Morgunblaðið - 05.09.2000, Page 20
20 ÞRIÐJUDAGUR 5. SEPTEMBER 2000
VIÐSKIPTI
MORGUNBLAÐIÐ
Landsteinar og
Landsteinar
Svenska sameinast
Planet Pulse-keðjan hefur formlega starfsemi
Morgunblaðið/Ásdís
Frá blaðamannafundi í Iðnó.
Geta tekið við sex þúsund
manns á sex stöðvum
AKVEÐIÐ hefur verið að sameina
Landsteina International og Land-
steina Svenska AB en áður hafði ver-
ið tilkynnt um sameiningarviðræður
milli þessara félaga. Dansk Syst-
empartner A/S mun ekki koma að
samrunanum að svo stöddu. Hið
sameinaða félag mun halda nafninu
Landsteinar International og hafa
höfuðstöðvar í Reykjavík.
Samkvæmt tilkynningu frá félag-
inu munu Landsteinar International
eftir sameininguna vera með áætlaða
ársveltu uppá 2,6 milljarða króna á
þessu ári og um 300 starfsmenn. Að
sögn Þorsteins Guðbrandssonar hjá
Landsteinum má ætla að einn þriðji
hluti veltunnar komi í gegnum Land-
steinar Svenska en tveir þríðju
vegna starfsemi hér á Islandi og
dótturfélöganna erlendis. Fyrirtæk-
ið mun vera með starfsemi í gegnum
dótturfélög sín í Svíþjóð, íslandi,
Finnlandi, Danmörku, Englandi,
Jersey og Þýskalandi. Áætlaðri
skráningu á hlutabréfamarkað hefur
verið frestað að svo stöddu. íslenski
hugbúnaðarsjóðurinn mun verða
stærsti hluthafi hins sameinaða fé-
lags með um 21% hlutafjár en
sænska fjárfestingarfyrirtækið
Ledstieman mun eiga 13% hlut. Leif
Almstedt frá Ledstiernan mun verða
stjórnarformaður félagsins en Aðal-
steinn Valdimarsson verður fram-
kvæmdastjóri. Par Söderman frá
Landsteinar Svenska mun verða
framkvæmdastjóri í Svíþjóð.
Stefnt að frekari viðræðum
við Dansk Systempartner
Þorsteinn Guðbrandsson hjá
Landsteinum segir að síðla vetrar
hafi náðst samkomulag um að reyna
þríhliða samruna Landsteina, Land-
FINANCIAL Times (FT) birti um
helgina frétt um einkavæðingu
Landsbankans, Búnaðarbankans
og Landssímans. í fréttinni var
meðal annars haft eftir Hreini
Loftssyni, formanni einkavæðing-
arnefndar, að nokkuð líklegt væri
að erlendir aðilar fengju tækifæri
til að kaupa hlutabréf í Landssím-
anum, sem blaðið sagði að áform
væru um að einkavæða að hluta til
á næsta ári.
í samtali við Morgunblaðið sagði
Hreinn að einkavæðingarnefnd
væri nú að semja skýrslu vegna
sölu á Símanum og yrði henni skil-
steina Svenska AB og Dansk Syst-
empartner með það fyrir augum að
skrá hið sameinaða félag á hluta-
bréfamarkað. Síðan hafi umhverfið
og forsendur á markaðinum breyst
mjög mikið og í sumar hafi verið tek-
in ákvörðun um það að bíða með það
að fullgera samruna fyrirtækjanna
þriggja en stíga samt skrefið til fulls
með Landsteinum Svenska. Mein-
ingin sé hins vegar að taka aftur upp
viðræður við danska félagið seinna í
þessum mánuði eða þeim næsta til
þess að kanna hvort grundvöllur sé
fyrir samrunaviðræðum. Hvað varð-
ar mögulega skráningu á hlutabréfa-
markað segir Þorsteinn að menn
stefni auðvitað að skráningu en
menn vilji hins vegar gera það á þeim
tíma sem það sé hagkvæmt, spurn-
ingin sé að bíða eftir rétta tímanum.
Sóknarfærin aðalkosturinn
Aðspurður segir Þorsteinn að auð-
vitað skapist ákveðin hagræðing með
samruna félaganna og þá ekki hvað
síst á sviði þróunar auk þess sem
tækifæri gefist til þess að nýta betur
„infrastrúktúr“ fyrirtækjanna
beggja. Meginkosturinn við samein-
inguna sé þó þau sóknarfæri sem
skapist á alþjóðlega vísu, s.s. eins og
á mörkuðunum í Finnlandi og Sví-
þjóð og víðar. Þorsteinn segir að
sænska fyrirtækið sé mjög svipað
fyrirtæki og Landsteinar og fyrir-
tækin hafi átt í nokkuð löngu sam-
starfi eða í tvö eða þrjú ár og hún hafi
þróast yfir í mjög nána samvinnu á
þeim tíma. Sænska fyrirtækið hafi
selt lausnir sem Landsteinar hafi
þróað og allt þetta geri það að verk-
um að sameining fyrirtækjanna hafi
að mörgu leyti verið rökrétt og eðli-
legt framhald.
að í þessum mánuði. Hins vegar
sagði Hreinn að engin ákvörðun
hefði verið tekin um sölu og þegar
skýrslan lægi fyrir yrði hún rædd
og ákvörðun tekin að því loknu.
Hreinn segir að eitt af því sem
sé í athugun hjá einkavæðingar-
nefnd sé að skrá hlutabréfin í
Kaupmannahöfn eða London jafn-
framt því að skrá þau hér á landi.
Samkvæmt frétt FT verður
Landssími íslands eitt af síðustu
símafyrirtækjum í Evrópu sem
enn er að fullu í eigu ríkisins eftir
að Telenor í Noregi hefur verið
einkavætt í október.
HEILSURÆKTARKEÐJAN Planet
Pulse tók formlega til starfa í gær
og er þar með orðin stærsti aðili á
þessum markaði hér á landi, að
sögn Jóninu Benediktsdóttur, for-
stjóra Planet Puise. Keðjan sam-
anstendur af sex heilsuræktar-
stöðvum sem samanlagt geta tekið
við um sex þúsund manns. Stöðv-
arnar eru Planet City, Planet Esja,
Planet Gym 80, Planet Pump, Plan-
et Sport og Planet Pulse Heilsu-
skólinn.
Jónína sagði á blaðamannafundi
að búist væri við 25% vexti í heilsu-
ræktargeiranum á komandi árum.
„Heilsuiðnaðurinn er annar mest
vaxandi iðnaðurinn í heiminum á
eftir margmiðlunariðnaðinum og
er svar við velmeguninni á Vestur-
löndum." Hún segist sjá fyrir sér að
keðjan verði liður í markaðssetn-
ingu fslands erlendis sem heilsu-
paradísar fyrir ferðamenn. „Hér á
landi eigum við mikla möguleika á
þessu sviði. ísland hefur þá únynd
að vera hreint land og heilsusam-
legt fyrir ferðamenn en ekki síst
eigum við gífurlega mikil verðmæti
í mannauði með okkar vel mennt-
aða fólk.“
Droifð eígnaraðild með
sterkum fjárfestum
Eignaraðild keðjunnar er dreifð
og segir Jónína sterka Qárfesta
standa að baki keðjunni en vill ekki
gefa upp hveijir þeir eru. „Við er-
um metin hátt vegna hugmynda-
fræðinnar sem liggur að baki
skipulaginu hjá okkur. Við leggjum
línurnar með framtíðina í huga en
ekki til að öðlast skyndigróða.
Markmiðið er að þeir sem byija
að stunda líkamsrækt haldi áfram
en ekki að menn kaupi kort og
hætti siðan eins og oft vill verða. Til
að ná þessu markmiði leggjum við
áherslu á að hafa fámennar stöðvar
með mikilli persónulegri þjónustu.
Þetta hefur gefið góða raun og þau
þrjú ár sem Planet Pulse á Esju hef-
ur verið starfrækt hefur verið 70
milljón króna velta á ári sem verð-
ur að teljast gott fyrir aðeins 300
fermetra stöð.“
Jónína segir að samkvæmt
markaðskönnunum hafi komið í ljós
að 20% fólks sem byijar æfa hjá
líkamsræktarstöð haldi áfram
hvort sem þjónustan er góð eða
slæm, 20% hætti, en 60% haldi
áfram ef þjónustan er góð. „Þetta
er hópur sem við viljum halda í og
þannig stefnum við að langtíma-
sambandi við viðskiptavini okkar.“
Stöðvamar sex skiptast í tvo
flokka, tvær svokallaðar gullstöðv-
ar og fjórar silfurstöðvar. Þeir sem
hafa gullkort geta æft á öllum
stöðvunum sex en þeir sem hafa
silfurkort geta æft á silfurstöðvun-
um Qómm. Sett verður hámark á
meðlimaQöIda í hverri stöð og til að
hægt sé að þjóna hveijum og einum
betur að sögn Jónínu. í fyrstu verð-
ur tekið við 300 manns á gullstöðv-
arnar og 700 manns á silfurstöðv-
arnar.
Ymsar nýjungar verða í boði hjá
keðjunni og má þar nefna nýtt kerfi
fyrir fyrirtæki sem vilja hvetja
starfsmenn til að stunda heilsurækt
með því að taka þátt í kostnaði. „I
þessu nýja kerfi mun fyrirtækið
borga fyrir hvert skipti sem starfs-
maðurinn mætir. Þannig má búast
við að nýtingin verði betri en þegar
fyrirtækin kaupa árskort fyrir
starfsmennina en hafa síðan enga
tryggingu fyrir því að það sé not-
að.
Morgunblaðið/Júlfus
Kristján Jóhannsson Nýheija, Ragnar Bjartmarz frá Information Man-
agement og Bjarki A. Brynjarsson frá Nýheija.
Umfiöllun um Landssima íslands hf.
Eitt af síðustu ríkis-
símafyrirtækjunum
ÍSamlokufundur með Bjarna V. Tryggvasyni, geimfara
Hönnun dempunarbúnaðar
fyrir efnisfræðitilraunir í geimnum
fimmtudaginn 7. september, kl. 12-13.
Bjarni V. Tryggvason, geimfari, mun halda fyrirlestur í Verkfraeðingahúsi,
Engjateigi 9, um hönnun dempunarbúnaðar ("microgravity vibration isolation
mount") fyrir efnisfræðitilraunir í geimnum. Fjallað verður um hönnun
vélbúnaðar, rafeindatækni, hugbúnaðar og stýritækni búnaðarins.
Fyrirlesturinn fer fram á ensku og er öllum opinn.
Bjarni V. Tryggvason fæddist 1945 í Reykjavík og fluttist til Bresku Kólumbíu
(BC) í Kanada. Hann lauk háskólaprófi í eðlisverkfræði ("engineering physics")
frá háskólanum ( BC 1972 og starfaði áfram ("postgraduate work")
við verkfræði, hagnýta stærðfræði og straumfræði ("fluid dynamics").
Bjarni hefur yfir 4000 flugtíma að baki sem flugmaður og var valinn geimfari
kanadísku geimrannsóknastofnunarinnar (CSA) 1983. Eitt meginverkefni hans
fyrir CSA var þróun búnaðar fyrir efnisfræði- og straumfræðitilraunir
í geimnum og framkvæmd tilraunanna.
Verkfrssðingafílag Íslands Taklllfatllfaltli! ItlSBfl
Nýherji eignast
meirihluta í IM
NÝHERJI hf. og Information
Management ehf. (IM) hafa gengið
frá samkomulagi sem felur í sér að
Nýherji mun eignast 63% hlut í
IM. IM er ungt fyrirtæki sem hef-
ur um nokkurra ára skeið starfað á
sviði upplýsingastjórnunar og unn-
ið að víðtækum verkefnum á því
sviði jafnt innanlands sem erlendis.
Samhliða fjárfestingunni munu
fyrirtækin hefja víðtækt samstarf
við þróun og markaðssetningu á
kerfum til upplýsingastjórnunar.
Samstarfið felur m.a. í sér að
Nýherji mun færa meginhluta
starfsemi sinnar á sviði Lotus Not-
es-lausna yfir í IM, leggja fyrir-
tækinu til þekkingu og reynslu,
viðskiptasambönd og tengsl við
innlenda og erlenda aðila.
í fréttatilkynningu frá Nýherja
kemur fram að mikill vöxtur er í
spurn eftir kerfum til upplýsinga-
stjórnunar.
Þessi aukna eftirspurn kemur í
kjölfar fjölgunar á svokölluðum
þekkingarfyrirtækjum þar sem
mannauðurinn og þekking hans er
mikilvægasta auðlind fyrirtækj-
anna. Þekking er einnig orðin lyk-
ilþáttur í rekstri hefðbundinna fyr-
irtækja sem villja ná eða viðhalda
samkeppnisforskoti.
Áhersla á rafræn viðskipti milli
fyrirtækja (e-business) gerir kröf-
ur um öfluga gagnagrunna til að
halda utan um samskipti og við-
skiptasambönd. Að síðustu leiða
nýjar vinnuaðferðir með tilkomu
þráðlausra neta og þriðju kynslóð-
ar farsímakerfa til nýrra vinnuað-
ferða sem krefjast nýrrar tækni.
Starfsmenn IM eru nú 16 tals-
ins.