Morgunblaðið - 05.09.2000, Síða 24
24 ÞRIÐJUDAGUR 5. SEPTEMBER 2000
MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
Mowlam
hætt
st'
«
a
órnmála-
'skiptum
MOMOWLAM, fyrrverandi Norð-
ur-Irlandsmálaráðherra Breta,
lýsti því yfir í gær að hún myndi
ekki gefa kost á
sér í næstu þing-
kosningum í Bret-
landi sem líklega
verða haldnar
næsta vor.
Mowlam stjórnaði
á sínum tíma
samningaviðræð-
unum sem leiddu
til friðarsamkomu-
lagsins á Norður-
Mo
Mowlam
Irlandi árið 1998, en er nú aðstoð-
arráðherra í stjórn Tonys Blairs.
Kvaðst hún vilja hefja starfsferil ut-
an stjórnmálanna og vera að kanna
ýmsa mögulcika í því sambandi.
Talsmaður Blairs sagði brott-
hvarf Mowlams úr stjórnmálum
mikinn missi fyrir ríkissljórnina og
breska þingið. Yfirlýsing Mowlams
þykir hins vegar enn hafa ýtt undir
orðróm um að Blair og Mowlam sé
ekki lengur vel til vina, en sumir
hafa haldið því fram að for-
sætisráðherrann óttist að Mowlam
skyggi á sig vegna þeirra mikilu
vinsælda sem hún hefur notið í
grasrót breska Verkamannaflokks-
ins.
Samkvæmt útbreiddum orðrómi,
sem talmenn forsætisráðherra hafa
neitað, missti Mowlam stöðu sína
sem N-Irlandsmálaráðherra á síð-
asta ári eftir að samstarfsmenn for-
sætisráðherrans fóru að baktala
hana en Mowlam fór ekki leynt með
að hún vildi gegna embættinu
áfram.
Mowlam þótti litrík á ráðherra-
ferli sínum og var þekkt fyrir að
tala hreint út. Hún þótti einnig
hirða lítið um útlit sitt. Meðan á
kosningabaráttunni 1997 stóð
þurfti hún að gangast undir upp-
skurð vegna heilaæxlis og bar hár-
kollu um tíma.
Israelska dómskerfíð
Deri hefur
fangavist sína
Reuters
Stuðningsmenn Deris sjást hér mótmæla fangelsisdómi hans, en um
20.000 manns fylgdu honum að múrum Nitzan-fangelsisins á sunnudag.
Jerúsalem. AP, AFP, Daily Telegraph.
ARYEH Deri, stofnandi ísraelska
stjórnmálaflokksins Shas, hóf á
sunnudag þriggja ára fangelsisvist
eftir að hafa í fyrra verið fundinn sek-
ur um mútuþægni. Um 20.000 stuðn-
ingsmenn Deris, sem hefur nefnt
sjálfan sig leiðtoga „gyðinga bylting-
arinnar“, fylgdu honum að Nitzan-
fangelsinu. Líktu sumir honum við
Nelson Mandela á meðan aðrir hróp-
uðu: „hann er saklaus", en Deri er
talinn píslarvottur ráðastéttarinnar
af mörgum stuðningsmanna sinna.
Deri hvatti við þetta tækifæri
stuðningsmenn sína til að halda
áfram trúboði sínu meðal fátækra
gyðinga frá Miðausturlöndum og
gera sitt til að fá þá til að fylgja eftir
strangtrúarstefnu Shas-flokksins.
Það var fyrst árið 1984 að Deri hóf af-
skipti sín af stjórnmálum, en það ár
hlaut Shas-flokkurinn fjögur sæti á
þingi. Hefur fylgi hans vaxið jafnt og
þétt síðan og á flokkurinn, sem þar til
nýlega var hluti af samsteypustjóm
Ehuds Baraks forsætisráðhema
ísraels, nú 17 menn á þingi.
Fyrir sjö árum var Deri ákærður
fyrir að hafa þegið um 10 milljónir
króna í mútugreiðslur á stjómmála-
ferli sínum. Stuðningsmenn Deris
telja hann hins vegar fórnarlamb
ísraelskra ráðamanna, sem flestir
koma úr röðum evrópskra gyðinga,
ólíkt stuðningsmönnum Shas-flokks-
ins, sem em að stærstum hluta fá-
tækir gyðingar frá arabaríkjunum.
Flestir samþykkir dóminum
Skoðanakönnun sem dagblaðið
Yediot Aharonot birti í gær benti þó
til þess að flestir væra á því að Deri
ætti fangavistina skilið. Vora 68%
henni hlynnt, en 28% andvíg.
„Þessi maður er glæpamaður sem
þáði mútur og reynir nú að kenna
heiminum, dómuram sínum, rann-
sóknarmönnunum og ráðherrum rík-
isstjómarinnar fyrir glæp sinn. Eg
er ánægður með hvað fáir eru honum
sammála," sagði Yossi Beilin, dóms-
málaráðherra ísraela.
Flest bendir þó til að spenna milli
strangtrúaðra og annarra gyðinga
muni aukast á næstunni og tilkynnti
Barak til að mynda nú um helgina að
hann hygðist leggja niður það ráðu-
neyti sem farið hefur með trúmál í
ísrael. Auk þessa munu skólar þeir
sem heyra undir Shas-flokkinn þurfa
að taka námsskrá sína til endurskoð-
unar.
Kosningabarátta bandarísku forsetaframbjóðendanna harðnar
Washington. AFP.
AL GORE, forsetaframbjóðandi
demókrata í Bandaríkjunum, hefur
hafnað tillögu Georges W. Bush,
frambjóðanda repúblikana, um til-
högun sjónvarpskappræðna fyrir
kosningarnar í nóvember. Fullyrð-
ir Gore að of lítill hluti kjósenda
eigi kost á að fylgjast með út-
sendingunum ef farið verður að til-
lögu Bush.
Búist er við að sjónvarpskapp-
ræður forsetaframbjóðendanna
skipti meira máli nú en oft áður,
þar sem skoðanakannanir benda
til þess að lítill munur sé á fylgi
þeirra. Sérstök nefnd, sem er skip-
uð bæði demókrötum og repúblik-
önum, hefur haft umsjón með
sjónvarpskappræðum fyrir for-
setakosningar síðan 1988 og legg-
ur hún nú til að frambjóðendurnir
etji kappi í þremur níutíu mínútna
þáttum, sem sendir yrðu út um öll
Deilt um sjón-
varpskappræður
Bandaríkin á helstu sjónvarps-
stöðvunum.
Bush vill styttri
kappræður
Gore samþykkti tillögur nefnd-
arinnar, en samkvæmt tilboðinu
sem Bush lagði fram á sunnudag
munu forsetaframbjóðendurnir
hins vegar aðeins mætast á einum
fundanna sem nefndin hafði skipu-
lagt. Auk þess leggur Bush til að
þeir komi saman fram í tveimur Press“ hjá NBC-sjónvarpsstöðinni
styttri sjónvarpsþáttum með og „Larry King Live“ hjá CNN.
takmarkaðra áhorf: „Meet the Gore hafnaði tillögum Bush án
George W. A1
Bush Gore
tafar, á þeirri forsendu að einungis
kappræðufundir á vegum tvíhliða
nefndarinnar hlytu nægilegt áhorf.
Haft var eftir aðstoðarmönnum
varaforsetans í gær að hann myndi
mæta í þættina á NBC og CNN,
en einungis ef Bush samþykkti að
mæta á alla kappræðufundina
þrjá, sem nefndin lagði til.
Dylgjur á báða bóga
Varaforsetinn hefur meiri
reynslu af sjónvarpskappræðum
en ríkisstjórinn í Texas og áður en
Bush lagði fram tillögur sínar
hafði Gore sakað hann um að þora
ekki að mæta sér. Aðstoðarmenn
Gore gáfu í skyn í gær að tillögur
Bush staðfestu þetta. Stuðnings-
menn Bush hafa á hinn bóginn
reynt að gera dræm viðbrögð
varaforsetans við tilboðinu tor-
tryggileg.
Nýnasistar í röðum
dýraverndunarsinna
London. Daily Tclegraph.
AP
Dýraverndunarsinnar grípa oft til ýmissa ráða til að vekja athygli á
málstað sínum og sést hundur hér virða fyrir sér mútmælendur fyrir ut-
an loðfeldaverslun eina í London. Nýnasistar finnast nú í röðum dýra-
verndunarsinna og sigla þar gjarnan undir fölsku flaggi.
DYRAVERNDUNARBARÁTTAN
virðist vera nýjasti vettvangur
breskra nýnasista að sögn dagblaðs-
ins Daily Telegraph, sem kveður
nýnasista nú taka þátt í mótmælum
dýravemdunarsinna í auknum mæli.
Þátttaka þeirra fer þó ekki hátt enda
hafa nýnasistamir haft hljótt um aðr-
ar, ög síst vinsælli, skoðanir sínar.
I umfjöllun sinni nefnir Daily Tele-
graph þrjá hópa öfgasinna sem
tengdir era harðlínusamtökum
nýnasista, og hafa á undanfömum
mánuðum tekið þátt í mótmælaað-
gerðum dýraverndunarsinna vegna
tilrauna á dýram. Er talið að með
þessu reyni hópamir að færa sér í nyt
spennu og deilur sem oft fylgja mót-
mælunum.
Margir nýnasistar era hlynntir
kenningum Adolfs Hitlers um land-
búnaðarþjóðfélagið. Þar era íbúar all-
ir grænmetisætur, notkun aukaefna
við ræktun matvæla er bönnuð sem
og tilraunir á dýrum. Skoðanir þess-
ara manna byggjast á hinum svo-
nefndu „Blóð- og jarðvegskenning-
um“ Walther Darré,
landbúnaðarráðherra Hitlers. Kyn-
þáttahatrið er þó ekki langt undan og
er hluti hugmyndafræðinnar níð um
svonefndar „helgislátranir framandi
þjóðflokka" - þar sem átt er við slátr-
unaraðferðir gyðinga og múslima.
Gripið til aðgerða
gegn öfgasinnum?
Fyrir um hálfum mánuði fóra fram
miklar mótmælaaðgerðir gegn til-
raunum á dýrum í Cambridgeskíri.
Mótmælin vora fyrirfram auglýst
sem þau stærstu sem efnt hefði verið
til í Bretlandi og var viðbúnaður lög-
reglu vegna þessa bæði mikill og
kostnaðarsamur.
Vitað er nú að auk hefðbundinna
dýravemdunarsamtaka vora ný-
nasistar meðal þátttakenda. Troy
Southgate, forystumaður öfgahóps-
ins Þjóðbyltingarhreyfingin (NRF),
notaði til að mynda vefsíðu sína til að
hvetja liðsmenn NRF til að taka þátt
í „aðgerða-deginum". Alls vora ellefu
manns handteknir vegna mótmæl-
anna í Cambridgeskíri ýmist fyrir
skemmdarverk sem og líkamsárasir,
en 1.200 lögreglumenn tóku þátt í að-
gerðunum og kostnaður vegna þeirra
er sagður nema hátt í 30 milljónum
króna.
Aukið ofbeldi þykir nú á stundum
einkenna mótmælaaðgerðir dýra-
vemdunarsinna og hefur þetta orðið
til þess að Jack Straw, innanríkisráð-
herra Breta, íhugar nú að setja lög er
tryggi vísindamönnum, á þeim rann-
sóknarstofum sem vinna með dýr,
aukna vemd. Eru fréttir af þátttöku
nýnasista í aðgerðum dýravemdun-
arsinna taldar verða Straw hvatning
til þessa.
Southgate, sem tekið hefur út dóm
fyrir líkamsárás, er yfirlýstur stuðn-
ingsmaður Himmlers sem og tals-
maður aðskilnaðarstefnu ólíkra kyn-
þátta. Hann tilheyrði áður
Þjóðarfylkingunni (NF), en fer nú
fyrir NRF, félagasamtökum sem not-
færa sér leynilegar áróðursaðferðir.
Meðlimir NRF hafa, að sögn Daily
Telegraph, tekið þátt í fleiri mót-
mælaaðgerðum en þeim sem fram
fóra í Cambridgeskíri. Erfitt er þó að
þekkja þá úr þar sem þeim er ekki út-
hlutað skírteini á vegum samtakanna.
„NRF notar hópa manna sem
lauma sér inn í stjórnmálasamtök,
stofnanir og í þjónustustörf," sagði
Southgate. „Þessi vinna er hluti
stefnu okkar og ef brautargengi okk-
ar á að aukast í framtíðinni þá verð-
um við grípa til slíkra aðgerða í aukn-
um mæli.“
Dæmdur hryðjuverkamaður
Annar sá hópur nýnasista sem
einnig deilir sumum skoðunum dýra-
verndunarsinna er Stuðningshópur
dýra (ASG), sem era systrasamtök
fasistahreyfingarinnar Hin alþjóð-
lega þriðja hreyfing er lýtur forystu
ítalska hryðjuverkamannsins
Roberto Fiore.
Á vegum ASG er gefið út frétta-
bréfið Freedom Fighter þar sem
greint er ítarlega frá baráttu samtak-
anna við Shamrock, fyrirtæki er flyt-
ur inn prímata til rannsókna. Frétta-
bréf ASG er auðkennt með mynd af
grímuklæddum dýravemdunarsinna
er stendur með hund í örmum sér
andspænis fána heilags Georgs. Vitað
er til þess að ASG hafi tekið þátt í að-
gerðum þar sem spillt hefur verið fyr-
ir veiðiferðum í Kent, og segir Daily
Telegraph liðsmenn ASG njóta þess
að geta haft samneyti við önnur sam-
tök dýravemdunarsinna, sem oftar
en ekki era vinstrisinnuð, á meðan
fasistaskoðanir þeirra fari hljótt.
Þriðju samtökin era síðan Breska
hreyfingin (BM), sem er illræmd fyr-
ir ofbeldisaðgerðir sínar, en styður
engu að síður málefni dýraverndun-
arsinna. í stefnuskrá þeirra segir:
„Nýjar siðareglur okkar heimila ekki
vísindamönnum, kaupsýslumönnum,
eða stjómmálamönnum að leika guð í
nafni forvitni, hagnaðar eða illsku.“
Notuð til liðssöfnunar
„Sýndi einhver þessara hópa sitt
rétta andlit myndu aðrir þátttak-
endur sýna mikla heift við að útiloka
þátttöku þeirra. I stað þess að starfa
fyrir opnum tjöldum þá nota þeir
mótmælin til að bæta við sig nýjum
liðsmönnum. Þeir era svo sannarlega
slægir," sagði talsmaður tímaritsins
Searchlight í viðtali við Daily Tele-
graph, en tímaritið er yfirlýstur and-
stæðingur fasista.
Fæst dýravemdunarsamtök hafa
hins vegar, til þessa, verið meðvituð
um að öfagasinnaðir hægri menn
leyndust í þeirra röðum. Michelle
Thew, framkvæmdastjóri dýravemd-
unarsamtakanna BUÁV, sagði sam-
tök sín ekki heimila liðsmönnum
skoðanir er byggðust á kynþáttamis-
munun eða fasisma.
„Ég er undrandi og uppveðrað að
heyra að þessir hópar skuli taka þátt í
dýravemdunarbaráttunni,“ sagði
Thew. „Maður myndi jú telja að flest-
ir þeir sem era mótfallnir tilraunum á
dýrum myndu einnig finna til samúð-
ar með mönnum og fordæma áþján
þeirra."