Morgunblaðið - 13.09.2000, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 13. SEPTEMBER 2000 B 5^
HAFS
Morgunblaðið/Jón Páll Ásgeirsson
Gert að kolanum.
Morgunblaðið/Jón Páll Ásgeirsson
Dragnótin dregin um borð.
„ Sumarið nú ekki
eins gott og áður var“
IIAFSÚLAN BA-741
rr n /i t»a • 'j. / gerir út á snurvoð frá
Hafsulan BA gerir ut a Patreksfírði alla jafna
snurvoð frá Patreksfirði
Hafsúlunni, að ágætlega hafi gengið undanfarið. „Við höfum aðallega verið á
þorskinum en það hefur einnig verið talsvert um skarkola líka. Veiðin i sumar
hefur verið þokkaleg en gengið í sumar hefur samt ekki verið eins gott og
undanfarin sumur.“
Deilur um
eitrun af
sjávarfangi
SAMTÖKIN „Miðstöð visinda í
þágu fólksins" komu fram fyrir
skemmstu með skýrslu þar sem
þau héldu því fram að sjávar-
fang væri meginorsök matar-
eitrunar í heiminum. Sérfræð-
ingar voru þó ekki lengi að hafna
röksemdum hópsins og segir
Robert Price, sérfræðingur í
sjávarfangi við háskólann í Kal-
ifomíu, að skýrslan sé dæmi-
gerð fyrir misnotkun gagna.
Samkvæmt úttekt samtakanna
á 865 matareitrunartilfellum frá
janúar 1990 til júh' 2000 voru 237
tilfellanna rakin til sjávarfangs,
170 voru vegna eggja, 90 vegna
kjötneyslu og 82 vegna ávaxta.
Caroline Smith DeWaal, for-
maður samtakanna, segir að töl-
urnar tah sínu máli og það sé
ekki spuming að fiskur og egg
séu helstu matareitrunarvaldar.
„Því miður hafa yfirvöld gert allt
of lítið til að sjá til þess að þessi
matvæh séu ómenguð. Yfirvöld
ættu tvímælalaust að hefja frek-
ari rannsóknir á örverum í fiski
og auka eftirlit með aðstöðu
framleiðandanna.11 Price er hins
vegar ekki á sama máli og segir
að samtökin hafi rangtúlkað þau
gögn sem lágu fyrir. „Þau nota
óstaðfest gögn í athugun sína og
því gefur hún ekki rétta mynd af
því hve margir veiktust.“ Price
segii- að einnig geri samtökin
ekki greinarmun á fiski sem
veiddur er í sportveiði og fiski
sem kemur frá verksmiðjum og
það skekki niðurstöðumar vem-
lega. „Sjávarfang er ekki vanda-
mál. Mörg þeirra tilfella sem
koma upp vegna sjávarfangs
em mjög væg og auðgreinanleg
og það kann að valda því að þau
era oftar tilkynnt," segir Price.
„Við höfum aðallega verið að veiða
í Flóanum og lagt upp fyrir Topp-
fisk í Reykjavík. Þeir koma þessu
síðan á flug þannig að þetta er
komið á diskana úti tveimur dög-
um eftir að við veiðum þetta. Ef
við löndum að kvöldi er aflinn
kominn að morgni til þeirra í
Toppfiski.“ Páll segir að þeir séu
þrír á bátnum og eiga þeir hann í
sameiningu. „Ég, Árni Magnússon
og Skúli Theódór Haraldsson eig-
um bátinn í sameiningu og róum
saman á honum. Þetta er ágætis
fyrirkomulag. Við reynum að róa
flesta daga en annars höfum við
farið frekar lítið undanfarið vegna
sumarfría hjá Toppfiski." Páll seg-
ir að talsvert basl sé hjá mörgum
sem eru að róa frá Patreksfirði
vegna aflaskerðingar. „Það er sí-
fellt verið að herða ólina með
endalausri skerðingu. Það er þann-
ig komið hjá okkur þremur sem
eigum bátinn að við erum með allt
okkar í þessu og gætum því ekki
farið þótt við vildum. Þeir em ekki
margir sem róa frá Patreksfirði
þessa dagana á dragnót þar sem
langflesta skortir heimildir og við
höfum róið einir núna í svolítinn
tíma. Sú staða lagast þó vonandi
um mánaðamótin og þá færist eitt-
hvert líf í þetta aftur.“
Morgunblaðið/Jón Páll Ásgeirsson
Olían dýr
OLÍUVERÐ hefur hækkað
gífurlega undanfama mánuði
og er það farið að gera mörg-
um útgerðum vemlega erfitt
fyrir. Fyrir átján mánuðum var
olíuverð til norskra fiskiskipa
0,77 norskar krónur lítrinn en
nú kostar lítrinn hins vegar
2,62 norskar krónur. Norður-
sjávarfloti Norðmanna, sem
aðallega veiðir uppsjávarfisk
og ál, er í uppnámi vegna þess-
arar miklu eldsneytishækkana,
lítillar veiði og lágs verðs. Sam-
tök togarasjómanna í Suður-
Noregi hafa farið þess á leit við
norska fiskimannasambandið
að þem aðstoði þá við að laga
stöðuna. „Á aðeins 16 mánuð-
um hefur olíuverð hækkað um
240%,“ segir Harald Ostensjo,
formaður samtaka togarasjó-
manna. „Þetta háa olíuverð og
áframhaldandi sterkt gengi
dollarans ásamt slælegri veiði
og lágs afurðaverðs hefur sett
mikið álag á veiðarnar. 0sten-
sjo telur að ef ekkert verði að
gert neyðist útgerðirnar til að
leggja skipunum.
Til sölu
Gylfi BA-18. 6 bt. 9,28 ml.
2,99 mb. Vél Volvo Penta, 218
hö. Selst með þorskaflahá-
marki, 30 tonn.
Eyjaberg VE-62. 224 bt.
31,22 ml. 6,7 mb. Vél MVM,
765 hö.
Stundvís ÍS-883. 24 bt. 14,7
ml. 4 mb. Vél Volvo Penta,
238. Stálskip.
Árni Óia ÍS-81. 21 bt. 13,7
ml. 3,75 mb. Vél Scania 180
hö.
Hraðfólksflutningaskip af
mörgum gerðum og stærðum
og úrval annarra skipa á sölu-
skrá erlendis frá.
Nánari upplýsingar á skrif-
stofu. Önnumst sölu á öllum
gerðum skipa og báta. Vegna
mikillar sölu undanfarið vant-
ar allar gerðir skipa og báta á
á söluskrá.
Skipamiðlun
Þuríðar Halldórsdóttur hdl.,
s. 551 7280 og 893 3985.
Vefsíða: www.hreidrid.is
Pokinn hífður um borð og ágætt í honum.