Morgunblaðið - 05.09.2000, Síða 8
8 ÞRIÐJUDAGUR 5. SEPTEMBER 2000
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Maddainan í
moldarkofanum
Svona, dustið þið af ykkur moldardrulluna, ormarnir ykkar, rútan er komin.
Breytingar á endurgreiðsl-
um vegna kvikmyndagerðar
IÐNAÐAR- og viðskiptaráðherra
kynnti á rfldsstjómarfundi í gær hug-
myndir sínar um svar við athuga-
semdum Eftirlitsstofnunar EFTA
(ESA) og breytingar á lögum vegna
reglna um tímabundna endurgreiðslu
vegna framleiðslu erlendra kvik-
mynda hér á landi.
ESA gerði athugasemdir við kvik-
myndalögin fljótlega eftir að þau voru
samþykkt vorið 1999. Lögin gera ráð
fyrir að kvikmyndaframleiðendur fái
allt að 12% kostnaðar við kvikmynda-
framleiðsluna endurgreiddan og
gerði ESA einkum athugasemd við að
eingöngu er ætlunin að greiða út á
þann kostnað sem fellur til hér á
landi. Valgerður Sverrisdóttir, iðnað-
ar- og viðskiptaráðherra, segir að í
svari við athugasemdum ESA sé fall-
ist á svokallaða 80-20% reglu sem
ESA hefur haldið fram. Lögunum
verður breytt þannig, að sögn ráð-
herrans, að ef 80% framleiðslukostn-
aðarins eða meira fellur til hér á landi
þá reiknast endurgreiðslan út frá
heildarkostnaði við framleiðsluna hér
og í öðrum EES-löndum. Ef innlendi
kostnaðurinn verður innan við 80% af
framleiðslukostnaði kvikmyndarinn-
ar er eingöngu endurgreitt út á þann
hluta kostnaðarins sem fellur til hér.
Einnig verðm- 12% endurgreiðslu-
hlutfallið óháð því hversu dýr myndin
er.
„Við áttum líka þann kost að halda
óbreyttum reglum en töldum betra að
gera breytingar vegna þess að ESA
færði nokkuð sterk rök fyrir því að
lögin stönguðust á við rfldsstyrkjar-
eglur EES,“ segir Valgerður Sverris-
dóttir. Rfldsstjómin samþykkti svar
iðnaðarráðherra og undirbúning
hennar að nauðsynlegri lagabreyt-
ingu. Valgerður leggur áherslu á að
málinu ljúki með lagasetningu fyrir
áramót og lítur svo á að þar með verði
málið úr sögunni gagnvart ESA.
Qessica sófasett fyrir þau sem vilja vanda
valið og hafa gæðin í fyrirrúmi. Alklætt mjúku
nautsleðri á öllum flötum. Pokafjaðrir í
sætum, kaldsteyptur svampur í bólstrun.
Fæst einnig i dökkbrúnu leðri. Settið
3+2+1 kr. 264.120,-. 3+1+1 kr. 239.980,-.
Raögreiðslur
Bildshöfða * 110 Reykjavik • s.510 8000 * www.husgagnahollin.is
HÚ5GAGNAHÖLLIN j
Íta skur g ; 1 æ s i e i t
Uppskera landgræðslufræja
Lúpínan
er langbest
Sveinn Runólfsson
NÚ STENDUR sem
hæst fræuppskera
landgræðslu-
plantna. Að sögn Sveins
Runólfssonar landgræðslu-
stjóra er nú verið að safna
melfræi á friðuðum land-
græðslusvæðum við
ströndina.
„Helstu svæðin eru Þor-
lákshöfn, Vík í Mýrdal,
Álftaver og Héraðssandur í
Hjaltastaðaþinghá. Þessu
er mest öllu safnað í þar til
gerðum vélum en þó eru
unglingar í Álftaveri .sem
handsafna fræi og fá greitt
70 krónur fyrir kílóið,“
sagði Sveinn.
- Hefur uppskera af
þessu fræi aukist?
„Hún hefur verið að auk-
ast á síðustu árum en er
heldur lakari í ár vegna vorkulda.
Hins vegar tókst okkur að afla
töluvert meira af lúpínufræi en áð-
ur og það er skorið mest allt með
vélum en auk þess auglýstum við
eftir fræi frá áhugafólki og vorum
reiðubúnir að kaupa það á 750
krónur kflóið en viðbrögð urðu
ekki mikil að þessu sinni. Þess má
geta að við kaupum fræ af bænd-
um sem eru með lúpínufræakra og
er þar um að ræða verulegt magn.“
-Hvaða öðrum grastegundum
en melgresi taldð þið fræ af?
„Það er helst fræ af berings-
punti og túnvingli. Þessu fræi er
safnað á Mýrdalssandi og fræökr-
um í Gunnarsholti.
- Hvað gerið þið við alit þetta
fræ?
„Það er þurrkað og hreinsað og
húðað með rakadrægum efnum í
fræverkunarstöðinni í Gunnars-
holti. Síðan er það notað í land-
græðslustarfinu, bæði í haust og
næsta vor. Heildarverðmæti fram-
leiðslunnar áætlum við að geti
numið allt að eitt hundrað milljón-
um króna. Landgræðslan flytur út
árlega fræ til Alaska og Græn-
lands fyrir um tíu milljónir króna á
ári. Þetta er fræ af beringspunti
sem er upprunnið í Alaska og fræ
af Aiaskalúpínu en við tímum ekki
að selja mildð af því fræi.“
- Er lúpínan alltafjafnvinsæl til
uppgræðslu á örfoka landi?
„Já, við teljum hana langódýr-
ustu og öflugustu jurtina til upp-
græðslu á samfelldum svæðum.
Við teljum að við höfum lært mikið
um notkun hennar og brýnum fyr-
ir fólki að þessi planta hefúr mikla
kosti en það ber að hugsa fram í
tímann og gæta þess að hún er ág-
eng. Það sem er að gerast núna,
mjög ánægjulegt, er að í gömlu
lúpínusáningunum, t.d. hér í kring-
um Gunnarsholt, er skógarfröm-
uðurinn Markús Runólfsson að
planta hundruðum þúsunda trjáp-
lantna. Þá erum við að breyta
grýttum og gróðurvana svæðum í
skóglendi á mjög hagkvæman og
vistvænan hátt.“
- Er tii önnur planta sem hentar
jafn-vel til þess ama oglúpínarí!
„Nei, hún er langbest, ekki hef-
ur enn tekist að finna hennar jafn-
ingja en starfsfólk
Rannsóknarstofnunar
landbúnaðarins og
Landgræðslunnar hef-
ur unnið ötullega að því
að þróa fleiri sjálfbærar
tegundir til landbóta.
Má þar nefna hvíts-
mára, umfeðming, ellri
og baunagras. En engin
þessara plantna hefur
neitt viðlíka eiginleika til upp-
græðslu og lúpínan."
- En melgresið?
„Melgresið vill helst vaxa í fok-
sandi þar sem nær engin önnur
planta getur þrifist og er ekki öflug
► Sveinn Runólfsson fæddist 28.
aprfl 1946 að Hvanneyri í Borgai’-
firði. Hann lauk stúdentsprófi frá
Menntaskólanum í Reykjavík
1966 og kandidatsprófi frá há-
skólanum í Aberdeen í Skotlandi
1970. Mastersprófi í landgræðslu
ogjarðvegsvemd frá Comell há-
skólanum í Bandaríkjunum 1973.
Hann hefur starfað við land-
græðslu, fyrst hjá Sandgræðsl-
unni í sumarstarfi 1959 og síðan á
hverju sumri með námi og eftir
nám hjá Landgræðslu ríkisins.
Frá 1963 var hann ráðsmaður hjá
Gunnarsholtsbúinu og fulltrúi
landgræðslustjóra frá 1970. Skip-
aður landgræðslustjóri 1972.
Sveinn er kvæntur Oddnýju Sæ-
mundsdóttur hjúkrunarfræðingi
og eiga þau þrjá syni.
tegund til að græða upp mela þar
sem ekki er sandfok. En síðan þeg-
ar melgresið hefur hamið sandfok-
ið víkur það alla jafna fyrir íslensk-
um gróðri, oft túnvingli og loðvíði."
-Hvemig hefur uppgræðslan
gengið í sumar?
„Hún hefur gengið vel. Þetta er
búið að vera afskaplega góðviðra-
samt sumar og gróður víðast hvar í
mikilli framför þrátt fyrir að ótrú-
lega víða hafi verið miklir þurrkar.
Meðal annars hefur verið mjög
þurrt á suðurströndinni og á Norð-
urlandi. En það hafa ekki komið
nein uppblástursveður þannig að
sáningum frá í vor hefur farið vel
fram. Við horfum því björtum aug-
um til hauststarfa í kjölfar fræupp-
skeru en þá munum við sá land-
græðslutegundum í allmörg
erfiðari landgræðslusvæði. Við er-
um sífellt að læra af náttúrunni og
hún sáir jú á haustin."
-Hvert er helsta verkefnið í
haust?
„Það er sáning í Hólasand í S-
Þingeyjarsýslu og Hafnarmela í
Borgarfirði. Bæði þessi verkefni
eru styrkt myndarlega af um-
hverfissjóði verslunarinnar. Enn-
fremur verður sáð í ein átta svæði
sem eru hluti af átaki
ríkisstjómarinnar í bindingu kol-
efnis með landgræðslu og skó-
grækt. Þessu sérstaka átaki lýkur
nú í haust eftir fjögurra
ára vinnu og á þessu
tímabili hefur rflds-
stjómin varið 460 millj-
ónum króna til þess
arna. I vor vonumst við
til að rfldsstjórnin hafi
ákveðið að halda áfram
þessu átaki því verkefn-
in em fjölmörg í land-
græðslu og skógrækt. A
vegum Landgræðslunnar hefur
verið unnin langtímaáætlun fyrir
árin 2001 til 2012 sem við vonumst
til að verði afgreidd á Alþingi í vor.
Landgræðsla rfldsins var valin fyr-
irmyndarríkisstofnun árið 2000.“
Vonumst til
að ríkisstjórn-
in framlengi
átak í kolefn-
isbindingu
með land-
græðslu