Morgunblaðið - 03.12.2000, Side 46

Morgunblaðið - 03.12.2000, Side 46
46 SUNNUDAGUR 3. DESEMBER 2000 MORGUNBLAÐIÐ Grettir Ljóska Ferdinand Smáfólk ! M AWAKE! 1 CAN MEAR, YOO,MA'AM,0UT I CAN'T 5EE YOUÍEV6WTHIM6 (S U)MiTE! I'M SNOW-SUNPÍ EG ER VAKANDI. EG HEYRI f ÞÉR KENNARI, EN ÉG SÉ EKKINEITT. ALLT ER HVÍTT, ÉG ER BLIND. Þú ert Fyrirgefðu kennari, skrítinn, það eru bara smá- herra. vægileg vandræði hérna. BREF TIL BLAÐSINS Kringlunni 1 103 Reykjavík • Sími 569 1100 • Símbréf 569 1329 Alþjóðadagur fatlaðra Hugsað um afdrif öryrkja Frá Gísla Helgasyni: UM NOKKURT skeið hefur al- þjóðadagur fatlaðra verið haldinn hinn 3. desember ár hvert. Þá hefur verið vakin athygli á margs konar baráttumálum þessa hóps. Stundum gengur vel í baráttunni og flest leikur í lyndi, en annað slagið geng- ur allt á afturfótunum, m.a. af því að ráðamenn þessa lands virðast kappkosta að skara eld að sinni köku og þeirra, sem þeim hugnast, en fatlaðir og aðrir þeir, sem geta ekki borið almennilega hönd fyrir höfuð sér ganga oft slyppir, snauð- ir, niðurbeygðir, aðþrengdir og bón- leiðir til búðar. A 9. áratugnum vannst nokkuð á í réttindabaráttu fatlaðra. Valda- menn landsins virtust gera sér grein fyrir því að þeir, sem teljast fatlaðir, væru jafn gjaldgengir þjóð- félagsþegnar þessa lands og aðrir. Almenningur íslenskur studdi mjög vel málstað öryrkja og gerir enn. Svona var líka viðhorfið í mörgum löndum Evrópu. Það var ekki að ástæðulausu, sem Arne Husveg, fyrrum aðalritari norsku blindra- samtakanna, varaði við því í lok níunda áratugarins, vegna þeirrar miklu bjartsýni, sem ríkti um mál- efni fatlaðra víða um hinn vestræna heim, að á komandi árum þyrftu samtök þeirra að beita sér af alefli fyrir þvi, að viðhalda þeim réttind- um, sem áunnist höfðu. Því miður reyndist Ame sannspár. Nefna má, að árið 1993 var mjög þokukennt í málefnum fatlaðra og öryrkja. Þá stóð fyrri ríkisstjórn Davíðs Oddssonar fyrir því að ör- orkulífeyrir var tekjutengdur og skertist lífeyrinn, ef öryrkinn aflaði sér smátekna. Auk þess hrærði þá- verandi heilbrigðisráðherra, alþýðu- flokksmaðurinn Sighvatur Björgv- insson, í lyfjamálum til óhagræðis fyrir þá sem heilsu sinnar vegna þurfa að nota lyf að staðaldri. Það þarf ekki að rekja alla þá harma- sögu hvemig heilbrigðisráðherrar, sem komu á eftir, hafa reynt að við- halda þessu kerfi, en smám saman dregið úr því. Sú, sem hvað harðast hefur gengið fram í kjaraskerðingu öryrkja, situr nú í stóli heilbrigðis- ráðherra og hrósar sér af því að vera þar allra kerlinga elst. Hún virðist hafa litla getu til að rétta hlut þeirra, sem hún hefur gengið hvað hai’ðast gegn, og liggur undir þungu fargi þumbaraháttar for- manns Framsóknarflokksins. En vonandi sér hún að sér með hækk- andi sólu og þá mun orðstír hennar vaxa að vonum. Það er kunnara en frá þurfi að segja, að örorkulífeyrir hér á landi er miklu lakari en í hin- um norrænu löndunum. Nú hrósar minn gamli skólabróðir Geir H. Haarde sér af því að hafa safnað í afgang um 80 milljörðum fram til ársins 2002. Væri hluta af þessum tekjuafgangi illa varið, ef hann væri t.d. nýttur til þess að rétta hlut þeirra, sem standa hvað höllustum fæti og þurfa ár hvert að leita til Hjálparstarfs kirkjunnar og Rauða krossins til þess að geta lifað af jól- in? Væri óviðkunnanlegt að nýta hluta þessa mikla fjármagns til þess að standa við lögbundnar fjár- veitingar til Framkvæmdasjóðs fatlaðra, svo að hann megi gegna sínu hlutverid í stað þess að ganga stöðugt á hann með ólögmætri skerðingu? Væri kannski ráð, að allir þeir sjúkdómar og örkuml, sem hrjá marga þegna þessa lands mundu leggjast af ofurþunga á ráðamenn, þannig að sá mínus myndi bætast við þann mínus, sem viðhorf þeirra til fatlaðra og öryrkja skapar, og þannig beytast í einn stóran plús? Þessi plús gæti orðið til þess að breyta viðhorfi alþingismanna til þess hóps, sem á kröfu til þess að verða jafn gjaldgengur og hverjir aðrir þegnar þessa lands, og þessi plús gæti orðið til þess að einhverj- ir, sem kvíða komandi jólum og leggjast undir feld og drekka sig hálfpartinn í hel af áfengi eða háma í sig lyf, til þess að gleyma jólunum, rísi upp úr áfengisbrunninum og þunglyndisvítinu og líti bjartari augum til framtíðar. GÍSLI HELGASON, ritari stjórnar Öryrkjabandalags íslands. Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga- safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu þaðan, hvort sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi. Mörkinni 3, sími 588 0640 j mán.-fös. frá kl. 12-18. Lau. frákl. 11-16 Nettoi,, ELDHÚS - BAÐ - FATASKÁPAR x Babinnréttingar fíi á Vantar þig nýtt og betra ba& fyrir jólin? Nú er lag, því viö bjóðum allt ab Á Friform I HÁTÚNI6A (í húsn. Fönix) SlMI: 552 4420

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.