Morgunblaðið - 03.12.2000, Síða 23
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 3. DESEMBER 2000 B 2h
-------------------•
Minnisvarði um fórnar
lömb Sleipnisslyssins
Þrándheimi. Morgunblaðið.
Á SUNNUDAGINN var liðið ár
frá því norska ferjan Sleipnir
fðrst og sextán manns týndu líf-
inu. Af því tilefni var afhjúpaður
minnisvarði með nöfnum fórnar-
lamba slyssins við Ryvarden-vita í
Sveio á sunnudag. Frá vitanum
sést út á skerið Store Bloksen
þar sem Sleipnir strandaði.
„Þetta er okkar staður," sagði
Tove Falid við athöfnina en hann
er talsmaður þeirra sem Iifðu
slysið af. „Þetta er staður minn-
inga og hugsana. Þegar við
stöndum hér og lokum augunum
getum við séð myrkrið sem við
áttum við að etja. Við getum
fundið fyrir storminum og við
finnum lyktina af hafinu. Hér
háðum við baráttu upp á li'f og
dauða. Sextán manns töpuðu bar-
áttunni. Þeir sem eftir lifa munu
aldrei gleyma. Þeir sem dóu
munu aldrei gleymast."
Illdeilur í norska
Framfaraflokkmim
Ósló. Morgunblaðið.
MIKIL sundinng ríkir nú innan
stærsta stjórnmálaflokks Nor-
egs, Framfaraflokksins. Mið-
stjórn flokksins sagði frá því um
síðustu helgi að í bígerð væri að
reka sextán háttsetta meðlimi
Oslóardeildar flokksins. Tekin
verður endanleg ákvörðun í mál-
inu á fímmtudag. Þangað til
munu áfram geisa deilur í flokkn-
um en margir háttsettir meðlimir
flokksins hafa líkt brottrekstrar-
tillögunni, sem runnin er undan
rifjum formannsins Carls I. Hag-
en, við aðferðir Stalíns.
Meðal þeirra sem lagt er til að
verði reknir eru fimm af tíu full-
trúum Framfaraflokksins í bæj-
arstjórn Óslóar. Deilurnar eiga
sér langan aðdraganda en náðu
hámarki sl. haust þegar Óslóar-
deild flokksins neitaði að tilnefna
formanninn og varaformanninn
Siv Jensen í tvö efstu sætin fyrir
flokksþingið 2001. Nýverið skipti
deildin svo um skoðun. Það dugði
þó ekki til og Hagen sagði um
helgina að það þyrfti að vera
hægt að reiða sig 100% á deildir í
flokknum og það hefði sýnt sig
að svo væri ekki um Óslóardeild-
ina.
\
<>
%
Allt á hvolfi...
Ennmeiri
verðlsekkun!
%
4
&
o
Risa
á?
Hreysti opnar nýja og breytta verslun árið 2001
Verslunin hættir sölu á fatnaði
Gríðarlegur afsláttur af t.d.: úlpum, buxum, snióbrettafatnaði,
göngufatnaði, bomsum, húfum, vettíingum, sokKum, bakpokum,
rerðapokum, fleecefatnaði, treflum, tæKnilegum fatnaði, skyrtum,
stuttermabolum, peysum, íþróttaskóm, sandölum, stuttbuxum,
rennilásabuxum, anorökkum, próteinum, orkudrykkjum, vítamínum,
raförvunartækjum o.m.m.m.n.
Allt á að seljast!
Opið í dag
kL n.00-22.00
HREYSTI
ÆFINGAR - ÚTIVIST - BÓMULL
— Skeiíunni 19 - S. 568 1717-
Russell Athletic - Columbia - Convert - Jansport - Gilda Marx - Avia - Tyr - Schwinn - Slendertone - Polar - Weider - Metaform - ABB - EAS - Musdetech - Twinlab - Designer - Labrada - Natures Best - Leppin - MLO
ÞRÁÐLAUS SÍMI
MEÐ NÚMERABIRTI
• 12 númeri minni
• Hringt beint
úr númerabirtingaminni
• Hægt að tengja við símkerfi
Doro
Walk & Talki255
9-491