Morgunblaðið - 05.09.2000, Blaðsíða 63
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 5. SEPTEMBER 2000 63
FÓLK í FRÉTTUM
Kvartett Árna Heiðars á Kaffi Reykjavík
Alþjóðadjass með
íslenskum andblæ
Tríó Töykeát á Jazzhátíð
Tríd Töykeat fangar náttúru og tdnlist Finnlands í djassinum sinum.
Kröftugir og
persónulegir
„ÞETTA eru allt frumsamin lög eftir
mig frá síðustu fjórum árum, þar sem
gætir áhrifa úr ýmsum áttum, frá
ECM norrænum djassi og yfu- í áhrif
frá negrasálmum," segir Arni Heiðar
sem byrjar tónleika sína á Kaffi
Reykjavík kl. 22 í kvöld. Með honum
leika Jóel Pálsson á saxófón, Gunn-
laugur Guðmundsson á bassa og
Finninn Anssi Lehtovouri á tromm-
ur.
Diskur á leiðinni
„Þetta efni er reyndar væntanlegt
á diski með haustinu á vegum Þús-
und þjala. Jóel leikur þar líka með
mér ásamt Einari Scheving trommu-
leikara og Tómas R. bassaleikara."
TONLIST
Geisladiskur
DEFEATED
Defeated, geisladiskur hljdmsveit-
arinnar Mary Poppins. Sveitina
skipa þeir Snorri Snorrason (söng-
ur), Steinar Gíslason (gítar), Orvar
Omri Ólafsson (gítar), J. Símon Jak-
obsson (bassi) og Hallgrímur Hall-
grímsson (trommur). Lög og textar
eru eftir Snorra Snorrason og
Gunnar Bjarna Ragnarsson. Upp-
tökumenn voru þeir Steinar Gísla-
son, Þdrir Úlfarsson, Jens Hansson
og Þorvaldur Bjarni Þorvaldsson.
41,13 mín. Stöðin ehf. gefur út.
„DEFEATED“ er fyrsta eigin-
lega breiðskífa hljómsveitarinnar
Mary Poppins, fyrir réttum tveim-
ur árum síðan kom út sex laga
þröngskífa sem ber hið viðeigandi
nafn „Promo“ enda var tilgangur
þeirrar útgáfu fyrst og fremst sá
að renna í sjó erlendra markaða.
Fjögur lög af þeirri plötu er að
finna hér, „Magic“, sem var tals-
vert spilað í útvarpi á sínum tíma
og svo lögin „Losing my mind“,
„Nothing" og „Spaced“.
Mary Poppins er fyrst og síðast
hugðarefni Gunnars Bjarna Ragn-
arssonar, fyrrum soldáns í Jet
Black Joe, þótt hann sé reyndar
fjarri góðu gamni er kemur að
sjálfum hljóðfæraleiknum í þetta
sinnið. Hér semur hann öll lög og
texta í samvinnu við söngvara
sveitarinnar, Snorra Snorrason, og
er óhætt að segja að öll lögin beri
sterk höfundareinkenni Gunnars.
Hér gætir gríðarmikilla áhrifa
Ámi Heiðar er útskrifaður frá
djasspíanódeild FÍH, þar sem hann
nam spuna og tónsmíðar hjá Sigurði
Flosasyni og Hilmari Jenssyni síð-
asta árið. Eftir það fór hann í djass-
píanónám í Hollandi við tónlistarhá-
skólann í Amsterdam, en útskrifaðist
í vor úr klassískum píanóleik frá
Tónlistarskólanum í Reykjavík. í
haust liggur svo leiðin til London í
einkatíma hjá píanóleikaranum
Martino Tirimo.
- Á ekki að djassa áfram í London?
„Það er óskandi að fá eitthvað að
gera á djassklúbbum þar. Hver veit
nema ég setji saman band eða flytji
Gulla og Anssi yfir frá Hollandi, þeir
eru nú bara hinum megin við sundið.“
Lofar góðri stemmningu
„Þetta verða skemmtilegur tón-
leikar,“ lofar Ámi Heiðar. „Ég spil-
aði þetta efni með öðrum hljóðfæra-
frá sjöunda áratugnum, þá er
popplagasmíð stóð í miklum blóma,
og eru áhrifin reyndar svo sterk
stundum að sum lagana eru nánast
kappklædd í hreina og beina for-
tíðarþrá. Jet Black Joe voru á sín-
um tíma rammir síðhippar, jafnt í
orði sem æði, og hefur sá andi
aldrei vikið frá listrænni hlið Gunn-
ars eins og berlega sést á þessari
plötu þótt hér sé um öllu poppaðri
stemmur að ræða. Gunnar er góður
lagasmiður og honum er einkar
lagið að semja melódísk og gríp-
andi lög sem sveiflast frá ábúðar-
fullum og dramatískum rokkurum
yfir í hugljúfar ballöður. En þessi
hæfileiki Gunnars er um leið Akkil-
esarhæll hans. Lögin vantar nefni-
lega sárlega persónulegan stíl en
uppbygging þeirra er einhvers
konar safn tilvísana í sígildar popp/
rokkperlur áranna. Þetta vandamál
er ekki ósvipað því sem hin ofur-
vinsæla sveit Oasis hefur þurft að
glíma við á ferli sínum, öll lögin
minna mann alltaf á einhvern óþol-
andi hátt á önnur lög og frægari.
Einnig finnst mér leiðinlegt þegar
menn eru stöðugt að endurvinna og
endurútgefa fyrri lagasmíðar sínar.
Það bendir eðlilega til þess að
sköpunargáfunni góðu sé tekið að
hrörna. Svipuð vandræði hrjá text-
ana sem eru ein heljarstór hráka-
smíð, hugmyndasnautt samhnoð úr
flestum þeim klisjum sem dægur-
lagamenningin hefur skilið eftir sig
í gegnum tíðina.
Ekki batnar ástandið er gluggað
er í upplýsingabækling plötunnar.
Þeir sem standa að þessari útgáfu
eru vart skrifandi, og gildir þá einu
hvert tungumálið er, íslenska eða
leikurum á Sólon fyrr á árinu og það
var rosalega fín stemmning. Ég vona
bara að sem flestir mæti.“
- Erþetta létt tónlist?
„Ég held að ég sé meira í hressari
kantinum en melankolían á sinn stað
i tónlistinni líka. Það ættu allir að
finna eitthvað við sitt hæfi þarna í
kvöld.“
-Koma nýjar útsetningar með
nýju bandi?
„Já, við höfum unnið svolítið sam-
an í því og það verður nýr blær á tón-
listinni sem kemur með Gulla og
Anssi, það er mjög gaman.“
-Kannski hollenskari blær en var?
„Ég veit ekki alveg hvað er hol-
lenskt, þeir eru svo alþjóðleg þjóð.
Það mætti ef til vill segja að þetta sé
nokkurs konar alþjóðadjass með ís-
lenskum andblæ,“ segir tónskáldið
og hljómsveitarstjórinn Árni Heiðar
að lokum.
enska. Frágangur hins ritaða orðs
er fyrir neðan allar hellur og
aðstandendum til skammar. Þau
mál eru reyndar með ólíkindum á
stundum, okkur er til dæmis sagt
að upptökur hafi farið fram í
„Stúdió Stöðinn" og „Grótnáman“.
Slappir textarnir, sem eru á ensku,
leynast inni í umslaginu og eru allir
sem einn gersamlega vaðandi í
stafsetningarvillum og meira að
segja afreka menn að stafsetja
nafn Gunnars Bjarna Ragnarsson-
ar vitlaust, er sagður „Ragnar-
son“?! Allt þetta væri kannski fyr-
irgefanlegt ef það hefði verið sjö
ára gamalt barn sem hefði séð um
textainnsláttinn, (kannski var það
bara sjö ára gamalt barn sem sá
um innsláttinn?), því það er mér
fullkomlega óskiljanlegt fullorðnir
menn gangi ekki betur frá hug-
verki sínu, verki sem nú er komið
út á meðal almennings og verður
þar í umferð um ókomin ár. Einnig
ber að geta grafískrar hönnunar
umslags í þessu sambandi sem er
afkáraleg og slöpp í meira lagi.
Spilamennska sveitarinnar er í
góðu lagi, svo og hljómur plötunn-
ar. Snorri er söngvari sem er vel
yfir meðallagi, býr yfir mjóróma
gruggrödd sem hentar lagasmíðun-
um ágætlega. Það er þó lítill rokk-
kraftur í stráknum og oft hljómar
hann eins og litli bróðir Páls Rósin-
kranz. Heildarútkoman er nokkurs
konar poppuð útgáfa af Jet Black
Joe og þó að lögin séu haglega
samin eins og áður segir eru þau á
heildina litið of andlaus og ófrum-
leg til að þau veki með manni ein-
hvern áhuga eða æsing.
Arnar Eggert Thoroddsen
FINNAR hafa löngum átt slynga
jazzleikara og hafa ýmsir þeirra
sótt okkur heim. Nú er Trio Töyk-
eat mætt og heldur tónleika á
Kaffi Reykjavík kl 20.30 í kvöld.
Iiro Rantala, píanisti Trio
Tökyeat, er óefað einn fremsti
jazzpíanisti Evrópu um þessar
mundir og þykir sérlega fær,
kraftmikill og hugmyndarfkur.
Með Rantala leika í tríóinu bassa-
leikarinn Eerik Siikasaari, sem
hér lék með Jukka Linkola á Nor-
rænum útvarpsdjassdögum 1990,
og trommarinn Rami Eskelinen.
Tríóið hefur leikið saman í tólf ár
og ferðast um veröld alla og gefið
út þrjá diska og er sá fjórði vænt-
anlegur. Diskar tríósins hafa náð
á vinsældalista í Finnlandi, og var
sá nýjasti, Sisu, í 12. sæti, en
hærra hefur enginn finnskur
djassdiskur náð. Skífan hefur
flutt inn tónlist þeirra.
Tríóið leitar víða fanga í tónlist
JLfa .•. £
JPE-Nýj'*
imA hreinsunin
gsm 897 3634
Þrif á rimlagluggatjöldum.
sinni. Náttúra Finnlands og tón-
list er þeim mjög hugleikin. Vals-
ar, tangóar, sömbur, blúsar og
búggar skjóta upp kollinum í afar
kröftugum og persónulegum stíl
tríósins.
() I I. () \ I) () \
PÖNTUNARSÍMI 565 3900
OPIÐ KL. 9.00 TIL 22.00
RAHUL
PATEL
SNÝR AFTUR
Lifðu án ótta, reiði og einmanaleika
Námskeið um hugarástand og heilsu með
einum færasta heilunarsérfræðingi
Bandaríkjanna, helgina 16. -17. september.
Upplýsingar í síma 552 3210, www.lifandi.is
Suðurlandsbraut 10, 2. hæð kl. 12.00 - 18.00
„Orðspor Rahuls og stórkostlegir hæfileikar til að
snerta hjörtu fólks og hrífa það með þekkingu sinni
breiðist sífellt hraðar út."
-Candace Pert Ph.D. Einn af fremstu rannsóknarmönnum
samtímans á sviði læknavísinda. Hún uppgötvaði taugapeptfð;
amínósýrur sem tengja hugarástand við heilsufar.
Námskeiðið er styrld af Liósiifandi ehf.
Morgunblaðið/Jón Svavarsson
Árni Heiðar, Gunnlaugur, Jóel og Anssi leika Iög í hressari kantinum á Jazzhátíð í kvöld.
Dauft í dálkinn