Morgunblaðið - 05.09.2000, Side 36
36 ÞRIÐJUDAGUR 5. SEPTEMBER 2000
MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ
STOFNAÐ 1913
Útgefandi: Arvakur hf., Reykjavík.
Framkvœmdastjóri: Hallgrímur B. Geirsson.
Ritstjórar: Matthías Johannessen,
Styrmir Gunnarsson.
UMDEILD HEIMSÓKN
Heimsókn Li Pengs, forseta kín-
verska þingsins, hefur verið
umdeild. Li Peng var forsæt-
isráðherra Kína árið 1989 og bar sem
slíkur mikla ábyrgð á því að friðsam-
leg mótmæli námsmanna á Torgi hins
himneska friðar voru bæld niður með
valdi.
Þrátt fyrir að ellefu ár séu liðin frá
blóðsúthellingunum á torginu eru þau
flestum enn í fersku minni. Sá vonar-
neisti, sem mótmælin höfðu vakið, um
að lýðræðislegar breytingar væru að
verða að veruleika í Kína, urðu að
engu. Þessi áratugur hefur vissulega
verið umbrotasamur tími í Kína, hag-
kerfið hefur verið opnað og með
innlimun Hong Kong og Makaú hefur
hinn frjálsi markaður hafið innreið
sína fyrir alvöru. Kommúnista-
flokkurinn hefur hins vegar ekki slak-
að á völdum sínum og líður ekki frekar
en fyrri daginn að þegnar landsins láti
skoðanir sínar í ljós nema að takmörk-
uðu leyti.
Samskipti íslands og Kína hafa far-
ið vaxandi á síðustu árum. Fjöldi hátt-
settra kínverskra gesta hefur sótt
okkur heim og margir íslenskir ráða-
menn hafa farið í opinberar heimsókn-
ir til Kína.
Kínverjar hafa endurgoldið þær
heimsóknir eins og tíðkast í samskipt-
um þjóða og er heimsókn Li Pengs
dæmi um það en einnig má nefna
heimsókn Qian Qichens, utanríkisráð-
herra Kína, árið 1995.
í janúar 1995 opnuðu íslendingar
sendiráð í Kína, um aldarfjórðungi
eftir að stjórnmálasamband var tekið
upp milli ríkjanna og hefur það orðið
til að styrkja enn frekar tengsl ríkj-
anna.
Kína er eitt af voldugustu ríkjum
veraldar. Þar býr um fjórðungur
mannkyns og búast má við að áhrif
Kínverja í heiminum fari stöðugt vax-
andi næstu áratugina. Sú opnun, er
átt hefur sér stað í kínversku efna-
hagslífi, gerir jafnframt að verkum að
Kína er orðið að mikilvægum markaði,
ekki síður fyrir Island en önnur vest-
ræn ríki. Samskiptin við Kína eru því
mikilvæg fyrir okkur Islendinga og
nauðsynlegt að efla þau enn frekar.
Það breytir hins vegar ekki því að
okkur ber skylda til að fordæma það
sem okkur þykir miður fara í stjórnar-
fari Kína og ekki hika við að vekja at-
hygli á því í samskiptum okkar við
kínverska ráðamenn.
Þrátt fyrir að Island hafi átt veru-
leg samskipti og viðskipti við Sovét-
ríkin á meðan þau voru og hétu varð
það ekkí til þess að við létum af gagn-
rýni á stjórnarfarið þar í landi. Að
sama skapi hafa Islendingar ekki sætt
sig við að Kínverjar reyni að segja
okkur fyrir verkum, til dæmis hvað
varðar samskiptin við lýðræðisríkið
Taívan.
Staða mannréttindamála er að
mörgu leyti hrikaleg í Kína og er sorg-
legt að fjölmennasta þjóð veraldar
skuli enn búa við þá andlegu kúgun er
raun ber vitni. Tjáningarfrelsi og
óheft skoðanaskipti eru grundvöllur
okkar samfélags.
Það sama á því miður ekki við um
Kína líkt og greinilega kom í ljós er
forseti kínverska þingsins ákvað að
hætta við heimsókn sína í Alþingi Is-
lendinga til þess að þurfa ekki að sjá
fólk, sem notfærði sér lýðræðislegan
rétt í okkar þjóðfélagi og mótmælti
heimsókn hans. Þann sama rétt og
námsmennirnir á Torgi hins himneska
friðar börðust fyrir að kínversk al-
þýða fengi en guldu fyrir með lífi sínu
hina örlagaríku daga sumarið 1989.
BLÓMSTRANDISMÁBÁTAÚTGERÐ
Það er ánægjulegt að sjá, að veru-
leg uppbygging hefur orðið í Bol-
ungarvík í sjávarútvegi á undanförn-
um árum, sem eingöngu byggist á
smábátaútg.erð. Fyrr á árum voru
þær kenningar uppi um skeið, að
sjávarplássin gætu ekki þrifizt, nema
í byggðinni væri að minnsta kosti
einn skuttogari. Bolvíkingar og raun-
ar ýmsir aðrir hafa afsannað þær
kenningar. Með smábátaútgerð það-
an og frá fleiri stöðum á Vestfjörðum
hefur verið sýnt fram á, að nálægð við
fiskimiðin skiptir enn máli.
Einn viðmælenda Morgunblaðsins í
Bolungarvík, Guðmundur Einarsson,
sagði: „Það ríkir bjartsýni, þótt við
séum í raun að stökkva marga áratugi
aftur í tímann. Við erum eiginlega
komnir í heilan hring í þróuninni -
bátastærðin er svipuð og hún var í
kringum 1930 til 1940.“ Frá Bolung-
arvík eru nú gerðar út 15 trillur, sem
hver er 6 tonn og þessir 15 smábátar
skapa atvinnu fyrir vel á annað
hundrað manns.
Það hafa verið skiptar skoðanir um
það hvert stefni í uppbyggingu fiski-
skipaflotans. A tímabili urðu skipin
stærri og stærri en mörg þeirra hafa
verið seld til annarra landa. Hins veg-
ar bættist nýtt, stórt og glæsilegt
skip í flota Samherja um helgina.
Líklegt má telja að fenginni
reynslu, að engin ein stefna verði ráð-
andi í skipasmíðum fyrir íslenzkan
sjávarútveg eins og virtist ætla að
verða á tímabili í upphafi skuttogara-
aldar.
Reynsla Vestfirðinga ekki sízt sýn-
ir að smábátarnir standa fyrir sínu og
vel það. Vel má vera, að þeir séu hag-
kvæmari rekstrareining en stóru
skipin og margir halda því fram, að
þeir komi með betra hráefni að landi.
Alla vega er blómlegur sjávarút-
vegur í Bolungarvík um þessar mund-
ir vísbending um, að sjávarútvegur á
Vestfjörðum gæti eflzt á ný í krafti
smábátanna.
Á Vestfjörðum hefur sjávarútvegur
lengi verið mjög öflugur. Þessi ára-
tugur hefur ekki verið Vestfirðingum
hagstæður og sumir telja, að þeir hafi
verið of seinir að nýta sér kosti kvóta-
kerfisins en einblínt um of á galla
þess. En hvað sem því líður má vel
vera, að með uppbyggingu smábáta-
útgerðar séu Vestfirðingar að vísa
veginn fyrir byggðarlög, sem liggja
nærri gjöfulum fiskimiðum og að við
slíkar aðstæður hafi smábátaútgerð
meiri möguleika á að blómstra og
dafna en útgerð stærri skipa.
r
ÞRIÐJUDAGUR 5. SEPTEMBER 2000 37
Gagnvegir liggja
til góðra vina
Morgunblaðið/Jón Svavarsson
Wolfgang Thierse litast um á gamla þingstaðnum í Skaftafelli.
Opinber heimsókn Valdas Adamkus,
forseta Litháens, til Islands
Morgunblaðið/Amaldur
Ólafur Ragnar Grímsson, forseti íslands, og Valdas Adamkus, forseti Litháens, fengu rigningu í ferð
að Gullfossi og Geysi í gær.
Styrkt viðskipta-
tengsl efst á baugi
Morgunblaðið/Jim Smart
Davíð Oddsson og Adamkus fyrir fund þeirra í gærmorgun.
Morgunblaðið/Sigurður Jónsson.
Ragnar Sigurbjörnsson, forstöðumaður Jarðskjálftarannsóknastöðv-
arinnar á Selfossi, afhenti forseta Litháens krans að gjöf.
Wolfgang Thierse, for-
seti þýzka Sambands-
þingsins, lauk opin-
berri heimsókn sinni til
Islands á sunnudag. I
samtali við Auðun
Arnórsson segir hann
Þjóðverja bera mikla
virðingu fyrir smáu en
knáu eyþjóðinni í
norðri.
VIRÐING Þjóðverja
fyrir hinni „mjög svo
jákvæðu þróun ís-
lands og því uppbyggi-
lega hlutverki sem
landið gegnir í utanríkismálum“ er
ein forsendan fyrir þeim góðu sam-
skiptum sem nú ríkja milli íslands
og Þýzkalands. Þetta segir Wolfg-
ang Thierse, forseti þýzka Sam-
bandsþingsins, sem á sunnudag lauk
opinberri heimsókn sinni til landsins
í boði Aiþingis.
í samtali við Morgunblaðið segir
Thierse - einnig með tilliti til þess að
kanzlari og utanríkisráðherra
Þýzkalands leggja leið sína hingað í
dag, þriðjudag - að Þjóðverjar álíti
það eðlilegt og sjálfsagt að sýna litl-
um vinveittum þjóðum sömu virð-
ingu og hinum stærri og jafnsjálf-
sagt sé að rækta góð samskipti við
þau.
Þessi útskýring Thierses er líka í
samræmi við boðskap Hávamála, og
gæti - að skáldaleyfi teknu - hljóðað
svo:
En til góðs vinar
liggja gagnvegir
þótt hann sé smár.
Evrópumál efst á
baugi viðræðna
Heimsókn Thierses hófst á föstu-
dag, en þá átti hann viðræður við
þingmenn úr öllum þingflokkum Al-
þingis og snæddi hádegisverð að
Þingvöllum með Davíð Oddssyni
forsætisráðherra. Á laugardag fór
hann í ferð upp á Vatnajökul og í
þjóðgarðinn í Skaftafelli, en dagskrá
heimsóknarinnar lauk á sunnudag
með viðræðum þýzka þingforsetans
við forseta íslands að Bessastöðum.
Á sunnudagsmorgninum heilsaði
Thierse einnig upp á Halldór Blön-
dal á sjúkrabeði, en Thierse var nú
að endurgjalda heimsókn Halldórs
til Berlínar í vor.
Aðspurður sagði Thierse mikil-
vægasta umræðuefnið á fundum
sínum með íslenzkum stjórnmála-
mönnum - hann hitti fulltrúa allra
þingflokka - hafi snúizt um Evrópu-
mál. „íslenzkir stjórnmálamenn
sýna evrópskum málefnum mikinn
áhuga; þróun Evrópusambandsins,
innri umbætur ESB og stækkun
þess. Þar var spumingin alltaf ofar-
lega á baugi, hvernig litið væri á
þann möguleika að Island sækti um
inngöngu í sambandið. Mér sýnist
staða þessara mála hér á í slandi ein-
kennast af því sem kalla mætti já-
kvæða mótsögn. Allir segja að ekk-
ert knýi á um inngöngu eins og sakir
standi, en allir sýna Evrópu-
þróuninni þó mikinn áhuga. Það sem
mér sýnist jákvætt við þessa mót-
sögn er að jafnvel þótt innganga í
ESB sé ekki álitin tímabær viiji
menn halda möguleikanum á aðild
opinni og álíti þennan möguleika
mikilvægt tækifæri," segir Thierse,
og bætir því við að hann hafi í einu
ávarpi sínu hér sagt - meira í gamni
en alvöru: „Islendingar vilja bíða
með að ganga í Evrópusambandið
þar til eftir að öll vandamál þar á bæ
hafaverið leyst.“
Ár er nú liðið frá því flutningum
þýzku ríkisstjórnarinnar og Sam-
bandsþingsins frá Bonn til Berlínar
lauk. Það gekk á ýmsu fyrsta vetur-
inn sem þingið var aftur starfrækt
innan söguþranginna veggja Ríkis-
þinghússins í Berlín. Hvernig álítur
Thierse, sem sjálfur á sitt kjördæmi
í austurhluta miðborgar Berlínar, að
tekizt hafi til með þingstarfið eftir
flutninginn?
Hann segir flutningana sjálfa
hafa verið gríðarstórt verkefni sem
útheimt hafi mikla skipulagningu,
en þeir hafi þó gengið vel að flestu
leyti.
Um stjómmálahliðina á flutning-
unum leggur hann hins vegar
áherzlu á að innihald þýzkra stjórn-
mála hafi ekkert breytzt. „Ramma-
stærðir þýzkra stjómmála era þær
sömu eftir sem áður: Evrópusinnaða
friðarstefnu, innávið sem útávið,
viljum við líka reka frá Berlín. Talið
um nýtt „Berlínarlýðveldi“ var því
alltaf eitthvað sem ekki átti við,“
segir hann. Það sem hins vegar megi
fullyrða að fylgi flutningnum til Ber-
línar snerti ytra byrði stjórnmála-
lífsins og helgast af því að borgin er
stór; stjórnmálalífið hafi allt annan
og minni sess í iðandi mannlífi stór-
borgarinnar en í smáborginni Bonn,
þar sem það gnæfði yfir aðra þætti
borgarlífsins.
Þessi fyrsti vetur þingstarfsins í
Berlín var þó óvenjulegur vegna
fjármálahneykslismála stærsta
stjórnarandstöðuflokksins, Kristi-
legra demókrata. I marzmánuði
varð það hlutskipti Thierses að gera
CDU að greiða yfir 41 milljón
marka, andvirði yfir 1.500 milljóna
króna, í sekt fyrir brot á gildandi
lögum um fjármögnun stjómmála-
flokka. Hvaða áhrif hefur þetta haft
á samskipti þingforsetans við full-
trúa stjómarandstöðunnar?
Langt í lyktir
hneykslismála
„Ekkert þessara hneykslismála
tengist Berlín, þau eiga öll upptök
sín í „Bonn-lýðveldinu“ og nú verð-
um við að gera þessi mál upp í Berl-
ín,“ svarar Thierse. Allar þær ásak-
ann- sem fram hafi komið um ólögleg
fjárframlög til stjómmálaflokka og
mistök af hálfu áhrifamanna þess-
ara flokka sé að rekja til Bonn-ára-
nna.
En hvernig miðar þessu „tiltekt-
arstarfi“? Aðspurður um þetta segir
Thierse, að hann sé hræddur um að
langt sé í málalyktir. „Ég óttast að
þetta muni halda okkur uppteknum
lengi enn. Það er ennþá svo, að í
blöðunum koma í hverri viku fram
nýir fletir á hneykslismálunum.
Saksóknarar era með mál í vinnslu í
tengslum við þetta og sérskipuð
rannóknarnefnd þingsins á mikið
starf eftir. Og ég sem þingforseti
neyðist því miður til þess á stundum
að taka óblíðar ákvarðanir," segir
hann.
En hvemig taka þingmenn CDU
þessum ákvörðunum þingforsetans?
„Margir CDU-þingmenn gera sér
fulla grein fyrir því að mér var ekki
stætt á öðra, lögum samkvæmt, en
að gera það sem ég gerði. Aðrir era
mér gramir vegna þessa. En svona
er þetta nú bara, ég get alls ekki
komið mér undan því að gera það
sem ætlazt er til af mér að lögum.
Ég sízt af öllum! Það kann að vera
að aðrir geti leyft sér að fara á svig
við lögin, ég get það ekki,“ segir
hann.
Aðspurður, hvort hneykslismálin
hafi ekki haft neikvæð áhrif á allt
flokkakerfið, svarar hann því til, að
þegar svo margar ásakanir koma
fram sem ekki fást upplýstar nema
með mikilli fyrirhöfn skapist and-
rúmsloft tortryggni í garð allra
stjórnmálaflokka. En þó sé það svo,
að í skoðanakönnunum tapi CDU
langmestu.
Thierse er sjálfur Austur-Þjóð-
verji og hóf ekki afskipti af stjórn-
málum fyrr en Alþýðulýðveldið rið-
aði til falls. Á ári sameiningarinnar,
1990, hét Helmut Kohl, þáverandi
kanzlai-i, því að innan fárra ára yi'ðu
„blómstrandi héruð“ í austurhluta
landsins. Því liggur nærri að spyrja
Thierse, hvort hann telji að nú, tíu
áram eftir sameininguna, ætli rílds-
stjórn jafnaðarmanna og græningja
að takast að láta austurhéraðin
blómstra.
„Þetta er loforð sem Helmut Kohl
gaf á sínum tíma; enginn jafnaðai'-
maður lét neitt svona útúr sér, og
þessu loforði fylgdi meira að segja
að þetta ætti að gerast á mjög stutt-
um tíma,“ svarar þingforsetinn.
Tíu áram eftir sameiningu lands-
ins segir hann miklu hafa verið
áorkað - húsakostur, samgöngu- og
fjarskiptakerfi o.s.frv. hafi verið
endurnýjað að miklu leyti, mörg nú-
tímaleg fyrirtæki hafi fest sig í sessi
og fleira. En vissulega sé mikið verk
eftir, einkum á efnahags- og félags-
lega sviðinu. Atvinnuleysi er enn
miklu mema í austurhlutanum, með-
allaun era lægri og uppbygging
efnahagslífsins á enn langt í land
með að verða jafnsterk og hún er
vestan megin.
„Við eigum því mikið verk fyrir
höndum. Það kann að vera að við
þurfum heil tíu ár til viðbótar til að
sambærilegar aðstæður í efnahags-
legu og félagslegu tilliti verði komn-
ar á milli austur- og vesturhlutans.
Og þá er enn eftir sá menningarlegi,
andlegi og ef svo má segja „þjóð-
háttalegi" munur sem einkennir
íbúa hinna mismunandi landshluta.
En það er munur sem fnTa væri að
ætla að slétta út,“ segir Thierse.
En hvað segir hann um þann
„múr“ sem enn er sagður vera uppi í
samskiptum margra Austur- og
Vestur-Þjóðverja? Eitt sinn var haft
eftir Thierse, að hann myndi alltaf
vera „Ossi“, en það orð nota Þjóð-
verjar almennt um fyrrverandi
borgara Austur-Þýzkalands.
„Með þessu var ég bara að orða
staðreynd sem út af fyrir sig er
ómerkileg," svarar hann. „Þegar ég
var svo lánsamur að upplifa samein-
ingu Þýzkalands var ég 47 ára gam-
all. Það þýðir að mótun minnar pers-
ónu var öll að baki, og hana hlaut ég
- hvort sem það var nú gott eða
slæmt - í Austur-Þýzkalandi. Þessa
fortíð hristir maður ekki af sér.
Hversv egna ætti maður líka að gera
það? Ég fer heldur ekki fram á það
við Bæjara eða Rínarhéraðabúa að
hann segi skilið við sína persónulegu
fortíð. En slíks er stundum krafizt af
Austur-Þjóðverjum. Ég segi því: Ég
verð til æviloka „Ossi“, þ.e. maður
mótaður af fortíð sinni og mér dett-
ur ekki í hug að afsaka mig á einn
eða annan hátt fyrir það, þvert á
móti.“
Og Thierse hefur lítið álit á þeirri
algengu fullyi'ðingu, að enn sé eins
konar múr eftir í hugum fólks, löngu
eftir að Berlínarmúrinn sjálfur er
fallinn.
„Þetta er klisja sem verður ekki
skárri við að vera endurtekin ótal
sinnum. Vissulega er munur á fólki
sem bjó í 40 ár sitt í hvora ríkinu sitt
hvoram megin við járntjaldið. Fólk
vandist mismunandi gildismati, mis-
munandi viðhorfi til lífsins og mis-
munandi sögulegri vitund, svo dæmi
séu nefnd. Þessi mismunur er sýni-
legur. Upp úr þessu hafa sprottið
fordómar og ásakanir, sem hafa ekki
bætt úr skák. Slíkt þurfum við að yf-
irvinna - en ekki þó allt það sem ger-
ir fólk ólíkt. Ekkert er skelfílegra en
að fólk sé þvingað í sama mót. Þetta
er mikilvægur lærdómur frá valda-
tíma kommúnista. En eftir stendur
að margir óska sér að aðrir séu eins
og þeir sjálfir. Slíkt finnst mér leið-
inlegur hugsunarháttur," segir
Thierse ákveðinn.
Styrkur PDS
skiljanlegur
En hvað segir hann þá um þá
staðreynd, að arftakar austur-
þýzkra kommúnista í „Flokki hins
lýðræðislega sósíalisma" (PDS) hafa
sterka stöðu í öllum kosningum í
austurhéraðunum?
„Þetta er vissulega vandamál fyr-
ir jafnaðarmannaflokkinn," segir
hann, „en hinir flokkarnir eiga þar
líka í vandræðum. Og þótt PDS hafi
sterka stöðu í austurhlutanum þá á
hann líka í vanda. Flokkurinn
stækkar ekki, meðlimum í honum
fækkar, og smátt og smátt kjósend-
um einnig, vonandi. Sú þróun geng-
ur þó hægar en við myndum óska
okkur. Það ber þó að hafa í huga, að
það er í raun ekkert skrýtið að arf-
taki austur-þýzka gamla valda-
flokksins njóti stuðnings svo
margra. Ófáir borgarar Alþýðulýð-
veldisins vora sannfærðir kommún-
istar og stuðningsmenn kerfisins.
Þeir halda sig enn við sama heyga-
rðshomið og kjósa sína menn í arfta-
kaflokki SED [Sósíalíska einingar-
flokksins, a-þýzka kommúnista-
flokksins]. Maður verður að horfast
í augu við þetta, jafnvel þótt manni
mislíki það. Að breyta þessu gengur
ekki svo hratt fyrir sig,“ segir hann,
og bætir við: „Og það má ekki
gleyma því, að í áróðri kommúnista í
Áustur-Þýzkalandi vora jafnaðar-
menn útmálaðir hættulegustu and-
stæðingarnir. Þessir hugmynda-
fræðilegu fordómar sitja í mörgum."
Að lokum: Nú era nærri því tvö ár
frá því ríkisstjórn jafnaðarmanna og
græningja tók við stjórnartaumun-
um í Þýzkalandi, og því eins konar
hálfleik kjörtímabilsins náð. Að mati
Thierses er stjómin nú í góðri stöðu.
„Jafnaðarmönnum og ríkisstjórn-
inni gengur eins og er flest í haginn.
Staðan í skoðanakönnunum er mjög
góð. Umfangsmikil umbótaáform
hafa orðið að lögum, þrátt fyrir að
harðrar mótspyrnu hafi gætt gegn
sumum þeirra. Utan frá séð fer ekki
framhjá neinum að það er eitthvað
að gerast í Þýzkalandi - framfarir á
efnahags- og tæknisviðinu era
komnar í gang á ný, svo að það er
ekki hægt að segja annað en að
„staðan í hálfleik" sé góð, séð frá
bæjardyrum stjómarinnar. Fyrsta
árið við stjórnartaumana var erfitt,
en þeim mun meiri árangur náðist
síðara árið. Það er bara hægt að
vona að þau tvö ár sem eftir era af
kjörtímabilinu verði þannig líka,“
segir Wolfgang Thierse.
VALDAS Adamkus, for-
seti Litháens, kom í
sína fyrstu opinbera
heimsókn til íslands á
sunnudag. Forseti ís-
lands, Ólafur Ragnar Grímsson, tók
á móti honum, eiginkonu hans og
fylgdarliði á Bessastöðum.
Á blaðamannafundi að loknum
viðræðufundi þeirra forsetanna
sagði Adamkus að auk þess að vilja
styrkja tengsl milli ráðamanna ríkj-
anna vildi hann með heimsókninni
stuðla að auknum viðskiptasam-
böndum milli þeirra enda er allfjöl-
menn viðskiptasendinefnd með
honum í för.
Sagði Ólafur Ragnai' það vera
sérstakan heiður að bjóða forseta
Litháens velkominn hingað til
lands; þetta væri í fyrsta sinn sem
litháískur þjóðhöfðingi legði leið
sína til íslands. Þetta væri því stór
stund í sögu sambands landanna
tveggja. ,
Sagði Ólafur ísland áfram mundu
styðja viðleitni Litháa til að fá aðild
að helstu fjölþjóðasamtökum okkar
heimshluta, Átlantshafsbandalag-
inu og Evrópusambandinu.
Stuðning-ur við aðild
að NATO ogESB
„Island mun halda áfram stuðn-
ingi við að Litháen og hin Eystra-
saltslöndin tvö fái aðild að Atlants-
hafsbandalaginu, en við höfum
ennfremur sýnt stefnu Litháens um
inngöngu í Evrópusambandið
stuðning, þrátt fyrir að sjálfur séum
við ekki aðilar að því; þegar að því
kemur að Litháen fær inngöngu
íESB munu möguleikarnir á við-
skiptatengslum landanna aukast
enn frekar í gegnum EES-sam-
starfið," sagði Olafur Ragnar. Bætti
hann því við að gesturinn, Adam-
kus, myndi í heimsókn sinni verða
ýmiss vísari um íslenskt nútíma
efnahags- og þjóðlíf.
Adamkus sagði Litháa enn þakk-
láta Islendingum fyrir að hafa verið
fyrstir til að viðurkenna formlega
sjálfstæði Litháens „á ögurstundu“
árið 1991 og að hafa með því hjálpað
landinu að komast á ný í hóp lýð-
frjálsra ríkja heimsins. Ástin á
frelsinu sé þjóðunum sameiginleg
og eigi mikilvægan þátt í að tengja
þær saman. Stuðningur íslands og
annaira Norðurlanda við þá stefnu
Litháens og hinna Eystrasaltsland-
anna að vilja sem fyrst fá aðild að
NATO og ESB væri mikilvægur og
Litháar væra þakklátir fyrir þenn-
an stuðning.
Aðspurður sagði forsetinn að
hann vonaðist til að með þeim við-
ræðum sem meðlimir viðskipasend-
inefndarinnar myndu eiga hérlend-
is opnuðust augu fleiri íslenskra
fyrirtækjarekenda fyrir viðskipta-
tækifærum í Litháen. Sagði Ólafur
Ragnar að góð reynsla hefði fengist
af umsvifum íslendinga sem fjár-
fest hafa í Litháen.
I gær átti forseti Litháens fund
með Davíð Oddssyni forsætisráð-
herra í Ráðherrabústaðnum við
Tjarnargötu, en því næst sótti hann
Selfoss heim. Þar kom hann við í
Fjölbrautaskóla Suðurlands, Rann-
sóknastofnun Háskóla Islands í
jarðskjálftafræðum og Mjólkurbúi
Flóamanna, áður en gengið var til
hádegisverðar í boði Árborgar og
Mjólkurbúsins.
Forseti Islands var með í för á
Suðurlandi, en í Jarðskjálftamið-
stöðinni veitti dr. Ragnar Sig-
bjömsson forstöðumaður gestun-
um meðal annars innsýn í
jarðskjálftafræðina og áhrif og afl
jarðskjálftanna í sumar. Síðan af-
henti Ragnar forseta Litháen krans
með borða sem hann sagði tákn-
ræna um styrk sem allir þyrftu á að
halda í átökum náttúrunnar og
einnig kvaðst hann vona að krans-
inn gæti verið tákn um styrk
tengsla landanna.
Frá Selfossi var haldið að Gull-
fossi og Geysi í Haukadal og þaðan
var farið til Þingvalla. Gróðursetti
forseti Litháens tré í Vinaskógi,
kynntist sögu og náttúru Þingvalla
og gekk niður Almannagjá ásamt
gestgjöfum og föraneyti sínu. í
gærkvöldi snæddu forsetahjónin
kvöldverð í boði forsætisráðherra á
Þingvöllum.
Ræðir við utanríkis-
ráðherra í dag
Dagskrá verður fram haldið í
dag, en Adamkus mun eiga fund
með Halldóri Ásgrímssyni utanrík-
isráðherra, áður en ráðstefna um
viðskipti Islands og Litháens hefst í
húsakynnum Verslunarráðs ís-
lands í Kringlunni. Munu forsetar
íslands og Litháen báðir ávarpa
ráðstefnuna. .
Forseti Litháens mun einnig
heimsækja Höfða, þar sem Ingi-
björg Sólrún Gísladóttir borgar-
stjóri mun kynna honum sögu húss-
ins, en litháíska forsetafrúin
heimsækir Barnaspítala Hringsins
og Hallgrímskirkju.
Heimsókn forsetahjónanna lýkur
síðdegis í dag.