Morgunblaðið - 05.09.2000, Qupperneq 18
18 ÞRIÐJUDAGUR 5. SEPTEMBER 2000
LANDIÐ
MORGUNBLAÐIÐ
Norræn ráðstefna
um ferðaþjónustu
NORRÆN ráðstefna um tækifæri
og ógnanir sjálfbærrar ferðaþjón-
ustu í dreifbýli verður haldin í Dal-
víkurskóla á morgun, miðvikudaginn
6. september kl. 9.
Að henni standa Háskólinn á
Akureyri, Dalvíkurbyggð og At-
vinnuþróunarfélag Eyjafjarðar.
Ferðaþjónusta er önnur stærsta
atvinnugrein á Islandi og sú atvinnu-
grein sem vex hvað hraðast í heimin-
um. Þessi atvinnugrein er nú orðin
afar mikilvægur þáttur í að treysta
grundvöll fyrir byggð víðs vegar um
landið. Markmið ráðstefnunnar er
fyrst og fremst að kynna aðferðir
þeirra sem starfa við ferðaþjónustu á
Norðurlöndum í sjálfbærri ferða-
mennsku í dreifbýli en einnig er
markmiðið að stuðla að samstarfi á
meðal þeirra og efla faglega umræðu
um sjálfbæra ferðamennsku í dreif-
býli.
Frummælendur eru Stefán Gísla-
son, Jouko Parviainen, Ritva Okk-
uonen, Stein Malkenses, Per-Ake
Nilsson og Hadda og Lena Zachari-
assen.
Ráðstefnan er liður í samnorrænu
verkefni og er styrkt af svokallaðri
Northem Oerphery-áætlun Evrópu-
sambandsins. Þeir sem að ráðstefn-
unni á Dalvík standa eru þátttakend-
ur í þessu verkefni.
Fundarstjóri er Arnar Már Olafs-
son lektor í ferðamálafræðum við
Háskólann á Akureyri en skráning
fer fram hjá honum.
Morgunblaðið/Helgi Jonsson
Berjadagar voru haidnir f Ólafsfirði nýlega, en myndin er tekin á opn-
unartónleikum þeirra.
Morgimblaðið/Gunnlaugur Árnason
Mörg gömul hús í Stykkishólmi eru nýtt sem orlofshús. Eigendur þeirra hafa lagt metnað í að gera húsin upp og
líta þau vel út og setja svip á bæinn. Þetta hús er að Víkurgötu 7 og hefur verið endumýjað að miklu leyti og
heitur pottur er kominn í garðinn.
Gömul hús í Stykkishólmi
vinsæl sem orlofshús
Stykkishólmi - Orlofshúsum hefur
fjölgað mjög í Stykkishólmi á síð-
ustu árum. Óli Jón Gunnarsson
bæjarstjóri telur að 24 hús í bænum
séu nýtt sem orlofshús. Mörg gömul
og lítil hús hafa verið keypt til
þeirra nota. Eigendur flestra hús-
anna hafa lagt vinnu við að gera þau
upp og líta þau því vel út.
Þegar Óli Jón var spurður um
hvernig honum litist á þessa þróun,
sagði hann að tvær hliðar væru á
málinu. Slæma hliðin vær sú að hér
áður fyrr hóf ungt fólk óft sinn bú-
skap í litlu og ódýru húsnæði, og því
væri það erfiðara í dag. Þetta er
líka slæmt vegna ástands á íbúða-
markaðinum í bænum. Á meðan
ekki er byggt nóg til að koma í stað-
inn fyrir þau hús sem tekin eru
undir orlofshús vantar íbúðarhús-
næði. Að öðru leyti hef ég ekkert
nema gott um þetta að segja, segir
Óli Jón.
Nýtt svæði við Stykkishólm
skipulagt fyrir
orlofshúsabyggð
Eins og fram heíúr komið er vax-
andi áhugi fyrir að eignast orlofs-
hús í Stykkishólmi. Bæjarstjóm vill
sinna þessum áhuga og styrkja or-
lofshúsabyggð í Stykkishólmi. Bæj-
arráð samþykkti á fundi sínum á
þriðjudaginn 29. ágúst að leggja til
svæði í bæjarlandinu undir orlofs-
húsabyggð og mun það vætanlega
svara þessari ásókn í sumarhús í
Stykkishólmi og nágrenni. Nú þeg-
ar liggja fyrir umsóknir frá tveimur
aðilum um svæði fyrir orlofsbyggð.
Umsóknirnar eru frá Skipavík í
Stykkishólmi annars vegar og fjór-
um einstaklingum hins vegar. Á
fundi bæjarráðs var ákveðið að
ganga til samninga við umsækjend-
ur um iand til sumarhúsabyggðar.
Svæðið, sem nú verður úthlutað fyr-
ir sumarhúsabyggð, er fyrir norðan
Birgisborg og sunnan Grensáss í
landi Stykkishólmsbæjar
Vel heppnaðir
Berjadagar
í Ólafsfirði
Óiafsfirði - Berjadagar voru haldnir
í Ólafsfirði um nýlega og er það í
annað skiptið sem þessi tónlistarhá-
tíð er haldin. Að sögn Arnar Magn-
ússonar, eins af frumkvöðlunum,
kviknaði hugmyndin um hátíðina yf-
ir kaffibolla fyrir tveimur árum og
þessi tími ársins varð fyrir valinu.
Listamenn á Berjadögum árið
2000 voru: Bryndís Halla Gylfadótt-
ir, sellóleikari; Hildigunnur Hall-
dórsdóttir, fiðuleikari; Guðmundur
Kristmundsson, víólu- og mandólín-
leikari; Greta Guðnadóttir, fiðluleik-
ari; Marta Guðrún Halldórsdóttir,
söngkona; Sigrún Valgerður Gests-
dóttir; Sigursveinn Magnússon,
píanóleikari og Guðmundur Ólafs-
son, leikari.
Aðsókn á tónleikana var mjög góð
og verður ekki annað sagt en að
undirtektir fólksins hafi verið frá-
bærar og hrifningin mikil.
Morgunblaðið/Amór Ragnarsson
Jón Óiafsson, sijórnarformaður Norðurljósa hf., gaf eldri borgurum í Reykjanesbæ pi'anó sl. sunnudag. Á
myndinni er Jón ásamt fjölskyldu sinni og bræðrunum Kjartani Má og Magnúsi Kjartanssyni.
Ekki hægt að eyða
mink í Aðaldal
vegna fjárskorts
Laxamýri - Ekki er lengur hægt
að eyða mink í Aðaldal þar sem
allt það fjármagn sem ætlað var til
eyðingarinnar er upp urið og hef-
ur sveitarstjóm ákveðið að eyða
ekki meira fé til þessa málaflokks
þetta árið.
Að undanfömu hafa borist þrjár
kvartanir til Landeigendafélags
Laxár og Mývatns vegna minks á
bökkum árinnar og ekki hefur ver-
ið hægt að kalla út veiðimann þar
sem ekki er tryggt að hann geti
fengið greitt fyrir verkið.
Sama ástand var á svæði Laxár
fyrir ári, þar sem lítið var hægt að
stunda veiðar seinni hluta árs
vegna peningaleysis. Hinn
21.október 1999 skrifaði oddviti
hreppsins bréf til umhverfisráð-
herra þar sem hann fór fram á
300.000 króna fjárveitingu til eyð-
ingar minks og refs og væru
ástæður umsóknarinnar hinar
sérstöku aðstæður við Laxá og
mikilvægi svæðisins, sem er ein-
stakt í heiminum fyrir fuglalíf og
auk þess alþjóðlegt vemdarsvæði.
Ástæður þess að þak hefur ver-
ið sett á framlag eyðingar vargs
em bágar fjárhagsástæður sveit-
arsjóðs Aðaldælahrepps.
Svar ráðuneytisins við bréfi
oddvitans hefur ekki borist, en
Landeigendafélag Laxár og
Mývatns sættir sig illa við að ekki
sé hægt að tryggja að hægt sé að
sinna minkaveiðum við ána.
Félagsmiðstöðvar
fá píanó að gjöf
Reykjanesbæ - Sl. sunnudag var
haldið hóf í Hvammi, sem er önnur
tveggja félagsmiðstöðva eldri
borgara í bænum, en tilefnið var
að Jón Ólafsson stjórnarformaður
Norðurijósa hf. gaf félags-
miðstöðvunum vandað pi'anó af
Yamaha-gerð. Jón er fæddur og
uppalinn í Keflavík hjá ömmu sinni
og afa, Jóneyju Margréti Jónsdótt-
ur og Kristjáni Jónssyni, og gefur
píanóið til minningar um þau hjón
á 100 ára ártíð ömmu si'nnar sem
fædd var 27. júlí árið 1900.
Það var séra Björn Jónsson sem
setti samkomuna, en hann var
prestur í Keflavík frá 1952-1975.
Minntist hann gömlu konunnar,
blessaði hljóðfærið og óskaði íbú-
um til hamingju með pi'anóið og
vonaði að það yrði þeim gleðigjafi
í framtíðinni. Jón Ólafsson minnt-
ist uppeldisára sinna í Keflavík og
afhenti síðan píanóið með þeim
lokaorðum að það yrði sett niður
þar sem flestir fengju að njóta.
Bræðurnir Kjartan Már og
Magnús Kjartanssynir sungu og
spiluðu tvö lög og Skúli Skúlason
forseti bæjarstjórnar þakkaði fyr-
ir gjöfina fyrir hönd bæjarstjórn-
ar. Hann sagði m.a. að það væri
ánægjulegt hve synir bæjarfélags-
ins hugsuðu með hlýhug til þess
þótt þeir væru ekki lengur búsett-
ir í bænum. Að athöfninni lokinni
var boðið upp á kaffi og raeðlæti.
Reykjanesbær rekur tvær
félagsmiðstöðvar, Hvamm í
Reykjanesbæ og Selið í Njarðvík,
sem er yngra og stærra. Þá er
einnig rekin vinnustofa í KK-
húsinu sem nefnd er Smiðjan. For-
stöðukona félags eldri borgara í
Reykjanesbæ er Jóhanna Arn-
grímsdóttir.
Bolungarvík
Ráðist
í vatns-
veitu-
fram-
kvæmdir
Bolungarvík - Framkvæmdir
við nýja vatnsveitu í Bolung-
arvík hefjast á næstu vikum,
áætlaður heildarkostnaður
vegna framkvæmdanna er um
42 milljónir.
„Síðan Bakki hf. hóf rækju-
vinnslu í bænum, eða breytti
úr bolfiskvinnslu í rækju-
vinnslu, höfum við verið alveg
á mörkunum með að geta
sinnt einstaklingum og fyrir-
tækjum með vatn,“ sagði Ól-
afur Kristjánsson, bæjarstjóri
Bolungarvíkur. „Rækjuiðnað-
ur er einn vatnsfrekasti fisk-
iðnaður sem um getur og því
sáum við fram á það að þurfa
að ráðast út í framkvæmdir
við nýja vatnsveitu."
Ólafur sagði að um helm-
ingur framkvæmdakostnaðar-
ins færi í að byggja nýja
hreinsistöð.
Yfirborðsvatn
tekið úr Hlíðardal
„Því miður verðum við að
búa við svokallað yfirborðs-
vatn sem við sækjum inn í
Hlíðardal, þar sem Tunguá og
Hlíðardalsá mætast. Þar
verður reist vatnshreinsigám-
astöð sem hreinsar vatnið áð-
ur en því verður veitt um nýj-
ar lagnir inn í bæinn.“
Ólafur sagði að ef fram-
kvæmdimar hæfust á næstu
vikum ætti þeim að ljúka fyr-
ir áramót.
„Vissulega er þetta stór
biti fyrir bæjarsjóð, en við
verðum að kyngja honum.“