kvæmdastjóri Atlantshafsbanda-
lagsins.
------HA--------
Gerhard
Schröder til
Islands í dag
GERHARD Schröder, kanslari
Þýskalands, kemur til íslands í dag í
boði Davíðs Oddssonar forsætisráð-
herra. Joschka Fischer, utanríkis-
ráðherra Þýskalands, verður í för
með kanslaranum og mun eiga fund
með Halldóri Asgrímssyni utanríkis-
ráðherra. Schröder og Fischer munu
eiga um nokkurra klukkustunda
langa viðdvöl hér á landi.
Davíð Oddsson tekur á móti
Schröder við sumarbústað forsætis-
ráðherra á Þingvöllum kl. 12.30 en
kl. 14.30 halda þeir fréttamannafund
við Bláa lónið. Joschka Fischer og
Halldór Ásgrímsson munu eiga sam-
ráðsfund í orkuveri Hitaveitu Suður-
nesja í Svartsengi, skv. upplýsingum
sem fengust í utanríkisráðuneytinu.
Morgunblaðið/Jón Svavarsson
Leikmynd kvikmyndarinnar Tomb Raider við Jökulsárlón á Breiðamerkursandi.
ÓVENJULEGA margir erlendir
gestir eru hér í opinberum heim-
sóknum um þessar mundir. Hefur
verið í nógu að snúast hjá íslensk-
um ráðamönnum og embættis-
mönnum við að taka á móti gestun-
um og ekki síður lögreglunni vegna
þeirrar miklu öryggisgæslu sem
viðhafa þarf.
Leikmynd við
Jökulsárlón
Andlát
INDRIÐIG.
ÞORSTEIN SSON
VERIÐ er að setja upp leikmynd
fyrir kvikmyndatöku stórmyndar-
innar Tomb Raider við Jökulsárlón
á Breiðamerkursandi.
Það er kvikmyndafyrirtækið
Paramount Pictures sem framleiðir
myndina en hluti hennar verður
tekinn upp hér á landi.
Kvikmyndin hyggist á vinsælum
tölvuleik sem fjallar um hetjuna
Löru Croft. Hún er leikin af Angel-
inu Jolie sem koma mun hingað til
lands ásamt öðrum leikurum mynd-
arinnar og starfsfólki Paramount.
Angelina Jolie fékk óskarsverðlaun
fyrir besta leik í aukahlutverki
mjmdarinnar Girl, Interrupted sl.
mars.
Alls koma um 100 manns til
landsins í tengslum við myndina.
Þar fyrir utan munu um 100 íslend-
ingar starfa við upptökurnar.
EINN helsti skáldsagnahöfundur
landsins og blaðamaður, Indriði G.
Þorsteinsson, fyrrverandi ritstjóri
Tímans, lést aðfaranótt sunnudags,
74 ára að aldri.
Indriði fæddist í Gilhaga í Lýt-
ingsstaðahreppi í Skagafirði 18. apríl
1926. Foreldrar hans vora Anna Jós-
epsdóttir húsmóðir og Þorsteinn
Magnússon verkamaður. Indriði
stundaði námi við Héraðsskólann á
Laugarvatni 1942-43. Hann vann
verslunarstörf eftir að námi lauk og
var bifreiðastjóri á Akureyri 1945-
51. Árið 1951 hóf Indriði störf sem
blaðamaður á Tímanum. Hann var
blaðamaður á Alþýðublaðinu 1959-
62, en 1962 varð hann ritstjóri Tím-
ans. Árið 1973 lét hann af því starfi
þegar hann gerðist framkvæmda-
stjóri þjóðhátíðarinnar á Þingvöllum
1974. Næstu ár stundaði hann rit-
störf, en varð aftur ritstjóri Tímans
1987-1991.
Eftir Indriða liggja skáldsögur,
smásögur, ævisögur og leikrit. Með-
al þekktustu verka hans era skáld-
sögumar Sjötíu og níu af stöðinni og
Land og synir,
sem báðar vora
kvikmyndaðar.
Eftir Indriða
liggja ævisögur
Stefáns íslandi,
Jóhannesar Kjar-
vals og Her-
manns Jónasson-
ar.
Indriði var einn af framkvöðlum í
íslenskri kvikmyndagerð.
Hann lét mikið til sín taka í þjóð-
málaumræðunni auk þess sem hann
var lengst af virkur forystumaður í
samtökum rithöfunda. Álþingi sýndi
honum þá virðingu að kjósa hann í
heiðurslaunaflokk listamanna.
Hin seinni ár skrifaði Indriði
sjónvarpsgagnrýni i Morgunblaðið
og birtist síðasta grein hans í síðasta
laugardagsblaði.
Indriði var áður kvæntur Þóranni
Ó. Friðriksdóttur og eignuðust þau
fjóra syni. Eftirlifandi sambýliskona
Indriða er Hrönn Sveinsdóttir.
■ lndriði/28