Morgunblaðið - 03.12.2000, Síða 49
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 3. DESEMBER 2000 49
DAGBÓK
BRIDS
limsjön Guðmundnr
Páll Arnarson
UNDANFARNA daga
hefur stefið í þessum
þáttum verið „hinn eitr-
aði sagnhafi“, sem neytir
allra bragða til að gera
vörninni erfitt fyrir.
Ljúkum þessari umfjöll-
un með eftirfarandi
dæmi:
Norður gefur; AV á
hættu.
Norður
+ G932
v PG10
♦ AK
* G654
Suður
A ÁK8764
v 632
♦ 107
+ Á2
Vestur Norður Austur Suður
- 1 lauf Pass 1 spaði
Pass 2 spaðar Pass 4 spaðar
Pass Pass Pass
Útspil vesturs er lauf-
kóngur. Hvernig viltu
spila?
Ekki er þetta erfitt
spil; vörnin fær alltaf tvo
slagi á hjarta og einn á
lauf. AV eiga aðeins þrjá
spaða sín á milli og þeir
koma 2-1 í 78% tilfella.
Sennilega er prósentu-
tala þeirra spilara sem
drepa á laufás og leggja
niður spaðaásinn í öðrum
slag svipuð - eitthvað í
kringum 80%. Hinir eitr-
uðu eru í minnihluta, en
þeir fara inn í borð á tíg-
ul og spila spaðagosanum
þaðan:
Norður
+ G932
¥ PG10
♦ AK
* G654
Vestur Austur
* ~ * D106
¥ 9854 ¥ ÁK7
♦ G9843 ♦ D652
+ KD107 + 983
Suður
A ÁK8754
¥ 632
♦ 107
A Á2
Ef austur er reyndur
spilari og vel vakandi set-
ur hann sexuna og sagn-
hafi tekur með ásnum.
Það var alltaf ætlun hans,
en millileikurinn með
gosann var bara hugsað-
ur til að gefa austri tæki-
færi til að misstíga sig
með DlOx. Það er nánast
ósjálfrátt viðbragð hjá
mörgum spilurum að
leggja háspil á háspil í
öllum stöðum, sér í lagi ef
enginn tími er til um-
hugsunar.
Arnað heilla
Q pT ÁRA afmæli. Á
tJ ÍJ morgun, mánudag-
inn 4. desember, verður 95
ára frú Ragnheiður Jóns-
ddttir frá Þrúðvangi, Vest-
mannaeyjum. I tilefni dags-
ins tekur hún á móti gestum
laugardaginn 9. desember í
Akogeshúsinu, Vestmanna-
eyjum milli kl. 15-18.
rn ÁRA afmæli. Nk.
tíU mánudag 4. desem-
ber verður fimmtugur Har-
aldur Jónsson. Hann og eig-
inkona hans, Sólveig Jdna
Jóhannesdóttir, taka á móti
gestum að Móum, 301 Akra-
nesi, eftir kl. 16 á afmælis-
daginn.
Sk\k
llinsjón llelgi Áss
Grélarssoii
STAÐAN kom upp á milli
Jóns Garðar Viðarssonar
(2.370) og Benedikts Jónas-
sonar (2.270) í fyrri hluta
íslandsmóts skákfélaga. 28.
Dxd7?! Rétt hugmynd en
röng tímasetning. Betra var
28. b3! Dc6 29. Dxd7! Hxd7
30. Hxd7 og sama staða
kæmi upp og í skákinni. 28.
...Hxd7 29. Hxd7
He7! 30. Hd8+
He8? Eftir 30.
...Kf7 stendur
svartur síst lakar
þar sem 31. Hld6
er t.d. vel svarað
með 31. ...Hc7. í
framhaldinu
verður svarta
staðan hartnær
vonlaus. 31. b3!
Dc6 32. H8d7 f4
33. Hg7+ Kh8
34. Hdd7 De4 35.
Hge7! Hc8 36.
Bg7+ Kg8 37.
Bxf6 Del+ 38.
Kh2 Dxf2 39. Hg7+ Kf8 40.
Hdf7+ Ke8 41. Hxb7 Kf8 42.
Be7+ ! og svartur gafst upp.
Fram að stöðumyndinni
tefidist skákin svona: 1. e4
c52. Rf3 Rc6 3. Bb5Ra5!?4.
0-0 a6 5. Be2 RfB 6. e5 Rd5 7.
d4 cxd4 8. Dxd4 e6 9. c4 Rc6
10. De4 Rde7 11. Rc3 Rg6
12. Hel Be7 13. Bd3 d6 14.
exd6 Dxd6 15. h4 f5 16. De3
0-0 17. h5 Rge5 18. Rxe5
Rxe5 19. Dxe5 Dxd3 20. Rd5
Bf6 21. Rxf6+ gxf6 22. Dc5
Bd7 23. Bh6 Hf7 24. Hadl
Dc2 25. Hd2 Da4 26. Hedl
He827. Dc7e5.
LJOÐABROT
VÍSUBROT
Ung gengr oss að angri;
etum, það er oss betra!
drekkum, svo sorg slökkvi!
síður minnist eg fríðrar.
Heldr var mér hinn dagr vildri,
hlaðgrund, er við fundumst;
skorð mun skilja_
Jón prestur Pálsson
ORÐABÓKIN
Til margra ára
ÞETTA orðalag er mjög í
tízku um þessar mundir
og hefur heyrzt og einnig
sézt á prenti, ekki veit ég
þó hversu lengi. Einhver
hefur fundið upp á þessu
og aðrir svo tekið það upp
og þótt eitthvað frumlegt
við það. Sagt er sem svo:
Maðurinn hefur gegnt
embættinu til margra ára.
Heldur finnst mér þetta
tilgerðarlegt og sízt til
bóta frá því að tala ein-
ungis um, að maðurinn
hafi gegnt embættinu í
mörg ár, eins og margir
segja líka. Þar sem mér
finnst þetta tízkuorðalag
fara í vöxt, vil ég vekja at-
hygli á, að engin þörf er
fyrir það í íslenzku máli. í
Mbl. 24. okt. sl. mátti lesa
þetta í frétt um Breiða-
merkurjökul, þar sem
sagt var um mann, sem
þar kom við sögu, að hann
hafi verið ,jarðfræðingur
á vatnamælingasviði
Orkustofnunar til fjölda
ára“. Raunar segir svo á
öðrum stað, að hann hafi
„í mörg ár haldið til haga
gögnum um hop jökla“. I
annarri frétt í sama tölu-
blaði stóð þetta, þar sem
rætt var um Helmut Kohl,
fyrrverandi kanzlara og
flokksformann, „til 25
ára“, eins og þar segir.
Hvers vegna ekki „í 25
ár“? Ég fæ ekki séð, að
neitt sé unnið við að
breyta hér um stíl enda
ekkert skýrara að tala
um, að einhver hafi unnið
við verk til margra ára í
stað þess að segja, að
hann hafi unnið við verkið
í mörg ár eða jafnvel um
margra ára skeið. - J.A J.
STJÖRNUSPÁ
eftir Frances Drake
BOGMAÐUR
Afmælisbam dagsins:
Þú ert hæfíleikaríkur og
átt auðvelt með að koma
hugmyndum þínum á
framfæri en vantar oft
svolítið upp á kraftinn til að
hrínda þeim íframkvæmd.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Það er ekki gott fyrir heim-
ilislífið að taka vinnuna með
sér heim. Reyndu að skipu-
leggja þig betur og gefðu
tómstundirnar ekki upp á
bátinnA
Tvíburar
(21. maí - 20. júní) "A n
Þú ert atorkusamur og ert á
góðri leið bæði í starfi og
einkalífi. Óvæntir atburðir
gerast en þér tekst að láta
þá ekki koma þér í opna
skjölduA
Krabbi ^
(21. júní - 22. júlí)
Fjölskyldumálin þurfa að
ganga fyrir öðru í dag þvi að
mörgu er að hyggja. Ef þú
þarft að undirrita pappíra
skaltu fá til að yfirfara þá
áður. \
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Þú þarft að láta vinnuna
ganga fyrir öllu öðru sem
þér takist að Ijúka við þau
verkefni sem fyrir liggja.
Notaðu svo kvöldið fyrir
sjálfan þig.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Vertu ekki of ákafur í að
koma máli þínu á framfæri
því það gæti farið illa í menn
ef þú beitir þrýstingi. Vertu
því þolinmóður, það kemur
að þér.
(23. sept. - 22. okt.) VK
Aðrir vilja gefa þér góð ráð
en þú skalt þó fara eftir eig-
in sannfæringu ef viðskipti
eru annars vegar. Þá geng-
urðu sáttur frá borði.
Sporðdreki ™
(23. okt. - 21. nóv.) HC
Allir samningar þurfa að
byggjast á málamiðlunum
og þú þarft að sýna gætni
þegar skilmálar eru settir.
Vertu óragur en ákveðinn.
Bogmaður m ^
(22. nóv. - 21. des.) dk)
Nú er rétti tíminn til að
hringja í gamla vini eða
skrifa þeim bréf. Notaðu
innsæi þitt til að vega og
meta vandamál sem upp
kemur.
Steingeit
(22. des. -19. janúar)
Þér hættir til að vera of ráð-
ríkur og þú þarft að gæta
þess að gera ekki meiri
kröfur til annarra en þú
gerir til sjálfs þín. Vertu
sanngjarn.
Vatnsberi __
(20. jan. -18. febr.) CaH
Þú græðir lítið á því að láta
alla hluti fara í taugarnar á
þér. Reyndu ekki að stjórna
öllum í kringum þig og
snúðu þér að eigin málum.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Nú skiptir öllu máli að þú
takir tillit til annarra og
leyfir sjónarmiðum þeirra
að ráða. Þú getur haft þínar
skoðanir þrátt fyrir það.
Stjörnuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
grunni vfsindalegra staðreynda.
Höfum opnað hárverslun
og hársnyrtiþjónustu
Fagleg ráðgjöf
HÁRKOLLUR, TÖGL, LOKKAR
OG HÁRSNYRTIVÖRUR
Tímapantanir í síma 511 2100
HÁRSHEILSA
Skólavöröustíg 10
Dóróthea Magnúsdóttir, gsm: 898 3158 Hugrún Stefánsdóttir, gsm: 861 2100
AÐALFUNDUR
Samtaka eldri sjálfstæðismanna
Aðalfundur Samtaka eldri sjálfstæðismanna verður haldinn
í Valhöll, Háaleitísbraut 1, þriðjudaginn 5. desember.
Hefst fundurinn kl. 17.00.
Dagskrá:
Venjuleg aðalfundarstörf.
Ræða: Geir H. Haarde,
íjármálaráðherra, varaformaður
Sjálfstæðisflokksins.
Umræður - fyrirspurnir.
Stjómin.
Glæsilegt
úrval af
yfirhöfnum
BAR£)NIA
...IW
tiskuverslun
v/Nesveg, Seltjarnarnesi, sími 561 1680
Opið daglega frá kl. 10 — 18, laugardaga frá kl. 10 — 14