Morgunblaðið - 03.12.2000, Side 3
[///
Bækurnar sem
uagur h. Éggertsson
Óvenju vönduð og efnismikil“
Steingrímur Hermannsson var forsætisráðherra nánast samfleytt ffá 1983-1991
og síðan seðlabankastjóri um nokkurra ára skeið. í bók þeirra Dags B.
Eggertssonar, Forsætisráðherrann, fjaliar Steingrímur um þessi viðburðaríku
ár; greinir frá baktjaldamakki við stjórnarmyndanir, sögulegum stjórnarslitum,
harðvítugum átökum við andstæðinga og samherja og opnar lesendum
dyr að heimi stjórnmálanna sem hingað til hafa verið luktar.
„Mjðg áhugaverð saga og gaman að lesa hana. Dagur gerír þetta
mjög veL ... Á efdr að vekja mikla athygli og mikla umræðu."
Kolbrúfi Bergþórsdóttir, fsland í bítiö
„Helsti kostur þessarar ævisögu er að Steingrímur er lausmáll og
sér enga ástæðu til að þegja yfir ýmsu sem hingað til hefur verið
óstaðfesL ... ævisaga þessi er óvenju vönduð og efnismikil. Hún
hlýtur að einhverju leyti að verða fyrirmynd annarra ævisagna
stjómmálamanna sem á eftir koma ..."
Ármann Jakobsson, DV
„Það er ekki frítt við að ég fái snert af
fortíðarfíkn við að lesa bókina."
Egill Helgason, strik.is
Jtfrek ... I hnotskum: Mjög áhugaverð og vel unnin frásögn
af Utríkum stjórnmálamönnum á umbrotab'mum."
Hrafn Jökulsson, Kastljós
Einlæg og opinská
Hér ræða fimm þjóðkunnir forystumenn opinskátt um líf sitt og feril í meðvindi
og mótbyr. í lok bókarinnar fjallar höfundurinn, Ásdís Halla Bragadóttir, um
listina að vera leiðtogi og leitar meðal annars svara við spurningunum: Hvað
þarf til að verða leiðtogi? Hvernig nær leiðtoginn árangri?
• Hvenær íhugaði Vigdís Finnbogadóttir að segja
afsér forsetaembætti?
• Hverjir eru helstu ráðgjafar Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur?
• Hvers vegna bauð Davíð Oddsson sig fram til flokksformanns
gegn æskufélaga sínum Þorsteini Pálssyni?
• Hvaða mistök gerði Hörður Sigurgestsson á forstjórastóli?
• Af hverju ákvað Kári Stefánsson að segja skilið við
prófessorsstöðu við Harvard-háskóla og stofna
íslenska erfðagreiningu?
VAKA- HELGAFELL