Morgunblaðið - 05.09.2000, Qupperneq 4
4 ÞRIÐJUDAGUR 5. SEPTEMBER 2000
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Ljósmynd/Hilmar Bragi Bárðarson
Vel heppnuð Ljósanótt í Reykjanesbæ
GÓÐ stemmning ríkti í Reykja-
nesbæ á laugardag, þegar tíu þús-
und manns skemmtu á svokallaðri
Ljósanótt í bænum. Á laugar-
dagskvöldið var útilistaverkið
Bergið afhjúpað, þegar tendrað
var á sérhönnuðum ljósabúnaði
sem lýsir Bergið í Reykjanesbæ
upp, en hugmyndina að listaverk-
inu átti Steinþór Jónsson, hótel-
stjóri og formaður undirbúnings-
nefndar Ljósanætur.
Ljósanóttin tókst síðan vonum
framar, að sögn aðstandenda, og
sagðist Steinþór Jónsson aldrei
hafa upplifað annað eins. Veðrið
lék við fólkið aílan tímann og al-
menn og góð þátttaka var í allri
dagskránni, ;sem hófst klukkan
tvö á laugátílág. Þá voru verslan-
ir og þjónústufyrirtæki með opið
hús, og vígð var ný hjólabretta-
braut fyrir börn og unglinga, sem
safnað var fyrir samhliða fjár-
söfnun fyrir hátíðina.
Eftir kvölmat tók fólk siðan að
safnast saman við höfnina, þar
sem bryggjusöngur tókst alveg
glimrandi vel, að sögn Steinþórs,
og var fólk í ekta stuði. Að söngn-
um loknum færði fólk sig yfír á
bakkann til að horfa á þegar
kveikt yrði á lýsingunni á Berg-
inu. Þegar ljósin höfðu tendrast
tók við flugeldasýning, en hætta
varð við fyrirhugaðar bátaferðir
meðfram Berginu, þar sem mann-
fjöldinn var hreinlega of mikill til
að hægt væri að fara slíkar ferðir.
Þráðlaust sendi-
kerfí sett upp á
háskólasvæðinu
STEFNT ei' að því að setja upp
staðarnetssenda á valda staði á Há-
skólasvæðinu á þessu misseri. Það
þýðir að studentar með fartölvur
munu getað komist inn á Netið og
inn á sitt heimasvæði í háskólanum
frá ýmsum stöðum á háskólasvæð-
inu, þráðlaust. Þi'áðlaust sendikerfi
mun minnka álag á þau tölvuver sem
fyrir eru auk þess sem möguleikar á
notkun tölva í kennslu stóraukast.
Þetta kom fram á blaðamanna-
fundi Stúdentaráðs í gærmorgun. Á
fundinum voru einnig kynntir samn-
ingar Stúdentaráðs við Nýherja og
Opin kerfi sem skrifað var undir á
fundinum. Fyrirtækin munu bjóða
stúdentum og starfsfólki háskólans
fartölvur á hagstæðum kjörum.
Páll Skúlason, rektor Háskóla Is-
lands, þakkaði stúdentum fyrir
frumkvæði sitt í málinu en
Stúdentaráð leitaði tilboða í far-
tvölvur hjá öllum helstu tölvufyrir-
tækjum landsins enda fartölvueign
forsenda fyrir því að hægt verði að
nýta fartölvur í kennslu.
Netið nýtt til
miðlunar kennsluefnis
Að sögn Hauks Þórs Hannesson-
ar, framkvæmdastjóra Stúdenta-
ráðs, er talsvert um að háskólakenn-
arar séu farnir að nýta sér Netið til
miðlunar kennsluefnis og með vænt-
anlegu staðarneti koma nemendur
til með að geta nýtt sér þau gögn
beint í kennslustundum. Þar fyrir
utan komi nemendur til með að geta
nýtt sér fartölvur til að taka niður
glósur.
„Það er stefnt að því að setja stað-
arnetið fyrst upp í fjölmennum
kennslustofum eins og í Háskólabíó,
Odda ogVRII en framtíðarsýnin er
sú að það verði um allt háskólasvæð-
ið þannig að nemendur, kennarar og
starfsfólk verði alls staðar net-
tengt,“ segir Haukur.
Hann segir Reiknistofnun Há-
skólans nú vera að fara yfir útfærslu
málsins en Háskólinn hefur gefið
vilyrði fyrir fjárframlagi til að setja
staðarnetið upp. Haukur segir að
meðal þess sem verið sé að skoða
núna sé rafvæðing kennslustofa.
„Það er helmingur af tæknilegu út-
færslunni. Það þarf að vera hægt að
setja tölvurnar í samband í stofun-
um. Það fer eftir aðstöðu í húsunum
hversu erfítt er að koma þessu í
gagnið. Það hefur reyndar líka verið
talað um að setja upp hleðslukassa
fyrir tölvurnar. En staðarnetin sjálf
ættu að koma upp fljótlega þó ekki
sé komin nákvæm tímasetning á
málin.“
Haukur segir að frumkvæði að
staðamétinu og fartölvusamningun-
um hafi komið frá Stúdentaráði.
„Við munum halda áfram að þrýsta
á að unnið verði að uppsetningu
staðarnetsins á háskólasvæðinu eins
fljótt og auðið er.“
Hafrannsóknastofnun/Birgir Stefánsson
Búrhvelið sem rak á íjörur í Hrútafírði í síðustu viku er stór tarfur.
Vilja hvalinn burt
BÚRHVELI rak á fjörur í Hrúta-
firði í landi Valdasteinsstaða í Bæj-
arhreppi fyrir rúmri viku, eftir að
hvalurinn hafði verið á svamli í firð-
inum í nokkra daga og að lokum tek-
ið stefnuna í land.
Hræið af hvalnum er illa staðsett,
bæði gagnvart byggð og þá liggur
hvalurinn í mynni tveggja laxveiðiáa.
Heimamenn hafa því verið í sam-
bandi við Landhelgisgæsluna og
verktaka um að koma hræinu í
burtu, hvort sem hvalurinn verður
dreginn á haf út eða reynt að urða
hann á staðnum. Starfsmenn Hafró
tóku fjölda sýna úr hvalnum, sem er
nokkuð stór tarfur og virðist fullorð-
inn, en eftir er að vinna úr upplýsing-
unum og því ekki vitað neitt nánar
um þetta stórhveli. Að sögn Gísla
Víkingssonar, sérfræðings Hafrann-
sóknastofnunar, er tiltölulega al-
gengt að búrhveli gangi á land á
þennan hátt. Slíkt gerist alltaf
nokkrum sinnum á ári, en ekki er þó
alltaf vitað, líkt og í þessu tilfelli,
hvort að hvalinn hafi rekið lifandi
eða dauðan á land.
Þ>j|é(niyis;tai iniúiinnieF eiitti!
Toyota Land Cruser 90
3.0, fskd. 26. 9. 1997, ekin
109 þ. km, hvítur, krókur og
tengi, diesel. Verð 2.690 þ.
Nánari uppl. hjá Bílaþingi
Heklu, sími 569 5500.
Opnunartími: Mánud. - föstud. kl. 9-18
laugardagar ki. 12-16 ,
BÍLAÞINGjflEKLU
Ni/mzk e- 'rtf í notu?vrvi bílurvif
Laugavegi 174,105 Reykjavik, sími 569-5500
www.Wli3liiing.f3 * www.&íliátíifíT'g.te • if»v*w..íi'ífs1:íiín'g,f3
Alþjóðlegt málþing um öryggismál hefst á morgun
Búist við um 350
gestum á ráðstefnuna
ALÞJÓÐLEGT málþing um örygg-
ismál á Norður-Atlantshafi, sem rík-
isstjórn íslands og Atlantshafsher-
stjómar Atlantshafsbandalagsins
(SACLANT) standa að, hefst á
morgun í Borgarleikhúsinu. Um 350
gestir hafa skráð sig á ráðstefnuna.
Á málþinginu munu fyrirlesarar
frá Norður-Ameríku og Evrópu m.a.
fjalla um breytta stöðu og hlutverk
Atlantshafsbandalagsins á tímum
aukinnar hnattvæðingar og um
framtíð öryggismála á
N orður-Atlantshafí.
Efnt verður til móttöku í Ráðhús-
inu i kvöld fyrir ráðstefnugesti en
sjálft málþingið, sem stendur yfir í
tvo daga, verður sett í Borgarleik-
húsinu á morgun. William F. Kem-
an, hershöfðingi og nýr yfirmaður
Atlantshafsherstjómar NATO, setur
ráðstefnuna kl. 8.45 og að því loknu
mun Halldór Ásgrímsson utanríkis-
ráðherra flytja opnunarræðu mál-
þingsins og fjalla um Atlantshafs-
tengslin og skilgreiningu þeirra.
Fjöldi þekktra áhrifamanna og
sérfræðinga á sviði öryggismála flyt-
ur erindi á ráðstefnunni en þær
breytingar hafa hins vegar orðið á
dagskránni að nokkrir þátttakenda
sem gert hafði verið ráð fyrir að
flyttu erindi á málþinginu koma ekki.
Er m.a ljóst að Joschka Fischer,
utanríkisráðherra Þýskalands,
Charlene Barshefsky, viðskiptafull-
trúi Bandaríkjastjómar, Jamie Shea,
talsmaður NATO, og Richard
Danzig, flotamálaráðherra Banda-
ríkjanna, verða ekki meðal fyrirles-
ara á málþinginu eins og áður hafði
verið reiknað með.
Meðal fjölmargra fyrirlesara á
málþinginu verða dr. Sergei M. Rog-
ov, framkvæmdastjóri bandarísk-
kanadísku stofnunarinnar í Moskvu,
George Robertson, aðalfram-
kvæmdastjóri NATO, William J.
Perry, fyrrv. vamarmálaráðherra
Bandaríkjanna, Hans Hækkerup,
vamarmálaráðherra Danmerkur, og
dr. Josef Joffe, ritstjóri Die Zeit, auk
annarra áhrifamanna og fræðimanna
á sviði öryggismála.
Nokkur fjöldi blaða- og frétta-
manna frá Norður-Ameríku og
Evrópu hefur boðað komu sína til að
fylgjast með málþinginu, skv. upp-
lýsingum sem fengust í
utanríkisráðuneytinu.
Þyrla sótti
slasaðan
sjómann
ÞYRLA Landhelgisgæslunnar, TF-
LÍF, sótti í gærmorgun slasaðan
sjómann um borð í japanskt
túnveiðiskip suðvestur af landinu.
Maðurinn missti annan fótinn neð-
an við hné í vinnuslysi um borð í
skipinu í fyrrakvöld.
Japanska skipið, Koei Maru, hef-
ur verið við túnfiskveiðar rétt utan
íslensku lögsögunnar suður af land-
inu. Þyrla frá Varnarliðinu flaug að
skipinu eftir slysið í fyrrakvöld en
það var þá statt um 300 rnílur frá
Iandinu, en gat ekki athafnað sig
vegna veðurs og varð frá að hverfa.
TF-LÍF fór síðan af stað í gær-
morgun en þá var skipið um 200
sjómflur frá landi. Vel gekk að ná
manninum um borð íþyrluna og
tók leiðangurinn um þrjár klukku-
stundir. Sjómaðurinn var lagður
inn á Landspftalann.