Morgunblaðið - 05.09.2000, Qupperneq 58
58 ÞRIÐJUDAGUR 5. SEPTEMBER 2000
MORGUNBLAÐIÐ
Ferdinand
Herra, ég hélt þú hefðir sagt að
leiðsögumaður biði okkar.
UIE AKE.MARCIE.. I THINK I
5EE HIM NOU)...HEV!í OVER
HERE! ARE VOU OUR 6UIPE ?
Það er svo Magga.
Ég held ég sjái hann.. hæ!! þarna!
Ert þú leiðsögumaðurinn okkar?
Hver heldurðu að ég sé,
"Krókódfla Danni”, kannski?
BRÉF
TIL BLAÐSINS
Kringlunni 1 103 Reykjavík • Sími 569 1100 • Símbréf 569 1329
ísland fyrir
Islendinga?
Frá Jóni Vigfússyni:
FYRIR skömmu hélt Bjamey Frið-
riksdóttir, framkvæmdastjóri
mannréttindastofu, því fram í fjöl-
miðlum að Félag íslenskra þjóðem-
issinna væri að hvetja til mann-
réttindabrota með kröfum um að
íslenskt vinnuafl sé tekið fram yfir
erlent vinnuafl hér á landi. Er okk-
ur þar með skipað á bekk með
Stalín, Pinochet og Idi Amin, sem-
sagt algerir kúkalabbar sem láta sig
mannréttindi engu skipta. Sem
dæmi um ótrúlega fúlmennsku
þessara manna og okkar litla félags
má nefna að Stalín svelti þjóð sína
til hlýðni, Pinochet lét varpa póli-
tískum andstæðingum úr flugvélum,
Idi Amin át óvini sína og FIÞ vill að
íslendingar geti stundað vinnu sína
í friði án þess að þurfa að hafa
áhyggjur af því að þeim sé sagt upp
og ódýrt, erlent vinnuafl fengið í
staðinn. Við þjóðernissinnar emm
alveg bugaðir eftir þessar uppljóstr-
anir Bjarneyjar og játum það, fullir
iðmnar, að okkur finnst Islendingar
hafa einhvem rétt framyfir aðra í
sínu eigin landi. Viljum við benda
Bjamey á að þegar hún er búin að
knésetja okkur fyrir framangreinda
illmennsku þá bíða hennar fleiri
verðug verkefni í þessari krossferð
frjálslyndis og bræðralags. Hún
getur til dæmis ráðist á Landhelgis-
gæsluna fyrir brot þeirra á mann-
réttindum breskra sjómanna, þeim
var jú meinað að stunda vinnu sína í
íslenskri lögsögu. í framhaldi af því
gæti hún dregið skipherra gæslunn-
ar til Nuremberg og hengt þá fyrir
glæpi gegn mannkyninu, svona til
að vera viss um að hún fái prik hjá
Sameinuðu þjóðunum. Skömmu eft-
ir ásakanir Bjameyjar greip Þór-
unn Sveinbjamardóttir, þingkona
Samfylkingarinnar, orð hennar á
lofti og þar sem henni líkar vel við
víetnamska innflytjendur mun hún
beita sér fyrir lögbanni á FÍÞ á
næsta þingi (DV, 17. ágúst síðastlið-
inn). Það sem þær stöllur telja að
þurfi að verja fyrir okkur eru mann-
réttindi útlendinga hér á landi og
sýnist þeim það best gert með því
að hefta málfrelsi samlanda sinna.
Má ég benda dömunum kurteislega
á að önnur er framkvæmdastjóri
mannréttindastofu en hin er kosin á
þing, af íslendingum, til að hlúa að
velferð og framtíð íslendinga á ís-
landi! Ekki rekur mig minni til þess
að í kosningaloforðum Samfylking-
arinnar fyrir síðustu kosningar hafi
verið minnst á að það stæði til að
svipta Islendinga málfrelsi til þess
eins að búa megi í haginn fyrir út-
lendinga hérlendis. Virðist lítið fara
fyrir mannréttindum, atvinnurétt-
indum eða nokkrum öðrum réttind-
um „innfæddra“ þegar kemur að
innflytjendamálum hér á landi. Get-
ur verið að það komi til af því að hér
hefur hreinlega ekki verið til staðar
neitt pólitískt afl sem hefur einblínt
á framtíð íslendinga í sínu eigin
landi fyrr en Félag íslenskra
þjóðernissinna leit dagsins ljós?
Hér hefur vantað mótvægi við
þeirri þöglu innrás útlendinga sem
vissir framámenn/konur Fram-
sóknarflokks og Samfylkingar
standa fyrir og vonumst við til að
FIÞ verði það mótvægi. Álítum við
það vissa viðurkenningu á störfum
félagsins ef við verðum fyrsti hlut-
urinn sem Samfylkingin verður
sammála um.
Það er nú einu sinni svo að ekki
eru allir ánægðir með gríðarlega
fjölgun útlendinga hér á landi og ef
Samfylkingin fær sínu fram um að
banna okkur má fólk spyrja sig að
því hvort málfrelsi þess sé hætta
búin ef það er ekki sammála Sam-
fylkingunni um alla hluti. Þarna
ætla örfáar hræður á þingi að not-
færa sér aðstöðu sína til að þagga
niður í pólitískum andstæðingum
sínum og gott ef þetta framferði
flokkast hreinlega ekki undir gall-
harðan fasisma af verstu gerð. Við
erum ört stækkandi félagsskapur
sem segjum það sem flestir aðeins
hugsa og erum talsmenn stórs hluta
þjóðarinnar þegar kemur að inn-
flytjendamálum og eigum fullan
rétt á okkur sem slíkir.
Island fyrir íslendinga!
JÓN VIGFÚSSON,
formaður Félags
íslenskra þjóðemissinna.
Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga-
safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu þaðan, hvort
sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni
til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.
rit
Brúðhjón
borðbúndður GIæsi 1 eq tjjdíavdra - Brnðhjönalistar
ífc
0 x
J\oóen
VERSLUNIN
Laugavegi 52, s. 562 4244.