Morgunblaðið - 05.09.2000, Side 27
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 5. SEPTEMBER 2000 27
ERLENT
Frestast
stofnun
Palestínu?
HÁTTSETTUR embættismað-
ur innan Frelsissamtaka Pal-
estínu (PLO) gaf í gær til kynna
að fyrirhugaðri stofnun Palest-
ínuríkis 13. september næst-
komandi kunni að verða frestað.
„13. september er ekki heilög
dagsetning. Það er enn svigrúm
fyrir áframhaldandi viðræður
og á meðan svo er held ég að
ekkert muni gerast 13. septem-
ber,“ sagði Faruq Qaddumi, yf-
irmaður stjórnmáladeildar
PLO. Qaddumi benti á að leið-
togar Palestínumanna væru nú
á leið á leiðtogafund Sameinuðu
þjóðanna í New York. Þar yrðu
margir fundir haldnir, m.a.
myndi Bill Clinton Bandarfkja-
forseti ræða einslega við leið-
toga ísraela og Palestínu-
manna.
Hariri sigr-
aði í Líbanon
AUÐKÝFINGURINN Rafiq
Hariri er sigurvegari þingkosn-
inganna er fram fóra í Líbanon
um helgina. Hariri er fyrram
forsætisráðherra og vann hann
ásamt bandamönnum sínum öll
þingsætin í höfuðborginni Beir-
út. Hariri sagði af sér embætti
árið 1998 vegna deilna við for-
setann Emile Lahoud, en La-
houd mun á næstunni tilkynna
hvem hann tilnefnir sem for-
sætisráðherraefni.
Járnbútur úr
annarri þotu
FRANSKIR sérfræðingar telja
líklegt að jámbútur, sem talið
er að kunni að hafa valdið því að
hjólbarði Concorde-þotunnar,
er fórst á Charles de Gaulle-
flugvelh, sprakk, hafi dottið úr
þotu er fór í loftið fjóram mínút-
um á undan. Um er að ræða
DC-10 þotu frá Continental
Airways en í ljós kom að á
hægri hreyfil hennar vantaði
stykki áþekkt því sem fannst á
brautinni.
Pilla án
lyfseðils
NORSKA lyfjaeftirlitið hefur
ákveðið að pilla sem kemur í
veg fyrir þungun sé hún tekin
inn ekki síðar en 72 klukku-
stundum eftir getnað verði ekki
lengur lyfseðilsskyld. Valgerd
Svarstad Haugland, formaðm-
Kristilega þjóðarflokksins,
gagnrýndi ákvörðunina í gær
og sagði líklegt að hún myndi
leiða til þess, að færri notuðu
smokka.
Nýtt 250 g Ljóma
Hentugt til steikingar
Ljóma smjörlíkið fæst nú í nýjum 250 og 500 g stykkjum.
vítamín smjörlíki
Sól-Víking • Þverholti 19-21 • Reykjavík
Fasteignir á Netinu
ll/ECO
IVECO
Sendibíll ársins 2000 I Evrópu
Vann þennan eftirsótta titii með yfirburðum.
Iveco Daily, sendibíll ársins 2000 er sterkur sigurvegari á góðu verði.
Við bjóðum 3000 gerðir af Daily, einnig ótrúlegt verð á kössum og vörulyftum.
• W
ístraktor ?«
LAR FYRIR ALLA