Morgunblaðið - 05.12.2000, Page 1
1
2000
BLAÐ ALLRA LANDSMANNA
■ ÞRIÐJUDAGUR 5. DESEMBER
BLAÐ
BIKARMEISTARAR Fram í hand-
knattleik karla mæta íslandsmeist-
urunum, Haukum, í 8-liða úrslitum
bikarkeppninnar. Hér er um að ræða
stórviðureign á milli liðanna, sem
börðust um meistaratitilinn sl.
keppnistímabil og eru liðin í tveimur
efstu sætum 1. deildar nú.
■ Bi kard ráttu r/D3
Eiður Smári hefur vakið mikla athygli í Englandi sem leikmaður með Bolton og Chelsea.
Chelsea hafnaði 745
milljónum fýrir Eið
Chelsea hafnaði 745 milljóna
króna boði frá Manchester City
í Eið Smára Guðjohnsen, eftir því
sem fjölmiðlar á Englandi greindu
frá í gær. Þar sagði að Joe Royle
hefði lagt fram 6 milljón punda tilboð
í Eið Smára á sunnudaginn, nokkr-
um klukkustundum áður en liðin átt-
ust við á Stamford Bridge, heimavelli
Chelsea. Þess má geta að tilboðið er
tveim milljónum punda, 250 milljón-
um króna, hærra en það verð sem
Chelsea greiddi fyrir Eið frá Bolton í
sumar. Tilboðinu var umsvifalaust
hafnað að sögn talsmanns Chelsea.
Eiður Smári var í byrjunarliði
Chelsea gegn Manchester City en
var skipt út af á 58. mínútu íyrir Gus
Poyet.
Vitað er Royle hefur lengi haft
augastað á Eiði og var meðal þeirra
sem gerðu tilraun til að krækja í pilt
er hann var í herbúðum Bolton. Auk
þess leitar Royle nú logandi ljósi að
framherja til þess að styrkja sóknar-
leik liðs síns. Eiður er ekki eini sókn-
armaðurinn sem nefndur hefur verið
til sögunnar. Meðal annan-a er
Robbie Keane hjá Intemazionale og
Lee Hughes, leikmaður WBA. Talið
er að Royle sé tilbúinn að greiða um
5 milljónir punda fyrir Hughes en
líklegt er að Keane sé of dýr. Talið er
að Chelsea sé tilbúið að leggja um 13
milljónir punda, 1,6 milljarða króna,
til þess að fá Keane í sínar herbúðir
og City á erfítt með að keppa við það
verð.
Franskur sóknarmaður, Cedric
Bardon hjá Rennes, verður til
reynslu hjá Manchester City í vik-
unni. Ef Bardon tekst að heilla Royle
er talið sennilegt að ekki þurfi að
greiða fyrir hann meira en 125 millj-
ónir króna.
Þórir með
norska
kvenna-
landsliðið?
NAFN íslendingsins Þóris
Hergeirssonar hefur skotið
upp kollinum í norskum
fjölmiðlum að undanförnu
sem væntanlegs eftirmanns
Marit Breivik sem nú þjálfar
norska kvennalandslið í
handknattleik. Samkvæmt
heimildum frá Stavanger
Aftenblad hefur Marit Brei-
vik mælt með Þóri sem hugs-
anlegum arftaka en allar lík-
ur eru á að Breivik hætti sem
þjálfari liðsins næsta sumar.
Þórir er í dag þjálfari norska
unglingalandsliðsins sem
skipað er stúlkum á aldrinum
18-19 ára og jafnframt því er
hann í 50% starfi sem aðstoð-
armaður Marit Brevik.
„Það kæmi mér verulega á
óvart ef norska hand-
knattleikssambandið hefði
ekki samband við mig ef
Marit Brevik hættir. En Mar-
it hefur ekki gert upp hug
sinn í þeim efnum og það
veltur allt á gengi liðsins í
Evrópukeppninni sein hefst í
Rúmeniu 7. desember. Það er
því ekkert hægt að segja
hvort ég verði næsti lands-
liðsþjálfari norska kvenna-
liðsins en málið hefur verið
rætt á fundum hjá okkur sem
að liðinu koma en þeim um-
ræðum ætlum við að halda út
af fyrir okkur að svo
stöddu," sagði Þórir í samtali
við Morgunblaðið í gær.
Fram
mætir
Haukum
FRAMGANGAIPSWICH VEKUR ATHYGLI / D4, D5
Jólabæklingurínn
kemur til þín
á morgun!
Dreift á öll heimili landsins
INTER
SPORT
Pín frístund - O kka r fag
Bíldshöföa • 110 Reykjavik
• 510 8020 • www.intersport.is