Morgunblaðið - 03.12.2000, Side 36

Morgunblaðið - 03.12.2000, Side 36
36 SUNNUDAGUR 3. DESEMBER 2000 MORGUNBLAÐIÐ SKOÐUN HINDRA SAMNINGAR KENNARA FRAMÞRÓUN STARFSMENNTUNAR? í UMRÆÐUM þeim um laun kennara á Islandi, sem fram hafa farið að undanförnu í tengslum við launadeilu framhalds- skólakennara og fjár- málaráðuneytisins, hefur lítið borið á til- lögum um hvernig gera megi kennarastarfið eftirsóknarvert til frambúðar fyrir hæfa einstaklinga. Kennara- samtökin virðast ekki til viðræðu um breyt- ingar, sem aukið geti samkeppni, sveigjan- leika og framleiðni í skólastarfinu, heldur sýnast þau fremur vilja lappa upp á flókið og ósveigjanlegt kerfi, sem er kennarastarf- inu og menntun í landinu áreiðan- lega ekki til framdráttar. Hagsmunir atvinnulífsins eru að menntun í landinu byggi á traustum grunni og að hæft fólk fáist til kennslu í skólum. Atvinnulífið á líka mikið undir því að starfsmenntun sé öflug og að gott samstarf takist með skóla og atvinnulífi um uppbyggingu hennar. Með nýjum framhaldsskóla- lögum var aðkoma atvinnulífsins að starfsmenntun auðvelduð og hefur samstarf skóla, fyrirtækja og fagfé- laga víða tekist með ágætum. En því miður eru líka allnokkur dæmi þess að það hafi ekki gengið sem skyldi og þar er fomeskjulegt launakerfi kennara ein skýringin. Jafnframt eru dæmi um að einstök fyrirtæki, sem hafa viljað leggja peninga til nýjunga í skólastarfi, hafi átt í erfið- leikum með að koma þeim í lóg af því að þeir pössuðu ekki í vasa skólanna, sem eru með afar sérstöku sniði vegna launakerfis kennara. Starfsmenntun á flótta frá framhaldsskólakerfinu Til skamms tíma var gerð tilraun með að hýsa bæði gmnn- og eftir- menntun í bílgreinum undir sama þaki í Borgarholtsskóla og ná þannig fram ákveðinni hagræðingu og sam- legðaráhrifum. Lagði bíliðnaðurinn skólanum til tæki og önnur verð- mæti fyrir um 70 milljónir króna af því tilefni. Pessi tilraun fór út um þúfur og bíliðnaðurinn hyggst flytja verulegan hluta eftirmenntunar í einkaskóla í öðru húsnæði. Ein meg- inástæðan fyrir þeirri ákvörðun er að „kjarasamningar kennara leyfa ekki skilvirka vinnu að markmiðum bflgreinamanna“, eins og það er orð- að í matsskýrslu sem unnin var fyrir menntamálaráðuneytið um tilraun- ina. „Margir telja að kjarasamning- ar kennara séu helsti þröskuldurinn í samstarfi atvinnulífs og skóla. Til- raun af því tagi sem hér var stefnt að er óframkvæmanleg ef ráðning kennara er skv. kjarasamningum framhaldsskólakennara.“ Fram kemur að lögverndun starfsheitis kennara sé eitt af því, sem standi í vegi þess að hæfir fagmenn fáist til starfa við kennslu í bílgreinum. í skýrslunni kemur fram að „stjómendur“ í hinu opinbera skóla- kerfi hafi ekki vald til að fela kenn- urum verkefni nema semja um auka- greiðslur fyrir hvert viðvik. Bent er á að í atvinnulífinu hátti þannig til um margþætt störf, þar sem erfitt sé að skilgreina fyrirfram „hvert hand- tak“ sem gera þurfi, hvenær það skuli gert, með hvaða hætti og hversu löngum tíma skuli verja til þess, að starfsmenn fái laun og gerð- ar séu kröfur um árangur. Starfs- maðurinn búi ekki við mikla yfir- stjórnun dags daglega en beri ábyrgð á árangri sínum gagnvart stjómendum, sem sett hafi mælan- leg markmið, skilgreint tilætlaðan árangur og geti þannig haft eftirlit með því hvernig til tekst. Yfírleitt séu til leiðir til að umbuna starfsmönnum ef ár- angur sé sérlega góð- ur. Svo segir í skýrsl- unni: „Kennarar fá greidd laun fyrir ákveðna vinnu sem er skilgreind í kjarasamn- ingi og allt umfram það telst yfirvinna. I kjara- samningnum er ekkert fjallað um mælanleg markmið né mælanleg- an árangur. Enginn stjórnandi hefur ákvörðunarvald um það hvemig vinnutímanum er varið. Ljóst má vera að kennarar þurfa að sinna margþættu starfi og hafa með það nokkuð frjálsar hendur ef ár- angur á að nást og að erfitt er að setja þeim fastan tímaramma eða gera nákvæmar verklýsingar um allt sem gera þarf. Það er umhugsunar- efni að kjarasamningar þeirra hafa leiðst út á braut sem er gjörólík því Kjarasamningar kenn- ara eru hemill á sam- starf skóla og atvinnu- lífs um starfsmenntun, skrifar Ari Edwald. Kennurum ætti að vera kappsmál að auka sam- keppni í menntakerfinu. sem almennt virðist ganga upp í at- vinnulífinu við launagreiðslur til þeirra sem sinna margþættum ábyrgðarstörfum án þess að búa við mikla yfirstjómun né virkt eftirlit." Málmiðnaðurinn stendur nú í við- ræðum við menntamálaráðuneytið um að taka að sér rekstur kjarna- skóla málmiðnaðarins, sem yrði sjálfseignarstofnun utan hefðbund- ins skólakerfis. Málmiðnaðurinn tel- ur sig hafa lært af óförum bílgrein- arinnar. Þar á bæ telja menn ljóst að kennarasamningarnir teljist í besta falli lágmarkssamningar þegar gengið verði í að ráða starfsfólk að Kjamaskóla málmiðna; nauðsynlegt sé að greiða eftir hæfni og árangri til þess að ná í rétta fólkið til að sjá nemendum fyrir menntun, sem at- vinnulífið þarf mjög á að halda. Rafiðnaðurinn hefur rekið eigið menntakerfi, samtals fjóra skóla. I nýlegri blaðagrein sagði Guðmundur Gunnarsson, formaður Rafiðnaðar- sambandsins: „Þar starfa fjölmargir hæfir kennarar, ef þeir væm það ekki hefðum við ekki nemendur og fyrirtækin myndu hætta að styðja námskerfíð okkar og senda starfs- menn sína í framhaldsnám. En við greiðum umtalsvert hærri laun en forystumenn kennara segja að tíðk- ist í skólum landsmanna, við gerum kröfur um reglulegan vinnutíma og skólamir okkar hefja störf í annarri viku ágústmánaðar og hætta störf- um um miðjan júní. Kennaramir vilja starfa hjá okkur og nemend- urnir koma reglulega aftur og aft- ur.“ Þeir slöku verndaðir fyrir samkeppni Ósveigjanlegt launakerfi kennara er ekki séríslenskt fyrirbæri. Fyrir nokkmm vikum birtist í vikuritinu Economist frásögn af rannsókn tveggja bandarískra hagfræðinga, Dale Ballou við Massachusetts-há- skóla og Michael Podgursky við Missouri-háskóla, á launakerfi bandarískra kennara. Niðurstaða þeirra er að það sé fremur hvernig kennuram er greitt fyrir vinnu sína heldur en hversu mikið, sem ákvarð- ar gæði kennara og árangur 1 skóla- starfi. Vísindamennirnir benda á að sam- tök kennara í Bandaríkjunum hafi alla tíð staðið gegn árangursteng- ingu launa; í staðinn fari laun kenn- ara eftir niðurnjörvuðu kerfi þar sem einblínt sé á þætti eins og lengd náms og starfsaldur. Ballou og Podgursky segja að launakerfi, sem geri öllum jafnhátt undir höfði óháð getu og árangri, verði til þess að bestu námsmennirn- ir sæki síður í kennaranám og að bestu nemendurnir, sem á annað borð verða kennarar, séu líklegastir til að færa sig í önnur störf, þar sem launin séu tengd framleiðni í starfi. Þannig hafi flatar launahækkanir ekki haft þau áhrif að bæta gæði kennara og þar með menntunar í Bandaríkjunum. Loks vekja hagfræðingarnir at- hygli á því að krafan um kennara- réttindi, sem fáist aðeins með því að ljúka námi í uppeldis- og kennslu- fræðum, verði til þess að margt hæft fólk, t.d. kandídatar úr bestu háskól- unum eða sérfræðingar með víðtæka starfsreynslu, hiki við að leggja kennslu fyrir sig þótt þeir séu ekki ólíklegri til að ná árangri en þeir sem réttindin hafa. Niðurstaðan í grein Economist er að ekkert í rannsókn Ballou og Podgursky sanni að uppeldis- og kennslufræðinám sé gagnslaust eða að laun kennara séu nógu há - þvert á móti séu þau í mörgum tilvikum alltof lág. Góðir kennarar gætu hins vegar fengið hærri laun í kerfi, sem viðurkenndi árangur og hæfileika en í núverandi kerfi séu slakir starfs- menn vemdaðir fyrir samkeppni. Fjölgun vinnuveitenda í skólakerfinu Kennarastéttinni ætti að vera það kappsmál að auka samkeppnina í menntakerfinu; um laun, um kenn- ara og um nemendur. Ekki síst á framhaldsskólastiginu eiga nemend- ur að geta valið sér skóla og skólam- ir fengið fjármuni í samræmi við það hversu margir nemendur sækja til þeirra og eftir tegund námsins, sem í boði er. Vísir að slíku kerfi er raunar nú þegar fyrir hendi. Skólarnir þurfa sömuleiðis fjárhagslegt sjálf- stæði og ábyrgð á eigin rekstri til að geta umbunað starfsmönnum, sem skara framúr. Kennarar þurfa ekki síður en aðrir að eiga von í fjárhags- legum ávinningi fyrir sérstakan ár- angur eða sérstakt framlag. Síðast en ekki síst þarf að miða að því að fjölga vinnuveitendum í skóla- kerfinu í stað þess að allir kennarar séu í vinnu hjá einum og sama launa- greiðandanum og eigi þess engan kost að hækka laun sín með því að færa sig á milli vinnustaða. Þetta getur gerst með því að fjölga rekstr- arformum í skólakerfinu, m.a. með samningum milli skóla og ríkisvalds, en þarf ekki að breyta neinu um það grunneðli skólakerfisins að allir eigi þar jafnan rétt. Kennarasamtökin mættu gjarnan gefa hugmyndum af þessu tagi gaum, vilji þau á ný gera kennara- starfið eftirsótt og hlúa að menntun í Iandinu. Höfundur er framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulffsins. Ari Edwald Er mennt- un punt? Annars vegarsegir maður já, og verður þannig við kröfu þeirra sem vilja fá já. Hins vegargerir maður nei, og verður þannig við kröfum þeirra sem vilja fá nei. Þetta mun vera mikið notað trikk í helstu suðupottum alþjóðlegra átaka. Ihvert skipti sem fram- haldsskólakennarar fara í verkfall - og þau skiptin era að verða ófá - fá ráðamenn og aðrir ís- lendingar tækifæri til að sýna í verki að þeim þyki menntun ein- hvers um verð. En þessum tæki- færum er alltaf klúðrað. Senni- lega finnst ráðamönnum (og öðrum Islendingum) eitthvað annað skipta í raun meira máli. Samt era þessir ráðamenn - og sennilega allir íslendingar, ef þeir væru spurðir svona sérstaklega - alltaf til í að tala um gildi mennt- unar. „Framtíðarauður íslensks samfélags.“ VIÐHORF Eftir Kristján G. Arngrímsson „Hin raun- veralegu verðmæti.“ „Mannauður.“ Svona hefur heyrst úr homi ráða- manna oftar en límminnugustu menn geta talið. Merkileg mótsögn. (Reyndar rekst ekki minni til þess að for- sætisráðherra hafi nokkurn tíma talað að ráði um gildi menntunar og mannauð og allt það - kannski er hann þá eftir alltsaman sam- kvæmari sjálfum sér en margir aðrir.) En svona mótsagnir era vel þekkt fyrirbæri í stjómmálum. Maður segir eitt og gerir annað. Þar með tekst manni að verða við tvennskonar kröfum, og það sem meira er, kröfum sem stangast al- gerlega á. Annars vegar segir maður já, og verður þannig við kröfu þeirra sem vilja fá já. Hins vegar gerir maður nei (það er að segja, gerir ekkert), og verður þannig við kröfum þeirra sem vilja fá nei. Þetta mun vera mikið notað trikk fyrir botni Miðjarðar- hafs og í öðram suðupottum al- þjóðlegra átaka. Það eru sennilega tvær ástæð- ur fyrir því að þetta virkar. í fyrsta lagi hefur það líklega eitthvað með mannlegt eðli að gera. Þeir sem hafa átt lítil böm vita að þeim er athygli jafnmikil lífsnauðsyn og matur. Það skiptir jafnmiklu máli fyrir framtíðar- heill þeirra að maður hlusti á þau og að maður gefi þeim að borða. Athygli felur í sér viðurkenningu. Þegar maður veitir einhverjum athygli veitir maður honum viður- kenningu á tilvist hans. Þetta er eins í pólitík. Þegar ný ríki verða til (eins og til dæmis þegar Eystrasaltsríkin urðu sjálf- stæð á ný) þurfa þau fyrst og fremst á viðurkenningu að halda. Viðurkenning er meira að segja mikilvægari en efnahagsaðstoð, fyrst í stað. Þetta er til marks um mikilvægi þess að manni sé veitt athygli, og hversu miklu það get- ur svalað að maður fái hana. (Með því að rjúka til og verða fyrstir til að viðurkenna sjálfstæði Eystra- saltsríkjanna tókst íslenskum stjórnmálamönnum að gera eitt- hvað sem í rauninni skipti máli, án þess að það kostaði krónu.) Þetta vita stjómmálamenn auð- vitað. Og ráðamenn koma úr þeirra röðum. Þess vegna grípa ráðamenn auðvitað til þessarar þrautreyndu aðferðar úr al- þjóðastjórnmálum. Að segja já og gera nei. En gallinn er bara sá, að þótt athygli skipti raunverulega máli, og að hana sé raunverulega hægt að veita með orðum, þá dug- ar hún ekki ein og sér. Þótt barni sé athygli á vissan hátt lífsnauðsyn verður hún harla þunn í maga til lengdar. Og þótt nýfrjálsum ríkjum sé viðurkenn- ing bráðnauðsynleg þarf efna- hagsaðstoð að fylgja í kjölfarið eigi ekki allt að hverfa aftur í sama ófrelsisfarið. Islenskir fram- haldsskólakennarar era sennilega búnir að fá alla þá athygli og orða- viðurkenningu sem þeir hafa þörf fyrir. Hin ástæðan fyrir því að það virkar að segja já og gera nei er líklega sú, að orð eru ekki lengur eitthvað til að standa við. Þau era punt. Eitthvað sem maður lætur út úr sér og lætur hanga á sér á meðan maður kemur fram opin- berlega, svona eins og heiðurs- merki. Merki um að maður sé heiðursmaður. Þau era það sem sést og heyrist í sjónvarpinu, og stjórnmálamenn (og þar með ráðamenn) líta svo á, að það skipti mestu að sjást og heyrast - jafn- vel þótt maður meini ekkert með því. Og af því að ráðamenn láta nægja að segja, á hátíðlegum stundum, að menntun skipti máli, en gera ekkert hvunndags til að sýna að þeim finnist hún skipta máli, verður ekki annað ályktað en að ráðamenn líti svo á, að mik- ilvægi menntunar sé fólgið í því, að hún sé punt til að skreyta há- tíðisdaga á borð við sautjánda júní. En kannski eru það ekki bara ráðamenn sem líta á menntun sem punt. Kannski er það djúp- stæður þáttur í íslensku lífsvið- horfi að menntun sé á endanum eitthvað sem komi auðvitað á eftir lífsbjörginni sjálfri. Það er þetta með bókvitið og askana. I þessu lífsviðhorfi, sem kenna má við bókvit og aska, er fólginn einn mjög mikilvægur, en kannski ekki svo augljós þáttur, og hann er sá, að það sé á endanum algerlega sitt hvað, bókvit og lífsbjörg. Reyndar er sennilega farið að örla á því í íslenskum hugsunar- hætti (að því leyti sem hægt er að tala um svoleiðis nokkuð) að mað- ur geti grætt á bókviti. Það er að segja, látið það í askana, eftir allt- saman. Kári Í.E. Stefánsson á jú auð sinn líklega að miklu leyti því að þakka að hann gekk í skóla meiripartinn af ævinni og hefur þá sennilega lesið mikið af bókum. Samt er maður nú skeptískur. Islenskir málshættir era engin lömb að leika sér við. Veralega seigt í þessu bókvits og aska- lífsviðhorfi. Og sennilega er það ekki bókvit Kára - það er að segja þau yísindi sem hann stundar - sem Islendingar telja mikilvægt, heldur þessir kúffullu askar sem maður sér hann sitja að. Óhugs- andi að þetta sé allt sprottið af bókviti. Því eins og máltækið seg- ir, það verður ekki í askana látið. Það verður í mesta lagi hengt upp á vegg til punts.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.