Morgunblaðið - 03.12.2000, Qupperneq 27
MORGUNBLAÐIÐ
JOHANN AXELSSON PROFESSOR
EINLÆGUR ÁHUGI
OG METNAÐUR
RÉÐU FERÐINNI
MÉR varð
snemma ljóst
að einlægur
áhugi og metnaður réð
ferðinni hjá Ragnhildi í
þessari rannsókn. Hún
sýndi mikið sjálfstæði í
störfum sínum og hafði
erindi sem erfiði, því
við prófessor Guð-
mundur G. Haraldsson
vorum á einu máli um
að meta ritgerð hennar og vinn-
una að baki henni til 9,5 í ein-
kunn. Það er hæsta einkunn
fyrir vísindarannsókn sem ég
hef gefið á 35 ára starfsferli
mínum við Háskóla íslands."
Þetta segir Jóhann Axelsson,
prófessor í lífeðlisfræði við
Læknadeild HÍ, um séi-verkefni
það sem Ragnhildur Káradóttir
vann til BS-prófs í lífefna- og
lífeðlisfræði. Hann bendir enn-
fremur á að hinn ungi vísinda-
maður hafi lagt mikið á sig við
rannsóknina, til að mynda tíma-
frek ferðalög innan lands og ut-
an og því sé engin tilviljun að
niðurstöður rannsóknarinnar
veki jafnmikla athygli og raun
ber vitni.
„Skammdegisþunglyndi er
ekki aðeins læknisfræðilegt
vandamál, heldur einnig um-
fangsmikið félagslegt vanda-
mál,“ segir Jóhann. „Sjúkdóm-
urinn bitnar ekki aðeins á
hinum sjúku, heldur einnig
þeim sem standa honum nærri
og jafnvel vinnufélögum líka.
Þessi sjúkdómur er mjög dýr
samfélaginu og því er augljóst
að aukinn skilningur á honum
mun spara milljónir með mark-
vissari forvörnum og meðferð."
Niðurstöður Ragnhildar þær
fyrstu sinnar tegundar í heimi
Jóhann segir að á undan-
förnum árum hafi ýmsar tilgát-
ur verið settar fram um orsakir
skammdegisþunglyndis og of-
framleiðsla melatóníns sé aðeins
ein þeirra. Sem dæmi megi
nefna að talið hefur verið að
fasahliðrun komi þar nærri, þ.e.
að líkamsklukkan fari af ein-
hverjum völdum úr skorðum á
vissum árstímum hjá þeim sem
eiga við skammdegisþunglyndi
að stríða.
„Kenningin um tengsl sjúk-
dómsins og framleiðslu líkam-
ans á melatóníni stóð fremur
illa að vígi, þar sem ýmsar
rannsóknir stönguðust á í meg-
inatriðum. Niðurstöður
úr rannsókn Ragnhildur
eru því þær fyrstu i
heiminum sem eru alveg
ótvíræðar í þessum efn-
um. Niðurstöður hennar
sýna ótvírætt að fram-
leiðsla melatóníns meðal
þeirra sem eru þungir í
skammdeginu og líður
þá illa er 2,4 sinnum
meiri allan sólarhring-
inn heldur en hjá hinum sem er
sama hvort er vetur eða sumar.
Þetta er því mjög sterk stuðn-
ingsyfirlýsing við melatónín-
tilgátuna og skammdegis-
þunglyndið - líklega sú sterk-
asta hingað til. Jafnframt er
athyglisvert að niðurstöður
hennar styðja ekki tilgátur um
röskun í líkamsklukku sem or-
sakavald í þessum efnum.“
Að sögn Jóhanns vakti fyrir-
lestur Ragnhildar um þessi efni
á aldamótaþingi um læknisfræði
og heilsufarsrannsóknir á norð-
urslóð í Lofoten í Noregi gífur-
lega athygli. Aukinheldur bíða
tvær greinar hans og Ragnhild-
ar um þessi mál birtingar í er-
lendum fagtímaritum.
„Þetta vekur mikla athygli,
enda er svo mikill fjöldi fólks
með einhver einkenni skamm-
degisþunglyndis. Það hafa því
margir áhuga á að leita að rót
vandans."
Jóhann upplýsir að reynsla
Ragnhildar af sk. RIA-mælingu
í Finnlandi á magni melatóníns
í munnvatni hafi ekki síst orðið
til þess að nú séu vonir bundnar
við að framkvæma megi slíkar
rannsóknir hér á landi á lífeðlis-
fræðistofnun Háskólans í fyrsta
sinn á næstu vikum.
„Það myndi koma sér mjög
vel, því ætlunin er að nýta upp-
götvun Ragnhildar og fram-
kvæma samskonar rannsókn
með mun stærra úrtaki á Suð-
urlandi og Vestfjörðum nú á
milli jóla og nýárs. Lykilatriði í
þeim rannsóknum er að íslensk-
ur almenningur taki okkur vel
og samþykki að taka þátt í
rannsókninni. Ekki aðeins þeir
sem stríða við þunglyndi í
skammdeginu heldur einnig
þeir sem gera það alls ekki. Að-
eins þannig sjáum við muninn á
sjúkum annars vegar og heil-
brigðum hins vegar og getum í
framhaldi af því reynt að kom-
ast að rót vandans,“ segir Jó-
hann Axelsson.
Jóhann
Axelsson
SKARTGRIPA VERSL UN
FYRST OG FREMST
ÍffiÍRtíÍípl
Hvítagull með
demöntum
Gullsmiöja Helgu
Sendum myndalista Laugavegi 45 •■ Sími 561 6660
www.gullkunst.is
SUNNUDAGUR 3. DESEMBER 2000 27
STJORNU
NJÓTTU AÐVEN'
MEÐAL VIÐBURÐA:
SUNNUDAGUR 3. DES. KL. 14.00 f HASKÓLABÍÓI
Hin merka heimildarmynd Óskars Gíslasonar frá 1947 hefur nú
verið endurgerð og verður synd I fullri lengd. Brugðið er upp
svipmyndum af mannlffi og atvinnulífi Reykvíkinga á hinum miklu
uppgangstfmum eftir lok sfðari heimsstygaldarinnar. Aðeins þessi
eina syning.
SUNNUDAGUR 3. DES. KL. 15.00 í IÐNÓ
Perlur og skínandi gull er leik- og danssyning Perlunnar, Leikfélags
þroskaheftra, sem fagnar f ár 17 ára afmæli sínu. Dagskráin saman-
stendur af 6 atriðum í leiksyórn Sigrfðar Eyþórsdóttur og f danssyórn
Láru Stefánsdóttur.
SUNNUDAGUR 3. DES. KL. 14.30 í BORGARBÓKASAFNI,
GRÓFARHÚSI
Bækur eftir unga höfunda verða kynntar með upplestri og Magga
Stfna og Kristfn Björk Kristjánsdóttir leika og syngja fyrir gesti og
gangandi.
MÁNUDAGUR 4. DES. KL. 15.00 - 17.00
í LISTAHÁSKÓLANUM
Uppskeruhátíð verkefnis Fræðslumiðstöðvar Reykjavfkur.
Á menningarborgarári hafa margir litlir listamenn (grunnskólum
borgarinnar fengið að njóta sfn við fjölbreytta skapandi list undir
leiðsögn fullorðinna listamanna. Árangurinn af starfinu verður
synilegur (skólum borgarinnar um ókomna framtfð.
MÁNUDAGUR 4. DES. KL. 20.30 í BORGARLEIKHÚSINU
Megas, ásamt hjjómsveit flytur úrval af bestu lögum sfnum auk
laga af nyútkominni hljómplötu. Hljómsveitin er skipuð þeim Jóni
Ólafssyni, Guðmundi Péturssyni, Haraldi Þorsteinssyni, Birgi
Baldurssyni, Stefáni Má Magnússyni og gestum. Forsala aðgöngu-
miða í Borgarleikhúsinu.
MIÐVIKUDAGUR 6. DES. KL. 20.30 f IÐNÓ
Ferfætta borgin: sprellópera eftir Guðberg Bergsson og Dr. Gunna.
Leiksy'óri: Rúnar Guðbrandsson. Leikarar: Harpa Arnardóttir og
Árni Pétur Guðjónsson. Einnig TALsfmgjörningurinn Telefónían,
upplestur Benedikts Erlingssonar og skffusteikingar Röggu Gísla.
Forsala f 12 tónum.
ÍTARLEG DAGSKRÁ Á
www.reykjavik2000.is
REMMINGAtlORG
tVRÓÍU ARIR 2000
mAttarstólpar menningarborgar
sióváS^almennar (£) BCNAÐARBANKINN
Landsviricjun
rnre
EIMSKIP