Morgunblaðið - 05.12.2000, Qupperneq 10

Morgunblaðið - 05.12.2000, Qupperneq 10
MORGUNBLAÐIÐ 10 D ÞRIÐJUDAGUR 5. DESEMBER 2000 , HANDKNATTLEIKUR Alfreð og læri- sveinar að gefa eftir? KA-leikmaðurinn Ciedrius Cermianskas á hér í höggi við ÍR-inginn Ólaf Sigurjónsson. Morgunblaðið/Ami Sæberg „Við vildum sýna hvað við gætum“ KA vann mikilvægan og verðskuldaðan sigur á ÍR, 23:21, í baráttu- leik tveggja iiða sem voru jöfn að stigum þegar flautað var til leiks hjá þeim í Austurbergi á sunnudagskvöldið. Þar sannaðist enn kenningin um sigur og tap í tveimur leikjum sömu félaga í röð í bik- ar og deild því ÍR hafði betur í bikarleik liðanna á sama stað fjórum dögum áður. KA er með þessum sigri í efri hluta deildarinnar þegar mótið er hálfnað en ÍR-ingar sitja eftir í hinu lítt þokkaða níunda sæti. MAGDEBURG tapaði sínum öðr- um leik í vetur í þýsku úrvals- deildinni í handknattleik um helgina. Mageburg sótti Wetzlar heim og mátti þola tap, 27:25, og var þetta annar tapleikur liðsins í síðustu þremur leikjum. Þrátt fyrir tapið eru lærisveinar Alfreðs Gíslasonar í efsta sæti deildarinnar með 24 stig en staðan á toppnum er æsispenn- andi því Flensburg og Wallau Massenheim eru með sama stigafjölda og Magdeburg. ^^lafur Stefánsson lék vel með Magdeburg og var marka- hæstur með 9 mörk en Sigurður Bjarnason skoraði eitt mark fyrir Wetzlar. Patrekur iðinn við kolann Patrekur Jóhannesson og félag- ar hans í Essen eru á miklu skriði en sigur liðsins á útivelli gegn Minden var sjá sjöundi í síðustu átta leikjum og liðið hefur blandað sér af alvöru í toppbaráttuna. Pat- rebur var markahæstur í liði Ess- en með 6 mörk, þar af voru þrjú af vítalínunni. Gústaf Bjarnason skoraði 3 mörk fyrir Minden sem gengur frekar illa en liðið er í 12. sæti deildarinnar með 13 stig. Óvæntur sigur Dormagen Óvæntustu úrslit helgarinnar urðu í Nordhorn þar sem heima- menn biðu lægri hlut fyrir Dorm- agen, 28:25. Róbert Sighvatsson átti mjög góðan leik í liði Dormag- en og skoraði sex mörk en Dorm- agen undir stjórn Guðmundar Guðmundssonar komst með sigrin- um upp í 17. sæti deildarinnar eft- ir ágæt gengið í undanförnum leikjum. Hinn 39 ára gamli Jochen Fra- atz var markahæstur í liði Nord- horn með 10 mörk en níu þeirra komu af vítalínunni. Wuppertal á botninum Wuppertal er í næst neðsta sæti deildarinnar með aðeins fjögur stig en liðið steinlá fyrir Lemgo á útivelli, 25:18. Dmitri Filippow var atkvæðamestur í liði Wuppertal með 8 mörk en Heiðmar Felixsson var ekki á markalistanum. Leikurinn byrjaði af hörku en Blikum tókst samt að mestu að halda einbeitingunni á leiknum og það skilaði þeim for- 'Sfefán ystu. Heimamenn Stefánsson reyndu hvað þeir skrifar gátu en voru ekki mjög sannfærandi þó alls ekki verði tekið af Blikum að þeir voru góðir. Það var helst hinn ungi og snari leikmaður Aleksandr Peterson sem hélt Gróttu/KR inni í leiknum með glæsilegum mörkum á fjölbreyttan hátt. Eftir tuttugu mín- útna leik, þegar staðan var 9:11 Atli Hilmarsson, þjálfari KA, var ánægður með leik sinna manna en sagði við Morgunblaðið að hann hefði frek- Vjðjr ar viljað skipta á Sigurðsson sigrum og komast skrifar lengra í bikarnum. „Við vorum svekktir yfir slökum leik okkar á miðvikudaginn og vildum sýna hvað við gætum hér í kvöld. Strák- arnir komu vel stemmdir til leiks og ég er sérstaklega ánægður með hve vel þeir leystu sóknarleikinn, Kópavogsliðinu í hag, kom hrikaleg- ur kafli þegar þeim tókst aðeins að skora eitt mark í sjö sóknum. Boltinn fór þrívegis í stangimar og Andrei Lazarev vamarjaxl og línumaður þeirra fékk rautt spjald fyrir smáar ef einhverjar sakir enda vora dómar- ar fyrst ekki sammála um hvort dæmi ætti línu eða vítakast. Við þetta snerist taflið við og í hlut gest- anna kom að berjast við að vinna upp forystu heimamanna. Það gekk nokkram sinnum upp en það spillti fyrir þeim þegar Zoltan Belanyi sýndi algert dómgreindarleysi þegar líka í erfiðum stöðum í seinni hálf- leiknum, og vörnin var sterk þó við misstum aðeins dampinn þar þegar leið á fyrri hálfleikinn. Það var kominn tími til að sigra IR hér í Breiðholtinu, það hafði ekki tek- ist í fjögur ár, og eins og deildin hefur spilast til þessa era stigin afar dýrmæt," sagði Atli. Lærisveinar hans voru greini- lega staðráðnir í að hefna harma sinna því þeir komu mun grimmari til leiks en heiman enn, náðu fljót- lega undirtökum sem þeir héldu hann vítakast á kæralausan hátt og var síðan vikið réttilega af velli fyrir láta sem hann ætlaði að kasta boltan- um í andlit mótherja. Um miðjan síð- ari hálfleik náði Grótta/KR fimm marka forskoti, sem þeir héldu fram á síðustu mínútu. „Við hömraðum á því fyrir leikinn að við mættum ekki vanmeta Blik- ana en samt gerðist það,“ sagði Hilmar Þórlindsson, sem átti góðan leik og mörk hnitmiðuð þrumuskot, sem gladdi stuðningsmenn mikið. „Við vanmátum þá alltof mikið en áttuðum okkur svo á að við þyrftum að hafa fyrir þessum tveimur stigum og bættum okkar leik til að ná þeim. Það þurfti reyndar ekki mikið en við spiluðum okkar lélegasta leik í vetur sem skilaði okkur þó tveimur stig- um,“ bætti Hilmar við. Aleksandr Peterson átti mjög góðan leik og allan fyrri hálfleikinn og voru jafn- an einu til þremur mörkum yfir. Ingimundur Ingimundarson hélt ÍR inni í leiknum með því að skora 5 af fyrstu 7 mörkum liðsins með þrumufleygum utan af velli en aðr- ir áttu erfitt uppdráttar gegn sterkri vörn KA. Norðanmenn áttu greiðari leið í gegnum vörn ÍR og nýttu sín færi betur. Markvarsla ÍR-inga var á núlli allan fyrri hálf- leik og markverðir liðsins vörðu samtals eitt einasta skot allan hálf- leikinn. Samt náði IR að jafna, 12:12, tæpri mínútu fyrir leikslok og KA missti um leið mann af velli en Atli svaraði því með því að taka leikhlé og leggja upp laglega fléttu sem Cerniauskas batt endahnútinn á og færði Akureyrarliðinu for- ystu, 13:12, þegar 10 sekúndur lifðu af hálfleiknum. I byrjun seinni hálfleiks hrökk Magnús Arnar Magnússon var sterkur í vörninni. „Við áttum í fullu tré við þá allann og gáfumst aldrei þó að þeir hafi ver- ið nokkram mörkum yfir,“ sagði Rósmundur Magnússon, fyrirliði og markvörður Breiðabliks, sem varði 21 skot og var ekki sáttur við störf dómara. „Það var hrikalegt að missa okkar besta varnarmann út af fyrir eiginlega ekki neitt og svo var líka verið að taka af okkur mörk með því að segja að við höfum verið lentir í skotinu. Við voram alltof mikið rekn- ir út af á meðan þeir fengu að berja okkur allann leikinn.“ Lazarev var góður á meðsn hans naut við og Hall- dór Guðjónsson og Gunnar B. Jóns- son vora góðir. Slavisa Rakanovis átti nokkur ágæt skot en líka mörg slök svo ungir drengir fengu að spreyta sig og gerðu það vel. markvarslan í lag hjá ÍR þegar Hallgrímur Jónasson varði þrjú fyrstu skot KA-manna, þar af eitt vítakast. KA skoraði ekki fyrstu 8 mínúturnar og IR náði forystunni, 14:13. Það gerðist ekki aftur, KA með línumanninn Andrius Stelm- okas og hinn fjölhæfa Guðjón Val Sigurðsson í aðalhlutverkum komst strax yfir á ný og þrjú mörk þeirra félaga í röð eftir miðjan hálfleikinn færði KA 20:17-forystu og tök á leiknum sem liðið lét ekki af hendi. IR-ingar minnkaði mun- inn í 23:21 þegar 95 sekúndur voru eftir og freistuðu þess að elta KA- menn út um allan völl. Vonin var enn til staðar þegar Halldór Sigfússon fékk rautt spjald fyrir gróft brot 43 sekúnd- um fyrir leikslok en Flóki mark- vörður KA varði skot ÍR-inga í kjölfarið og þar með var norðanlið- ið með bæði stigin í höndunum. Hjá KA var liðsheildin betri en hjá heimamönnum en þeir Stelm- okas og Guðjón Valur stóðu samt uppúr og báru liðið í gegnum erf- iðustu kaflana í sóknarleiknum. Stelmokas sýndi snilldartakta, skoraði 9 mörk úr 10 skotum, mörg úr erfiðum stöðum á línunni og yfirleitt eftir glæsisendingar Guðjóns Vals og Halldórs. Grimmur varnarleikur kostaði lið- ið sex brottvísanir á meðan IR- ingar voru aldrei reknir af velli en það sást varla munur á hvort fimm eða sex stæðu í vörn KA hverju sinni. ÍR-ingar voru einhæfari í sínum leik en um þá verður ekki annað sagt en að þeir hafi langskyttur innan sinna raða. Þeir gerðu 11 mörk utan af velli, ríflegan helm- ing sinna marka, og þar fór Ingi- mundur fremstur í flokki en eftir góðan leik framan af var hann í stífri gæslu. Hinir örvhentu Er- lendur Stefánsson og Einar Hólm- geirsson geta líka skorað glæsi- mörk með langskotum en Er- lendur mætti þó ógna meira. Besti leikur Blika dugði ekki BLIKAR léku eflaust einn af sínum bestu leikjum í vetur þegar þeir sóttu Gróttu/KR heim á Seltjarnarnesið á sunnudaginn. Það dugði þó ekki til því heimamenn sigruðu 31:27 eftir að þeir gerðu sér grein fyrir því er leið á leikinn að þeiryrðu að spýta í lófana til ná stigunum tveimur. Blikar máttu að auki þola mótlæti frá slökum dómurum og dómgreindarleysi eigin leikmanns.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.