Morgunblaðið - 03.12.2000, Síða 64
VERÐ í LAUSASÖLU150 KR. MEÐ VSK.
MORGUNBLAÐIÐ.KRINGLUNNU, 103REYKJAVÍK,SÍMI5691100,SIMBREF5691181,PÓSTHÓLF3040, QTTXTXTTT'n A nTT'D Q m?QT?l\/mTPD OnHfi
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA5691122, NETFANG: R1TSTJ@MBL.IS,AKUREYRI:KAUPVANGSSTRÆTI1 O UIN 1N U JJ/iUr Ull O. \J£j OH/IVID£jIX ^UUU
Morgunblaðið/RAX
Stefnt að því að þörf fyrir sambýli fatlaðra verði mætt á næstu fímm árum
Þjónusta við fatlaða er
talin kosta 4,4 milljarða
VILJAYFIRLÝSING um samstarf
félagsmálaráðuneytisins og Hússjóðs
Öryrkjabandalagsins var undirrituð í
gær og er markmiðið að þörf fatlaðra
fyrir sambýli verði mætt á næstu
fimm árum. AIls eru 209 manns á
biðlistum eftir slíku húsnæði. Áætlað
er að kostnaður við fjárfestinguna
verði um 1,5 milljarðar á þessum
fimm árum. Talið er að heildarkostn-
aður vegna þjónustu við fatlaða og
^húsnæðismála verði 4,4 miiijarðar á
næsta ári og er þá meðtalinn kostnað-
ur við langveik böm.
Um það bil 0,5% landsmanna þurfa
á sérhæfðri þjónustu að halda og seg-
ir Páll Pétursson félagsmálaráðherra
kostnaðinn við málaflokkinn talinn
4,1 milljarð króna sem er 565 miiljóna
króna hækkun frá núverandi fjárveit-
ingu. Segir hann þar reiknað með
kostnaðaráhrifum iagafrumvarps um
málefni fatlaðra. Þá bætast við 300
milljónir króna vegna þjónustu við
langveik böm og alls er því kostnaður
við málaflokkinn ráðgerður 4,4 millj-
arðar sem eru 1,16% af útsvars-
telyum.
I skýrslu starfshóps um biðlista
-•eftir búsetu sem kynnt var í gær
kemur fram að alls búi 877 menn á
sambýlum, vistheimilum og í sjálf-
stæðri búsetu með frekari liðveislu.
Hefur þeim íjölgað um 42 frá árslok-
um 1997. íbúum sambýla hefur fjölg-
að um 55, þeim sem njóta frekari lið-
veislu um 16 en fækkað hefur þeim
sem á vistheimilum búa um 29.
Ails er 1.061 fatlaður einstaklingur
á aldrinum 16-66 ára sem eru 0,6% af
íbúafjölda þjóðarinnar. í búsetu eru
852 og því 209 á biðlista. Af þeim 209
sem eru á biðlista vantar 134 búsetu á
sambýlum. í Reykjavík eru 118 á
biðlista eftir búsetu, þar af 83 sem
bíða eftir vist á sambýli. A Reykja-
nesi eru 57 á biðlista og 34 á lands-
byggðinni. Um 90% þeirra sem þurfa
UM ellefu af hundraði íslendinga,
eða um 30 þúsund manns, eru haldn-
ir skammdegisþunglyndi, eða vetr-
arþunglyndi af einhverju tagi. Hóp-
ur íslenskra vísindamanna hefur á
undanfömum árum unnið að rann-
sóknum á þessu fyrirbæri læknis-
fræðinnar, undir forystu prófessor-
búsetu á sambýlum á landsbyggðinni
eru þegar á sambýlum en í Reykjavík
og á Reykjanesi er hlutfallið 67%.
Þarf að fjölga sambýlaplássum þar
um 58 til að ná sömu þjónustu og ann-
ars staðar á landinu. Þá er talið að á
næstu fimm árum bætist 12-14
manns á ári í hóp þeirra sem þurfa
stuðning til búsetu.
Páll Pétursson félagsmálaráðherra
og Helgi Hjörvar, formaður Hús-
sjóðs Öryrkjabandalagsins, fögnuðu
báðir viijayfirlýsingunni um samstarf
í húsnæðismálum. Gert er ráð fyrir
anna Jóhanns Axelssonar og Guð-
mundar G. Haraldssonar í félagi við
geðlæknana Högna Óskarsson, Jón
G. Stefánsson og Andrés Magnús-
son.
Ungur vísindamaður, Ragnhildur
Káradóttir, lauk nýverið við rann-
sókn á skammdegisþunglyndi hér á
landi, en niðurstöður hennar eru
taldar geta haft töluverð áhrif á
rannsóknir á þessum sjúkdómi í
framtíðinni.
Fyrstu niðurstöður sinnar
tegundar í heiminum
Þar kemur fram að marktækur
munur hefur fundist á melatónín-
framleiðslu íbúa á Suðurlandi eftir
því hvort þeir hafa einkenni skamm-
degisþunglyndis eða ekki. Þeir sem
eiga við slíkt þunglyndi að stríða
framleiða að meðaltali um 2,4 sinn-
um meira af melatóníni en aðrir og
kann þetta að varpa nýju ljósi á or-
sakir þessa árstíðabundna sjúkdóms
sem herjar á milljónir manna víða
um heim.
að Hússjóður Öryrkjabandalagsins
láti í té húsnæði fyrir fatlaða sem
Ibúðalánasjóður láni að nokkru leyti
fjármagn til og félagsmálaráðuneytið
reki að öllu leyti. Helgi Hjörvar sagði
hússjóðinn nú vera með á annan tug
sambýla þar sem væru um 600 íbúðir
um land allt. Hann sagði að með sam-
starfinu við félagsmálaráðuneytið
væri uppbyggingin hraðari en hús-
sjóðurinn hefði annars getað staðið
undir næstu fimm árin. Sagði hann
heildarframkvæmdakostnað verða
kringum 1,5 milljarða króna.
Þáttur melatóníns, efnisins sem
ræður því hvort mann syfjar eða
ekki, í tengslum við skammdegis-
þunglyndi hefur ekki verið kannaður
marktækt áður.
Jóhann Axelsson segir að niður-
stöður Ragnhildar séu þær fyrstu
sinnar tegundar í heiminum.
„Kenningin um tengsl sjúkdóms-
ins og framleiðslu líkamans á mela-
tóníni stóð fremur illa að vígi, þar
sem ýmsar rannsóknir stönguðust á í
meginatriðum. Niðurstöður úr rann-
sókn Ragnhildur eru þvi þær fyrstu í
heiminum sem eru alveg ótvíræðar í
þessum efnum. Niðurstöður hennar
sýna ótvírætt að framleiðsla mela-
tóníns meðal þeirra sem eru þungir í
skammdeginu og líður þá illa er 2,4
sinnum meiri allan sólarhringinn en
hjá hinum sem er sama hvort er vet-
ur eða sumar. Þetta er því mjög
sterk stuðningsyfirlýsing við mela-
tónín-tilgátuna og skammdegis-
þunglyndið - líklega sú sterkasta
hingað til,“ segir hann.
Reynsla Ragnhildar af mælingu á
Tilhlökkun
á aðventu
LEIKSKÓLABÖRNIN í Bjarnahúsi
á Húsavík sögðust vera farin að
hlakka til jólanna, enda byrjað að
skreyta skólann þeirra. Þau Viktor-
ía, Hannes og Dagbjört príluðu upp
á girðinguna til að vera örugglega
með á myndinni.
Flug-
umferð
eykst
FLUGUMFERÐ um íslenska
úthafsflugstjómarsvæðið jókst
um 13% á fýrstu tíu mánuðum
þessa árs, en 80.686 flugvélar
flugu um svæðið eða um 9.200
fleiri en á sama tíma í fyrra.
Heildarvelta íslands af umferð
um íslenska flugstjómarsvæðið
í ár er áætluð nálægt 1,8 millj-
örðum króna.
Á hverjum sólarhring fljúga
1.000 til 2.000 flugvélar yfir Atl-
antshaf, þar af þriðjungur um
íslenska svæðið. Aukningin á
islenska svæðinu er helmingi
meiri en gert hafði verið ráð
fyrir í umferðarspám Alþjóða-
flugmálastofnunarinnar. Ef
aukningin heldur áfram í nóv-
ember og desember má reikna
með að heildarumferð ársins
verði um 100.000 flugvélar og
má reikna með að um 22 millj-
ónir farþega fljúgi um svæðið.
500 flugvélar á sólarhring
Þegar umferð er mest á ís-
lenska svæðinu fljúga þar rúm-
lega 500 vélar á sólarhring og
er yfirgnæfandi meirihluti á
ferð á aðeins fimm til sex
klukkustunda tímabili, eða frá
klukkan 10 til 16.
íslenska úthafsflugstjómar-
svæðið er með þeim stærstu í
heimi og nær frá Norðurpóln-
um og nokkuð suður fyrir Fær-
eyjar og frá Noregsströndum
og upp undir strendur Kanada.
magni melatóníns í munnvatni á
rannsóknarstofu í Finnlandi hefur
ekki síst orðið til þess að nú eru
bundnar vonir við að fyrstu mæling-
amar hérlendis fari fram á næstu
vikum á lífeðlisstofnun Háskólans.
Jafnframt stendur til að endur-
taka rannsókn Ragnhildar, en með
mun stærra úrtaki, á milli jóla og
nýárs. Þá verða nokkrir tugir Islend-
inga sem búa á Vestfjörðum og Suð-
urlandi beðnir að taka þátt í rann-
sókninni, svo komast megi nær
orsökum skammdegisþunglyndis.
„Lykilatriði i þeim rannsóknum er
að íslenskur almenningur taki okkur
vel og samþykki að taka þátt í rann-
sókninni. Ekki aðeins þeir sem stríða
við þunglyndi í skammdeginu heldur
einnig þeir sem gera það alls ekki.
Aðeins þannig sjáum við muninn á
sjúkum annars vegar og heilbrigðum
hins vegar og getum í framhaldi af
því reynt að komast að rót vandans,"
segir Jóhann Axelsson.
■ Virk vísindi /26-27
H KM
L-l-n
■a-n
tlr
Grundvötlur að góðri framtið
Æskulínubók er verðtryggður 36 mánaða reikningur
með hæstu vöxtum almennra reikninga bankans.
Forráðamenn barna geta þó bundið reikninginn
til lengri tíma, þannij að innstæðan verði laus 61
útborgunar við ákveðínn aldur, td. 16 eða 18 ára.
®BÚNAÐARBANKINN
Traustur bariki
Um 30 þúsund Islendingar
þjást af skammdegisþunglyndi