Morgunblaðið - 03.12.2000, Page 18

Morgunblaðið - 03.12.2000, Page 18
S 8 SUNNUDAGUR 3. DESEMBER 2000 MORGUNBLAÐIÐ LISTIR Kristbergur og Bjami ásamt Lám Magnúsdóttur, eiginkonu Bjarna, Ólafi Egilssyni sendiherra og Ólöfu Björk Björnsddttur, Bárði Guðfínnssyni og Guðmundi Jónssyni sem öll eru búsett í Shanghai. Það var setinn Svarfaðardalur í matsal listamanna í húsakynnum sýn- ingarinnar. Menn af dlíku þjdðerni höfðu um margt að spjalla. Sextíu þús- und gestir á flmm dög’tim ✓ Fimm listamenn úr félaginu Islensk grafík sýndu á dögunum verk sín á alþjóðlegri listastefnu 1 Shanghai í Kína. Orri Páll Ormarsson hlýddi á ferðasögu tveggja þeirra, Bjarna Björgvinssonar og Krist- -p ———————--------- bergs 0. Péturssonar, formanns félagsins. Opnun alþjdðlegu listastefnunnar í Shanghai undirbúin. SÚ VAR tíðin að íslend- ingar áttu sjaldan erindi til Austurlanda fjær en það hefur breyst. Sam- skipti við þjóðir á borð við Kínverja aukast nú ár frá ári, ekki síst á sviði menningar og lista. Nýjasta dæmið er þátttaka fimm ís- lenskra listamanna í alþjóðlegri listastefnu í Shanghai, stærstu borg alþýðulýðveldisins. „Þetta var ótrúleg lífsreynsla og frábært tækifæri til að koma list sinni á framfæri," segja Bjarni Björgvinsson og Kristbergur Ó. Pétursson sem fóru utan. Auk þeirra áttu Helga Armanns, Kristín Pálmadóttir og Margrét Guð- mundsdóttir verk á sýningunni. Alls sýndu 122 aðilar frá ýmsum löndum, mestmegnis gallerí. Verkin hafa nú verið send áfram til borgarinnar Guangzhou á sýn- ingu sem opnar 6. desember næst- komandi. Þetta er í þriðja sinn sem efnt er til listastefnu af þessu tagi í Shang- hai en borgaryfirvöld annast fram- kvæmdina. Ólafur Egilsson sendi- herra íslands í Kína hafði milligöngu um að fá íslensku lista- mennina austur. Félagið Islensk grafík auglýsti eftir þátttakendum innan sinna vébanda og úr varð að fimmmenningarnir stefndu verkum sínum utan. Listamennirnir sýndu á bilinu fjögur til átta verk hver í tveimur sýningarhólfum. Mjög vel tekið Að sögn Bjarna og Kristbergs var þeim vel tekið en sextíu þúsund manns stungu við stafni þá fimm daga sem sýningin stóð yfir. „Framlagi okkar var mjög vel tekið. Þarna voru heimamenn auð- /itað í yfirgnæfandi meirihluta og jónokkrir gáfu sig á tal við okkur, einkum yngra fókið sem talar ensku,“ segir Bjarni. Kristbergur segir sýningar af þessu tagi upplagðar til að koma á samböndum innan listheimsins. „Við fengum auðvitað mýgrút af nafnspjöldum þarna og komum heim með nokkur sem lofa góðu. Það eru aðallega aðilar í Kína og Asíu, til dæmis hittum við konu frá netgalleríi í Taívan sem tók okkur vel og aðra frá virtu listasafni í sama landi. Þarna voru líka um- boðsmenn frá sambærilegri sýn- ingu í Beijing og annarri í borginni Xian.“ Félagarnir hittu einnig ógrynni listamanna á sýningunni. Nefna menn frá Bandaríkjunum, Mexíkó, Ítalíu og Frakklandi. „Þarna voru lika þónokkrir listamenn frá Beij- ing sem heyra til listakommúnu sem inniheldur meira en hundrað manns. Þetta eru aðallega ungir listamenn sem eru að ryðja nýjar brautir í kínverskri list. Athyglis- verður hópur,“ segir Bjarni. Félagarnir eru sannfærðir um að þetta eigi eftir að vinda upp á sig. „Ef þessi sambönd eru ræktuð get- ur þetta tvímælalaust verið vaxtar- broddur að auknu samstarfi, ís- lenskra og kínverskra myndlistarmanna." Þeir segja Kínverja einnig hafa lýst áhuga sínum á því að sækja ís- land heim. „Ég man sérstaklega eftir einni skúlptúrlistakonu, Jenny kallaði hún sig, sem hafði mikinn áhuga á að koma hingað og vinna við íslenska „hausagerð“, eins og hún kallaði það,“ segir Bjarni. Þetta er í annað sinn sem Krist- bergur kemur til Kína en hann fór þangað fyrst árið 1994 á vegum ís- lenskrar grafíkur til að taka þátt í sýningu í Beijing í tilefni af fimmtíu ára lýðveldisafmæli íslands og fjörutíu ára afmæli Kínversk-ís- Bjarni Björgvinsson við verk sín á sýningunni. Kristbergur Ó. Pétursson hengir upp myndir sínar á listastefnunni. lenska menningarfélagsins. Bjarni hefur ekki í annan tíma komið þangað austur. Borg 21. aldarinnar „Mér leist vel á mig í Shanghai. Borgin er í endurnýjun. Það er ver- ið að byggja upp borg 21. aldarinn- ar,“ segir Bjarni og Kristbergur bætir við að skýjakljúfarnir þjóti til himins. Félagarnir segja fólkið afar elskulegt en um sautján milljónir manna búa í Shangai - í það minnsta. „Samfélagið virðist ljúft. Það er ekki að sjá að fólk sé í tilvist- arkreppu og ekki sér maður streit- umerki á nokkrum rnanni," segir Kristbergur og Bjarni bætir við að fólk virðist upp til hópa sátt við lífið og tilveruna. „Kannski er það leikfimin sem þeir iðka á hverjum morgni sem setur þá í svona skemmtilegan fók- us. Menn eru ákaflega afslappaðir," segir hann. Félagarnir segja erfitt að glöggva sig á stöðu menningarinnar þar eystra. Kínverjar séu þó klár- lega að byggja upp á sviði mynd- listar með tilliti til markaðarins og annarra þátta. „Þeir eru að feta sig inn í nýsköpun eins og við vorum að gera um síðustu aldamót," segir Bjarni. Þá segja þeir að skemmti- legur rígur sé á milli listamanna frá Beijing og Shanghai. Hvorir hæli öðrum en láti þess iðulega getið að þeir standi keppinautnum framar. „Þessi rígur setur skemmtilegan svip á kínverska myndlist.“ Menntamálaráðuneytið, menn- ingarmálanefnd Hafnarfjarðar, Orkuveita Reykjavíkur, Sparisjóð- ur Hafnarfjarðar, Reykjanesbær, Hitaveita Suðurnesja, fasteignasal- an Hraunhamar og Theódór Halls- son styrktu listamennina til ferðar- innar.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.