Morgunblaðið - 03.12.2000, Blaðsíða 36
36 B SUNNUDAGUR 3. DESEMBER 2000
MORGUNBLAÐIÐ
DÆGURTÓNLIST
A >
FÁAR hljómsveitir hafa vakið aðra
eins athygli og umtal síðustu miss-
eri og kanadíski fjöllistaflokkurinn
Godspeed You Black Emperor!
Sveitarmenn og -konur hafa verið
tregir til að gefa út plötur á þeim
sex árum sem sveitin hefurverið að
og þóttu því mikil tíðindi þegar tvö-
íold plata kom út í haust.
Godspeed-meðlimir hafa jafnan
reynt að sveipa hljómsveit-
ina sem mestri dulúð og þannig
er lítið um myndir af sveitinni og
fátt um viðtöl.
Eftir því sem
næst verður
komist var sveit-
in stofnuð fyrir
sex árum og
_______________ fljótlega eftir
eftir Árna f>'rstlJ , æíl,nffu
Motthíosson kom, ut 1 ,ljtlu
upplagi snældan
All Lights Fucked on the Hairy
Amp Drooling sem er mikill safn-
gripur enda voru aðeins fram-
leidd 33 eintök. Nafn sveitarinnar
er sérkennilegt, víst fengið af jap-
önsku mótorhjólagengi, en enn
sérkennilegri eru heiti lagasafna
þeirra sem sveitin hefur gefið út,
eins og sjá má á áðurnefndri
snældu. Næsta útgáfa Godspeed
vai- F#A#(Infinity) sem var að-
eins gefin út í 550 eintökum og
aðeins í Kanada. Orðspor sveitar-
innar barst þó suður til Kranky-
útgáfunnar í Chicago og menn
þar sóttust eftir og fengu leyfi til
að gefa skífuna út á disk.
Þremur árum síðar kom út
þriðja útgáfa hljómsveitarinnar,
stuttskífan Slow Riot for New
Zero Kanada, og vakti mikla
hrifningu en ekki vakti tónleika-
hald sveitarinnar minni hrifningu
en á tónleikum er Godspeed You
Black Emperor! níu til þrettán
manna hljómsveit með ljósamönn-
um og myndstjórum. Síðustu ár
hefur sveitin stundað tónleika-
hald af kappi og fékk meðal ann-
ars Sigur Rós til að hita upp fyrir
sig á tónleikaröð í Bretlandi eins
og flestir muna eflaust.
Sagan hermir að 1994 voru þeir
Efrim, Mauro og Moya að gutla
saman í tónlist en Efrim og
Mauro voru þá nýlega búnir að
gefa út snælduna sem getið er.
Félagi þeirra bað þá að hita upp
fyrir hljómsveit sem hann var í
og þer slógu til en segjast ekki
hafa haft hugmynd um hvað þeir
ættu að spila. Þá kom sú upp-
ástunga að láta sér nægja að spila
eina nótu í klukkutíma eða svo
eins og þeir segja sjálfir frá og
næstu tvö árin var það einmitt
aðal sveitarinnar að leika eina
nótu langtímum saman. „Síðan
bættist við önnur nóta og svo
voru þær orðnar þrjár og lögin
orðin mjög löng.
Við höfum stytt þau síðan en
þannig hefur þetta þróast hjá
okkur.“
Aidan slóst næstur í hópinn og
síðan Roger, David Bryant og
Norsola en þegar sveitin fer á
tónleikaferðir er hún yfirleitt með
aukamenn þannig að á sviðinu
eru yfirleitt tíu manns, þrír gítar-
leikarar, tveir bassaleikarar,
skógarhom, fíðla, lágfiðla, hné-
fiðla og slagverk. Þrátt fyrir
óvenjulega hljóðfæraskipan
leggja liðsmenn sveitarinnar
áherslu á að Godspeed sé rokk-
hljómsveit enda séu þeir upp
runnir í pönkinu og semji lög sín
út frá gítarfrösum.
Fyrir stuttu kom út þriðja út-
gáfa þeirra félaga, Lift Your
Skinny Fists Like Antennas to
Heaven / Levez Vos Skinny Fists
Comme Antennas To Heaven,
sem á eru lög sem Godspeed hef-
ur leikið á tónleikaferðum sínum
undanfarið. Platan hefur fengir
framúrskarandi dóma, líkt og allt
það sem frá Godspeed hefur kom-
ið, enda segja liðsmenn að þeir
búi til sín bestu verk á tónleikum
og líði reyndar best á sviðinu.
„011 tónlist okkar er samin með
það í huga að hún sé spiluð hátt
og á sviðinu náum við best saman,
mun betur en lokuð inni í hljóð-
veri.“
Áhugasömum má benda á að
mikið er til af tónleikaupptökum
með sveitinni á Netinu enda hafa
liðsmenn lítt amast við slíkri
dreifingu. Ástæða er til að leita
uppi lagið Do You Know How to
Waltz? þar sem Godspeed og Low
leiða saman hesta sína en lagið er
einmitt úr smiðju Low. Svo eru til
fjölmörg hliðarverkefni God-
speed, til að mynda A Silver Mt.
Zion, sem Efrim rekur en sú sveit
sendi nýverið frá sér framúr-
skarandi plötu, „He Has Left Us
Alone But Shafts of Light Some-
times Grace The Corner of Our
Bedrooms", 1-Speed Bike,
Exhaust, Fly Pan Am, Molasses
og Shalabi Effect.
DULARFULLU
FJÖLLISTAFU
Nýtt byltingarkennt
jeppadekk
Nýja All Terrain AT-KO dekkið
frá BFGoodrich er eina
jeppadekkið é markaðnum
með þrjú polyester-
strlgalðg í hliöum.
Veldu aðelna pað besta
fyrlr jeppann þinn.
All-Terrain
Betri aksturseiginleikar.
Meiri mýkt sem dregur úr vegahljóði.
Mynstur á hliðum þannig að grip
verður mun betra í snjó eða sandi.
Ryður betur frá vatni og krapa.
Burðarlög hitna minna við álag
og erfiðar aðstæður.
Nýtt tvístefnu AT-mynstur.
Jafnari lögun sólans sem gerður
er úr tvenns konar efni.
12% betri ending en áður.
BÍLABÚÐ BENNA • Vagnhöfða 23 • 110 Reykjavík
Sfmi 5S7 0 587 • Fax 567 4340 • Netfang: benni@benni.is • Vefsfða: www.benni.is
enn mv^ra
Síðasta stóra byltíng varð fyrir 20 árum
AT-KO er önnur eins bylting!