Morgunblaðið - 03.12.2000, Blaðsíða 48

Morgunblaðið - 03.12.2000, Blaðsíða 48
48 SUNNUDAGUR 3. DESEMBER 2000 m DAGBOK MORGUNBLAÐIÐ í dag er sunnudagur 3. desember, 337. dagur ársins 2000. Jólafasta/ aðventa. Orð dagsins: Sækist eins * og nýfædd böm eftir hinni andlegu, ósviknu mjólk, til þess að þér af henni getið dafnað til hjálpræðis. (lPt.2,2.) Skipin Reykjavíkurhöfn: Lag- arfoss kemur í dag, Sjöfn EA fer í dag. Mánafoss kemur á morgun. Lagarfoss fer á morgun. Fréttir Bókatíðindi 2000. Núm- er sunnudagsins 3. des. er 49025, og mánudags- ins 4. des. er 24202. Mannamót Aflagrandi 40. Félags- vist á morgun kl. 14. Bankaþjónusta Búnað- arbankans verður þriðjud. 5. des. kl. 10.15. Árskógar 4. Á morgun kl. 9 pennasaumur og harðangur, kl. 10.15 leik- fimi, kl. 11 boccia, kl. 13.30 félagsvist, kl. 13 opin smíðastofan, kl. 16 ; myndlist. Bólstaðarhh'ð 43. Á morgun kl. 9-16 handa- vinna, kl. 9-12 búta- saumur, kl. 10 sam- verustund, kl. 13 bútasaumur. i Fólag eldri borgara í Kópavogi. Félagsvist í ! Gullsmára 13 á mánud. kl. 20.30. í Félagsstarf aldraðra Lönguhlíð 3. Á morgun ( kl. 8 myndlist, kl. 10 verslunin opin, kl. 11.20 leikfimi, kl. 13 handa- j vinna og föndur, ki. 13.30 enska, framhald. i Félagsstarf aldraðra Dalbraut 18-20. Á morg- un kl. 9.45 leikfimi, kl. 13 spilað (brids). Félag eldri borgara í , Hafnarfirði, Hraunseli, ; Reykjavíkurvegi 50. ! Púttæfing í Bæj ar- útgerðinni á morgun kl. ( 10-12. Tréútskurðurí : -*• Flensborg kl. 13. Félags- | vist í Hraunseli kl. 13.30. Félag eldri borgara í Reykjavík, Ásgarði Glæsibæ. Félagsvist kl. 13.30 í dag. Dansleikur i kl. 20 í kvöld. Mánudag- * ur: Brids kl. 13. Dans- kennsla fellur niður. Jólaferð á Suðurnesin laugard. 16. des. Upplýst ; Bergið í Keflavík skoð- 1 að. Ekið um Keflavík, Sandgerði og Garð. Súkkulaði og meðlæti á , Ránni í Keflavík. Brott- ; för frá Ásgarði í Glæsi- bæ kl. 15. Æskilegt að _ fólk skrái sig sem fyrst. Félagsstarf aldraðra Garðabæ. Upplestur í bókasafninu á mánudag- inn kl. 17. Spilað í Kirkjuhvoli þriðjudag kl. 13.30, spilað í Holtsbúð fimmtudag kl. 13.30. Gerðuberg, félagsstarf. í Á morgun kl. 9-16.30 i vinnustofur opnar, m.a. fjölbreytt handavinna, kl. 9.25 sund og leikfimi- æfingar í Breiðholtslaug, ■Hfepilasalur opinn frá há- degi, kl. 14 kóræfing, kl. 15.30, danskennsla fellur niður. Myndlistarsýning Hrefnu Sigurðardóttur stendur yfir. Miðvikud. 6. des. verður farið i heimsókn til eldri borg- ara á Selfossi, fjölbreytt dagskrá í félagsheimil- inu Inghóh. Gullsmári, Gullsmára 13. Á vegum bridsdeild- ar FEBK spila eldri borgarar brids mánu- daga og fimmtudaga. Skráning kl. 12.45. Spil hefjast stundvíslega kl. 13. Leikfimi á mánudög- um kl. 9 og 10, vefnaður kl. 9. Gjábakki, Fannborg 8. Á morgun er handa- vinnustofan opin, leið- beinandi á staðnum frá kl. 9-17, kl. 9.30 kera- mik, kl. 13.30 og 15 enska, kl. 13.30 lomber og skák. Hraunbær 105. Ámorg- un kl. 9 postulínsmálun, perlusaumur og korta- gerð, kl. 10.30 bæna- stund, kl. 14 sögustund ogspjall. Hvassaleiti 56-58. Á morgun kl. 9 keramik, tau- og silkimálun og klippimyndir, kl. 10 boccia, kl. 13 spilað. Hæðargarður 31. Á morgun kl. 9-16.30 opin vinnustofa, handavinna og föndur, kl. 14 félags- vist. Norðurbrún 1. Á morg- un er bókasafnið opið frá kl. 12-15, kl. 10 ganga. Vesturgata 7. Á morgun kl. 9.15 handavinna, kl. 10 boccia, kl. 13 kór- æfing. Vitatorg. Á morgun kl. 9 smiðjan kl. 9.30 bók- band, bútasaumur og morgunstund, kl. 13 handmennt, kl. 13 leik- fimi, kl. 13 spilað. Háteigskirkja. Á morg- un er opið hús fyrir 60 ára og eldri, stund með Þórdísi kl. 10-12. Gengið inn Viðeyjarmegin. Kirkjustarf aldraðra Digraneskirkju. Opið hús á þriðjudögum frá kl. 11 leikfimi, helgi- stund og fleira. Kristniboðsfélag karla. Fundur verður í Kristni- boðssalnum Háaleitis- braut 58-60 mánud. 4. des. kl. 20.30. Skúli Svavarsson sér um fund- arefnið. Allir karlmenn velkomnir. Kvenfélagið Fjallkon- urnar heldur jólafund- inn þriðjud. 5. des. kl. 20 í Safnaðarheimili Fella- og Hólakirkju. Jólamat- ur, jólastemmning og jólasveinninn kemur. Munið eftir jólapökkun- um. Árnesingafélagið í Reykjavík. Aðalfundur- inn verður i Seljakirkju mánud. 4. des. kl. 20.30. Venjuleg aðal- fundarstörf. Kaffiveit- ingar í boði félagsins. Allir velkomnir. Félag háskólakvenna. Jólafundurinn veður í dag kl. 15.30 á Hótel Holti. Fyrirlesari verður dr. Anna M. Magnús- dóttir sem talar um túlk- un og tjáningu í barokk- tónlist. Fundurinn er öllum opinn. Veitingar: súkkulaði og frönsk eplakaka. Kvenfélagið Hrönn. Jólafundurinn verður haldin mánud. 4. des. kl. 19 í Húnabúð, Skeifunni 11. Hátíðarstemmning ogjólamatur. Tilkynna þarf þátttöku til stjórn- ar. Kvenfélag Kópavogs. Jólabasarinn verður í dag kl. 14 í Hamraborg 10. Tekið verður á móti munum og kökum fyrir hádegi. Uppl. í síma 554- 0388. Fríkirkjan i Hafnar- firði. Jólafundur verður í Skútunni í kvöld kl. 20. Takið með ykkur gesti. Geðdeild Landspítalans, iðjuþjálfun, geðdeildar- húsinu við Hringbraut heldur hina árlegu jóla- sölu sína miðv. 6. des. frá kl. 12-15.30. Þar verða seldir margir fallegir handgerðir munir, til- valdir til jólagjafa. Einnig til sölu kaffi og meðlæti. Kvenfélag Óháða safn- aðarins. Jólafundurinn verður haldinn í Kirkju- bæ fostud. 8. des. kl. 20. Tilkynnið þátttöku fyrir 5. des. Ester, s. 557-7409 eða Ólöf, s. 588-7778. MS-félag íslands. Jóla- fagnaður verður haldinn á Grand hóteh kl. 15 f dag, sunnudag. Ættfræðifélagið. Rabb- fundur um ættfræði verður haldinn í Bóka- safni Reykjanesbæjar við Hafnargötu í Kefla- vík mánud. 4. des. kl. 20. Fundurinn er fyrir fé- laga í ættfræðifélaginu sem búa á Suðumesjum og aðra áhugamenn um ættfræði á svæðinu. Kvenfélag Lágafells- sóknar. Jólafundurinn verður haldinn í Hlé- garði mánud. 4. des kl. 19.30. Munið eftir að taka með ykkur pakka og tilkynna þátttöku í s. 566-7835. Kvenfélag Garðabæjar. Jólafundur félagsins verður haldinn á Garða- holti þriðjudaginn 5. des. kl. 20.30. Safnaðarfélag Ás- prestakalls verður með kökubasar í dag í safnað- arheimili Áskirkju kl. 15. Jólafundurinn verður í safnaðarheimili kirkjunnar fóstud. 8. des og hefst með borðhaldi kl. 19. Fannar Vilhjálms- son leikur á píanó. Há- tíðarmatur. Vinsamlega tilk. þátttöku fyrir 5. des. til kirkjuvarðar s. 588-8870, Erlu s. 553- 4784. Guðrúnar s. 581- 2044 eða Þórönnu s. 568- 1418. Kvenfélag Laugar- nessóknar. Jólafundur- inn verður á morgun, mánud. 4. des. Munið jólapakkana og máls- hætti. MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 669 1100. Auglýsingar: 569 1111. Áskriftir: 569 1122. SlMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 669 1181, íþróttir 669 1166, sérblöð 569 1222, auglýsingar 669 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 669 1116. NETFANG: ITST.J@ MiiL.IS, / Áskriftargjald 1.900 kr. á mánuði innanlands. í lausasölu 160 kr. eintakið. VELVAKAJVDI Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15 frá mánudegi til föstudags Góð ábending SÍÐASTLIÐIÐ sumar gisti ég nokkrar nætur í skálum Ferðafélags ís- lands. Eg hafði búist við að leirtau og hnífapör væru í skálunum og hafði slíkt ekki meðferðis. Hins vegar var raunin sú víða, að lítið var til og gestir skiptust á að nota þau fáu áhöld sem til voru. Þá rifj- aðist upp fyrir mér að ég hef oft heyrt fólk, sem er að gera upp dánarbú, tala um að það viti ekkert hvað eigi að gera við leir- tau og hnífapör. Ég hafði samband við fram- kvæmdastjóra Ferðafé- lags íslands og hún sagði mér að félagið vantaði gjarnan drykkjarkönnur, grunna diska og hnífapör. Hins vegar ætti félagið mikið af djúpum diskum og litlum fylgidiskum, sem nýttust lítið. Þess vegna datt mér í hug að benda þeim sem eru að vandræðast með þessa hluti og vita ekki hvað þeir eiga að gera við gömlu hversdagshlutina hennar ömmu að gefa þá til ferðafélaganna, sem reka skála í óbyggðum. Þar væru þeir vel þegnir. María Játvarðardóttir. Frábær þjónusta MIG langar að leyfa öðr- um að njóta með mér góðrar reynslu af hár- greiðsluvinnubrögðum Elínar og (áreiðanlega annarra sem þar vinna) á Hárgreiðslustofunni Hár og smink í Hlíðarsmára í Kópavogi. Ég er með fínt hár og hef litað það, en nú langaði mig að fá mér permanent en var eitt- hvað efins, en settist af- slöppuð í stólinn hjá El- ínu og allt gekk vel. En nú kemur undrun mín, því þegar ég kom heim á þriðjudaginn var síma- númer á símanum mínum sem ég kannaðist ekki við, svo ég hringdi og þá svaraði Hár og smink. Viti menn, Elín var að hringja til að athuga hvort ekki væri allt í lagi með permanentið. Svona þjónustu og tillitssemi ber að láta vita af. H.S. Fyrirspum vegna nagladekkja MIG langar að koma með smáfyrirspum til gatna- málayfirvalda, hvort ekki ætti að banna eða skatt- leggja nagladekk, því fólk virðist vera staðnað í notkun nagladekkja. Þótt það hafi verið dálítil um- ræða á þessu ári um aðra valkosti en nagladekk eru samt um 70% á nagla- dekkjum. Þessir valkostir eru jaíngóðir eða betri. Það er að segja Blizzak- dekk, sem eru betri en naglamir og minnka þá mengun um 93%. Þegar bíll með nagladekkjum keyrir á götu 1 km spænir hann upp 27 g af tjöra- ryki. Éf þú keyrir til dæmis á Blizzak-dekkjum sömu vegalengd, þá minnkarðu mengun um 93%. Þetta er samkvæmt nýjum prófunum frá sænsku gatnamálayfir- völdunum. Opinberir sjóðir myndu þurfa að borga fjórtán sinnum minna í viðhald gatnanna, ef fólk hætti að nota nagladekk og notaði hjól- barða, sem era betri sam- kvæmt könnunum. Borgari. Lélegt viðhald á vegum EINAR Vilhjálmsson hafði samband við Vel- vakanda og vildi koma á framfæri tilmælum til Vegagerðarinnar og biðja hana að laga hvarf á veg- inum, þar sem keyrt er af Vífilsstaðaveginum inn á Hafnarfjarðarveginn. Einnig er bilun á tveimur stöðum hjá Arnarnes- hæðinni á leið til Reykja- víkur. Þetta er búið að vera svona síðan í sumar. Hefur einhver séð Lobo? 19. NÓVEMBER sl. hvolfdi bifreið á Nesja- vallavegi, austan við Hafravatn. Við óhappið slapp út hundur af tegundinni beagle sem gegnir nafninu Lobo. Hundurinn er svartur, hvítur og ljósbrúnn og er með fjólubláa hálsól. Hans hefur orðið vart í nágrenninu og er fólk vinsamlegast beðið að hafa augun hjá sér og láta vita strax og það sér hann. Lobo er feldlítill og þolir ekki að vera á ver- gangi svona lengi. Þeir sem gætu gefið einhverj- ar upplýsingar vinsa- mlegast hringi í Ágúst í síma 863-6271. Krossgáta LÁRÉTT: 1 feit, 8 heimild, 9 reiðan, 10 greinir, 11 hússtæðið, 13 gabba, 15 háðsglósur, 18 ísbreiða, 21 kvendýr, 22 lengdareining, 23 dá- in, 24 sannleikurinn. LÓÐRÉTT: 2 írafár, 3 afreksverkið, 4 ástundunarsamur, 5 blóðsugur, 6 gröf, 7 venda, 12 fag, 14 keyra, 15 heiður, 16 spilla, 17 bjór, 18 alda, 19 ól, 20 hirðuleysingi. LAUSN SfeUSTU KROSSGÁTU: Lárétt: 1 kænir, 4 töfra, 7 rokum, 8 læðan, 9 mót, 11 arða, 13 knár, 14 græða, 15 hata, 17 lund, 20 átt, 22 fipar, 23 ótrúr, 24 ránið, 25 taðan. Lóðrétt: 1 kárna, 2 nakið, 3 römm, 4 tölt, 5 fæðin, 6 ann- ar, 10 óhætt, 12 aga, 13 kal, 15 húfur, 16 túpan, 18 um- ráð, 19 dýrin, 20 árið, 21 tómt. Víkverji skrifar... HÚN breyttist í martröð kvöld- skemmtunin sem átti að verða á heimili Víkverja sl. miðvikudags- kvöld þegar sjónvarpsstöðin Sýn sýndi í beinni útsendingu viðureign „Islendingaliðsins" Stoke City og stórveldisins Liverpool í ensku deildabikarkeppninni í knattspymu. Fyrirfram átti Víkverji von á spenn- andi og skemmtilegri viðureign enda þótt mikill munur sé á umfangi lið- anna nú um stundir, enda hefur hann tröllatrú á hæfileikum Guðjóns Þórðarsonar sem knattspymuþjálf- ara. Hann hefur oft áður leitt s.k. „minni spámenn“ til glæsilegra af- reka gegn stærri liðum á knatt- spymuvellinum og hvers vegna hefði slíkt ekki átt að geta gerst nú? Skemmst er frá því að segja að þau átta mörk sem leikmenn liðsins frá Bítlaborginni skoraðu gegn „okkar mönnum“ reyndust einum of stór biti að kyngja og niðurstaðan versta tap Stoke City frá árinu 1889 og um leið stærsti sigur Liverpool á útivelli nokkru sinni. Einhverjum efasemdarröddum kann að hafa verið skemmt yfir þeirri útreið sem Stoke City fékk í þessum leik, en Víkverji var svo sannarlega ekki einn þeirra. Hann hefur fylgst með liðinu allt frá yfir- töku íslensku fjárfestanna fyrir réttu ári og vonar enn heitt og inni- lega að draumurinn rætist og liðið vinni sér sæti í 1. deildinni á næstu leiktíð. Segjast verður eins og er, að ekki hefur gengið sem skyldi á yfirstand- andi leiktíð, og skömmu fyrir stór- skellinn gegn Liverpool mátti Stoke City sætta sig við auðmýkjandi ósig- ur gegn utandeildarliðinu Nuneaton í bikarkeppninni. Það sýnir vel hversu knattspyrnan er óútreiknan- leg, að á sama tíma og hægt er að skýra tapið gegn Liverpool með því að einn leikmaður þess sé dýrari en allt Stoke-liðið gildir einnig að einn leikmaður Stoke er dýrari en allt Nuneaton-liðið. Víkverji vonar enn statt og stöð- ugt að betur fari að ganga í Stafford- skíri hjá ensk-íslenska knattspymu- liðinu og telur rétt að vitna í þeim efnum í Guðjón nokkurn Þórðarson, sem gjaman segir: „Nú ríður á að menn sýni úr hverju þeir era gerð- ir!“ XXX LÍKLEGA væri að bera í bakka- fullan lækinn að fjalla um flutn- inga Ríkissjónvarpsins upp í út- varpshúsið við Efstaleiti, eins brösuglega og tæknimönnum þess virðist ganga að aðlagast nýjum tækjum og tólum. Hitt finnst Vík- verja öllu verra, að svo virðist sem Textavarp RÚV hafi farið enn verr út úr flutningunum. Nú er t.d. oft þrautin þyngri að hlaða síðum þess niður og getur tekið nokkurn tíma, en fyrir flutningana var slíkt ekkert tiltökumál og á betri sjónvarpstækj- um mátti jafnvel hlaða nokkrum síð- um niður í einu og fletta svo á milli. Víkverji hefur sannreynt á nokkram tegundum sjónvarpstækja á mis- munandi stöðum að eitthvað hefur gerst hjá textavarpinu sem orsakar þessa breytingu til hins verra. Hvað skyldi það vera?
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.