Morgunblaðið - 03.12.2000, Page 37
MORGUNBLAÐIÐ
l* *Tí 'Ai'Í'ÍS II r\P
SUNNUDAGUR 3. DESEMBER 2000 B 37
Ný og aukin meðferð við gyllinœð
Gott við ýmiskonar óþœgindum á ytri kynfœrum kvenna
Dregur úr svióa, kláða og ertingu við endaþarm
Graeðandi blautþurrkur
Grœða og hreinsa
DÆGURTÓNLIST
Ofnæmi eða óþoli gagnvart hreinsiefnum
í heimilishaldi og iðnaði.
Tlðum þvotti með sótthreinsandi efnum.
Óhreinindum, málningu, ollu, kltti, sementi
o.þ.h.
Húðþurrki vegna vinnuumhverfis.
wrpiA
Hté«&r*mx9(9
K. Pétursson ehf
www.kpetureson.net
J
MEÐAL helstu sérkenna rappsins
er hve það endumýjast ört og mun
hraðar en rokkið; nýjar stefnur
spretta fram, gerbylta öllu og lúta
svo í lægra haldi fyrir nýjum
straumum. Inn á milli eru svo stöku
listamenn eða sveitir sem ná að
halda velli þrátt fyrir sviptingarnar.
Wu-Tang-gengið breytti rappheim-
inum svo um munaði, ýtti úr vör
nýrri gerð af rappi og gat af sér
fjölda sólólistamanna sem settu svip
á sölulista í nokkur ár. Fyrir stuttu
kom út þriðja skífa Wu-Tang Clan.
ÞÓTT ótrúlegt megi virðast eru sjö
ár síðan fyrsta breiðskífa þeirra
Wu-Tang-félaga, Enter the Wu-Tang
(36 Chambers), kom út. Platan vakti
ekki svo ýkja mikla athygli til að byrja
með, en sótti stöðugt í sig veðrið og
telst orðið með bestu rappskífum sög-
unnar. í kjölfarið fóru félagamir í
Wu-Tang-genginu að senda írá sér
sólóplötur með góðum árangri; RZA,
Genius/GZA, 01’ Dirty Bastard,
Method Man, Raekwon, Ghostface
Killa og Inspecta Deck, auk þess sem
þeir félagar, aðallega RZA, komu að
fjölda hliðarverkefna. Fjögur ár liðu í
næstu Wu-Tang-skífu og þótt hún
hafi þótt mikið afbragð fannst mörg-
um sem flokknum hefði fatast flugið
og höfuðpaurinn RZA verið að vasast
í of mörgu. Hvað sem því líður kom út
ný Wu-Tang-skífa á dögunum og kall-
ast einfaldlega W.
Síðasta Wu-Tang-skífa var tvöföld
og hefði eflaust mátt snyrta og orm-
hreinsa hana niður í eina skífu. Platan
nýja er ein plata, samþjappað stuð, að
sögn þeirra félaga, en RZA heldur um
stjórnvölinn aftur. Þeir Wu-Tang-
menn eru níu á plötunni, RZA, GZA,
U-God, Masta Killa, Method Man,
Raekwon, Ghostface Killah, In-
spectah Deck og Capadonna; 01’ Dir-
ty Bastard fjarri góðu gamni, enda
hefur hann í nógu að snúast við að
greiða úr flækjunum í eigin lífi. Platan
er reyndar tileinkuð honum og hann
hafði tíma til að taka upp eitt lag.
Annað sem kemur á óvart við plöt-
una er að á henni eru ýmsir gestir,
sem þeir Wu-Tang-menn hafa ekki
áður gefið færi á. Þannig koma við
sögu Snoop Dogg, Nas, Busta Rhym-
es, Redman, Junior Reid og Isaac
Hayes.
RZA segir að skífan nýja sé til
marks um það að þeir félaga séu ekki
á höttunum eftir frægð og fé, það eitt
vald fyrii- þeim að standa undir nafni
sem fresta rappsveit heims. „Við
hyggjumst sýna öðrum vígamönnum í
tvo heimana, en erum ekki í sókn eftir
fé eða frama, okkur hungrar í heiður
sem samúi-æjar.“
Til að skífan yrði sem best og ekki
síst unnin á sem skemmstum tíma
fluttu þefr félagar sig meðal annars
um set, fóru frá heimaslóðum í New
York tíl Los Angeles og tóku upp
megnið af skífunni þar; bjuggu allir
saman í einbýlishúsi í þijá mánuði og
þræluðu líkt og gert var í upptökulot-
unni fyrir fyrstu stófuna, að því er
RZAsegir.
Skífan kom út í síðustu viku og þeir
félagar hófu tónleikaferð til þess að
fylgja henni eftir með látum í New
York. Þar bar meðal annars til tíðinda
að 01’ Dirty Bastard fékk bæjarleyfi
úr fangelsinu til þess að taka með
þeim eitt lag og því var öll Wu-Tang-
klíkan á sviði samtímis í fyrsta sinn í
fjölmörg ár.
Ef þú ert á leið í nám hvetjum við þig til
að athuga eftirfarandi:
Viðskipta- og tölvuskólinn býður upp
á eins árs kröfuhart nám með áherslu
á góða tölvuþekkingu og sérhæfingu
í viðskiptalífinu.
Viðskipta- og tölvuskólinn leggur
áherslu á að nemendur nái árangri
sem nýtist í krefjandi störfum.
Viðskipta- og tölvuskolinn er
einkaskóli sem er viðurkenndur af
menntamálaráðuneytinu.
Viðskipta- og tölvuskólinn byggir a
26 ára reynslu.
Viðskipta- og tölvuskólinn opnar þer
leið að nýjum tækifærum.
VIÐSKIPTA- OG
TÖLVUSKÓLINN
Faxafeni 10 -108 Reykjavik • Simi 588 5810
Bréfasími 588 5822 • framtid@vt.is • www.vt.is
Wu-Tang h u ngra r
í heiö