Morgunblaðið - 03.12.2000, Síða 20

Morgunblaðið - 03.12.2000, Síða 20
1 t f I t Krisi|áwss«tt ^ Þar sem ástin greip í taumana Kjuregej Alexandra segir hér frá óvenjulegu lífshlaupi sínu, frá örlagaþrungnum uppvexti sínum í Jakútíu, einu íjarlægasta landi gömlu Sovétríkjanna, þar sem líf á samyrkjubúum, oft við óblíðar aðstæður, og skólaganga íjarri heimahögum var hlutskipti hennar. Eftir það lá leiðin á leiklistarháskóla í Moskvu, þar sem ástin greip í taumana og leiddi hana alla leið hingað til Islands þar sem ævintýri og átök biðu hennar. Framandi menningararfur, hispursleysi og kjarkur hafa auðkennt allt það sem þessi íjölhæfa listakona hefur tekið sér fyrir hendur og saga hennar er saga allra þeirra sem láta hjartað ráða för - og gefast aldrei upp. Súsönnu Svavarsdóttur, höfundi bókarinnar, tekst að láta rödd Kjuregej hljóma í frásögninni á einkar lifandi hátt. Iðwmi ml Jólasveinar í ævintýraferð Sögur Iðunnar Steinsdóttur um jólasveinana kostulegu og ævintýri þeirra víðs vegar um Iand eru fullar af fjöri, hlýju og kímni enda hafa þær notið mikilla vinsælda meðal íslenskra barna. Bókin hefur verið uppseld um langt skeið en kemur nú út í nýrri útgáfu handa nýrri kynslóð barna. Bókin er prýdd fjölda frábærra mynda eftir Búa Kristjánsson. Þessi bók mun ekki síst gleðja þá sem setja skóinn sinn út í glugga og bíða jólanna með óþreyju. Harður heimur - hættulegt líf Grétar og Sigrún hafa verið vinir lengi en í 10. bekk breytist samband þeirra. Samtímis þurfa þau að takast á við ýmsan háska, bæði í umhverfi sínu og tilfinningalífi. Þá fyrst reynir á þau. í Seinna lúkkinu er fjallað á opinskáan og hreinskilinn hátt um vandann að vera unglingur, vandann að vera maður. Þessi kraftmikla bók Valgeirs Magnússonar á erindi við unglinga - og alla þá sem er annt um það ágæta fólk. Ógnvænlegt leyndarmál Hraði, spenna, óþreyja, óþolandi afskiptasemi náskyldra ættingja og vonlausir vinir. Hver kannast ekki við þessi fyrirbæri? Þótt samræmdu prófin nálgist óðum er Geiri með hugann við allt aðra hluti - og á árshátíðinni gerist atburður sem umbyltir öllu lífi hans. Skapið hleypur eitt andartak með hann í gönur og hann hefði aldrei getað órað fyrir afleiðingunum. Áður en hann veit af er hann á leiðinni út á land, í ókunnugt umhverfi, til ættingja sem reynast búa yfir leyndarmáli sem enginn vill draga fram í dagsljósið og þar lendir Geiri í ævintýri sem hann mun aldrei gleyma.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.