Morgunblaðið - 05.09.2000, Síða 46
46 ÞRIÐJUDAGUR 5. SEPTEMBER 2000
J-----------------------------
MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ
+ Guðrún Fanney
Hannesdóttir
fæddist í Skógsmúla
í Miðdalahreppi í
Dalasýslu 14. maí
1907. Hún lést á
sjúkrahúsi Suður-
nesja að morgni
28.ágúst síðastliðins.
Guðrún var dóttir
hjónanna Hannesar
Einarssonar, f. á
Úlfsstöðum í Skaga-
firði 7. febrúar 1878,
d. 13. júlí 1947 og
Arnbjargar Sigurð-
ardóttur, f. í Berg-
þórsbúð í Hellnasókn 29. septem-
ber 1887, d. 21. maí 1981. Börn
Hannesar og Arnbjargar auk
Guðrúnar eru: Guðmundur Sigur-
vin, f. 25. júní 1906, d. 27. apríl
1989; Kristvin, f. 28. september
1909, d. 11. október 1909; Sigrún,
f. 22. september 1911; Svava Sig-
urrós, f. 29. ágúst 1914; Ellert
Þórarinn, f. 14. nóvember 1917, d.
13. september 1963; Einar, f. 9.
september 1920, d. 13. júlí 1923;
Margrét, f. 27. desember 1921;
Einar, f. 20. ágúst
1923; Lára Kristjana,
f. 27. október 1926;
Bjarnheiður, f. 31.
janúar 1930 og Unnur
Liija, f. 22. desember
1933, d. 12. febrúar
1934. Sonur Hannesar
var Ingvi, f. 12. sept-
ember 1912, d. 6. des-
ember 1978.
Guðrún giftist 21.
nóvember 1925 Ólafi
Sólimann Lárussyni,
skipstjóra og útgerð-
armanni í Keflavík, f.
28. desember 1903, d.
28. júlí 1974. Foreldrar Ólafs voru
Lárus Ólafsson, f. að Löndum í
Hvalsnessókn 9. september 1876,
d. 12. ágúst 1904. og Katrín Petr-
ella Jónsdóttir, f. í Keflavík 19.
júní 1883, d. 17. maí 1918.
Böm Guðrúnar og Ólafs eru: 1)
Guðrún Katrín Jónína, f. 9. októ-
ber 1926, gift Ásgeiri Einarssyni.
Afkomendur þeirra eru alls 47. 2)
Ambjörn Hans, f. 1. júlí 1928, d.
21. mars 1931.3) Jane Marie, f. 14.
nóvember 1929, gift Guðmundi Ól-
afssyni. Afkomendur þeirra eru
alls 27. 4) Arnbjörn Hans, f. 22.
desember 1930, kvæntur Jónu Sól-
björtu Ólafsdóttur. Afkomendur
þeirra eru alls 26. 5) Lára Huld, f.
5. febrúar 1932, d. 9. febrúar
1934. 6) Guðjón Gunnar, f. 21. jan-
úar 1935, kvæntur Marín Marels-
dóttur. Afkomendur þeirra eru
alls 15. 7) Lárus Hörður, f. 19. apr-
íl 1936, d. 5. mars 1983. Afkom-
endur hans eru alls 13. 8) Ólafur
Hafsteinn, f. 7. júlí 1937, d. 17.
júm' 1995. Eftirlifandi eiginkona
hans er Svala Grímsdóttir. Af-
komendur þeirra eru alls fimm. 9)
Bára Erna, f. 25. apríl 1939. Sam-
býlismaður hennar er Ellert Pét-
ursson. Afkomendur hennar em
alls 12. 10) Sigríður Karóli'na, f.
24. apríl 1943, gift Guðmundi Ing-
ólfssyni. Afkomendur þeirra em
alls 14. 11) Særún, f. 4. febrúar
1946. Hún var gift Sævari Þórðar-
syni, f. 15. mars 1947, d. 14. októ-
ber 1985. Afkomendur hennar em
alls sjö. 12) Reynir, f. 8. júní 1948,
kvæntur Önnu Lilju Gestsdóttir
og eiga þau tvö börn. Afkomendur
Guðrúnar og Ólafs em alls 180.
Guðrún flutti til Keflavíkur
fimm ára gömul með foreldrum
sínum og hefur búið þar alla tíð.
Guðrún verður jarðsungin frá
Keflavíkurkirkju í dag og hefst at-
höfnin klukkan 14.
GUÐRÚN FANNEY
.. HANNESDÓTTIR
Farvel heim
heim í drottins dýrðar geim.
Náð og miskunn muntu fmna
meðal dýrstu vina þinna,
friðarkveðju færðu þeim.
Farvel heim.
(Matt. Joch.)
„Móðurást er eins og loft. Hún er
svo hversdagsleg að þú tekur ekki
einu sinni eftir henni. Ekki fyrr en
skrúfað er fyrir.“ (Pam Brown).
Elsku mamma mín, hér sit ég og
^minningamar streyma fram í hug-
ann, þær fara svo hratt því þær eru
svo margar og góðar, ég vil ekki slíta
mig frá þeim því mér finnst þú vera
hjá mér á meðan. Það eru algjör for-
réttindi að hafa átt þig fyrir móður
því ég veit að það er leitun að annarri
eins hetju þér og móðir sem fómaði
sér fyrir böm og heimili eins og þú
r Blómabúð in >
öa»^ðskom
v/ Kossvogski^kjuga^ð a
Sími. 554 0500
Varanleg
minning
er meitlub
ístein.
S. HELGASONHF
STEINSMIÐJA
Skemmuvegi 48, 200 Kóp.
Sími: 557-6677 Fax: 557-8410
Netfang: sh.stone@vortex.is
gerðir. Sagt er að móðurást sé leiðar-
ljós fjölskyldunnar og átti það
sannarlega við um þig, þú kenndir
okkur ekki aðeins það góða og fallega
heldur hvattir þú okkur í flestu því
sem við tókumst á við og það vantaði
aldrei hrósið frá þér. Þú varst mjög
trúuð og sagðir alltaf að trúin hefði
hjálpað þér í gegnum h'fið og fékkst
þú sannarlega að kenna á lífinu, áttir
fullt hús af bömum og pabbi sjúkl-
ingur. Ung misstirðu tvö böm og svo
tvo syni er þú varst komin á efri ár en
það var aldrei að heyra á þér að neitt
hefði verið erfitt nema þegar þú
breiddir yfir litlu börnin þín, þú varst
sátt við Guð og menn og tilbúin að
kveðja þennan heim. Ég hef oft hugs-
að um þegar ég var að koma í heim-
sóknir frá Ameríku með þrjú böm og
eitt sinn kom ég með þrjá aukagesti
með mér og var ekkert mál fyrir þig
að taka á móti öllu þessu fólki og svo
var alltaf fullt hús af gestum að heim-
sækja mig, alltaf var tekið vel á móti
öllum, ég spyr sjálfa mig, hefði ég
tekið þessu eins létt og þú? Svo flutti
ég heim með bömin og auðvitað beint
inn á þig og þér þótti það sjálfsagt,
annað hefði ekki komið til greina.
Þvílíkt lán fyrir mig og bömin að fá
svo íbúðina niðri hjá þér, þú varst
alltaf heima til að líta eftir og leið-
beina bömunum og alltaf var heitur
matur fyrir þau að borða, ég þakka
þér hvað ég á góð böm elsku mamma
mín. Þú ræktaðir í okkur mikla sam-
kennd og minntir okkur ávallt á að
ekki væm allir eins heppnir í lífinu og
við og við ættum að hjálpa þeim sem
minna mættu sín. Við systkinin eram
sérlega samrýnd og þótti þér alltaf
gaman þegar við komum öll saman,
alltaf var hávaði og mikill hlátur,
þótti þér nóg að sitja bara og hlusta á
okkur og ég veit að þessa síðustu
daga gafstu okkur hjá þér til að
þjappa okkur enn meira saman og
leyfa okkur öllum að kveðja þig. Ég
er þakklát fyrir að hafa fengið að
vera hjá þér þessa síðustu daga. Ég
las eftirfarandi í bók eftir Pam
Brown sem mér finnst passa einkar
vel við þig: „Mæður gefa okkur lífið.
Þær fitja upp tilvera okkar. Þær
kenna okkur slétt og bragðið. Þær
sýna okkur algengustu munstrin. En
góðar mæður - og þú varst ein af
þeim - rétta okkur prjónana eftir
smátíma og segja: Líttu á heiminn,
elskan. Veldu þér ný litbrigði, ný
mynstur. Pijónaðu líf þitt sjálf1.
Elsku mamma mín, takk fyrir allt og
vona ég að ég reynist mínum bömum
eins vel og þú reyndist okkur.
Þín dóttir,
Særún.
Hún Gunna Hannesar hefur kvatt
þessa jarðvist, hún var tilbúin í þessa
ferð.
Ég man er ég sá þig fyrst skjótast
fyrir hornið á Vallargötu 6, snögg í
hreyfingum með hárið uppsett, ég
sat í bíl og horfði á, var dálítið smeyk.
Næst er ég hitti þig hafðir þú klippt
þig, hárið fallega greitt eins og ávallt
síðar. Þú tókst mér sem tengdadótt-
ur.
Mig langar að þakka þér, elsku
tengdamamma, fyrir allt sem þú
varst mér sem móðir, besti vinur,
leiðbeinandi í einu og öllu og bara
fyrir að hafa verið til. Þú varst ein-
stakt hörkutól, stundum dálítið hvöss
en þó varst þú blíðust af öllum, það
fékk ég að finna svo oft er við hitt-
umst. Ég þakka þér fyrir alla þá
visku sem þú miðlaðir mér.
Ég þakka þér fyrir hvað þú barst
mikla umhyggju fyrir börnunum
mínum og reyndist þeim vel eftir að
faðir þeirra lést.
Ég þakka þér fyrir að fylgjast með
bamabömunum mínum. Eg þakka
þér fyrir alla sokkana og vettlingana
sem þú sást okkur fyrir. Ég þakka
þér fyrir að taka slátur með mér á
hverju hausti, það var svo gaman,
ekkert slátur nema amma væri að
stjóma. Ég þakka þér fyrir öll ára-
mótin sem þú eyddir með okkur
Herði og bömunum, þú varst jafn-
sjálfsögð og annað á þeim tímamót-
um. Takk fyrir allt kaffið og kökurn-
ar á aðfangadagskvöld, það var
ómissandi að koma á „Valló“ þá.
Þakka þér fyrir að hlusta á mig þegar
mér leið illa, þá var gott að koma og
halla sér á öxl. Takk fyrir að koma út
til okkar Bigga, það var „æðislegt" að
hafa þig, þú alltaf til í að skoða þig
um, þvælast í búðum, fara til Trier í
kaffisopa, þér fannst svo gaman að
sitja úti á götu og skoða mannlífíð.
Hún Gunna var kraftmikil kona og
unni sér sjaldan hvíldar og vann verk
sín af mikilli snilli. Hún var glæsileg
og alltaf vel til höfð, geislaði af lífs-
gleði.
Lífið fór ekki alltaf mjúkum hönd-
um um hana en hún kvartaði ekki.
Lífið sem hún lifði svo sterkt kvaddi
hún sátt og hlakkaði til endurfunda
við þá sem hún hafði misst, hún hafði
jú misst ótrúlega mikið.
Vertu sæl mín kæra tengda-
mamma, ég sakna þín, sjáumst er
minn tími kemur.
Hvfldu í friði.
Heiða Árnadóttir.
Elsku amma. Við sitjum hér systk-
inin saman og erum að rifja upp ynd-
islegar minningar um þig. Þó að
þetta sé sorgleg stund og mikill miss-
ir þá er okkur hlátur í hjarta.
Þegar mamma flutti með okkur
heim til íslands frá Ameríku þá varst
þú til staðar og virtist skilja svo vel
hvemig okkur leið að koma í nýtt
land með öðrum siðum og venjum en
þeim sem við voram vön. Þú hafðir
alveg sérstaka meðaumkun með
henni Kim og gafst henni þann auka
styrk sem hún þurfti. Það leið aldrei
sá dagur að þú varst ekki heima þeg-
ar við komum heim úr skólanum og
kaffitíma var aldrei sleppt heima hjá
okkur.
Við munum öll eftir Kaupfélags
„rúntinum" á morgnana. Þá lést þú
alltaf „akkúrat" af auram í bláu
budduna og sendu eitthvert okkar
niður í Kaupfélag á Hafnargötu 30 að
kaupa mjólk og undanrennu því það
var alltaf fullt hús í hádegismat hjá
þér.
Við voram að hlæja að því systkin-
in hvað við notuðum þig hiklaust sem
„lifvörð" þegar við höfðum gert eitt-
hvað af okkur og von var á mömmu
heim í bijáluðu! Við minnumst öll
þeirrar þrár að fá að sofa út á sunnu-
dagsmorgnum en alltaf vöknuðum
við snemma við glamrið í ríkisútvarp-
inu í eldhúsinu hjá þér, þú hafðir allt-
af svo gaman að tónlist amma mín.
Elsku best amma okkar, það er ekki
nóg pláss á þessari síðu til að minnast
allra þeirra yndislegu stunda sem að
við áttum með þér. Þú veist að bestu
minningamar um þig geymum við í
hjörtum okkar. Þú hafðir svo mikil og
jákvæð áhrif á líf okkar allra og við
gleymum þér aldrei. Elsku mamma,
móðursystkini, makar og Svala, við
sendum Samúðarkveðjur til ykkar
allra og vitum við að þið leitið styrks
hjá hvert öðra eins og við systkinin
geram hér í Ameríku.
Kim, Kristín og Eiríkur.
Elsku amma mín. Ég er búin að
byija á þessu margoft en áður en ég
veit af er ég kominn með margar
þéttskrifaðar blaðsíður. Það er svo
mikið sem ég vil segja við og um þig
amma mín því þú varst án efa ein af
mikilvægustu og áhrifamestu mann-
eskjum í lífi mínu. Allar þær tilfinn-
ingar, hugmyndir og skoðanir sem ég
hef á hlutum eins og samkennd,
meðaumkun, þjóðemiskennd, pólitík,
kvennréttindum, mannréttindum,
bamauppeldi og menntun eru vegna
sterkra áhrifa frá þér. Þú hafðir áhrif
á líf mitt á svo margan hátt. Elsku
amma, ég vil að þú vitir að það er þér
að þakka að ég kenni bömum mínum
íslensku og rækta þjóðemiskenndina
í þeim gagnvart elsku landinu okkar.
Það er út af þér sem að ég kláraði
B.A.- og mastersnámið á mettíma og
fékk góða vinnu þar sem ég fæ að
sýna þá hæfileika sem í mér búa. Það
er út af þér að ég les fyrir börnin mín
á hverju kvöldi og ítreka mikilvægi
menntunar á líf þeirra í framtíðinni.
Það er út af þér sem að ég passa upp
á að hafa alltaf heitan mat á kvöldin í
faðmi fjölskyldunnar og passa upp á
að faðma bömin mín á kvöldin áður
en þau fara að sofa. Það er út af þér
sem að ég held þétt utan um þessa
litlu fjölskyldu sem ég á hér í Ámer-
íku, kalla þau í mat eins oft og ég get,
því eins og þú sagðir alltaf, fjölskyld-
an er það mikilvægasta sem að við
eigum og Stína mín, mundu að blóð
er þykkara en vatn. Það er út af þér
sem að ég kenni bömum mínum að
við verðum að hjálpa hvort öðra því
það fá ekki allir sama tækifæri í líf-
inu. Eins og þú sagðir svo oft, við
verðum að hjálpa þeim sem minna
mega sín í þjóðélaginu því það era
ekki allir eins heppnir og við.
Elsku amma, ég gæti haldið áfram
að tala um hvernig þú ólst mig upp og
hafðir áhrif á líf mitt, eða rakið ein-
hveija sögu um þig. En við vitum öll í
fjölskyldunni að þú varst engri lík og
það verður aldrei til önnur eins og þú.
Það sem að þú gafst okkur öllum í
arfleið er ómetanlegt. Elsku amma
mín, nú þegar þú ert í faðmi hans afa
og barnanna þinna sem þú hefur
saknað vil ég segja að ég og börnin
mín munum alltaf sakna þín og ég get
aðeins vonast til að verða sú mann-
eskja sem þú varst í lifanda lífi. Afi og
börnin þín sem era farin, era heppin
að hafa þig hjá sér núna. Elsku
mamma og móðursystkini, þetta er
mikill missir fyrir ykkur og okkur öll.
Ég veit að þið finnið styrk hjá hvort
öðra og með hvort öðra. Við fjöl-
skyldan hér í Ameríku munum koma
saman og minnast hennar ömmu með
söknuði og hlýju í hjarta.
Kristín (Stína).
Elsku amma mín.
Nú hefurðu verið kveðin burt úr
þessum heimi og missir okkar er
mikill. Við söknum öll yndislegu kon-
unnar sem vissi allt. Elsku amma, þú
varst alveg frábær í alla staði. Þú
unnir öllum svo vel og frá þér hef ég
öðlast margt. Þú hefur kennt mér frá
því að ég var smástelpa að með dugn-
aði og ákveðni er nánast allt mögu-
legt. Þú hefur kennt mér að það borgi
sig að vera góður við alla. Ég minnist
þess hversu yndislegt það var að
koma á Suðurgötuna í hádeginu og fá
sér mjólk og brauð hjá ömmU. Þú
varst alltaf svo hlý og góð-Alltaf með
troðfullt box af súkkulaði sem þú
gafst okkur krökkunum og svo mátt-
um við alltaf fá eitt nammi í nesti. Þú
náðir svo vel til fólks með einlægni
þinni og fólk tók mark á orðum þín-
um. Öllum þeim sem komu nálægt
þér þótti vænt um þig. Þú varst alveg
einstök amma.
Elsku amma ég vil þakka þér fyrir
það að benda mér á hvað sé rétt og
hvað sé rangt í þessu lífi. Hláturinn
þinn var alveg meiri háttar og það
var alveg yndislegt að heyra þig
segja alls konar sögur frá því í
„gamla daga“. Þú sannaðir það að
hláturinn lengir lífið.Við voram alltaf
nánar og þó svo að þú værir tæpum
70 árum eldri en ég skildir þú mig
alltaf. Alltaf vildir þú öllum vel og ég
man vel þegar þú sagðir við mig þeg-
ar við voram að tala um hvað það
væri hræðilegt hvernig sumt fólk
færi á mis í lífinu þá sagðir þú: „Bára
mín, þetta fullorðna fólk í dag er ekk-
ert skárra en þið blessuðu ungling-
arnir,“ og svo hlóstu og hlóstu. Já,
það er alveg ótrúlegt hvað þú varst
alltaf hress. Meira að segja þegar ég
kom að heimsækja þig á sjúkrahús-
inu hlóstu og hlóstu þegar ég sagði
þér að ég væri búin að kaupa mér bfl.
Þó svo að þú værir veik. Elsku amma
ég vil þakka þér fyrir samfylgdina í
þessu lífi og ég ætla að muna eftir þér
að eilífu. Allir ættu að eiga ömmu
eins og þig. Hafðu það gott hjá afa og
þínum nánustu og hafðu þökk fyrir
allt.
Kom, huggari, mig hugga þú,
kom, hönd, og bind um sárin,
kom, dögg og svala sálu nú,
kom,sól,ogþerratárin,
kom, hjartans heilsulind,
kom,heflögfyrirmynd,
kom,ljósoglýstumér,
kom, líf, er ævin þver,
kom, eilífð, bak við árin.
(V. Briem.)
Þín
Bára Lúðvíksdóttir.
Elsku amma mín, mig langar til að
þakka þér fyrir allt sem við áttum
saman. Nú þegar þú ert farin, amma
mín, til afa og bamanna þinna verður
mér hugsað til áranna þegar ég fór
með þér í sveitina á sumrin og allar
þær ánægjustundir sem við áttum
saman. Elsku amma, þú varst ein-
stök, þú stóðst alltaf eins og bjarg,
sama hvað dundi á gat ég ávallt leitað
til þín og þú huggaðir mig. Elsku
amma, þegar ég kom til þín fyrir
rúmum tveimur áram og sagði þér að
ég væri veik sagðir þú við mig, vertu
dugleg og treystu Guði. Og þessi orð
frá þér, amma mín, að treysta Guði
vora efst í mínum huga meðan ég
gekk í gegnum veikindin. Elsku
amma mín, ég veit þér líður vel.
Nú ertu leidd, mín ljúfa
lystigarð Drottins í
þar áttu hvíld að hafa
hörmungum rauna frí.
Við guð þú mátt nú mæla
mikil fegri en sól
unanogeilífsæla
erþínhjálambsins stól.
(Hallgr.Pét.)
Þín nafna,
Guðrún.
Elsku amma, á kveðjustund
streyma fram minningar um Ijúfar
samverastundir með þér. Flestar úr
barnæskunni þegar ég dvaldi hjá þér
og afa á Vallargötunni á sumrin. Mér
finnst ég eiga þér svo margt að
þakka.
Stundfrnar sem við áttum saman
og allt það sem ég lærði hjá þér hefur
reynst mér dýrmætt veganesti í líf-
inu. Okkar bestu stundir áttum við í
eldhúsinu. Þú varst mikill sælkeri og
sinntir matargerðinni af mikilli natni.