Morgunblaðið - 05.09.2000, Qupperneq 32
32 PRIÐJUDAGUR 5. SEPTEMBER 2000
MORGUNBLAÐIÐ
____________LISTIR_________
Djassinn hefur sjaldan
risið svona hátt
DJASS
Kaffi Reykjavík
KVARTETT TÓMASAR R.
EINARSSONAR ÁSAMT
JENS WINTHER
Jens Winther trompet og flygil-
horn, Jóel Pálsson tenórsaxófón,
Eyþór Gunnarsson pianó, Tómas R.
Einarsson bassa og Matthías M.D.
Hemstock trommur. Laugar-
dagskvöldið 2. september 2000.
MARGIR muna hina vel heppn-
uðu samvinnu tónskáldsins og
bassaleikarans Tómasar R. Einars-
sonar og danska trompetleikarans
Jens Winthers á skífunum Hinsegin
blús (1987) og Nýr tónn (1989). Nú
kom Jens enn á ný til að leika tón-
verk Tómasar og með þeim léku Ey-
þór Gunnarsson píanisti, sem einnig
lék á Hinsegin blús og Nýjum tóni,
Jóel Pálsson saxófónleikari og Matt-
hías M.D. Hemstock trommari.
Jens Winther hefur lengi verið í
hópi fremstu djasstrompetleikara
Evrópu og þótt víðar væri leitað og
hann hefur einnig getið sér gott orð
sem tónskáld og hljómsveitarstjóri.
Hingað til lands kom hann fyrst á tíu
ára afmælishátíð Jazzvakningar
1985 og lék þá með Mezzoforte
ásamt ástralska tenórsaxófónleikar-
anum Dale Barlow. Svo samstarf
þeirra Eyþórs nær enn lengar aftur
en samstarf Tómasar og Jens.
Á Kaffi Reykjavík flutti kvintett-
inn átta ópusa, sem einnig voru
hljóðritaðir í hljóðveri síðustu helgin
og eru væntanlegir á diski í nóvem-
ber - skammt stórra högga á milli
hjá Tómasi því nýkominn er á mark-
að diskur hans og Einars Más Guð-
mundssonar stórskálds: I draumum
var þetta helst.
Nýr tónn er einn þeirra djass-
diska sem tímans tönn virðist lítið
vinna á og ég er viss um að svo verð-
ur einnig með hinn nýja disk. I það
minnsta verður fátt annað ráðið af
tónleikum þeirra félaga á Kaffi
Reykjavík í upphafi tíundu Jazzhá-
tíðar Reykjavíkur. Tónleikarnir
voru stórkostlegir - glæsilegur sigur
fyrir Tómas sem tónskáld og Eyþór
og Jóel sem spunameistara.
Jens Winther blés hvern sólóinn
öðrum betri og sér í lagi voru ballöð-
urnar blásnar snilldarlega - engin
furða að nýi ballöðudiskurinn hans
hafi gert jafnstormandi lukku í Dan-
mörku og raun ber vitni.
Fyrsti ópusinn var vals og um leið
undurljúf ballaða. Maínótt nefndist
hann og slagaði hátt uppí einn feg-
ursta djassvals norrænan síðustu
áratuga, Vals, eftir Eyþór Gunnars-
son, sem heyra má á Hinsegin blús,
sem fyrir löngu ætti að vera endur-
útgefinn á geisladiski. Sólóar Jens
og Éyþórs voru gull og Jóel þar á
milli steins og sleggju. Hann bætti
það aldeilis uppi í Hjartaslagi, meist-
araballöðu eftir Tómas. Það var
fyrsta lag eftir hlé og tónleikagestir
sátu einsog bregnumdir. Jens blés
blúsaðan trompetsóló, þá lék Eyþór
af innborinni innlifun og Jóel kórón-
aði verkið með ótrúlega vel upp-
byggðum sóló þar sem hann krydd-
aði perónulegan tón sinn hinum
eilífa þurrblæstri hinna klassísku
tenórsaxófónleikara og varð næstum
Websterískur á að hlýða. Svona
spilamennska, einsog hjá þeim félög-
um öllum, fyllir mann stolti fyrir
hönd Islandsdjassins. Einn Dani
bargðbætir það bara - enda sömu
ættar og við.
Pó að ballöðumar hafi haft vinn-
inginn hjá Tómasi og félögum voru
hraðari lögin ekki af verri endanum.
Dansað í lauginni, endurminning
Tómasar frá æsku sinni í Sælings-
dalslaug, var eftirminnilegust fyrir
glæsilegt upprennsli blásaranna í
lok tónhendinga, Tommatúmbaó,
var það af karabísku lögunum sem
einna best var heppnað og Jens
Winther með kúbanska trompetstíl-
inn á hreinu.
Ég gæti lengi haldið áfram að lýsa
tónverkum Tómasar í túlkun kvint-
ettsins, en rýmið leyfir ekki fleiri
orð. Einleikararnir allir betri en orð
fá lýst, og það helsta sem gagnrýni
er vert að þungur bassastíll Tómas-
ar og léttleiki Matthíasar gaf ekki
þann slagkraft sem við höfum heyrt
þegar Pétur Östlund hefur verið
trommari Tómasar. Sér í lagi kom
það við sögu í karabísku dönsunum.
Broadway
ÚTLENDINGA-
HERSVEITIN
Árni Scheving víbrafón, Þórarinn
Ólafsson píanó, Jón Páll Bjarnason
gítar, Árni Egilsson bassa og Pétur
Ostlund trommur. Sunnudags-
kvöldið 3. september 2000.
Fáar íslenskar djasshljómsveitir
hafa leikið við jafnmikla hrifningu
hérlendis síðasta áratug og Útlend-
ingahersveitin. Hún lék í fyrsta og
eins skipti til þessa á RúRek Jazzhá-
tíðinni 1992 á Hótel Sögu og Púlsin-
um. Einsog nafnið gefur til kynna
eru þeir félagar búsettir um veröld
víða. Árni Egilsson bassaleikari og
Jón Páll Bjarnason gítarleikari í Los
Angeles, Þórainn Ólafsson píanisti í
London, Pétur Östlund trommari í
Stokkhólmi og Árni Scheving víbra-
fónleikari í Breiðholti.
Allir hafa þeir félagar verið í
fremstu röð hljóðfæraleikara um
áratugaskeið nema píanistinn Þórar-
inn Ólafsson. Eftir glæstan feril, ma.
sem húspíanisti í Jazzkkúbi Reykja-
víkur þar sem hann lék með mönn-
um á borð við Booker Erwin, Yuseef
Lateef og Art Farmer hætti hann
hljóðfæraleik og sneri sér að öðrum
störfum. Sem betur fer hefur hann
söðlað um og helgar sig nú píanóinu
óháður öllu öðru en listrænum metn-
aði sínum. Það mátti líka heyra á
tónleikunum á Broadway. Spuni
hans var mun markvissari, heil-
steyptari og hugmagnaðri en þegar
hann lék með Útlendingahersveit-
inni á Hótel Sögu 1992. Eg held að
þeir hafi allir leikið betur en þá.
Kannski ekki Pétur og Jón Páll sem
ég hef aldrei heyrt leika öðruvísi en
þá sem valdið hafa, en Árni Egilsson
var mun sterkari djassbassaleikari
þetta kvöld en ég hef áður heyrt og
Árni Scheving fór á áður óheyrðum
kostum á víbrafóninn.
Þeir félagar hófu og luku tónleik-
unum á verkum eftir trompetleikar-
ann Steve Huffsteter, sem Jón Páll
hefur hljóðritð með. Önnur lög er
þeir léku voru frumsamin utan
standarddjásns sem yljar manni allt-
af um hjartarætur: Lets Fall in
Love. Sum þessara laga höfðum við
heyrt áður einsog Geysi og Nínu eft-
ir Áma Egilsson, Rivers eftir Árna
Scheving Ice eftir Jón Pál og Anja
eftir Pétur Östlund. Þau voru ekki
verri fyrir það. Burstar Péturs í
Geysi og sóló Árna Scheving þar eða
þá í lagi hans Rivers, Jjarsem Milt
heitinn Jackson vitjaði Islands á ný.
Svo voru ný lög. Moming eftir
Áma Egilsson þar sem Þórarinn Ól-
afsson náði að byggja upp sterkan
einleikskafla, Say What, eftir sama
þarsem nett bopKna var leyst af
hólmi af vægu fönki og Georgia hin
fagra kom í heimsókn. Árni Egilsson
átti glæsilegt forspil í verki sínu,
Casa del A1 Calde, sem var frábær-
lega leikið af sveitinni þótt flókið
væri og svo var verk eftir Pétur sótt
í ljóð Atrhurs Rimbauds his franska
sem Helgi Hálfdánar hefur þýtt fyr-
ir okkur og Leonard DiCaprio gert
æskunni kunnan.
Þórarinn Ólafsson útsetti Litfríð
og ljóshurð eftir Emil Thoroddsen
og Suðurnesjamenn Kaldalóns, var
það þó ekki eins góð útsetning og til-
brigði hans við Autum Leaves, sem
hluti Útlebdingahersveitarinnar lék
á Ömmu Lú á 1993.
Einsog um tónleika Tómasar má
segja að nánari umfjöllun bíði disk-
anna sem sveitirnar hafa verið að
hljóðrita, en eitt er víst: Islenskur
djass hefur sjaldan risið svo hátt
sem þessa helgi. Að sjálfsögðu var
Gunnar Ormslev ekki á senunni, en
Jón Páll kom sá og sigraði. Þeir eru
klassíkin - annar horfinn og hinn í
fullu fjöri. Og svo eru það allir hinir.
Vernharður Linnet
Morgunblaðið/Sigríður Kristinsdóttir
Ingibjörg Haraldsdóttir hlaut Ijdðaverðlaunin að þessu sinni, en Gísli
Einarsson, formaður leikdeildar Ungmennafélagsins Dagrenningar í
Lundarreykjadal, og Embla Guðmundsdóttir, formaður Ungmennafé-
lags Reykdæla, veittu viðtöku menningarverðlaununum.
Ljóða-Og
menningar-
verðlaun í
Borgarfirði
Reykholti. Morgunblaðið.
Á SAMKOMU í Logalandi á fóstu-
dagskvöldið voru veitt verðlaun úr
Minningarsjóði Guðmundar
Böðvarssonar skálds og bónda á
Kirkjubóli og Ingibjargar Sigurð-
ardóttur, konu hans, en að honum
standa erfingjar þeirra hjóna, Rit-
höfundasamband Islands, Ung-
mennasamband Borgarfjarðar,
Samband borgfirskra kvenna og
Búnaðarsamband Borgarfjarðar.
Ljóðaverðlaun að upphæð kr.
300.000 hlaut að þessu sinni Ingi-
björg Haraldsdóttir Ijóðskáld en
Borgfirskum menningarverðlaun-
um að sömu upphæð var skipt milli
Ungmennafélags Reykdæla og
Ungmennafélagsins Dagrenningar
fyrir öfluga og athyglisverða
leiklistarfsemi.
Af þessu tilefni las Ingibjörg úr
verkum sfnum, m.a. ljóðið „tír
Borgarfirði" og úr óútkominni bók
Ijóðið „Bolungarvík". Sigurður,
sonur Guðmundar Böðvarssonar,
sagði við afhendinguna að nú hefði
brugðið svo við að samþykkt var
einróma að heiðra hina merku
leikstarfsemi á svæðinu. En eins og
komið hefur fram í fjölmiðlum voru
tvö stór verk sett upp á þessu ári,
íslandsklukkan I Lundarreykjadal
og Galdra-Loftur í Reykholtsdal.
Ólympíumótið í brids
Erfið staða í upp-
hafi leiksins
gegn Pólverjum
BRIDS
Maastricht
ÓLYMPÍUMÓTIÐ
Ólympíumótið í brids er haldið í
Maastricht í Hollandi dagana 27.
ágúst til 9. september. Islending-
ar taka þátt í opnum flokki í
sveitakeppni. Hægt er að fylgjast
með mótinu á Netinu, m.a. á slóð-
inni: http://www.bridge-
olympiad.nl
ÍSLENSKA liðið er nú að etja
kappi við Pólverja í átta liða úrslit-
um Ólymíumótsins í brids eftir að
hafa lagt Hollendinga í 16 liða úr-
slitum á sunnudag. Það blés ekki
byrlega í upphafi leiksins við Pól-
verja því íslenska liðið tapaði
fyrstu 16 spila lotunni 4-68 í gær-
morgun en alls er leikurinn 80 spil.
Spilaðar voru fjórar lotur í gær en
sú síðasta verður spiluð í dag.
Pólska liðið í Maastricht er
mjög sterkt. Aðalparið er Cezari
Balicki og Adam Zmudzinski, sem
einnig voru í liðinu sem tapaði úr-
slitaleiknum fyrir íslandi í keppn-
inni um Bermúdaskálina fyrir níu
árum. Að auki eru í liðinu Michael
Kwiecien og Jacel Pszczola sem
eru Evrópumeistarar í tvímenn-
ingi, Piotr Tuszynski og Krzysztof
Jassem.
íslenska liðið tryggði sér sæti í
úrslitakeppninni á laugardag með
því að vinna Búlgaríu, 19-11, og
Malasíu, 25-3, í tveimur síðustu
leikjunum í riðlakeppninni og þar
með var fyrsta markmiðinu, að
komast í úrslitakeppnina, náð.
Guðmundur Páll Arnarson, fyrir-
liði íslenska liðsins, var að vonum
sáttur við árangurinn fram til
þessa en sagði hann hafa verið í
samræmi við væntingar. Guð-
mundur sagðist fyirfram hafa
búist við að Islendingar kynnu að
enda í 3.-9 sæti riðilsins, eftir því
hvernig byr gæfist, og í raun hefði
staðan í riðlinum ekki komið neitt
á óvart nema ef til vill að Argen-
tína skyldi komast upp á milli Itala
og Norðmanna í 2. sætið.
Lokastaðan í D-riðli varð þessi:
Ítalía 358
Argentína 335
Noregur 325
ísland 313
Nýja-Sjáland 301
Suður-Afríka 301
Kína 293
Búlgaría 270,25
Tyrkland 262
Marokkó 244
La Reunion 234,25
Malasía 227
Bermúda217
Taíland 216,5
Martinique 193
Úkraína 187
Botswana 105
Palestína 66
Úr A-riðli komust Pólland,
Austurríki, Belgía og Brasilía
áfram. Úr B-riðli Bandaríkin,
Holland, Rússland og Ástralía og
úr C-riðli England, Indónesía,
Svíþjóð og Frakkland. Sigurveg-
arnir í riðlunum fengu að velja sér
andstæðing í 16 liða úrslitum sam-
kvæmt ákveðnum reglum, og gátu
Bandaríkjamenn valið sér and-
stæðing úr riðli íslendinga. Þeir
ákváðu að velja Argentínu, frekar
en Islendinga, sem kom nokkuð á
óvart miðað við stöðuna í riðlinum.
Það þýddi að íslendingar og Hol-
lendingar áttust við. í öðrum leikj-
um mættust lið Rússa og Norð-
manna, Itala og Ástrala, Brasilíu
og Indónesíu, Englendinga og
Belga, Austurríkis og Svíþjóðar
og Pólverja og Frakka og fyrir lá
að sigurvegarar í síðastnefndu
viðureigninni myndu mæta annað-
hvort íslendingum eða Hollend-
ingum í 8 liða úrslitum á mánudag.
Leikur íslendinga og Hollend-
inga var vel spilaður, þó einkum af
hálfu Islendinga fyrstu þrjár lot-
urnar. í fyrstu lotunni skoruðu
Hollendingar t.d. aðeins í einu
spili og staðan eftir 16 spil af 64
var 33-12 fyrir ísland. Þetta var
síðasta spil lotunnar:
Austur gefur, allir á hættu
Norður * G6 * KD754 * G65432
Vestur Austur
* 953 + D1087
v G42 V D107653
♦ G10862 ♦ -
+ K8 Suður ♦ ÁK42 r ÁK98 ♦ Á93 + D7 + Á105
Við annað borðið sátu Wubbo
de Boer og Bauke Muller NS og
Þorlákur Jónsson og Matthías
ÞorvaldssonAV.
Vestur Norður Austur Suður
2 lauf dobl
redobl 4grönd pass 5 tíglar//
2 laufa opnunin gat sýnt ýmis-
legt, m.a. 5-lit í hjarta og 4-lit í
spaða og veik spil. Eftir að suður
doblaði sá norður enga ástæðu til
annars en reyna láglitageim og
bauð upp á báða láglitina með 4
gröndum. 5 tíglar voru auðvitað
vonlaust spil en Muller slapp einn
niður, 100 til Islands.
Spilurum gekk eðlilega illa að
fóta sig á þessu spili og í öðrum
leikjum spiluðu NS allt frá bút
upp í slemmu. Við hitt borðið sátu
Vincent Ramondt og Anton Maas
AV og Aðalsteinn Jörgensen og
Sverrir Armannsson NS. Islend-
ingunum tókst að rata í rétta
samninginn:
Vestur Norður Austur pass Suður llauf
pass 1 tígull lbjarta 2grönd
pass 3 lauf pass 3 tíglar
pass 3 hjörtu pass 3 grönd//
Aðalsteinn fékk að opna á
sterku laufi og hann sýndi síðan
20-21 punkt og jafnskipta hönd.
Eftir biðsagnir passaði Sverrir
niður 3 grönd. Vestur spilaði út
hjarta og Aðalsteinn fékk fyrsta
slaginn á kóng. Lægi tígullinn 3-2
voru 9 slagir öruggir en þegar
austur henti laufi í tígulás fór Að-
alsteinn í laufið og endaði með 10
slagi, 630 til íslands og 12 stig.
Islendingar unnu 2 lotuna 29-22
og þá þriðju 23-20. Fyrir síðustu
lotuna var munurinn því 31 stig,
85-54. Islendingar gáfu aðeins eft-
ir í síðustu lotunni sem Hollend-
ingar unnu 40-22, en lokastaðan
var_l 07-94 íyrir ísland.
tírslit í öðrum leikjum voru
þessi:
Ástralía 104-ítalía 184
Brasilía 139-Indónesía 134
Rússland 106-Noregur 120
England 133-Belgía 128
Frakkland 116-Pólland 139
Svíþjóð 149-Austurriki 153
Bandaríkin 184-Argentína 108.
Leikur Svía og Austurríkis-
manna var jafn og spennandi allan
tímann en vegna fjölda kærumála
í leiknum voru úrslit ekki ljós fyrr
en um miðja aðfaranótt mánu-
dags. Þá höfðu Belgar yfirhöndina
í leiknum gegn Englendingum þar
til í síðustu lotunni að Englending-
ar höfðu sigur.
í kvennaflokki keppa í átta liða
úrslitum Þýskaland og Kína, Suð-
ur-Afríka og Kanada, Noregur og
Taívan og Holland og Bandaríkin.
Guðm. Sv. Hermannson