Morgunblaðið - 05.12.2000, Síða 5
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 5. DESEMBER 2000 D 5
KNATTSPYRNA
Hermann Hreiðarsson stekkur hátt upp og skorar glæsilegt mark með skalla gegn Manchester City á Maine Road.
Um daginn vann liðið meira að
segja á Maine Road í Manchester,
þar sem það hafði tapað sjö af síð-
ustu átta leikjum. Raunar aðeins
unnið fjórum sinnum í 29 viður-
eignum.
„Árangur okkar á útivelli er frá-
bær, fimm sigurleikir,“ segir Bur-
ley. „Það er eðli okkar að þakka.
Við fellum okkur ekki við eitt stig.
Við leikum til sigurs í hverjum ein-
asta leik - okkar stíll snýst um að
sækja.“
Mark í 24 leikjum í röð
Það segir maðurinn satt. Það er
engin tilviljun að Ipswich hafði fyr-
ir leikinn við Derby gert mark í öll-
um úrvalsdeildarleikjum sínum
fimmtán. 23 að tölu. Hafði að sönnu
ekki skotið púðurskotum í 24 deild-
arleikjum í röð. Það er ekki slæmt!
Og Burley hyggst ekki breyta
um kúrs. „Við eigum eftir að tapa
leikjum, jafnvel illa. Hjá því verður
ekki komist í jafn sterkri deild og
úrvalsdeildinni. Það dregur aftur á
móti ekki úr okkur kjarkinn. Ef
maður mætir til leiks skjálfandi á
beinunum, verður vaðið yfir mann.“
Mörkin hafa líka komið úr öllum
áttum, eins og sagt er, ótrúlegustu
menn lagt lóð sitt á vogarskálina,
ekki síst varnarmenn. Markakóng-
ur liðsins frá í fyrra, David John-
son, er til að mynda ekki kominn á
blað. „Mér er slétt sama hverjir
skora mörkin en það er ánægjulegt
að vörnin og miðjan leggi sitt af
mörkum líka, það er ekki hægt að
ætlast til þess að framherjarnir séu
á skotskónum um hverja helgi.“
Gengið er gott en í hamrinum
háa er allra veðra von. Það veit
Burley. „Staðan eins og hún er í
dag skiptir engu máli. Það er loka-
staðan sem gildir."
Hann líkir úrvalsdeildinni þó
ekki við maraþonhlaup, eins og
mörgum er tamt, heldur sprett-
hlaup. Og þar eru piltarnir hans
þegar komnir í mark. „Þetta er
eins og spretthlaup. Ef ég er sann-
færður um að náunginn á næstu
braut sé fljótari en ég hef ég
áhyggjur. Nú hafa strákarnir hins
vegar att kappi við þá bestu og vita
að það er ekkert að óttast. Þeir
hafa úthýst óttanum. Þannig á það
að vera.“
Fyrir leiktíðina hefði Burley gert
sér fjórða neðsta sætið í úrvals-
deildinni að góðu. Eftir ævintýri
haustsins hefur hann sett stefnuna
hærra. „Ég varð þeirrar gæfu að-
njótandi sem leikmaður að taka
þátt í Evrópukeppni og nú þrái ég
að komast þangað á ný sem knatt-
spyrnustjóri. Ef við höldum áfram
á sömu braut er heldur engin
ástæða til að ætla að við getum
ekki lokið tímabilinu í hópi efstu
liða.“
Burley þorir þó ugglaust ekki að
gæla við sjálfa meistaradeildina -
ennþá.
Ipswich Evening Star
Ánægðir
með
Hermann
HLAUP Hermanns Hreiðarssonar
upp völlinn með Ipswich hafa heill-
að marga stuðningsmenn félagsins
í vetur. Hermann hefur átt það til
að „skeiða“ með boltann upp völl-
inn og skapað með því usla í vörn-
um andstæðinganna. Þá hefur
Hermann komið inn í vítateig mót-
herjanna í hornum og aukaspyrn-
um og á dögunum skilaði það ára-
ngri því Hermann skallaði
knöttinn í netið í 3:2-sigri Ipswich
gegn Manchester City.
Stuðningsmenn Ipswich eru
mjög ánægðir með Islendinginn og
telja hann falla vel inn í liðið og
þeir segja að peningunum hafi ver-
ið vel varið þegar félagið keypti
Hermann á 470 milljónir króna.
„Ég hef alltaf tekið þessi hlaup.
Ég vil sækja fram og komast inn í
vítateiginn eða gefa sendingar fyr-
ir markið. Það var gaman að ná
loks að skora en í nokkrum leikj-
um hef ég verið ansi nálægt því,“
segir Hermann Hreiðarsson.
„Ipswieh er með gott lið og liðið
er að spila töluvert öðruvísi knatt-
spyrnu en þegar ég lék ineð Pala-
ce og Wimbledon. Það er mjög
góður andi í liðinu og menn tilbún-
ir að fórna sér hver fyrir annan.
Ég held að ég geti slegið því föstu
að við föllum ekki og það er mjög
góð tilfinning að vita til þess að við
erum meðal efstu liða. Ég hef
aldrei verið svona ofarlega í úr-
valsdeildinni," segir Hermann sem
er nýbúinn að koma sér fyrir ás-
amt fjölskyldu sinni í íbúðar-
húsnæði í Ipswich.
„Við erum mjög ánægð hérna.
Börnin hafa kynnst krökkum og
una sér vil í hverfinu sem við bú-
um í. England er ekki svo frá-
brugðið Islandi nema þá helst
veðrið en það er mun hlýrra hér á
Englandi en heima á Islandi."
Bömin hans Burieys
Á TÍMUM þegar ekki er þverfótað
fyrir erlendum leikmönnum á
enskum sparkvöllum vekur at-
hygli að þorri leikmanna Ipswich
Town er breskur. Einu aðkomu-
mennirnir í byrjunarliðinu á þessu
hausti eru Hermann Hreiðarsson
og Fabien Wilnis.
Markvörðurinn, Richard
Wright (23 ára), þykir af mörgum
líklegur til að taka upp landsliðs-
hanskana þegar gömlu brýnin Da-
vid Seaman og Nigel Martyn
leggja þá frá sér. Hann hefur þeg-
ar leikið fyrir Englands hönd.
Wright er líkast til verðmætasti
leikmaður félagsins í dag og hefur
eftir heldur brösuga byrjun í úr-
valsdeildinni vaxið af verkum sín-
um.
Burley teflir fram þremur mið-
vörðum. Hermann Hreiðarsson
(26) þarf ekki að kynna fyrir les-
endum Morgunblaðsins. Mark
Venus (33) er varnarmaður af
gamla skólanum, fastur fyrir en
seinn á sprettinum. Sterkur í loft-
inu og annáluð aukaspyrnuskytta.
John McGreal (28) hefur verið
þriðji maðurinn í vörninni í síð-
ustu leikjum. Ekki besti maðurinn
á boltanum en frábær yfirfrakki.
Titus Bramble (19) sló í gegn í
haust en hefur verið í kælingu síð-
ustu vikur. Harður tæklari, lipur
ineð knöttinn og marksækinn af
miðverði. Efnilegri varnarmann
er vart að finna.
Vængverðirnir tveir, Fabien
Wilnis (30) og Jamie Clapham (25),
hafa farið á kostum í vetur. Hol-
lendingurinn Wilnis er fljótur og
fylginn sér hægra megin og
kryddar leik sinn með mörkum,
meðal annars á elleftu stundu
gegn Coventry í deildinni. Vinstri-
vængvörðurinn Clapham er líka
jafnvígur á vörn og sókn. Hefur
fínt vald á fyrirgjöfum og skæður
upp við markið í þokkabót. Bank-
ar nú fast á landsliðsdyrnar.
Fyrirliðinn, Matt HoIIand (26),
ræður ríkjum á miðjunni. Kraft-
mikill, dreifir boltanum vel og læt-
ur fyrir sér finna. írskur landsliðs-
maður. Gamla kempan Jim
Magilton (31) er hið skapandi afl á
miðjunni. Norður-írskur landsliðs-
maður með mikla reynslu úr úr-
valsdeildinni. Þriðji maðurinn á
þeim slóðum, Jermaine Wright
(25), ai'ftaki Kierons Dyers, hefur
vakið athygli fyrir jafna leiki í vet-
ur, flinkur og framsækinn. Af
varamönnum má nefna Hollend-
inginn Martijn Reuser (25) sem
var Ipswich hvalreki á liðinni leik-
tíð. Fljótur og sókndjarfur.
Helsti framherji Ipswich á leik-
tíðinni er Marcus Stewart (25).
Hefur gert níu mörk. Sterkur,
skalli góður og fyrirferðarmikill í
teignum. Einnig ógnandi á lengra
færi. Hefur sýnt og sannað að
hann getur gert mörk í úrvals-
deildinni. James Scowcroft (25)
lúrir fyrir aftan Stewart. Staða
sem virðist henta honum vel.
Drjúgur við að leggja upp mörk
en mætti skora meira sjálfur. Að-
eins með tvö mörk í vetur.
Richard Naylor (23) hefur lcyst fé-
lagana af hólmi. Kraftmikill mið-
herji með gott vald á knettinum.
George Burley, hinn skoski
knattspyrnustjóri Ipswich.
Vonbrigði vetrarins er David
Johnson (24), markakóngur
Ipswich undanfarin ár. Þessi smái
en snöggi framherji hefur engan
veginn fundið sig í úrvalsdeild-
inni. Ekki komist þar á blað og
Burley lætur hann verma vara-
mannabekkinn í deildarleikjum
um þessar mundir. Johnson hefur
þó gert þrjú mörk í deildabikarn-
um.