Morgunblaðið - 05.12.2000, Side 11
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 5. DESEMBER 2000 D 11
--------------------------------
IÞROTTIR
UDGFELAG
EmiAVÍ|*S
fBasak'
l m -
ÆM-jm Æ&’ * BmSSsB /jX;
Morgunblaðið/Jim Smart
A-sveit Júdófélags Reykjavíkur ásamt varamönnum og þjálfara, efri röð frá vinstri: Bjarni Friðriksson þjálfari, Bergur Pálsson, Karl
Erlingsson, Gunnar Jónasson, Rögnvaldur Guðmundsson, Þórir Rúnarsson og Baldur Pálsson. Neðri röð frá vinstri: Höskuldur Ein-
arsson, Eiríkur Kristinsson, Halldór Guðbjömsson, Olga Vilmundardóttir og Snævar Jónsson.
TVittuga ára bið
eftir gulli á enda
TUTTUGU ára bið Júdófélags Reykjavikur eftir sigri í sveitakeppni
Júdósambandsins lauk á laugardaginn þegar þeim tókst að ná bik-
arnum úr höndum Akureyringa. Þeir gerðu gott betur og unnu í öll-
um f lokkum nema í f lokki 19 ára og yngri - þar settu KA-menn niður
fótinn.
Mótið var haldið í nýlegum sal
Júdófélags Reykjavíkur í
Armúla 17 sem er til marks um
uppgang félagsins
Stefán °g mun sá salur
Stefánsson auðvelda júdó-
skrifar mönnum að halda
mót með minna
umstangi en áður.
Keppendur voru tæplega sextíu
og sendu þrjú félög sveitir í
keppnina; Ármann, Júdófélag
Reykjavíkur og KA, sem reyndar
tefldi fram tveimur sveitum í
karlaflokki. Að auki komu tvær
kvennasveitir frá Júdófélagi
Reykjavíkur og fór svo að A-sveit-
in vann stöllur sína 3:1. Langt er
síðankvennasveitir tóku þátt í
sveitakeppni en kvenfólki í júdó
fer fjölgandi og núna kepptu tvær
kvennasveitir. Engu að síður eru
margar stúlkur í félögunum og
æfa mikið saman svo að þær
þekkja tökin hver á annarri.
„Þetta er samt alltaf bardagi og
vinskapurinn er lagður til hliðar í
keppni,“ sagði Olga Vilmundar-
dóttir í Júdófélagi Reykjavíkur
sem hampaði gullverðlaunum.
„Það eru mót svona einu sinni í
mánuði ef við erum heppnar svo að
það eru um að gera að ná gullverð-
launum á svona móti en ég vil
endilega hvetja fleiri stelpur til að
koma að æfa því þetta er mjög
gaman. Það verður tekið vel á móti
þeim.“
Mesta baráttan var í flokki 15
ára og eldri en þar sigraði Júdófé-
lag Reykjavíkur alla mótherja
sína, þar á meðal A-sveit KA 4:2.
„Nú er ég kominn aftur og mæti
grimmur til leiks,“ sagði Rögn-
valdur Guðmundssonsem fagnaði
sigri með A-sveit Júdófélags
Reykjavíkur en hann byrjaði aftur
að iðka júdó eftir að hafa tekið sér
átta ára hlé. „Ég var orðinn
þreyttur á júdó og það var kominn
leiði í mann en þegar þessi salur
hérna í Armúlanum var byggður
upp kýldi ég á það og sé ekki eftir
því. Það er svolítið erfitt að hefja
keppni aftur því þetta eru sterkir
karlar. Annars er þetta ósköp
svipað og áður nema hvað maður
er frekar ryðgaður í reglum og
svoleiðis en maður býr alltaf að því
að vera í góðu formi. Ég átti ekk-
ert frekar von á gullinu en það
þarf að halda mjög vel á spöðunum
ef ét að takast.“
í yngsta flokki, 11 og 12 ára,
kepptu þrjár sveitir og sigraði A-
sveit Júdófélags Reykjavikur, fé-
lagar þeirra í B-sveitinni hrepptu
silfrið en Armenningar brons.
Júdófélagið hafði einnig betur en
Ármenningar í flokki 13 og 14 ára
en KA-menn sigruðu Ármann 4:1 í
flokki 19 ára og yngri.
Norðan-
menná
toppinn
LEIKUR SA og SR sem fram
fór á laugardaginn fyrir
norðan var jafn og spennandi
en svo fór að lokum að
heimamenn höfðu betur, 6-4,
og eru í efsta sæti deildarinn-
ar með sjö stig en Bjöminn er
með sex stig í öðru sæti og
SR, íslandsmeistaramir, eru
með eitt stig.
Heimamenn gerðu fyrsta
markið en gestirnir jöfnuðu
tæpri mínútu síðar. Aftur
komust: SA-menn yfir en SR-
ingar léku sama leikinn og í
upphafi, jöfnuðu á innan við
rnínútu. Emi skomðu Norð-
anmenn og að þessu sinni
tómst SR ekki að jafna fyrir
hlé.
f öðmm leikhluta gerðu
lcikmenn SA tvö mörk og SR
eitt þannig að staðan fyrir
síðasta leikhluta var 5-3.
Mikil barátta var í síðasta
leikhlutanum og niá geta
þess að gestirnir þurftu að
dúsa í 14 mfnútur út af en alls
voru þeir út af í 16 mínútur í
öllum lciknum. Sömu tölur
fyrir heimamenn eru þær að
þeir vom alls út af í 22 mínút-
ur og þar af 14 í sfðasta hlut-
anum.
Fyrir S A gerði Clark
McCormick þrjú mörk Egg-
ert Hannesson eitt. og átti
eina stoðsendingu, Rúnar •
Rúnarsson og Sigurður Sig-
urðsson eitt hvor.
James Devine gerði tvö
marka SR og átti eina stoð-
sendingu eins og Snorri
Rafnsson sem einnig verði
eitt mark. Valdimar Baranov
gerði fjórða mark SR.
Vissum að yrði erfitt á móti gömlu jöxlunum
„VISSULEGA var gaman að keppa
hér en úrslit hefðu mátt vera
betri,“ sagði Akureyringurinn
Vemharð Þorleifsson eftir mótið.
„Við erum með unga sveit og
margir að byija að taka þátt í stór-
um mótum svo að við vissum að
það yrði á brattann að sækja því
Júdófélag Reykjavíkur var með
gamla jaxla sem skiluðu sínu. Það
er mikið af ungum strákum á Ak-
ureyri, sem eru strax komnir með
svarta beltið og verða að gera upp
við sig hvort þeir ætli að gefa sig í
þetta eða ekki. Þetta mót er gott til
þess. Júdóið hefur gefið mér mjög
mikið og þó að þetta sé oft ströggl
sé ég ekki eftir því eina sekúndu að
hafa gefið mig í þetta. Og nú þegar
ég er búinn að ákveða að halda
áfram af fullum krafti væri skrýtið
að hvetja aðra ekki til þess sama,“
bætti Vemharð við og er sjálfur
kominn á fulla ferð eftir meiðsli.
„Það var áfall sfðasta vetur þegar
ég sneri mig á ökkla í byijun tíroa-
bils og óly mpfudraumur fjaraði út.
Þegar það var orðið fullljóst að ég
færi ekki til Sydney hugsaði ég
mig vandlega um og ákvað sfðan
að halda áfram af fullum krafti
enda gæti ég vel átt átta ár eftir.“