Morgunblaðið - 03.12.2000, Síða 54

Morgunblaðið - 03.12.2000, Síða 54
54 SUNNUDAGUR 3. DESEMBER 2000 MORGUNBLAÐIÐ FÓLK í FRÉTTUM PAU mæta mér brosmild og hlýleg í dyrunum á fallegu húsi við Lauf- ásveginn, Berrössuð á tánum, þau hjónin Aðalsteinn Asberg og Anna Pálína. „Þetta er önnur bamaplatan okk- ar en við höfum gefið út sjö plötur með alls konar tónlist: djassplötur, sálmaplötur og svo bamaplötur,“ segir Anna Pálína, á meðan ég gæði mér á dýrindis kaffi og piparkökum við borðstofuborðið. Fyrir þessi jól gefa þau út barna- plötuna Bullutröll, í framhaldi af hinum vinsæla diski Berrössuð á tánum sem kom út fyrir tveimur ár- um. Síðan þá hefur nafnið fest við þau sem hljómsveitarnafn þegar þau spila fyrir börn. Efni beggja bamaplatnanna sker sig frá öðram að því leyti að efnið fellur ekki síður í kramið hjá börnum en fullorðnum. „Okkur hefur tekist að búa til efni sem foreldramir verða ekki brjálað- ir á þegar bömin biðja: ,Aftur, aft- ur!“,“ segir Anna Pálína, og Aðal- steinn bætir við: „Það má segja um svona bamaefni að það verður að þola meiri síspilun á heimili heldur en annað efni. Maður verður að hafa það í huga að ef það fellur í kramið hjá krökkum þá verður það að gera það líka hjá foreldrum.“ Anna Pál- ína kinkar kolli: „Já, því annars * Hjónin Anna Pálína og Aðalsteinn Asberg sendu nýlega frá sér barnaplötuna Bullu- tröll. Ásgeir Ingvarsson leit inn í morgun- kaffí og tók þau tali. verður það til þess að krakkarnir era sendir inn í herbergi með sínar græjur, í stað þess að vera með for- eldram sínum - sem flestir krakkar vilja helst gera: þau vilja horfa á og hlusta með fullorðnum - bamið vill ekki vera eitt.“ Ég er heillaður upp úr skónum og langar mest að taka viðtal í allan dag við þetta indælisfólk. Ég spyr Aðalstein nánar út í lögin: „Yfirleitt sem ég textana fyrst og síðan er tónlistin samin til að styðja textann. Þetta er sem sagt textatónlist." En af hverju að semja bamatónlist? „Við höfum fundið hjá fólki að þetta efni hefur verið kærkomið, vegna þess að það var svo tilfinnanlegur skortur á efni fyrir böm,“ segir Að- alsteinn. Við ræðum um hversu lítið er um nýsköpun í tónlist tileinkaðri börnum og hvað mest virðist vera um endurútgáfur á sígildum bama- lögum. „Það vantar líka efni sem er á „plani“ bama, eitthvað sem er ekki uppeldislegt, kemur ekki að of- an og er ekki að leggja þeim lífs- reglumar, heldur kemur til þeirra og upplifir - með þeim - hvað heim- urinn er skrítinn og skringilegur," segir Anna. Upphaflega byrjuðu þau á söng og sagna dagskrá sem þau fluttu á leikskólum. Eftir að hafa spilað dagskrána í þrjú ár ákváðu þau að gefa út Berrössuð á tánum sem nú hefur selst í um fimm þúsund eintökum. Með geisladiskinum fylgir lítil og fallega myndskreytt bók með text- um laganna. „Við vorum að velta fyrir okkur hvort við ættum að búa til bók sem með fylgdi geisladiskur eða öfugt“ viðfangsefni geisladisks- ins er nefnilega íslenskar þjóðsögur og þjóðvísur og efni í ágætis bama- bók. Bullutröllin tvö ákváðu að leysa þetta með því að hafa geisladiskshulstrið með bókarformi og hafa textaheftið í vasa á hulstr- inu. „Við hefðum samt þurft að láta Útgáfutónleikar Tómasar R. Einarssonar í kvöld / Eitthvert ákveðið dill í svinginua í kvöld geta djassarar gert sér dagamun því Tómas R. Einarsson heldur útgáfu- tónleika sína á djassklúbbnum Múlanum. Birgir Örn Steinarsson hitti hann undir fjögur og fylgdi honum inn í töfraheim næturinnar. Viðkunnanleg tröll í liinum umtalaða skilningi sem virðist ríkja á milli Tómasar og vetr- amæturinnar virðist hann aldrei vera alveg einn, hann hefur a.m.k. alltaf félagsskap bláu tónanna. „Á bak við öll rólegu lögin er ákveðin tilfínning. Tilfinningin á bak við lagið „Undir snjónum" er mjög hrein íslensk. Tónlist af þessu tagi er oft kölluð „norrænn djass“. Þetta er norrænt þunglyndi, eitt- hvert skammdegisþunglyndi. Ég tengi þessa tilfinningu sem er á bak við lagið mikið við fslenska skáld- sögu eftir Jakobínu Sigurðardóttur og kom út fyrir 20 árum. Hún heitir „I sama klefa“. Þar er m.a. talað um þessu beinu og óbeinu þyngsli sem snjórinn hefur á sálarlíf fólks. Hún gerist þessi saga í miklum snjó- þyngslum og höfðaði ákaflega sterkt til mín.“ Tónleikar kvöldsins Á plötunni leika með Tómasi þeir Eyþór Gunnarsson pianóleikari, Matthías M.D. Hemstock trommari, Jóel Pálsson saxófónleikari og Dan- inn Jens Winther sér um trompet töfra. Það er auðheyrt að Tómas treystir þessum mönnum fyrir böm- unum sfnum. „Það er þannig í djasstónlist að menn mega segja það sem þeir vilja en þó f rauninni setur laglfnan ásamt hljómunum ákveðinn ramma og anda. Ég hef aldrei þurft að biðja þessa menn um eitthvað annað fremur. Þeir þekkja mig og mína tónlist og vita hvemig ég hugsa. Þeir taka við andanum sem frá mér kemur og þróa hann og stækka." Platan var tekin upp í september, um það leyti sem Djasshátíð Reykja- víkur fór siðast fram þegar Jens Winther kom hingað til lands og hélt tónlcika. En hvemig verður það þá í kvöld? Verður fenginn annar maður til þess að sjá við trompet- leikinn? „Hann er nú eiginlega af þeim gæðaflokki að það er annaðhvort hann eða enginn. Þess vegna mun Jóel spila þau lög á sinn saxófón sem hann spilaði á trompet. Þó kemur einn gestur í lok tónleikanna, Einar Már Guðmundsson, sem er góður í sínu eins og Jens Winther er góður í sínu. Hann mun lesa ljóð sem við spilum með,“ segir Tómas að lokum. Tónleikamir verða haldnir á djassklúbbnum Múlanum sem nú er til húsa á efri hæð veitingastaðarins Kaffi Reykjavík. Tónleikamir hefj- ast stundvíslega kl. 21. Morgunblaðið/Jim Smart Hjónin Anna Pálfna og Aðalsteinn Ásberg em Berrössuð á tánum. þijár textabækur fylgja með því börnin nota þær venjulega upp til agna og foreldrar hringja í okkur og era að biðja um nýjar bækur.“ Ég spyr bullutröllin sem sitja andspænis mér í borðstofunni hvemig þeim líki að spila fyrir böm. „Það er algjört æði að spila fyrir böm!“ segir Anna Pál- ína „mér finnst mjög gaman að hafa áheyrendur sem era svona nálægt mér“. „Þau vilja helst sitja í fanginu á manni," segir Aðalsteinn og Anna bætir við: „...og maður finnur hvemig efnið og sögurnar sem mað- ur er að segja hrífa þau um leið, og það er hægt að leiða þau út um allan heim þess vegna og þau era alltaf að velta fyrir sér „er hún klikkuð, eða er hægt að trúa henni?““ í dag, sunnudag, munu þau halda söngvastund í tilefni af útgáfunni, á Kaffileikhúsinu klukkan 16. Það kostar 700 kr. inn og þau Anna sPálína og Aðalsteinn bjóða alla vel- komna. Það er ókeypis fyrir full- orðna í fylgd með börnum og blaða- maður er þess fullviss að þeir fullorðnu verða ekki síður hugfangnir af sögum og söng þessa indælisfólks en smáfólkið sem enn er eðlislægt að gleyma sér og láta sig dreyma, um stund, yfir heillandi sögum um drauga og tröll. ◄ Tómas R. Einarsson býr sig und- ir nóttina. EFTIR klukkan fjögur á nóttunni á virkum degi, þegar flest öll raf- magnstæki og tól blunda, leynist alltaf eitthvert fólk á kreiki. Það er alltaf einhver undarleg kyrrð sem fylgir nóttunni sem smitar allt út frá sér. Jafnvel þótt að maður sitji heima hjá sér að degi til í sama stólnum og maður hefur oft setið í, hlustandi á sömu tónlistina og mað- ur hefur oft hlustað á með glugga- tjöldin fyrir gluggunum verður upp- lifunin aldrei sú sama eins og þegar nóttin breiðir arma sína utan um mann í leiðinni. Kontrabassaleikarinn Tómas R. Einarsson er barn næturinnar, þó engin vampíra (en gæðablóð engu að síður), og tileinkar hann nóttinni og öllum hennar svipum nýjasta geisladisk sinn sem geymir hans nýjustu tónsmíðar. Morgunblaðið/Jim Smart Hann þræðir ýmist stræti sálarlífs- ins eða syndir í marglóðum minn- inganna. Lagið „Dansað í lauginni" er einmitt sprottið af minningu sem hcfur svamlað um í huga hans lengi. „Það tengist einmitt næturtilfinn- ingunni og nóttunni. Ég hef alltaf verið mikill næturmaður. Ætli ég hafi ekki fengið fyrst áhuga á næt- urlífi þegar ég var 3-4 ára gamall á dansleik sem var haldinn í sundlaug við hliðina á heimili mínu vestur í Dölum. Það var að sjálfsögðu hleypt úr lauginni og slegið upp pöllum þar og síðan dansað. Þetta var á Héraðs- móti Dalamanna fyrir fjórum ára- tugum. Þangað slapp ég inn um miðnæturskeið og hlustaði dáleidd- ur á harmonikkuleikara og trymbil spila fyrir dansi. Þessi hrifning af þessum hljóðum næturinnar, dans- andi fólki og íjöri hefúr fylgt mér síðan. Þótt tónlistin mín sé nú tals- vert öðruvisi en danstónlistin sem var spiluð vestur í Dalasýslu fyrir 40 árum þá er þama einhver tónn, eitt- hvert „dill“ í “svinginu“ sem er hið sama.“ i.Ég mundi lialda að það væru tvær áttir ríkjandi á þessum diski,“ útskýrir Tómas fyrir blaða- manni. „Það er innhverfa hliðin sem er sterkari þarna en oft áður. Næturstemning, enda heitir platan „Undir 4“, lágmælt þar sem maður leitar meira inn f sig. Siðan fylgir nóttunni ákveðið fjör og dans þann- ig að þú getur ekki gert heiðarlega næturplötu án þess að dansa svolítið fíka. Mörg þessara laga eru inn- hverf, ég held að þau séu það frá minni hendi. Þetta hefúr eitthvað með eintal sálarinnar að gera. Ég held að þau virki líka þannig á aðra að þau krefjist ákvcðinnar kyrrðar. Menn finna oft slíka kyrrð frekar á nóttunni." En skyldi lögin þá vera samin að næturlagi? „ Að litlu leyti. Dagurinn er nú bestur til þess að semja tónlistina en það er best að njóta hennar á nótt- unni.“ Dansað í lauginni Tómas leitar hingað og þangað innra mér sér þegar kemur að því að fanga tilfinningar á nótnablöðin. Bullutröllin halda barna- ogfjölskyldutónleika í Kaffileikhúsinu í dag

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.