Morgunblaðið - 03.12.2000, Qupperneq 4

Morgunblaðið - 03.12.2000, Qupperneq 4
4 SUNNUDAGUR 3. DESEMBER 2000 FRETTIR MORGUNBLAÐIÐ VIKAN 26/11-02/12 ► Sjávarútvegsfyrirtœkið Nasco ehf. hefur óskað eft- ir gjaldþrotaskiptum á búi félagsins. Ástæðan er tap- rekstur undanfarin miss- eri, en neikvæð eigin- ijárstaða fyrirtæksins er 150 milljónir króna. ► UM 75% aukning hefur orðið á innlögnum ungl- inga með geðröskun í haust frá sama tíma í fyrra. Ófremdarástand hefur skapast á barna- og ungl- ingageðdeild Landspítal- ans á Dalbraut vegna þessa. ► VELTA á gjaldeyris- markaði er nú þegar orðin 230 milljörðum króna meiri en hún var allt árið í fyrra. Það sem af er árinu er veltan um 700 milljarðar króna. Aukninguna má að hluta skýra með þrýstingi á krónuna og virkni Seðla- bankans á markaðnum. ► ÍSLENSK endur- trygging hf. mun draga úr starfsemi sinni um næstu áramót og í kjölfarið hafa íslensku tryggingafélögin ákveðið að segja upp end- urtryggingarsamningi við fyrirtækið. Stærstur hluti skipaflotans hefur verið endurtryggður hjá fyrir- tækinu, en heiidariðgjöid hans námu um 1.200 millj- ónum króna í fyrra. ► ÍSLAND verður aðili að Schengen-svæðinu frá og með 25. mars á næsta ári. Formleg ákvörðun um þetta var tekin á fundi í Brussel á föstudaginn. Þýskaland og Frakk- land banna fískimjöl RÍKISSTJÓRNIR Þýskalands og Frakklands hafa bannað dýran\jöl í skepnufóðri og nær bannið einnig til fiskinnjöls. Bannið var sett vegna vaxandi ótta í Evrópu við kúariðu og Creutzfeldt- Jakob-sjúkdóminn. Tillaga um að bannið nái til alls mjöls sem unnið er úr dýraaf- urðum, þar með talið fiskimjöls, var einn- ig lögð fyrir dýralæknanefnd Evrópu- sambandsins á fimmtudaginn, en ekki reyndist vera meirihlutastuðningur fyrir henni þar. Ráðherraráð ESB mun því fá tillöguna til afgreiðslu á morgun. Ljóst er að mikið er í húfi fyrir íslenskan sjávar- útveg því útflutningsverðmæti fiskimjöls til ríkja ESB nam í fyrra um 7 milljörðum króna. Á síðustu árum hefur hlutur fiski- mjöls í öllu útflutningsverðmæti Jsjóðar- innar verið á bflinu 5 tU 15%. Ámi M. Mathiesen sjávarútvegsráðherra segir að svo virðist sem pólitísk sjónarmið skipti meira í máli þessu en vísindaleg rök. Þrír létust í bflslysi á Reykjanesbraut ÞRÍR létu lífið í hörðum árekstri tveggja bifreiða á Reykjanesbraut við Strandar- heiði á fimmtudaginn. Óljóst er um tildrög slyssins, en rann- sóknardefld lögreglunnar í Keflavík er að rannasaka málið. Þó er Ijóst að bílamir, fólksbíll og jeppi, komu hvor úr sinni átt- inni, en sfysið átti sér stað á beinum veg- arkafla. I fólksbílnum vora hjón, fædd 1955 og 1951 og létust þau bæði. í jeppan- um vom feðgin. Ökumaður, sem fæddur vai-1970, lést en dóttir hans, fædd 1996, var flutt á sjúkrahús með höfuðáverka, en ástand hennar er stöðugt. AUs hafa nú 28 beðið bana af völdum umferðarslysa það sem af er árinu og hafa ekki fleiri lát- ist af völdum umferðarslysa síðan 1988, þegar 29 létu lífið í umferðarsfysum. Þolinmæði kjósenda á þrotum DÓMARI í Tallahassee í Flórída tók í gær fyrir kröfu lögfræðinga A1 Gores, forsetaefnis demókrata, um talningu 14.000 vafaatkvæða en demókratar telja, að þau geti hugsanlega ráðið úr- slitum um niðurstöðu kosninganna. í fyrradag hafnaði hins vegar hæsti- réttur ríkisins að skipa fyrir um taln- ingu atkvæðanna áður en dómarinn í Tallahassee tæki afstöðu til hennar. Atkvæðin umdeildu em úr kjördæm- um þar sem demókratar hafa jafnan haft mikið fylgi en kosningavélar flokkuðu þau þannig, að hvorugur for- setaframbjóðendanna hefði fengið þau. Þó má sjá með bemm augum, að reynt hefur verið að merkja við annan hvorn. Hæstiréttur Bandaríkjanna í Washington tók á föstudag fyrir kröfu repúblikana um, að handtalningin væri ólögleg en ekki var ljóst hvenær úrskurðar væri, að vænta. Skoðana- kannanir benda til að bandarískur al- menningur sé búinn að fá sig fullsadd- an af öllum lagaflækjunum og vilji, að úr þesum málum verði skorið án tafar. Áhyg-gjur af skæru- hernaði Albana VAXANDI skæruhernaður Albana í Presevodal í Suður-Serbíu veldur miklum áhyggjum en fyrir þeim vakir að sameina hann Kosovo og lýsa síðan yfir sjálfstæði frá Serbíu. í Pres- evodal búa um 70.000 manns, sem eru af albönsku bergi brotið, en einnig margir Serbar. Er þessi hernaður al- varlegt mál fyrir Sameinuðu þjóðirn- ar og Atlantshafsbandalagið, NATO, sem hafa tekið að sér að gæta friðar- ins á þessum slóðum, og einnig mjög erfitt mál fyrir Vojislav Kostunica, forseta Júgóslavíu, og lýðræðisöflin í Serbíu. Nota fyrrverandi ráðamenn, bandamenn Slobodans Milosevic, fyrrverandi forseta, sér það óspart til árása á núverandi stjórnvöld og það getur haft sitt að segja í kosningunum 23. desember nk. ► EHUD Barak, for- sætisráðherra ísraels, hef- ur ákveðið að boða til kosn- inga á næstunni og þykir líklegt, að þær verði á vori komanda. Sennilegt er, að Ariel Sharon, leiðtogi Lik- udflokksins, muni þá verða helsti andstæðingur Bar- aks en óvíst er enn um fyr- irætlanir Benjamins Net- anyahus, fyrrverandi leiðtoga Likudsflokksins. Palestínumenn hafa hafn- að nýjum tillögum Baraks um skiptingu landsins og leggja áherslu á, að tími sé kominn til að ljúka friðar- ferlinu í anda Óslúarsam- komulagsins. ► ÓTTINN við kúariðuna og skyldan sjúkdóm í fólki fer eins og logi yfir akur um alla Evrópu og nauta- kjötssala hefur hrunið. Hefur verið gripið til ým- issa ráða til að hefta út- breiðsluna, til dæmis með því að banna innflutning á lifandi gripum og lgöti. Lagt hefur verið til að banna notkun kjöt- og beinamjöls og raunar einn- ig notkun fiskimjöls, sem engin hætta stafar þó af. Það var þó fellt í dýra- læknanefnd Evrópusam- bandsins en mun fara fyrir framkvæmdastjórnina. ► UM 5,3 milljónir manna smituðust af alnæmi á síð- asta ári og óttast er, að fjöldi sýktra og sjúkra fari yfir 36 milljónir fyrir árs- lok. Miklum áhyggjum veldur „smitsprengingin" í Austur-Evrópu og allt austur í Mið-Asíu. Er ástandið hvað verst í Rúss- landi þar sem nýsmitaðir voru fleiri á síðasta ári en öll árin á undan. Nýtt sambýli fyrir aldraða tekið í notkun Morgunblaðið/Sverrir Vilhelmsson Meðal þeirra sem voru viðstaddir opnunina voru Davíð Oddsson for- sætisráðherra, séra Sigurður Guðmundsson, Vilhjálmur Þ. Vilhjálms- son borgarfulltrúi og Ingibjörg Pálmadóttir heilbrigðisráðherra. NÝTT sambýli fyrir minnissjúka á vegum hjúkrunarheimilisins Eirar var vígt í gær. Þetta er fyrsta sam- býlið hér á landi sem er hannað sér- staklega fyrir þarfir þessa hóps. Níu íbúar verða á sambýlinu. Hver þeirra hefur sérherbergi en þeir nýta sameiginlega borðstofu, set- ustofu og útigarð. Samkvæmt upp- lýsingum frá heilbrigðisráðuneyt- inu þurfa allir sem koma til með að búa á sambýlinu að hafa gengist undir mat á vistunarþörf og verið taldir í mjög brýnni þörf fyrir úr- lausn. Á vegum Eirar hafa verið byggð- ar 37 íbúðir ætlaðar sjúkum og öldruðum sem vilja búa heima, þótt heilsufar sé orðið bágborið og þeir hafi þörf fyrir mikla heilbrigðis- og/eða félagsþjónustu. Fyrirkomu- lagið byggist á samkomulagi sem gert hefur verið milli Eirar, Heilsu- gæslunnar í Reykjavík og Félags- þjónustunnar í Reykjavík sem felur í sér að þjónusta þessara aðila er samþætt. Samkvæmt samkomulag- inu annast Eir alla þjónustu á þeirra vegum og jafnframt geta íbúarnir haft samband við vakthaf- andi hjúkrunarfræðing hjá Eir all- an sólarhringinn. Um er að ræða eignaríbúðir en þeim fylgir þinglýst kvöð um að endursala þeirra sé í höndum Eirar. Af 37 íbúðum eru aðeins 5 íbúðir óseldar. I ræðu sem Ingibjörg Pálmadóttir heilbrigðisráðherra flutti á vígslu- hátíðinni sagðist hún binda miklar vonir við samkomulagið um rekstur öryggisíbúðanna og þá tilraun sem þar væri gerð til að mæta á nýjan hátt þörfum aldraðra og sjúkra. Umhverfísstefna Akureyrar kynnt í Washington Blómstrandi sveitar- félag á norðurslóðum Washington. Morgnnblaðið. FRAMLAG Akureyrar til „Græna Óskarsins“, eins og umhverfissam- keppnin Nations in Bloom er oft köll- uð, var kynnt föstudaginn 1. desem- ber á Washington Plaza-hótelinu í höfuðborg Bandaríkjanna. Fyrir nefnd sveitarfélagsins fór Sigurður J. Sigurðsson, forseti bæjarstjómar, en auk þess flutti Guðmundur Sig- valdason, verkefnisstjóri Staðardag- skrár 21 fyrir Akureyri, erindi. Akureyrarbær er fyrsta íslenska sveitarfélagið sem er tilnefnt til þátt- töku í úrslitum keppninnar Nations in Bloom, sem að þessu sinni fer fram í Washington DC. Að sam- keppninni standa heimssamtök skrúðgarða og útivistarsvæða, með félaga í yfir 40 löndum, í samvinnu við umhverfisstofnun Sameinuðu þjóðanna. Markmið keppninnar er að hvetja til aukinnar meðvitundar almennings um gildi framúrskarandi starfs sveitarfélaga að umhverfis- málum, í því skyni að bæta lífsgæði allra og hvetja aðra til að ná lengra. Samkvæmt keppnisreglum hafa þátttakendur 35 mínútur til umráða og á þeim tíma má nota allt að 20 skyggnur og myndband, hámark 10 mínútur að lengd. Þessa þætti notaði sveitarfélagið til hins ýtrasta í flutn- ingi sínum fyrir þriggja manna dómnefnd. Lagt var upp með norð- læga legu bæjarins, rétt undir heimskautsbaug, þar sem ræktar- land er viðkvæmt og gróður vex hægt. Að loknu erindi þar sem Guð- mundur Sigvaldason minntist á Að- alskipulag Akureyrar 1998-2020 og fór yfir þá þætti sem um er keppt, þ.e. fegmn umhverfis, verndun minja, umhverfisvænar aðferðir og verkefni, þátttöku almennings og skipulagningu framtíðar, var sýnt myndband sem bærinn lét íramleiða sérstaklega fyrir keppnina. Sérstaka athygli þeirra vakti starfsemi Gúmmívinnslustofunnar og Saga Plasts, sem byggjast að miklu leyti á endurvinnslu, vakti sér- staka athygli dómaranna, en þeir spurðu líka nánar út í niðurdæling- arverkefni Norðm'orku og ýmislegt fleira. Sigurður J. Sigurðsson hafði svör á takteinum og það var greinilegt að japanska dómaranum kom á óvart svar hans við spumingu varðandi skógrækt og hvaða tegundir væru helst ræktaðar, að nær öll tré á Is- landi væm gróðursett. Ómar Banine, verkefnastjóri ferðamála Akureyrar og þriðji full- trúinn í sendinefnd bæjarins, sagði í samtali við Morgunblaðið að það væri mikill ávinningur fyrir sveitar- félagið að vera boðin þátttaka, þar sem góður árangur gæti vakið at- hygli á alþjóðlegum vettvangi. Ómar bætti því við að jákvæð umfjöllun á þessum nótum hefði mikið auglýs- ingagildi, sérstaklega í ljósi þess að umhverfisvæn ferðamennska væri sífellt að aukast. Til mikils er að vinna, því að í gögnum um keppnina má sjá að þau sveitarfélög sem hafa tekið þátt síðastliðin tvö ár hafa hvert um sig fengið umfjöllun sem metin er á 77 milljónir króna. Og Óskarinn fær... Sveitarfélögunum sem keppa er skipt í fimm flokka eftir íbúafjölda og er Akureyri í flokki sveitarfélaga með 10.001 til 50.000 íbúa. Hin sveit- arfélögin í þessum flokki eru Bam- staple og Bury St. Edmunds (sigur- vegari árið 1999) í Englandi, Botany Bay í Ástralíu, Fairhope, Elmhurst Park District og Eufaula í Banda- ríkjunum, Hameenlinna í Finnlandi, Paluan á Filippseyjum og Ptuj í Slóveníu (fyrsta sæti árið 1998 fyrir verndun minja). í allt var 35 sveitarfélögum frá 22 löndum boðið að taka þátt í úrslitun- um. Dregið var um röð keppenda og kom það í hlut Akureyrar mæta fyrir dómnefnd fyrsta af þremur keppnis- dögum, hinn 1. desember. Úrslitin verða síðan kynnt við hátíðlega at- höfn mánudagskvöldið 4. desember. Hægt er að fylgjast með úrslitum keppninnarvefsíðunnigreenville-int- emational.com. Fóm ástarinnar -stórbrotinn harmleikur Fjalla-Eyvindur Jóhanns Sigurjónssonar er eitt af höfuðverkum fslenskra leikbókmennta og frægasta leikrit sem hefur verið samið á íslensku. Jón Viðar Jónsson hefur endurskoðað textann, skrifað ítarlega ritgerð um tilurð verksins og naft veg og vanda af þessari útgáfu. Jón Viðar mun fjalla um leikritið í Listaklúbbi Leikhúskjallarans mánudaginn 4. desember kl. 20.30. JPV FORLAG
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.