Morgunblaðið - 05.12.2000, Side 8
8 D ÞRIÐJUDAGUR 5. DESEMBER 2000 MORGUNBLAÐIÐ 1 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 5. DESEMBER 2000 D 9
HANDKNATTLEIKUR HANDKNATTLEIKUR
Eyjamenn stóðu
í Haukunum
Guðmundur
Hilmarsson
skrifar
ÍSLANDSMEISTARAR Hauka eru
ekkert á því að láta toppsætið af
hendi en þeir höfðu betur gegn
ÍBV, 29:26, á heimavelli sínum
um helgina. Eyjamenn veittu
meisturunum kröftuglega mót-
spyrnu og sigur Haukanna var
ekki tryggður fyrr en á lokamín-
útum leiksins.
Fyrsta mark leiksins lét á sér
standa en það kom ekki fyrr en
eftir sjö mínútur þegar Jón Andri
Finnsson skoraði
fyrir Eyjamenn úr
vítakasti. Haukamir
voru afar lengi að
finna taktinn, vörn-
in var frekar slök og sóknin hálfbit-
laus með Halldór Ingólfsson á
bekknum. Eftir stundarfjórðung
skipti Viggó Sigurðsson, þjálfari
Hauka, Halldóri inn á og um leið
lagaðist sóknarleikur liðsins Eyja-
menn höfðu frumkvæðið allan fyrri
hálfleikinn og leiddu eftir fyrri hálf-
leikinn með einu marki, 11:12.
Haukarnir komu grimmari til
leiks í seinni hálfleik. Þeir komust
yfir í fyrsta sinn eftir fjögurra mín-
útna leik en þeim gekk illa að hrista
baráttuglaða Eyjamenn af sér.
Leikurinn var á járnum en í stöð-
unni, 26:24, varð vendipunkturinn.
Eyjamenn misstu Mindaugas
Andriauksas út af með rautt spjald
og í stað þess að minnka muninn í
eitt mark brunuðu Haukamir upp
og náðu þriggja marka forskoti og
þar með var ljóst í hvað stefndi.
Það voru greinileg þreytumerki á
liði Haukanna og sá kraftur og
hraði sem einkenndi liðið framan af
móti sást lítið. Evrópuleikir Hauka
hafa eðlilega haft sitt að segja en
eins og liðið lék í þessum leik virk-
aði það á hálfri ferð. Rúnar Sig-
tryggsson var mjög traustur. Hann
gerði fáar skyssur og skoraði mörk
á mikilvægum augnablikum. Þor-
varður Tjörvi Ólafsson og Halldór
Ingólfsson léku báðir vel og vom at-
kvæðamiklir í sókninni.
Eyjamenn áttu í fullu tré við
Haukana en gáfu eftir á lokasprett-
inum. Erlingur Richardsson og
Aurimas Frovolas léku best í liði
IBV og þá varði Gísli Guðmundsson
ágætlega í markinu.
„Það er einhver þreyta í liðinu og
ég veit ekki nema menn séu að bíða
eftir Evrópuleikjunum gegn Sande-
fjord. Við lékum alls ekki vel og töp-
uðum með svipaðri spilamennsku
gegn KA fyrir norðan. Við þurftum
að hafa mikið fyrir þessum sigri
eins og maður þarf yfirleitt að gera
gegn IBV. Eyjamennirnir vora að
berjast vel en sóknarleikurinn hjá
þeim var hálfmáttlaus og það var
frekar auðvelt að spila gegn þeim í
vörninni,“ sagði Rúnar Sigtryggs-
son, leikmaður Hauka, við Morgun-
blaðið eftir leikinn en Rúnar gerði
sér lítið fyrir og skoraði síðasta
mark leiksins beint úr aukakast.
„ALLIR leikir á íslandsmótinu eru erfiðir og við getum ekki leyft
okkur að slaka á eitt augnablik. Okkar styrkur er liðsheildin og við
vitum að allir leikmenn verða að leggja sitt af mörkum til að skapa
gott lið sem vinnur vel saman," sagði Maxim Fedioukine, leikmaður
Fram, eftir sigurleik liðsins gegn Stjörnunni. Leikur Fram og Stjörn-
unnar bauð upp á skemmtileg tilþrif og Njörður Árnason stóð sig vel
í skyttuhlutverkinu hjá Fram í fjarveru Hjálmars Vilhjálmssonar.
Stjarnan byrjaði leikinn illa og skoraði aðeins fjögur mörk úr 18
fyrstu sóknum liðsins á meðan Framliðið nýtti sínar sóknir betur. í
hálfleik var munurinn þrjú mörk heimaliðinu í vil, 15:13, og þrátt
fyrir ákafar tilraunir gestanna til að jafna héldu leikmenn Fram
haus og lokatölur leiksins urðu 28:25.
Leikmenn Fram voru betri í vörn
og sókn þegar á heildina er litið
og gerðu færri mistök en gestirnir
úr Garðabænum.
Anatoli Fedioukine
setti son sinn Max-
im í hægra hornið
og Njörður var í
hlutverki skyttu. Báðir leikmennirn-
ir leystu sín hlutverk með sóma og
Njörður gaf tóninn fyrir Fram með
því að skora sex af sjö mörkum sín-
um í fyrri hálfleik. Gunnar Berg
Sigurður Etvar
Þórólfsson
skrifar
Viktorsson og Guðjón Drengsson
vora einnig ógnandi á vinstri
vængnum og sú ógn sem þessir leik-
menn sköpuðu gerði það að verkum
að leikmenn Stjömunnar náðu
aldrei að stoppa í götin í vörninni.
Maxim Fedioukine sýndi hversu
fjölhæfur leikmaður hann er með
því að skora þrjú af fimm mörkum
sínum með vinstri hendi og var ekki
merkjanlegur munur á færni pilts-
ins í skotum hans með vinstri eða
hægri. Varnarleikur Stjömunnar
Morgunblaðið/Ámi Sæberg
Gunnar Berg Viktorsson sendir knöttinn inn á línuna til Maxims
Fedioukine.
Morgunblaðið/Arni Sæberg
Baráttan skilaði
Mosfellingum sigri
BARÁTTA og leikgleði skilaði Aftureldingu sigri á Val að Varmá á sunnu-
daginn, 27:22. Þar með komst Afturelding upp í þriðja sæti í deildarinnar
þar sem liðið hefur hagstæðari markatölu en hin fjögur liðin sem einnig
hafa krækt í 12 stig í að lokinni fyrri umferð mótsins. Valsliðið virðist hins
vegar vera í kreppu um þessar mundir eftir ágæta byrjun á íslandsmót-
inu, það hélt í við Mosfellinga og rúmlega það á stundum í 45 mínútur en
tapaði síðan alveg áttum. Staðan í hálfleik var jöfn, 13:13.
Heimamenn byrjuðu leikinn að
Varmá af miklum krafti, 5+1 vöm
þeirra var sterk þar sem Hjörtur Arnar-
son lék fremstur og
lvar gerði leikstjómanda
Benediktsson Vals> Snorra Guðjóns-
skrífar son, nær alveg óvirkan.
Þar með lamaðist sókn-
arleikur Vals, skytturnar, Daníel Ragn-
arsson og Júlíus Jónasson náðu sér ekki
á strik og hornamennirnir vora tilþrifa-
litlir. Á sama tíma gekk sóknarleikur
Aftureldingar eins og vel smurð vél
gegn 5+1 vöm Vals. Eftir tíu mínútur
var staðan 6:3 og allt útlit fyrir að Mos-
fellingar myndu hafa auðveldan sigur.
Sú varð ekki raunin, Valsmenn náðu
heldur að bíta frá sér, jafna leikinn og
komst yfir fyrsta sinni, 9:8, eftir liðlega
20 mínútna leik. Munaði þar mest um að
Markús Michalesson kom inn í sóknar-
leik Vals. Þar fer piltur sem þorir að
taka af skarið og gerir það sem hann
langar til og það sem meira, hefur get-
una til þess. Valsmenn skoraðu sex
mörk í röð meðan allur vindur var úr
heimamönnum sem virtust giipnir
kæraleysi. Síðustu tíu mínúturnar var
leikurinn í járnum en einhvern veginn
virtist svo vera sem Mosfellingar ættu
meira inn en þeir sýndu.
Geir Sveinsson skipaði lærisveinum
sínum í 6-0 vöm þegar sýnt var að 5+1
vörninn hreif skammt. Sjálfur lék hann
stórt hlutverk í vörninni ásamt sínum
forna félaga, Júlíusi Jónassyni. Breytt
vörn og barátta kveikti vonir Vals í byrj-
un síðari hálfleik. Tvö mörk úr hraða-
upphlaupum frá Valgarð Thoroddsen
komu Val í tveggja marka forystu, 16:14,
og næstu mínútur voru piltamir frá
Hlíðarenda með framkvæðið. Hættu-
merkin í sókn þeirra vora þó enn fyrir
hendi. Daníel og Júlíus réðu alls ekki við
hlutverk sitt og er óhætt að segja að
Dam'el hafði algjörlega tapað áttum því
lengra sem leið á leikinn. Vörn Aftureld-
ingar efldist við hverja raun og Reynir
Þór Reynisson færðist í aukana og tók
að verja allt hvað af tók. Markús kom
inn í sókn Vals og skoraði 20. mark liðs-
ins en eftir það áttu hann og samherjar
tíu upphlaup í röð sem öll fóra í súginn.
Á sama tíma fékk Afturelding byr í segl
sín og leiðir skildi. Geir átti enga ása
uppi í erminni til þess að snúa spilinu sér
í hag, þess í stað stóðu hans menn ráð-
þrota og fylgdust með Mosfellingum
skora mörk eins og þá lysti.
Það var allt annað að sjá til leikmanna
Aftureldingar lengst af þessum leik en í
mörgum fýrri viðureignum þeirra fyrr á
leiktíðinni. Leikmenn hafa vilja og bar-
áttu auk þors til þess að vinna. Sam-
heldni liðsheildarinnar var ríkjandi og
leikgleði greinileg. Vörn, markvarsla á
köflum stórgóð og sóknarleikurinn fjöl-
breyttur. Með þessu áframhaldi eru lið-
inu flestir vegir færir.
Þetta var alls ekki í fyrsta skipti á
leiktíðinni sem Valsmenn standa ráð-
þrota þegar leikstjómandi þeirra, er
tekinn úr umferð, eða „klipptur" úr
leiknum. Samt sem áður lítur út fyrir að
þjálfari liðsins hafi ekki fundið lausnina
við þeim vanda, hafi hún fundist er
a.m.k. alveg skýrt að honum hefur ekki
tekist að miðla henni til lærisveina sinna.
Sóknarleikurinn verðui- fyrir bragðið
einkar dapur og einhæfur þar sem ætl-
ast er til þess að Júh'us Jónasson leysi
allan vanda. Þótt hann sé á tíðum ekki
maður einhamur er honum það algjör-
lega um megn þótt hann kunni að hafa
getað gert það fyrir nokkram árum.
Markús komst best frá leiknum af sókn-
armönnum og hefði að ósekju mátt leika
stærra hlutverk í sókninni á kostnað Júl-
íusar. Daníel var úti á þekju og sama má
segja um Valdimar Grímsson í horninu.
Ef marka má frammistöðu hans að
þessu sinni fer þar leikmaður sem svo
sannarlega má muna sinn fifil fegri.
Valgarð skipti við Valdimar og lék lung-
ann af síðari hálfleik og bætti það nokk-
uð úr skák hjá gestunum.
Vörn Vals var nokkuð þokkaleg lengst
af en þegar á leið og krafta lykilmanna
tók að þverra fjaraði undan henni með
þeim afleiðingum að leikmenn Aftur-
eldfingar átti greiða leið að mai’ki.
Hlutskipti Aftureldingai’ og Vals er
ólíkt um þessar mundii’. Hið fyrrnefnda
virðist á mikilli uppleið á flestum sviðum
eftir að hafa hlotið hvert brotið í ölduróti
íyrstu umferðanna. Á sama er gæfta-
leysi hjá Val. Þar era hins vegar reyndir
skipstjórar við stýrið sem marga fjörana
hafa sopið, Geir og Júlíus. Hafa þeir alla
burði til þess að stýra skútu sinni fram-
hjá boðum, gegnum öldurótið og út á hið
lygna haf.
small ekki alveg saman að þessu
sinni en í stöðunni 13:7 tók Eyjólfur
Bragason, þjálfari Stjörnunnar,
leikhlé og breytti um varnarleik úr
6:0 í 3:3. Einar Einarsson kom þá
inn í vöm Stjörnunnar og á þeim
kafla náði Stjarnan að minnka mun-
inn í tvö mörk, 15:13. Þessi sprettur
Stjörnunnar dugði skammt því leik-
menn Fram náðu að lesa betur varn-
artilburði gestanna í seinni hálfleik
og sigur þeirra var aldrei í hættu.
Magnús Sigurðsson lék vel í vörn og
sókn fyrir Stjörnuna og Birkir Ivar
Guðmundsson varði ágætlega.
Bjarni Gunnarsson var mistækur á
upphafsmínútum leiksins og náði
sér ekki á strik í stöðu vinstri
skyttu. Það komu aðeins 2 mörk í
leiknum frá leikmönnum Stjörnunn-
ar sem léku fyrir utan vinstra meg-
inog lítil ógnun gerði það erfiðara
um vik að koma boltanum á hinn
snjalla línumann Eduard Moskal-
enko. Konráð Olavson lék töluvert
en á langt í land með að ná fyrri getu
en Björgvin Rúnarsson átti ágætis
spretti en hvarf þess á milli. Sigurð-
ur Viðarsson var ógnandi en hann
átti ágætis leik og Einar Einarsson
er greinilega mikilvægur hlekkur í
varnarleik liðsins. Arnar Pétursson
var aftur á móti frekar daufur og
hefur oft verið meira ógnandi. Liðs-
heild Fram var mun sterkari og þar
á bæ voru flestir leikmenn ógnandi
og gerðu varnarmönnum gestanna
erfitt fyrir. Með sigrinum er Fram
enn í 2. sæti deildarinnar með 18
stig eftir 11 umferðir og tveimur
stigum á eftir toppliði Hauka.
Stjarnan er í 3. neðsta sæti með 8
stig og er aðeins einum sigri frá 8.
sætinu sem tryggir farseðil í úrslita-
keppnina.
„Við náðu ekki að leika eins og
lagt var upp með. Varnarleikur liðs-
ins var slakur og þar liggur munur-
inn á liðunum í þessum leik. Að mínu
mati leystum við það vel þegar
Fram klippti út vinstri vænginn hjá
okkur og þá skapaðist rými fyrir
aðra leikmenn sem við nýttum ágæt-
lega en það dugði ekki til þar sem
vörnin var hriplek," sagði Sigurður
Viðarsson, fyrirliði Stjörnunnar.
Njörður Árnason lék vel með
Fram. Hér sækir hann að
marki Stjörnunnar - Einar
Einarsson til varnar.
Jafnvígur á
hægri og vinstri
Eftir
Sigurð Elvar
Þórólfsson
mótsins í
Það vakti undran blaðamanns að
sjá Maxim Fedioukine í hægra
hominu hjá Fram gegn Stjörnunni á
sunnudagskvöld,
enda hafði Maxim
leikið í vinstra horn-
inu í fyrstu 10 um-
ferðum íslands-
handknattleik. Ungi
Rússinn lét fara lítið fyrir sér í fyrri
hálfleik og skoraði þá eitt mark af
línu með hægri en í seinni hálfleik
fóra hlutirnir að gerast. Fyrstu tvö
mörkin í seinni hálfleik skoraði Max-
im með vinstri hendi úr erfiðum fær-
um úr hægra horninu og sýndi þar
tilburði sem era sjaldséðir í íslensk-
um handknattleik og síðar bætti
Maxim tveimur mörkum, því fyrra
með vinstri úr hægra horninu og því
síðara með hægri eftir hraðaupp-
hlaup.
Að leik loknum spurði blaðamaður
Maxim hvernig stæði á því að hann
væri jafnvígur á báðar hendur?
„Þetta byrjaði allt saman í ein-
hverjum fíflalátum hjá mér heima í
Rússlandi. Pabbi, (Anatoli Fediouk-
ine, þjálfari Fram), var reyndar
jafnvígur á báðar og hann var alltaf
að segja við mig að æfa vinstri hönd-
ina. Fyrst var þetta ósköp lélegt hjá
mér, samhæfingin var ekki til staðar
og skotin vora slök og kraftlaus. En
þegar ég var um það bil 12 ára gam-
all fékk ég sérstakar æfingar frá
föður mínum og framfarirnar urðu
miklar á frekar stuttum tíma. Þegar
þetta fór að ganga betur varð
áhuginn meiri hjá mér að gera enn
betur og þegar ég var valinn í ungl-
ingalandslið Rússlands var ég jafn-
vígur á báðar hendur.
Eru einhverjir fleiri sem þú veist
um sem eru gæddir þessum sama
eiginleika?
„Já, ég var að leika gegn einum í
kvöld en það er David Kekelia, leik-
maður Stjörnunnar. Við vorum sam-
an í unglingalandsliðinu á sínum
tíma og þar gat hann notað hægri og
vinstri en ég held að hann sé búinn
að gleyma hvernig á að nota hægri
höndina núna.
Er ekkert crfítt að leika undir
stjórn þjálfara sem jafnframt er fað-
irþinn?
Það er mjög erfitt en við erum
báðir að þroskast með aldrinum og
við getum orðað það þannig að heim-
ilislífið sé með ágætum og við ríf-
umst ekki meira en aðrir feðgar,“
sagði Maxim og brosti jafnframt
glettnislega.
Sigur Fram
aldrei í hættu
Tíu mörk hjá Gunnari
GUNNAR Andrésson skoraði 10 mörk, ekkert þeirra úr víta-
kasti, er liðs hans Amictia Ziirich krækti í jafntefli við St.
Otmar, 32:32, í svissnesku úrvalsdeildinni í handknattleik um
helgina. Leikurinn var í járnum allan tímann en það var Norð-
maðurinn Roger Kjendalen sem jafnaði metin fyrir Amitica á
elleftu stundu. Kjendalen er jafnframt þjálfari liðsins.
„Eg er afar sáttur við frammistöðu okkar að þessu sinni.
Þau eru ekki mörg liðin sem fara vinna stig frá heimavelli St.
Otmar. Liðið er sterkt, er bikarmeistari og hefur auk þess
leikið til úrslita um svissneska meistaratitilinn undanfarin tvö
ár,“ sagði Gunnar við Morgunblaðið í gær.
Suhr komst í efsta sæti deildarinnar, hefúr 19 stig að lokn-
um 12 umferðum, en tvær umferðir eru eftir fram að ára-
mótum. St. Otmar er í öðru sæti með 18 stig en Gunnar og
samherjar hafa 13 stig í 8. sæti, en sex efstu liðin komast í úr-
slitakeppni sem hefst eftir áramót. Tólf lið leika í deildinni.
Þau lið sem verða í sæti sjö til tólf leika við sex þau efstu í ann-
arri deild.
Keppnin í úrvalsdeildinni er mjög jöfn og segir Gunnar að
leikurinn við Pfadi Winterthur annað kvöld sé nánast úrslita-
leikur fyrir bæði lið um að komast í sex liða úrslitin. Wint-
erthur er í sjötta sæti, með 14 stig. Leikurinn fer fram í Zúr-
ich á heimavelli Amitica.
Bergsveinn
sáum HK
Bergsveinn Bergsveinsson, markvörður FH, hafði góð tök á leik-
mönnum HK í Digranesi á laugardag, þar sem Bergsveinn varði
rúmlega 30 skot en varnarleikur FH var frekar slakur framan af
leiknum. Eftir ágætan fyrri hálfleik þar sem HK hafði tveggja
marka forskot, 11:9, hrundi sóknarleikur HK í seinni hálfleik og
fjarvera Sverris Björnssonar á þeim kafla veikti verulega sókn-
artilburði HK. Páll Ólafsson, þjálfari HK, hefur tekið þann kost-
inn að kalla inn tvo gamla refi og að þessu sinni var það Sigurð-
ur Sveinsson sem lék í seinni hálfleik en Birgir Sigurðsson kom
ekkert við sögu. Hafnarfjarðarliðið náði yfirhöndinni í lokakafla
leiksins og sigraði með 21 marki gegn 15. «
Sigurður Elvar
Þórólfsson
skrifar
Innkoma Sigurðar Sveinssonar í lið
HK breytti litlu fyrir sóknarleik
liðsins og í raun furðulegt að Páll Ól-
afsson skuli treysta á
rúmlega fertugan,
æfingarlausan leik-
mann. Bæði lið vora
bitlítil í sóknarleik
sínum eins og lokatölur leiksins gefa
. til kynna. Markverðimir Hlynur Jó-
hannesson, HK, og Bergsveinn
Bergsveinsson, FH, léku af eðlilegri
getu og vörðu vel, en þess má geta að
leikmenn HK fengu í tíu skipti bolt-
ann aftur eftir að Bergsveinn hafði
varið frá þeim og samt sem áður eru
15 mörk afrakstur leiksins - af-
spyrnulélegt.
Héðinn Gilsson og Sigurgeir Æg-
isson voru í skyttuhlutverkunum í
liði FH og Valur Amarsson var á
miðjunni. Þeir félagar skoraðu
fyrstu þrjú mörk FH með langskot-
um og vora greinilega sáttir við það
því þeir ógnuðu lítið sem ekkert eftir
það. Guðmundur Pedersen og Hálf-
dán Þórðarson vora í vinstra horni
og á línu og skoraði sá fyrrnefni
fimm mörkn í seinni hálfleik, flest úr
hraðaupphlaupum og var besti mað-
ur liðsins ásamt Bergsveini. Guð-
mundur Karlsson, þjálfari FH, var
oftar en ekki ósáttur við leik sinna
manna, og á lokakafla leiksins var
daufur sóknarleikur liðsins honum
mikið hyggjuefni. Leikmenn HK
vora sem svart og hvítt í fyrri og
seinni hálfleik. Sverrir Bjömsson er
miðpunktur sóknarleiks liðsins og
eftir að hann varð fyrir meiðslum í
upphafi seinni hálfleiks var vand-
fundinn sá leikmaður í Kópavogslið-
inu sem hreinlega vildi skjóta á
markið. Samúel Árnason var þó ógn-
andi í hægra horninu en var með
skelfilega nýtingu á skotum sínum
og Kúbverjinn, Garcia, þarf tíma og
pláss til að athafna sig og hann fékk
hvoragt gegn varnarmönnum FH. I
heildina var leikur liðanna ekki eftir-
minnilegur og greinilegt að lið HK er
brothætt. Endurkoma Sigurðar
Sveinsson orkar tvímælis og er í
raun og vera mjög skýr skilaboð til
leikmanna HK um að þeir þurfa að
leggja meira á sig. Frá samkeppnis-
sjónarmiðinu er það stór spurning
hvort hinn almenni áhugamaður um
handknattleik gefi sér tíma til að
fara á leiki sem eru í þessum gæða-
flokki og finni sér þess í stað eitthvað
annað að gera. Það hlýtur einnig að
vera áhyggjuefni fyrir þjálfara lið-
anna, Pál og Guðmund, hversu slak-
ur sóknarleikurinn vai’ og margt
þarf að laga í þeim efnum. Með sigr-
inum þokaðist FH nær toppi deildar-
innar og er með 12 stig en staða HK
versnaði töluvert með 9. tapleik
tímabilsins og er liðið það næsta fyr-
ir ofan botnlið Breiðabliks. Með
þessu áframhaldi verður erfitt að sjá
að Kópavogur eigi handknattleikshð
í efstu deild á næsta keppnistímabili.
FOLK
■ PÁLL Þórólfsson lék ekki með
Aftureldingu gegn Val á sunnudag-
inn. Páll tognaði í aftanverðu
vinstra læri í bikarleiknum við FH í
síðustu viku og hafði ekki jafnað sig
þegar á hólminn var komið á sunnu-
daginn.
■ PETR Bamrauk, harðjaxlinn í liði
íslandsmeistara Hauka, gat ekki
leikið með sínum mönnum gegrf
ÍBV. Bamrauk fékk flensuna og hef-
ur verið rúmfastur í nokkra daga.
Þetta var aðeins þriðji leikurinn á
10 ára ferli Bamrauks með Haukum
sem hann missir af.
■ KA var með 10 leikmenn 22 ára og
yngri í leiknum gegn ÍR og notaði 7
þeirra. Aðeins Litháarnir tveir og
þeir Erlingur Kristjánsson og fyrir-
liðinn Sævar Árnason era eldri.
Aldursforseti liðsins, Erlingur
Kristjánsson, er 22 árum eldri en sá
yngsti, hinn sextán ára gamli Arnór
Atlason, sem lék talsvert með.
■ HJÁLMAR Vilhjálmsson lék ekki
með Fram gegn Stjörnunni þar sem
hann var staddur í Kanada í tengsl-
um við atvinnu sína. Hjálmar verð-
ur klár í slaginn í næsta leik liðsins
þar sem lið FH mætir í Safamýrina.
■ MAGNÚS Arnar Arngrímsson
var í leikmannahópi Fram að nýju
eftir meiðsl en hann kom ekkert við.
sögu í leiknum gegn Stjörnunni.