Morgunblaðið - 05.12.2000, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 5. DESEMBER 2000 D 7
KÖRFUKNATTLEIKUR
KR-ingar
komnir á
fulla ferð
MEISTARAR KR eru á hraðri leið
upp stigatöfluna í úrvalsdeild
karla. Á sunnudaginn sýndi liðið
á sér heldur óvenjulega hlið,
skoraði 113 stig þegar það lagði
Njarðvíkinga í hröðum og
skemmtilegum leik í KR-húsinu.
Gestirnir gerðu 94 stig. Á síð-
asta leiktímabili skoraði KR
tvisvar sinnum meira en 100
stig í deildarleik, gegn Þór og
Snæfelli og tímabilið þar á und-
an vann KR lið Hauka 101:92.
að má segja að KR-ingar hafi
notað aðferð Njarðvíkinga en
þeir kunna því vel að leika hratt á
meðan KR-ingar
SkúHUnnar J^afa hingað til
Sveinsson heldur viljað hafa
skrifar leikina í rólegri
kantinum og nýta
þann tíma sem þeir hafa til að
ljúka hverji sókn. A sunnudaginn
gáfu KR-ingar Njarðvíkingum
ekkert eftir við að halda uppi
hraðanum í leiknum.
Leikurinn hófst með miklum lát-
um, heimamenn áttu fyrstu sókn-
ina og þegar leikmaður þeirra var
að leggja knöttinn í körfuna kom
Logi nokkur Gunnarsson fljúgandi
og varði skotið. Njarðvíkingar
brunuðu í sókn og Logi skoraði.
Jafnræðið var mikið í fyrsta leik-
hluta, munurinn var mestur fimm
stig fyrir heimamenn en staðan
29:33 eftir tíu mínútna leik.
Svo furðulegt sem það kann að
virðast léku liðin ágætis vörn þrátt
fyrir þetta mikla skor. Ekki var
tekið mikið af fráköstum enda var
nýting liðanna með ágætum og því
ekki svo ýkja mörg fráköst i boði.
Heldur hægðu menn á ferðinni í
öðrum leikhluta sem KR vann
27:22 og var 56:55 yfir í leikhléi.
KR-ingar virtust ætla að lenda í
villuvandræðum því eftir fyrri
hálfleikinn voru Magni Hafsteins-
son, Ólafur Jón Ormsson, Jón Arn-
ór Stefánsson og Arnar S. Kára-
son allir með þrjár villur, en þeim
tókst að halda aftur af sér það sem
eftir var leiks. Njarðvíkingar
höfðu undirtökin í þessum leik-
hluta, allt þar til undir lok hans að
heimamenn gerðu 9 stig í röð og
staðan var jöfn er síðasti leikhluti
hófst. I honum voru það heima-
menn sem voru sterkari og sigr-
uðu.
Hjá KR áttu flestir ágætan leik,
Keith Vassell hóf leikinn fremur
rólega en lét meira að sér kveða er
líða fór á hann og komst í heildina
mjög vel frá honum, gerði 24 stig
og tók auk þess 15 fráköst. Eins
og svo oft áður var fyrirliði KR til
mikils sóma enda er baráttan á
þeim bæ sjaldnast langt undan. Ól-
afur Jón gerði 27 stig og átti fínan
leik eins og Magni og Jón Arnór.
Sá síðarnefndi hefur oft skorað
meira en hann sýndi á köflum
hvers hann er megnugur. Her-
mann Hauksson lék á ný með KR
og það fór vel á því að hann gerði
100. stig liðsins, hans fyrstu stig í
langan tíma.
Birmingham má gera meira
af því að Ijúka sóknum sjálfur
Hjá Njarðvíkingum voru það að-
eins Brenton Birgmingham og
Logi sem léku eðlilega. Logi lék
mjög vel í fyrri hálfleik en gekk
illa í þeim síðari. Brenton var hins
vegar óstöðvandi og hann má gera
miklu meira af því að keyra inn í
vítateiginn og Ijúka sóknunum
sjálfur. Það eru ekki margir varn-
armennirnir sem standast honum
snúning og allt virðist þetta vera
svo auðvelt þegar hann gerir
smeygir sér á milli mótherja og
leggur boltann ofan í körfuna.
Njarðvíkingar hittu ekki eins og
þeir eiga að sér utan þriggja stiga
línu en þaðan hittu þeir úr 10 af 33
tilraunum. Það er alveg ljóst að lið
þeirra verður erfitt viðureignar
þegar Friðrik Stefánsson verður
mættur í græna búningnum, sér-
staklega ef Jes V. Hansen verður
áfram hjá liðinu því hann er nokk-
uð öflur þótt honum hafi verið mis-
lagðar hendur á sunnudaginn.
M@S8@|S!ÉÉl|
(,í.í, ri.1 ii...'.íWWBH*'1
Morgunblaðið/Jim Smart
Keith Vassell og félagar í KR unnu góðan sigur á Njarðvíkingum á sunnudag. Hér sækir Vassell að
körfu Njarðvíkinga en til varnar eru Logi Gunnarsson og Brenton Birmingham.
ívarÁsgrímsson, þjálfari Hauka
„Notuðum
fríið vel“
Ivar Asgrímsson, þjálfari Hauk-
anna, var mjög ánægður með
leik sinna manna gegn Grindvík-
ingum þegar Morgunblaðið ræddi
við hann skömmu eftir leikinn.
„Við höfum verið að æfa gríðar-
lega vel í fríinu og eins og sást í
þessum leik hefur mannskapurinn
fínt úthald. Ég var mjög ánægður
með varnarleikinn og við náðum
að halda þriggja stiga skyttum
þeirra að mestu i skefjum. Við
náðum að halda þeim í 73 stigum
og það sýnir bara þá vöm sem við
spilum. Eg var mjög ánægður með
karakterinn í liðinu. Strákamir
gáfust aldrei upp og það var mikill
sigurvilji hjá þeim,“ sagði Ivar.
Þessi sigur hlýtur að vera gott
veganesti upp á framhaldið?
„Þessi leikur hjá okkur var upp
á það hvort við ætluðum að vera
með í toppbaráttunni eða hvort við
ætluðum að vera um miðja deild.
Við lögðum allt upp úr að vinna
þennan leik og er hann er gott
veganesti í leikinn gegn Tindastóli
sem við mætum í næsta leik,“
sagði Ivar.
Ingvartil Hauka
eftir áramótin
ívar sagði að Ingvar Guðjóns-
son kæmi til liðs við Haukana eftir
áramótin en Ingvar, sem lék mjög
vel með Haukaliðinu á síðustu
leiktíð, er að koma heim eftir að
hafa stundað nám í Bandaríkjun-
um í haust. Þetta eru góðar fréttir
fyrir Haukana og styrkir lið þeirra
töluvert auk þess sem Guðmundur
Bragason er hægt og bítandi að
komast í form eftir hafa átti í
meiðslum.
Frábær endasprettur
HAUKAR unnu mikinn seiglu-
sigur á Grindvíkingum á heima-
velli sínum á Ásvöllum. Eftir að
hafa átt undir högg að sækja
nær allan tímann náðu Hauk-
arnir frábærum endaspretti.
Þeir skoruðu tíu síðustu stig
ieiksins og unnu sætan sigur,
81:73.
Grindvíkingar byrjuðu með lát-
um. Þeir byrjuðu á því að setja
niður tvær þriggja stiga körfur og
náðu þar með undir-
Guðmundur tökunum sem þeir
Hilmarsson heldu megmð af leik-
skrífar tímanum. Haukarnir
voru að gera sig seka
um klaufaleg mistök í sókninni og átti
í vandræðum með að stöðva Pál Axel
Vilbergsson. Páll var í miklum ham í
fyrri hálfleiknum. Hann skoraði 21
stig, þar af fimm þriggja stiga körfur
og Haukamir áttu ekkert svar við
stórleik hans.
Grindvíkingar höfðu átta stiga for-
skot í leikhléi og framan af síðari hálf-
leik benti ekkert til annars en að þeir
ætluðu að halda sínu striki. Haukana
skorti lengi vel herslumuninn á að
komast upp að hlið gestunum en á
þremur síðustu mínútunum sneru
þeir leiknum sér í vil. Bragi Magnús-
son jafnaði metin í 71:71, þegar þrjár
mínútur voru eftir. Grindvíkingar
svöruðu fyrir sig með tveggja stiga
körfu en þar með sögðu Haukarnir
hingað og ekki lengra. Marel Guð-
laugsson kom Hafnarfjarðarliðinu yf-
ir í fyrsta sinn, 74:73, með glæsilegri
þriggja stiga körfu þegar ein mínúta
og tuttugu sekúndur voru eftir og
þessi karfa hans hleypti miklu lífi og
stemningu í Haukaliðið. Grindvíking-
ar fóru hreinlega á taugum og þeir
Jón Arnar, Mike Bargen og Guð-
mundur Bragason innsigluðu sigur
Haukanna og það fór vel á því að
Guðmundur skoraði lokakörfuna
gegn fyrri félögum sínum með því að
troða knettinum í körfuna.
Af öðrum ólöstuðum í Haukaliðinu
átti Jón Amar Ingvarsson bestan
leik. Hann fór fyrir sínum mönnum
og náði þrennunni eftirsóttu en þetta
er fyrsta þrennan sem íslenskur leik-
maður nær síðan Örlygur heitinn
Sturluson gerði það í nóvember á síð-
asta ári. Jón skoraði 22 stig, tók 14
fráköst og átti 11 stoðsendingar.
Bandaríkjamaðurinn Mike Bargen
var eins mjög drjúgur. Hann hélt
landa sínum Kim Lewis algjörlega í
skefjum og skoraði körfur á mikil-
vægum augnabhkum. Bragi Magnús-
son er leikmaður sem ávallt stendur
fyrir sínu og þó svo að Guðmundur
Bragason hafi ekki verið atkvæða-
mikill í sókninni gegndi hann mikil-
vægu hlutverki í vöminni. í síðari
hálfleik var hann settur til höfuðs
Páli Axeli og náði Guðmundur að
halda aftur af Páli sem skoraði aðeins
sex stig í hálfleiknum. Haukaliðið
sýndi mikinn og góðan karakter og
varnarleikur liðsins í síðari hálfleik
var til fyrirmyndar. Ef marka má
þennan leik eru Haukarnir til alls lík-
legir. Þeir eiga eftir að styrkjast þeg-
ar á líður og hafa burði til að blanda
sér af alvörðu f toppbaráttuna.
Grindvíkingar hljóta að naga sig í
handarbökin. Þeir voru með leikinn í
höndum sér en misstu niður dampinn
á lokakafla leiksins. Páll Axel var eins
og áður segir óstöðvandi í fyrri hálf-
leik en í þeim síðari átti hann erfitt
uppdráttar. Guðlaugur Eyjólfsson
lék vel og skoraði margar fallegar
körfur og Dagur Þórisson átti ágæta
spretti. Kim Lewis náði sér hins veg-
ar ekki á strik og við því mega Grind-
víkingar alls ekki.