Morgunblaðið - 05.09.2000, Side 26
26 ÞRIÐJUDAGUR 5. SEPTEMBER 2000
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ
Heillastjörnur stýra
eldflaugavarnakerfi
í biðstöðu
Eftir brösugt gengi, tæknileg vandamál og
alþjóðleg mótmæli, tilkynnti Bill Clmton Banda-
ríkjaforseti 1. september að hann hygðist láta eftir-
mann sinn um að ákveða hvort haldið yrði áfram að
____þróa hátæknieldflaugavarnakerfi._
Margrét Björgúlfsdóttir í Washington skoðar
ástæðurnar á bak við frestunina.
Reuters
Tilraunaútgáfa af skotflaug sem ætluð er sem hluti af stjörnustríðsáætl-
un Bandaríkjamanna sést hér hefja sig á loft. Clinton Bandaríkjaforseti
frestaði nýlega frekari ákvörðunartöku um stjömustríðsáætlunina.
VORT byggja ætti nýtt
eldflaugavamarkerfi
virtist stefna í að verða
ein erfiðasta ákvörðun
Bill Clintons Banda-
ríkjaforseta. Með kosningar á næsta
leiti og undir þrýstingi frá repúblik-
önum, gátu demókratar ekki gefið
þann höggstað á sér að þeir væru
veiklundaðir í vamarmálum. Clinton
gat heldur ekki virst gefa eftir vegna
mótmæla Rússa og bandamanna
Bandaríkjanna í Evrópu. Kaldhæðni
örlaganna er sú að tæknilegir erfið-
leikar hjá þeirri þjóð sem stærir sig
af því að vera fremst í þróun hátækni-
búnaðar í heiminum voru á endanum
besta undankomuleiðin.
Ákvörðunin um að slá á frest upp-
byggingu eldflaugayamarkerfisins
kom ekki á óvart. Ýmis tæknileg
vandræði hafa angrað þróunardeild
vamarmálaráðuneytisins í Pentagon
og nú síðast í júlí mistókst hrapallega
flugpróf sem ætlað var að koma eld-
flaug á loft. Það lá því ljóst fyrir
seinni part sumars, að uppmnaleg
áætlun um að kerfið yrði tilbúið til
Eldhústæki
Neve eldhústæki kr. 5.678
Feliu elhústæki kr. 7.038
Grohe eldhústæki kr. 9.696
Mora eldhústæki kr. 8.765
Tveggja handa eldhústæki
frá kr. 2.801
Heildsala/smásala
VA TNSVIRKINN ehf.
Ármúla 21,
sími: 533 2020.
notkunar árið 2005 myndi ekki stand-
ast. Þar með fékk Clinton tækifæri til
að fresta umdeildum aðgerðum án
þess þó að sýna veikleika heima fyrir
og á sama tíma skapa meira svigrúm
til að sannfæra umheiminn um ágæti
þessa kerfis.
Tímasetningin á tilkynningu for-
setans, sem fram fór í gamla háskól-
anum hans í Georgetown í Washing-
ton sl. föstudagsmorgun, var heldur
engin tilviljun. Löng helgi var fram-
undan, sumarleyfum að ljúka og því
lítið fréttaáhorf. Því var reyndar lek-
ið í fjölmiðla að háttsettir starfsmenn
vamarmálaráðuneytisins hefðu mátt
lesa fréttatilkynninguna um leið og
almenningur og því ekki getað hafið
neinn áróður gegn áformum forset-
ans. Innan Pentagon eru menn áfjáð-
ir í að fá tækifæri til að sanna kosti
eldflaugavama og Richard Cohen
vamarmálai'áðherra er sagður hafa
reynt til hins ítrasta að halda öllum
kostum opnum.
Því má heldur ekki gleyma að í
þessari viku mun Clinton hitta marga
helstu andmælendur vamarkerfisins,
þ.e. Vladimír Pútín Rússlandsforseta
og fleiri ráðamenn á sérlegu alda-
mótaþingi Sameinuðu þjóðanna í
New York, þar sem að öðru óbreyttu
hefði mátti búast við harðri gagnrýni
á eldflaugavamarkerfið.
Bandaríkjamenn hafa sagt að fjór-
ir þættir skiptu meginmáli um fram-
vindu áætlunarinnar. Þeir em í fyrsta
lagi mat á hættunni á árás, síðan
tæknilega hliðin, í þriðja lagi kostnað-
ur og síðast en ekki síst, áhrifin á
heildaröryggi þjóðarinnar. A blaða-
mannafundi í kjölfar ræðu Clintons
fór Sandy Berger, öryggisráðgjafi
Bandaríkjaforseta, yfir þessa þætti.
Það er því við hæfi að skoða fram-
haldið í ljósi þessara forsendna.
Raunveruleg ógnun
Mikið vatn hefur mnnið til sjávar
frá því á kaldastríðsárunum, þegar
umræðan snerist um ógnarjafnvægi
risaveldanna. Samningar við Rússa
um takmörkun vígbúnaðar eru enn
hátt á lista í forgangsröðinni. I dag
standa bandarísk yfirvöld hins vegar
bjargföst í þeirri trú að landinu muni
í náinni framtíð stafa mest ógn frá
löndum á borð við Norður-Kóreu, Ir-
an og Irak. Samkvæmt upplýsingum
bandarísku leyniþjónustunnar
standa þessi lönd að tilraunum til út-
búa langdrægar kjamaflaugar sem
gert gætu árás á Bandaríkin og að
slíkum tilraunum gæti verið lokið fyr-
ir 2005.
Berger tók fram á
fundinum að varnar-
stefna bandarískra
stjómvalda byggist enn á
þeirri staðreynd að
skyndiárás af þessu tagi yrði mætt
með svo öflugri gagnárás að óvinin-
um yrði tortímt. Engu að síður benti
hann á að ríki sem búa yfir kjama-
flaugum gætu liðast í sundur og
kjamorkuvopn lent í höndum
ótryggra aðili sem myndu svífast
einskis til að ná fram markmiðum
sínum. Þar að auki em alltaf ein-
hveijar líkur á að hryðjuverkamenn
komist yfir slík vopn.
Ógnin er sem sagt talin raunveru-
leg. Bandaríkjamenn hafa tekið þessi
mál nógu alvarlega til þess að koma
fram með gagnáætlanir um hvemig
best sé að bregðast við slíkum árás-
um og þar hefur eldflaugavarnar-
kerfið umdeilda verið efst á baugi.
Bætt samskipti Norður- og Suður-
Kóreu, samanber leiðtogafundinn í
sumar, virðast þó draga úr hættu á
árás. Þessi þíða auðveldaði reyndar
ákvörðun forsetans, því Norður-Kór-
ea er talið það óvinaríki sem hvað
lengst er komið í þróun langdrægra
kjamaflauga.
Tæknilega mögulegt?
í stuttu máli, er hugmyndin á bak
við kerfið sú að byggja eldflauga-
stöðvar sem geta skotið niður óvina-
flugskeyti áður en þau ná til Banda-
ríkjanna. Háþróaðar ratsjárstöðvar
eiga að sjá til þess að nægilegur tími
gefist til að staðsetja óvinaflaugar og
granda þeim áður en þær hæfa tilætl-
uð skotmörk. Til stóð að 20 flugskeyti
og tilheyrandi ratsjárbúnaður yrðu
tilbúin til notkunar í Alaska 2005.
Fyrstu tilraunir til að skjóta niður
gervikjamaodda, sem framkvæmdar
voru fyrir tæpu ári lofuðu góðu, en
síðan hefur aÚt gengið á afturfótun-
um. Tilraunir í janúar og svo aftur í
júh' mistókust og vísindamenn vam-
armálaráðuneytisins viðurkenndu í
ágúst að þeir þyrftu meiri tíma áður
en unnt yrði að sýna fram á að kerfið
virkaði.
Ræða Clintons þarf því engum að
koma á óvart. „Samkvæmt þeim upp-
lýsingum sem við höfum í dag get ég
ekki dregið þá ályktun að við búum
yfir nægilegri vissu um að tæknin sé
til staðar og að kerfið verði tilbúið til
notkunar svo halda megi áfram með
áætlunina," sagði Clinton. Frestun
fram í janúar þarf þó ekki endilega að
þýða umtalsverða seinkun. Næsti
forseti getur tekið af skarið fljótlega
eftir að hann tekur við embætti og þá
ætti búnaðurinn „ef allt gengur sam-
kvæmt áætlun“ að vera tilbúinn 2006
eða 2007.
Þó að máhnu hafi verið slegið á
frest, var kerfið ekki sett í salt. Tals-
menn stjómarinnar hafa lagt áherslu
á að eldflaugavarnarkerfið sé enn
besti mögulegi vamarkosturinn gegn
óvinaflugskeytum og að stöðugar
framfarir eigi sér stað í þróun þess.
„Óreynt, en lofar góðu“ eins og Clint-
on forseti orðaði það. Rannsóknum
og tilraunum verður því haldið áfram.
Forsetaframbjóðandi repúblikana,
George W. Bush, sem er hlynntur
mun víðtækara kerfi, sendi frá sér til-
kynningu strax á föstudaginn þar
sem hann gagnrýndi Clinton og sak-
aði stjóm hans um linkind. Bush hef-
ur lýst sig reiðubúinn að leggja fram
mun stórtækara kerfi, sem að öllum
líkindum næði einnig til skipa og
gervitungla án þess þó að tala nánar
um tæknileg vandkvæði því fylgjandi
sem enn á eftir að leysa.
A1 Gore, varaforseti og forsetaefni
Demókrataflokksins, hefur varið
gerðir stjómarinnar. Hann sendi þó
einnig frá sér yfirlýsingu
samdægurs þar sem hann
sagðist fylgjandi „áfram-
haldandi tilraunum til að
þróa kerfi sem virkar,
sem svarar kostnaði og er
ásættanlegt fyrir bandamenn Banda-
ríkjanna."
Repúblikanar ætla sér að gera
kosningamál úr þessari ákvörðun og
sýna fram á að demókratar séu ekki í
stakk búnir til að fara með vamir
landsins. Dick Cheney, varaforseta-
efni flokksins og fyrrverandi vamar-
málaráðherra í ríkdsstjóm föður
Bush, hefur ásakað demókrata um að
veikja herinn. En eldflaugavamir eru
þó ólíklegar til að skipa stóran sess í
kosningabaráttunni. A friðartímum,
þar sem bandarískum almenningi
finnst sér ekki ógnað, eru aukin út-
gjöld til hermála og óvinaflugskeyti
einfaldlega ekki þau málefni sem
höfða mest til þeirra kjósenda sem
enn hafa ekki gert up hug sinn.
Yfirstíganlegur kostnaður
Samkvæmt upplýsingum frá yfir-
völdum hefúr stjómin þegar eytt 5,7
milljörðum Bandaríkjadala til þróun-
ar á kerfinu og auk þess sett á fjárlög
2001-2005 alls 10,4 miHjarða til
áframhaldandi rannsókna og hugsan-
legra framkvæmda.
Varnarmálaráðuneytið hefur áætl-
að að það muni kosta 25 milljarða
dala (fjárlög 2001-2009) að fram-
kvæma fyrsta stig áætlunarinnar,
þ.e. að koma upp 100 varnarflaugum í
Alaska og endumýja ratsjárviðvör-
unarkerfið á heimsvísu.
Til þess að setja hlutina í samhengi
benti Berger á að þetta samsvaraði
minna en einu prósenti af fjárlögum
til vamarmála á næstu sex árum.
Aðrir aðilar hafa nefnt að talan gæti
hækkað í 60 milljarða dollara fyrir
allt kerfið. Engu að síður ætti það að
vera ljóst að kostnaður einn og sér
mun ekki koma til með að standa
áætluninni fyrir þrifum.
Öryggismál og afvopnun
Sú spuming sem Bandaríkjamenn
hljóta að spyija er hvort eldflauga-
vamarkerfið auki eða minnki öryggi
landsins. Ráðamenn í Washington
gera sér fulla grein fyrir því að vamir
iandsins koma aldrei til með að
byggjast eingöngu á þessum eld-
flaugum og Clinton gerði
áframhaldandi afvopnun-
arumræður, samhliða því
sem samráð værí haft við
bandamenn og Rússa um
framvindu kerfisins, að
umtalsefni í ræðu sinni.
Rússar, sem hafa mótmælt áform-
unum harðlega, og Evrópulönd innan
Atlantshafsbandalagsins, sem hafa
látið uppi efasemdir um gagnsemi
kerfisins, fögnuðu ákvörðun forset-
ans um frestun. Það gæti þó orðið
skammgóður vermir því Clinton og
forsetaframbjóðendurnir tveir hafa
allir sagt að þegar á hólminn sé komið
muni hvorld Rússar né aðrar þjóðir
koma til með að hafa neitunarvald yf-
ir vamarstefnu Bandaríkjanna.
Rússar halda því fram að eld-
flaugavamimar brjóti gegn
samningnum um bann við gagnflaug-
um frá 1972 og Bandaríkjamenn hafa
reynt án árangurs að fá rússnesk yf-
irvöld til að samþykkja breytingar á
samningnum. Rússar benda þá enn-
fremur á að kerfið raski valdajafn-
vægi stórveldanna, stefni frekari af-
vopnunarviðræðum í hættu og geti
leitt til nýs vígbúnaðarkapphlaups
með ófyrirsjáanlegum afleiðingum.
Kínverjar em ekki síður óánægðir
með þessa þróun og hafa tekið í sama
streng.
Bandaríkjamenn hafa leitast við að
sannfæra Rússa og Kínverja um að
kerfinu sé ekki beint gegn þeim og
Berger notaði tækifærið á föstudag-
inn til að benda á að landfræðilega sé
Rússland alls ekki undanþegið þeirri
hættu sem gæti stafað af svokölluð-
um „þrjótaríkjum“.
Eftir misheppnuðu tilraunaskotin í
sumar vom embættismenn banda-
ríska utanríkisráðuneytisins fljótir að
benda á að nú gæfist kærkomið tæki-
færi til að ráðgast frekar við banda-
menn og vinna að diplómatískri lausn
málsins. Ólíkt vonbrigðunum í vam-
armálaráðuneytinu, sjá Madeleine
Aibright utanríkisráðherra og aðrir
háttsettir embættismenn þessa töf
opna möguleika á frekari viðræðum
við Pútín Rússlandsforsesta. En ná-
ist samkomulag við Rússa er talið að
Evrópuþjóðirnar fylgi í kjölfarið.
Rússar hafa enga burði til að hefja
nýtt vígbúnaðarkapphlaup og vonast
Pútín til að notfæra sér aðstæðurnar
og knýja fram frekari afvopnunarvið-
ræður. Hann hefur lagt til
meirí niðurskurð en
Bandaríkjamenn era til-
búnfr að samþykkja, en
gæti hugsanlega viljað
nota svigrúmið sem hefur
skapast til að ná fram samningum við
núverandi ríkisstjóm Bandaríkjanna.
Bandaríkjamenn ættu að mati
sumra sérfræðinga að fagna slíku
frumkvæði og ljúka START III
samningunum sem fyrst. Clinton er
að láta af embætti og er farinn að
velta því fyrir sér hvemig hans verð-
ur minnst. Nýr afvopnunarsamning-
ur myndi vega þungt á vogarskálam-
ar í þeim efnum.
Erlend ríki
gagnrýna
kerfið
Auki eða
minnki öryggi
landsíns?