Morgunblaðið - 03.12.2000, Qupperneq 31

Morgunblaðið - 03.12.2000, Qupperneq 31
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 3. DESEMBER 2000 31 þykja hagkvæmir fyrir stóreldhús. Fjallalamb nýtur þess í framleiðslu sviða að starfa á riðulausu svæði, að sögn Garðars. „Við svíðum við kósangaseldlampa. Það er ekki eins fljótlegt og að nota súrefni og gas, eins og víðast er gert. En með eld- lampanum hitnar skinnið og þannig næst gamla sviðabragðið sem menn leita eftir. Við höfum keypt mikið af hausum úr Strandasýslu, sem einnig er riðulaust svæði, og verk- um þá hér. Líklega eru sviðin út- breiddasta framleiðsluvara okkar og seld á flestum útsölustöðum. Eg þurfti að skammta þau til verslana í mörg ár, þar til við fórum að kaupa hausa úr Strandasýslunni." Fjarlægðin ekki vandamál Kópasker er fjarri stærsta mark- aðssvæði landsins, höfuðborgar- svæðinu. Garðar segir að fjarlægð- in kosti vissulega sitt, en nútíma tækni hafi auðveldað alla markaðs- setningu. Það sé ekkert vandamál að koma vörunum á markað, þótt flutningurinn kosti sitt. Sláturleyf- ishafar eru með flutningsjöfnunar- sjóð sem kemur Fjallalambi hf. til góða. „Vegirnir eru orðnir svo góð- ir og flutningsþjónustan sömuleiðis að við afgreiðum vörur frá okkur síðdegis og þær eru komnar í verslanir í Reykjavík morguninn eftir.“ Stærsti söluaðili Fjallalambs hf. á höfuðborgarsvæðinu er Fjarðar- kaup í Hafnarfirði. „Við erum bún- ir að sjá þeim fyrir lambakjöti í ein sjö ár og höfum átt mjög gott sam- starf við þá,“ segir Garðar. „Mér finnst við eiga samleið með Fjarð- arkaupum. Þeir eru svolítið eins og við, einskonar eyland á sínum markaði. Þetta er eini stórmarkað- urinn á höfuðborgarsvæðinu sem ekki hefur sameinast öðrum. Þeir eru bara með eina verslun og hún er í eigu þeirra sem annast rekst- urinn, en ekki einhverra fjárfesta. Við höfum ekki heldur tekið þátt í sameiningarslagnum á sláturhúsa- og kjötiðnaðarsviði." Garðar segir að það sé styrkur lítilla fyrirtækja á borð við Fjalla- lamb hf. að geta veitt góða þjón- ustu og brugðist snöggt við, til dæmis þegar mistök verða við pöntun eða afgreiðslu á vöru. Einn- ig er oft óskað eftir sérþjónustu sem yfirleitt er reynt að verða við. Viðunandi afkoma Afkoma Fjallalambs hf. hefur verið viðunandi miðað við fyrirtæki í kjötiðnaði, að sögn Garðars. „Framlegð í kjötiðnaði er mjög lág. En með því að hugsa alltaf um fyr- irtækið eins og barnið sitt er hægt að halda þessu í þokkalegum rekstri. Hluthafar hafa að jafnaði fengið greiddan arð af hlutafé ann- að hvert ár. Flest árin höfum við skilað einhverjum hagnaði. Hlut- hafarnir standa mjög vel að baki fyrirtækinu. Sem dæmi um það má nefna að um 90% af þeim arði sem greiddur er út koma til baka sem nýtt hlutafé." Fjallalamb mun ekki setja neinar nýjungar á markað fyrir þessi jól. í ár hefur verið lögð áhersla á að vinna upp forréttina. Sú fram- leiðsla verður aldrei í miklu magni, að sögn Garðars, heldur frekar til að byggja upp gæðaímynd og þjóna kröfuhörðum viðskiptavinum sér- verslana og veitingahúsa. Lítil nýliðun Garðar segist ekki merkja neinn samdrátt í sauðfjárbúskap í Norð- ur-Þingeyjarsýslu. „Mér finnst samt svolítið áhyggjuefni að það er lítið um að ungt fólk taki við bú- skap. Það er orðið of langt síðan ungt fólk bættist í hóp bænda hér. Það hætti enginn bóndi í haust, þrátt fyrir tilboð í nýjum sauðfjár- samningi um uppkaup á fram- leiðslurétti. Innlegg hefur aukist lítillega hjá okkur á hverju ári und- anfarin ár. Það held ég að helgist svolítið af viðhorfi sem kristallast vel í orðum gamals bónda hér frammi í sveit. Hann er orðinn nær áttræður og ég spurði hann hvort hann ætlaði ekki að nota sér gylli- boðin í sauðfjársamningnum og fá peninga fyrir að hætta. Þá sagði hann að hann færi ekki að hætta því eina sem hann hefði verulega gaman af fyrir einhverjar krónur sem hann ætti nóg af.“ FERSKT • FRAMfiNDI • FRUMLEGT Thai Choice Toppurinn frá Bóker besta gjöfin Bókatíðindi 2000 komin út Félag íslenskra bókaútgefenda SÓLHATTUR FRÁ "E^ýEchjnaceaT l Oflug vörn Ríta TÍSKU VERSLUN Opið í dag, frá kl. 13-16 í Bæjarlind 6 Canon APS Canon IXUS ZSO Nýjasta Ixus myndavélin með aðdráttarlinsu. Hlaut hin eftirsóttu EISA verðlaun 2000-2001 í flokki APS myndavéla. Fjölmargir möguleikar í myndatöku. Verð: 21.900.- APS Canon IXUS L1 Ein sú minnsta og léttasta sem völ er á. Nett og þunn bygging vélarinnar gerir hana nentuga í vasa. Þú tekur þessa með þér hvert sem er, hvenær sem er. Jólatilboð: 16.900.- með tösku. APS v >------ Canon IXUS M1 Léttasta APS vélin (aðeins 115g). Álíka stór og hefðbundið greiðslukort. Einföld og meðfærileg. Jólatilboð: 12.900.- með tösku. APS Canon Prima Zoom 76 Falleg og stílhrein myndavél á frábæru verði. Fer vef í hendi og er einföld (notkun. Aðdráttarlinsa fyrir nærmyndir sem og landslags- myndir. Jólatilboð: 10.990.- (12.390.- með dagsetningu). LJÓSMYNDANÁMSKEIÐ FYLGIR HVERRI MYNDAVÉL www./ianspefersen.is Reykjavík: Verslanir Hans Petersen, Myndval I Mjódd, Beco ehf. Kópavogur: Hans Petersen. Carðabær: Framköllun Garðabæjar ehf. Hafnarfjörður: Filmur & Framköllun. Keflavík: Verslunin Hljómval. Vestmannaeyjar: Bókabúðin - Penninn. Selfoss: Hans Petersen. Akureyrí: Pedromyndir. Sauðárkrókur: Bókabúð Brynjars. ísafjörður: Penninn - Bókaverslun Jónasar Tómassonar ehf. Akranes: Penninn - Bókabúð Andésar Nielssonar. EISA Hvaða myndavél klæðir þig Útsölustaðir:
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.