Morgunblaðið - 17.12.2000, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 17.12.2000, Blaðsíða 4
1 SUNNUDAGUR 17. DESEMBER 2000 FRFETTIR MORGUNBLAÐIÐ VIKAN 10/12-16/12 Stórbruni ► Reykjanesbrautinni var iokað í þrjár og hálfa klukkustund á mánudag af hópi fólks sem vildi með þessu knýja fram tvö- földun braut arinnar. ► Borgarráð ákvað að stefna að því að borg- arbúar kjósi um framtíð Reykjavíkurflugvallar 3. febrúar 2001. ► Niðurstöður rann- sóknar starfsmanna Land- spítala - háskólasjúkra- húss og Islenskrar erfðagreiningar á park- insonssjúkdómnum gefa sterklega til kynna að sjúkdómurinn sé ætt- gengur og byggist á sam- spili erfða og umhverfis. ► Samherji hefur selt 65% hlut sinn í dótturfyr- irtæki sínu, Samherja GmgH í Cuxhaven í Þýskalandi. Jafnframt greiðir fyrirtækið móð- urfólaginu skuld sína. Með þessum aðgerðum og fleirum lækka skuldir Samherja úr sex millj- örðum í þrjá. ► Fokker-vél Flugfélags Islands á leið frá Reykja- vík til Isafjarðar varð að lenda á Egilsstaða- flugvelli þar sem ísing hafði hlaðist upp á vélinni. ► Svo virðist sem íkveik- jufaraldur gangi nú yfir en á síðustu vikum hefur verið kveikt í á fjölmörg- um stöðum. ► Verkfall framhalds- skólakennara hefur nú staðið í sex vikur. Sölvi Sveinsson, skólameistari Fjölbrautaskólans í Ár- múla, telur að enn sé mögulegt að Ijúka haust- önninni. í Vestmannaeyjum Eldur braust út í fiskvinnsluhúsi Is- félagsins í Vestmanneyjum laugar- dagskvöldið 9. desember sl. Slökkvi- starf stóð alla nóttina og lauk í raun ekki fyrr en á sunnudagskvöld. Tjónið af völdum brunans er metið á annan milljarð króna en húsið er að mestu ónýtt. Sterkur grunur leikur á að um íkveikju hafi verið að ræða en enginn liggur enn undir grun um verknaðinn. Rannsókn lögreglu heldur áfram. Bruninn er gríðarlegt áfall fyrir íbúa Vestmannaeyja en um 115 manns unnu hjá fyrirtækinu. Stór hluti fer á at- vinnuleysisskrá en sumir fengu vinnu við hreinsun á húsum og tækjum ís- félagsins. Þá er vonast eftir því að vinnsla geti hafist á sfid og loðnu í janú- ar. Nú er unnið að því að meta gæði um 600 tonna af frystum fiski sem voru í húsi Isfélagsins þegar það brann en verðmæti afurðanna er talið nema um 100 milljónum króna. Fyrirhug-aður banka- samruni brot á sam- keppnislögum Samkeppnisráð komst að þeirri niður- stöðu að fyrirhugaður samruni Lands- bankans og Búnaðarbankans væri brot á samkeppnislögum. Ráðið taldi að sameining myndi leiða til markaðsráð- andi stöðu hins sameinaða banka, skaða samkeppni og verða til tjóns fyr- ir neytendur. I úrskurðinum segir að núverandi keppinautar yrðu ekki færir um að veita hinum sameinaða banka nægilegt samkeppnislegt aðhald. Þvert á móti sé lfldegt að fækkun keppinauta myndi leiða til skaðlegrar fákeppni á markaði fyrir inn- og útlán, á greiðslu- miðlunarmörkuðum og á markaði fyrir verðbréfa- og gjaldeyrisviðskipti. Ríkisstjórnin hefur samþykkt álykt- un þar sem segir að á vorþingi verði lagt fram frumvarp sem heimili sölu á hlutabréfum ríkisins í bönkunum. Bush verður forseti ENDANLEGA varð ljóst á miðviku- dagskvöld að George W. Bush myndi flytja sem 43. forseti Bandaríkjanna í Hvíta húsið í Washington þegar Clint- on-fjölskyldan yfirgefur það hinn 20. janúar nk. Þetta kvöld flutti A1 Gore varaforseti ávarp til bandarísku þjóð- arinnar þar sem hann lýsti því yfir að hann hygðist ekki halda áfram baráttu sinni fyrir dómstólum fyrir frekari talningu atkvæða í Flórída, en von hans um að ná að sigra Bush var bund- in því að endurtalning á hluta at- kvæðanna úr kosningunum 7. nóvem- ber sl. myndi vega upp naumt forskot Bush samkvæmt úrslitum sem dóms- málaráðherra Flórída hafði staðfest. Gore tók þessa ákvörðun tólf tímum eftir að Hæstiréttur Bandaríkjanna ákvað með fimm atkvæðum gegn fjór- um að hafna frekari endurtalningu í Flórída. Bush, sem hefur hafizt handa við að mynda ríkisstjórn sína, fær nú það erfiða verkefni að sameina þjóðina eftir rúmlega fimm vikna deilur demó- krata og repúblikana um úrslit kosn- inganna. Með atkvæðum hinna 25 kjörmanna Flórída nær Bush 271 atkvæði á kjör- mannasamkomunni, en hún á að kjósa forseta mánudaginn 18. desember. Lágmarkið er 270 kjörmannaatkvæði; Gore er með 267 og þar að auki hátt í 300.000 íleiri atkvæði á bak við sig af þeim u.þ.b. 150 milljónum sem greidd voru í öllum Bandaríkjunum. NATO-ESB tengsl í uppnámi UTANRÍKISRÁÐHERRUM Atl- antshafsbandalagsins mistókst á fundi sínum í Brussel á fimmtudag og föstu- dag að fá Tyrki til að falla frá þeim fyr- irvörum sem þeir höfðu á drögum að samkomulagi bandalagsins við Evr- ópusambandið (ESB) um svokölluð hraðliðsáform þess. ► LEIÐTOGAFUNDI Evr- ópusambandsins (ESB) í Nice í S-Frakklandi lauk snemma á mánudags- morgun með samkomulagi um ýmsar breytingar á stjórnskipan sambandsins og fyrirkomulagi ákvarð- anatöku. Breytingarnar eiga að búa ESB í stakk fyrir allt að tvöfalda fjölg- un aðildarríkja á næstu ár- um. ► ÁKVEÐIÐ var á fundi sjávarútvegsráðherra Evr- ópusambandsins (ESB) að- faranótt föstudags að skera fiskveiðikvóta í lög- sögu sambandsins mjög verulega niður. Þorskkvót- inn í Norðursjó minnkar um 40% frá í fyrra, lýsings- kvótinn um 74%. ► JACQUES Chirac Frakklandsforseta virtist á fóstudag ekki hafa tekizt í klukkustundarlöngu sjón- varpsviðtali á fimmtudags- kvöld að sannfæra marga landsmcnn sína um sak- Ieysi sitt í hneykslismáli sem tengist borgarstjóratíð hans í París. ► LOFT er Iævi blandið í ísraelskum stjórnmálum eftir að Ehud Barak sagði af sér sem forsætisráð- herra um síðustu helgi og boðaði til sérstakra for- sætisráðherrakosninga eft- ir tvo mánuði. ► VERKFRÆÐINGAR við Tsjernobyl-kjamorkuverið í Ukraínu slökktu á föstu- dag á þriðja og síðasta kjarnakljúfi þess og orku- verinu var þar með lokað fyrir fullt og allt. Morgunblaðið/Ásdís Jólasveinarnir í útstillingunni era ekki til sölu heldur eingöngu til sýnis. UTSTILLING í glugga Handverk- stæðis Gunnars Eyjólfssonar á Strandgötu 30 í Hafnarfirði vekur mikinn áhuga yngstu kynslóð- arinnar um þessar mundir. I glugganum er að finna íslensku jólasveinana þrettán ásamt Grýlu og Leppalúða í stórum fjallshelli. „Reyndar eru jólasveinarnir ekki þrettán Iengur heldur átta þar sem fimm eru farnir til byggða," segir Gunnar Eyjólfsson handverksmaður. „Þegar ég tek þá úr glugganum hjá mér hef ég komið þeim fyrir í verslunum hér við Strandgötuna og í verslunar- miðstöðinni Firði.“ Gunnar vinnur einnig sem bað- Þrír nýir bátar til Landhelg- isgæslunnar LANDHELGISGÆSLAN hefur fest kaup á þremur nýjum björgun- ar-, vinnu- og eftirlitsbátum til að hafa um borð í varðskipunum og kom varðskipið Týr með þá til lands- ins. Bátarnir eru keyptir í Noregi að undangengnu útboði og kostar hver um sig um 8 milljónir króna. Þeir ei'u stærri og öflugri en gömlu bátarnir sem þeir leysa af hólmi. Þannig eru þeir um 8,6 metrar að lengd, en eldri bátar voru 5,4 metrar. Skrokkar þeirra eru úr áli og utan á byrðingi þeirra eru öflugir froðufylltir stuð- púðar. Hámarksganghraði bátanna í reynsluferð með þrjá menn um borð reyndist vera 38,6 sjómílur og þeir geta siglt allt upp í 150 sjómflur án þess að taka oiíu. Þá eru bátarnir búnir fullkomnum tækjum, svo sem GPS-staðsetningartæki, skjá fyrir rafræn sjókort, dýptarmæli, símum, hátalarakerfi og fleiiu. Hafsteinn Hafsteinsson, forstjóri Landhelgisgæslunnar, sagði að einn bátur yrði um borð í hverju varð- skipi og þeir myndu stórauka mögu- leika Landhelgisgæslunnar til eftir- lits. Þeir væru bæði stærri og öflugri en eldri bátarnir sem kominn væri tími á að endurnýja og færu bæði hraðar yfir og kæmust yfir stærra svæði en bátarnir sem þeir leystu af hólmi. „Þetta breytir mjög allri aðstöðu Landhelgisgæslunnar. Bátarnir koma í stað báta sem ekki var unnt að nota lengur vegna þess að þeir voru úr sér gengnir,“ sagði Haf- steinn. Auk þess að sækja bátana til Nor- egs var tækifærið notað til þess að fylla Tý af olíu þegar hann var þar í höfn. Hafsteinn sagði að með því sparaði Landhelgisgæslan talsverð- ar upphæðir þar sem olían væri mun ódýrari þar en hér á landi. Jólasveinar í útstillingu vekja lukku vörður í Lækjarskóla í Hafn- arfirði og segist hafa ákveðið að gera þetta sér og öðrum til ánægju. „Jólasveinarnir eru ekki til sölu heldur eingöngu til sýnis og börn flykkjast hingað til að skoða þá. Þá hafa unglingar komið hing- að inn á verkstæðið til að forvitn- ast um handverkið og hver veit nema á næsta ári eigi ég eftir að halda námskeið." Aðspurður segir Gunnar að jólasveinarnir séu meðal annars búnir til úr leir og íslenskri ull. Þá eru þeir klæddir hörbuxum, ullarsokkum og skóm. Þeir hafa þó aðeins fengið nútímalegri ásjónu sem meðal annars kemur fram í litavalinu. „Eg hef unnið við þessa útstill- ingu í hliðarverkum frá því í sum- ar en inni í hellinum má meðal annars finna kojur jólasveinanna og borðbúnað. Ánnars vil ég bara hvetja alla að koma að sjá, sjón er sögu ríkari.“ Dulmagnaður Ijóðaheimur „ ... Nina Árnadóttir á sinn trausta sess sem eitt af bestu.skáldum 20. aldar á Islandi." Silja Aðalsteinsdóttir/DV „Hinn tæri skáldskapur Ninu Bjarkar er alltaf einlægur og hispurs- laus. Sýn Ninu á mann- lega mðurlægingu og reisn er jafn einstök ... er þá nokkur undan- skílinn.“ Vigdis Grimsdóttir rithöfundur Dagskrá helguið minningu Nínu Bjarkar Arnadóttur verður haldin í Listaklúbbi Leikhúskjallarans 18. desember kl. 20.30. JJJO Sýknaður af ákæru um kyn- ferðislegt áreiti KARLMAÐUR hefur verið sýknað- ur í Héraðsdómi Norðurlands vestra af ákæru um kynferðislegt ofbeldi gagnvart tveimur stúlkum. Hinn ákærði neitaði staðfastlega allri sök og þar sem að ekki lágu fyrir hendi sönnunargögn taldi dómurinn að ekki væri hægt að sakfella manninn, þrátt fyrir vitnisburð stúlknanna. Maðurinn var sakaður um að hafa á tímabilinu 1994-1998 margoft sýnt annarri stúlkunni kynferðislegt áreiti og nokkrum sinnum þröngvað henni til samræðis, en hin stúlkan sagði manninn hafa áreitt hana oft á árunum 1997 og 1998. í niðurstöðu dómsins segir ma. að ákærði hafi staðfastlega við meðferð málsins neitað sökum sem á hann voru born- ar. Hann hafi veitt heimild til rann- sóknar á heimili sínu, blóðsýnisgjöf til DNA rannsóknar og hreint saka- vottorð beri með sér að viðkomandi sé ekki líklegur til þessara verka.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.