Morgunblaðið - 17.12.2000, Side 36

Morgunblaðið - 17.12.2000, Side 36
36 SUNNUDAGUR 17. DESEMBER 2000 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ UNA JÓHANNESDÓTTIR + Una Jóhannes- dóttir fæddist á Hofsstöðum í Viðvík- ursveit í Skagafirði 15. febrúar 1913. Hún lézt á hjartadeild Landspítala í Foss- vogi 8. desember síð- astliðinn. Foreldrar hennar voru Jóhann- es Bjömsson, bóndi og hreppstjóri á Hofs- stöðum og síðar verk- stjóri í Reykjavík, f. 1887 á Hofsstöðum, d. 1967, og kona hans Kristrún Jósefsdóttir skólastjóra á Hólum í Hjaltadal, f. 1887, d. 1978. Systkini Unu era: Bjöm, jarðvegsfræðingur, f. 1914, d. 1990; Margrét, f. 1916, gift Ólafi Bjamasyni, prófessor, f. 1914; Hólmfríður, f. 1919, gift Gísla Ólafssyni, ritstjóra, f. 1912, d. 1995; Jón Jósef, íslenzkufræðing- ur, f. 1921, d. 1981; Sigurður, for- stöðumaður, f. 1925, kvæntur Þór- höllu Gunnarsdóttur, f. 1923; Einar, yfírlæknir, f. 1927, d. 1996, kvæntur Marianne Carlsson, f. 1936. Una giftist Bimi Sigurðssyni, lækni frá Veðramóti í Skagafirði, siðar forstöðumanni Tilrauna- stöðvar Háskólans í meinafræði á Keldum, f. 3. marz 1913, d. 16. október 1959. Foreldrar Bjöms vora Sigurður Ami Björnsson, bóndi, hreppstjóri og oddviti á Veðramóti, síðar framfærslu- fulltrúi í Reykjavík, f. 1884, d. 1964, og kona hans Sigurbjörg Guðmundsdóttir frá Holti í Svúia- dal, f. 1884, d. 1973. Una og Björn giftu sig 16. maí 1936. Böm þeirra em: 1) Edda Sig- rún, augnlæknir í Reykjavík, f. 1936, d. 1987. Maki: Leifur Bjöms- son, læknir og prófessor í Chicago, f. 1931, þau skildu. Þeirra böm em: Ami, skurðlæknir í Keflavik, f. 1958, Bjöm, bif- vélavirki í Reykjavík, f. 1960, og Helga, viðskiptafræðingur í Genf, f. 1962. 2) Sig- urður, yfirlæknir í Reykjavík, f 1942. Maki: Guðný Krist- jánsdóttir, meina- tæknir, f 1945, þau skildu. Þeirra böm era: Kristín, læknir í Reykjavík, f. 1966, Björn Pétur, Iæknir í Gautaborg, f. 1969, og Signý Sif, verk- fræðinemi í Bologna, f. 1978. Sambýliskona Sigurðar er Rakel Valdimarsdóttir, hjúkmnar- fræðingur og forstöðumaður, f. 1946. 3) Jóhannes, yfirlæknir og prófessor í Rochester, Minnesota, f. 1947. Maki: Margrét Ingvars- dóttir, geðhjúkmnarfræðingur, f. 1946, þau skildu. Þeirra böm era: Bjöm, hagfræðingur í New York, f. 1973, og Una Björg, háskólanemi í Reykjavík, f. 1977. Sambýliskona Jóhannesar er Helga Þórarins- dóttir, víóluleikari, f. 1955. Una lauk námi frá Kvennaskól- anum í Reykjavík og stundaði síð- an nám við verzlunarskóla í Skot- landi. Eftir það vann hún við skrifstofustörf m.a. hjá lögreglu- stjóranum í Reykjavík unz hún giftist Bimi Sigurðssyni. Þau bjuggu í Reykjavík til 1938, í Kaupmannahöfn frá 1938 til 1940, í Bandaríkjunum frá 1941 til 1943 og í Reykjavfk þar til þau fluttust að Keldum árið 1947. Eftir fráfall Björas flutti Una frá Keldum og bjó sonum sínum heimili í Reykja- vík þar sem hún hóf störf sem læknaritari og siðan fulltrúi á Landspítala. títfor Unu fer fram frá Foss- vogskirkju á morgun, mánudaginn 18. desember og, hefst athöfnin klukkan 13.30. Hún átti djúpar rætur í skag- firskri mold. Stofninn óx, varð beinn og sterkur enda næringin ærin þar sem voru traustir og sam- hentir foreldrar, fjölmennur frænd- garður, ört vaxandi systkinahópur og íslenzk sveitamenning eins og bezt varð á kosið á fyrri helmingi tuttugustu aidar. Krónan breiddi úr sér, enda nægt rýmið, varð þétt ^og jöfn og vel til þess fallin, ásamt stofninum sterka, að standast hvern þann ágang og þunga, sem á kynni að falla. Jafnframt mynd- aðist þar gott skjól og vörn fyrir þá, sem þess kynnu að þarfnast, og átti eftir að gagnast mörgum. Slík eik var móðir okkar, Una Jóhannesdóttir frá Hofsstöðum, frumburður foreldra sinna, fyrir- mynd í stómm systkinahópi og áreiðanlega ímynd íslenzkrar æsku síns tíma. Hún varð lífsförunautur manns, sem batt bagga sína með nokkmm öðrum og nýstárlegri hætti en títt var um unga menn á umbrotatímum millistríðsáranna. Framlag hennar til vísindaafreka hans var vemlegt Hún stóð af sér slagveður jafnt sem blíðviðri, stofninn svignaði ekki né féllu laufin. í upprifjun efri ára var henni mun tamara að minnast þess, sem vel hafði gengið, og var með nokkram ólíkindum, hversu nákvæmar minningar henn- ar vora, hvort sem um var að ræða ljóðabálka numda í barnæsku eða atburðarás á langri ævi. Lestur sagnfræðirita var henni sérstakt ánægjuefni þar sem hún gat þá í huga og máli tekizt á við sagnarit- ara um túlkun atburða, sem hún Jsafjjfi sjálf myndað sér skoðun á af eigin raun. Okkur var hún bakhjarlinn, sem aldrei gaf sig, blíður en ákveðinn uppalandi, snjall kennari, réttlátur dómari og mild móðir. Hennar verður saknað. Far þú í friði, móðir kær. Sigurður Bjömsson, Jóhannes Bjömsson. Una Jóhannesdóttir, Imma, eins og hún var alltaf kölluð í fjölskyld- unni og meðal vina og kunningja, þau Björn bróðir minn kynntust á unga aldri og felldu strax hugi saman. Hún hafði flutt til Reykja- víkur með hinum ágætu foreldrum sínum, Jóhannesi Björnssyni og Kristrúnu Jósefsdóttur, árið 1932 frá Hofsstöðum í Skagafirði. Hofs- staðarheimilið var viðurkennt sem sérstakt menningar- og framfara- heimili, enda hjónin bæði óvenju- lega vel menntuð og þekkt af af- skiptum sínum og forgöngu um ýmis velferðarmál í Skagafirði, þar á meðal ýmis menningarmál og skólamál. Björn og Una giftu sig árið 1936. Þau höfðu snemma rætt mikið um þau grandvallarvísindi læknisfræð- innar, sem hann hafði sérstakan áhuga á og taldi sig færan um að takast á við, þannig að leiða mundi til nokkurra framfara, og hann hafði ákveðið að helga líf sitt. Hún fylltist áhuga á þessum málum, taldi augljóst að viðfangsefnin yrðu erfið og óljóst hvaða stefnu þau myndu taka. Hún ástundaði að afla sér þeirrar þekkingar, sem mögu- legt var fyrir fólk utan vísinda- samfélagsins og varð mikið ágengt. Þegar Björn fór að vinna af full- um krafti við rannsóknir sínar fór eins og þau höfðu búist við og rætt um, að vinnutíminn varð að jafnaði mjög langur og erfiður. Stöðug ein- beiting hugans að lausn flókinna viðfangsefna getur orðið þreytandi. Það kom því í hennar hlut að sjá um þarfir heimilisins og bamanna. Þetta varð að viðurkenndri og var- anlegri verkaskiptingu þeirra á milli og féll báðum vel. Þau vora glaðvær og bjartsýn og þegar ár- angurinn fór að hafa veraleg áhrif úti í þjóðfélaginu, sem varð furðu- lega fljótt, var ennþá sjálfsagðara að gleðjast. Jafnvel fjármál heimilisins urðu hennar verkefni. Hún tók við laun- unum og ráðstafaði þeim til þarfa fjölskyldunnar af hæfilegri spar- semi og varkámi. Öll þessi umsýsla fór henni með afbrigðum vel úr hendi og hún naut þess að gera sér ljóst, hvflík hjálparhella hún var manni sínum með hin erfiðu en mjög árangursríku störf hans. Hjónabandið var að öllu leyti ham- ingjusamt og ástúðlegt. Þegar Björn fór fyrst utari til framhaldsnáms og rannsókna fóra þau til Kaupmannahafnar og þá með fyrsta barn sitt, Eddu, á öðra ári og tókst þrátt fyrir seinna stríðið, að komast heim árið 1940 - hún með barnið nokkra fyrr, en hann með hinni frægu Petsamo- ferð og kom heim með Esju haust- ið 1940. í Kaupmannahöfn starfaði Björn við Carlsberg-stofnunina, en til þess fékk hann styrk hennar. Þau dvöldu í Reykjavík tæpt ár, en fóra á miðju ári 1941 til Roeke- feller-stofnunarinnar í Princeton, New Jersey. Þar vora þau þar til sumarið 1943 er Björn fór aftur að vinna við rannsóknir með Níels Dungal og að skipuleggja stofnun Tilraunastöðvar Háskólans í meinafræði að Keldum. Á Keldum bjuggu þau þar til Björn féll frá, mjög fyrir aldur fram, 46 ára að aldri. Þau Björn og Una voru hér um bil alveg jafngömul. Bömin urðu þrjú og urðu öll læknar. Edda varð augnlæknir, Sigurður sérfræðingur í lyflækningum og krabbameins- lækningum og Jóhannes sérfræð- ingur í meinafræði. Það var mikið starf og ábyrgðarfullt að vaka yfir velferð þeirra og menntun. Allt gekk þetta mjög giftusamlega, enda þau öll fluggáfuð og settu markið hátt. Nokkru eftir lát Björns fór Una að starfa hjá Landspítalanum við frágang ýmissa mála, en gerðist læknaritari og fljótlega fulltrúi og gegndi ýmsum störfum þar til hún hætti, sjötíu ára að aldri. Una Jóhannesdóttir var glæsileg kona. Framkoma hennar var fáguð og kurteisleg, hver sem í hlut átti. Hún var elst systkina sinna og þannig í ýmsu fyrirmynd hinna yngri og eftirlæti forelda sinna. Hún var í meðallagi há og bar sig vel. Hárið bránleitt og alltaf vel til haft, augun blá og oftast létt yfir svip hennar. Það var oft gestkvæmt á Keld- um, þegar æskilegt var talið að taka sér hvfld eitt kvöld eftir erfiði vikunnar og beina huganum inn á önnur svið. Þangað komu þá gjarn- an ýmsir nánir vinir til að ræða vandamál líðandi stundar, fjalla um listir og menningu ýmiss konar eða lesa kafla og ræða þá úr ýmsum bókum, íslenskum eða erlendum, sem athygli höfðu vakið. Una var þá alltaf hinn skemmtilegasti gest- gjafi og tók að jafnaði mikinn þátt í umræðunum. Eg varð oft undrandi yfir því, hvað hún komst yfir að lesa margar bækur, en því hélt hún áfram allt fram á síðustu ár meðan heilsan leyfði. Jafnvel þá var næmi hennar og minni svipað og áður og skýrleiki hugans slíkur að til var tekið. Allra síðustu árin var hún oft illa haldin og taldi að best væri fyrir sig að fara að losna við erfiðleika sjúkdóms og ellihrumleika. Hún varð því fegin lausninni, enda orðin 87 ára gömul. Við fjölskylda manns hennar minnumst hennar með söknuði og þakklæti fyrir langa og skemmti- lega samfylgd. G. Jakob Sigurðsson. Frá Una Jóhannesdóttir andað- ist á Landspítalanum í Fossvogi 8. desember sl. Banamein hennar var lungnabólga. Una sagði mér fyrir nokkram vikum, að tími hennar væri kom- inn, og hún tók því með þessari skýlausu skynsemi sem einkenndi hana alla tíð. Svo sannarlega mun ég sakna hennar, en vinninginn hefur minn- ingin um 62 ára vináttu okkar, sem hófst í Kaupmannahöfn 1938. Það var ekki lítill fengur í að fá þau hjónin dr. Björn Sigurðsson lækni og konu hans Unu í fámennan hóp íslendinganna. Bjöm hafði lokið læknisnámi heima á íslandi og lagði nú á leið vísindanna með styrk frá Carlsbergssjóði Dan- merkur. Una var útskrifuð úr Kvennaskólanum í Reykjavík og starfaði sem ritari hjá Lögreglu- stjóranum í Reykjavík, Hermanni Jónassyni er síðar varð forsætis- ráðherra, en hann var frændi Unu. Björn og Una gengu í hjónaband 1936. Una fylgdi manni sínum eins og þá var venja, en hún hvarf ekki í skugga hans. Þau vora eins og tvö sterk tré er sólin náði að baða í geislum sínum. Dvölin í Danmörku var ógleym- anleg, en 1942 var Kaupmannahöfn orðin þátíð og Evrópa vígvöllur ungu kynslóðarinnar. Leiðir land- ans lágu nú í vestur, til Ameríku eins og fyrir mörgum öldum. Björn var nú á vegum Rockefeller Foundation í Princeton, New Jers- ey og starfaði í rannsóknarstofu Rockefeller Institute of Medical Research í Princeton. Á þessum árum bjuggum við hjónin í New York. Það var því aðeins vík milli vina og var okkur Sveini boðið að dvelja hjá Unu og Birni yfir jólahá- tíðina á þeirra yndislega heimili við skógarjaðarinn þar sem þau bjuggu með tveim börnum sínum, Eddu Sigrúnu sex ára og Sigurði á fyrsta ári. Við áttum yndisleg jól saman og ég minnist þess enn hve þetta kvöld var ánægjulegt. Jóladaginn voram við boðin með Unu og Birni til bandarískra vina þeirra, en Am- eríkanar halda jól aðeins einn dag, hinn 25. desember. Þau áttu greini- lega marga kunningja í Princeton sem skemmtilegt var að kynnast. Tíminn leið og lífið var unaðslegt. Um síðir bar okkur báruskelin svarta öll heim að ströndum ís- lands. Una og Björn settust að á Keld- um í nýbyggðu húsi langt frá Reykjavík. Vegurinn þangað var varla fær bflum, óupplýstur og hol- óttur. Móttökurnar á Keldum hlýj- ar eins og í Princeton. Þar áttum við margar eftirminnilegar stundir. Björn og Una vora frábærir gest- gjafar og við glöddumst með þeim þegar þriðja barnið þeirra, Jóhann- es, kom í heiminn. Lífið var unaðs- legt. Raunin var mikil þegar Björn lést 46 ára. Una vinkona var orðin ekkja. Hún stóð sem klettur úr hafinu sem öldumar brotnuðu á. Hún tók upp fallega heimilið þeirra, flutti til Reykjavíkur og gerðist læknaritari við Landspít- alann. Börn Björns og Unu urðu öll læknar. Edda Sigrún augnlæknir en hún lést 51 árs 1986. Sigurður yfírlæknir krabbameinsdeildar við Landspítalann í Fossvogi. Jóhann- es meinafræðingur, prófessor við Mayo Clinic í Minnesota í Banda- ríkjum Norður-Ameríku. Bróðir Unu, dr. Björn Jóhann- esson verkfræðingur, lést 12. des- ember 1990 og var jarðsettur 18. desember, sama mánaðardag og Una verður jarðsett. Una var merk kona, hún stóð ekki ein því hún var ætíð umvafin kærleika barna sinna og barna- barna. Við vinir hennar kveðjum hana með þakklæti. Blessuð sé minning hennar. Aðalheiður Guðmundsdóttir. S VEINN BERGMANN BJARNASON + Sveinn Bergmann Bjarnason fædd- ist í Reykjavík 21. júní 1918. Hann lést í Landspítalanum í Fossvogi 12. desemb- er síðastliðinn. For- eldrar hans voru hjónin Bjarni Jóns- son, skipstjóri, f. í Reykjavík 3. júní 1889, d. 31. desember 1974, og Halldóra Sveinsdóttir, f. í Reykjavík 28. nóvem- ber 1895, d. 26. janú- ar 1984. Svcinn var þriðji í röð níu bama þeirra hjóna. Brynjólfssyni. 4) Ás- mundur Guðni Berg- mann, f. 14.5. 1950, kvæntur Hallveigu Finnbogadóttur. 5) Anii Hallgrímur Bergmann, f. 5.10. 1951, kvæntur Sig- ríði Ólafsdóttur. 6) Rúnar Bergmann, f. 9.8. 1953, í sambúð með Sigrúnu Ólafs- dóttur. 7) Sigrún Friðgeirsdóttir, f. 21.9. 1958, í sambúð með Loga tílfljóts- syni. 8) Jón Þór Bergmann, f. 15.11. 1962. 9) Rósl- Hinn 28. nóvember 1945 gekk Sveinn að eiga Jóhönnu Elínu Ámadóttur, f. 24. júní 1922. Þau slitu samvistir. Böm þeirra em: 1) Bjami Halldór Bergmann, f. 30.6. 1946, kvæntur Þorbjörgu Krist- vinsdóttur. 2) Ingibjörg Hanna Bergmann, f. 6.6. 1947, gift ívari Sæmundssyni. 3) tíndína Berg- mann, f. 14.10. 1948, gift Bimi Sveinninn Bergmann Bjarnarson barðist eins og hetja. í hjarta hans var ennþá von sem hann reyndi að hvetja. Barnslega trú í brjósti bar um bústað öðrum betri. Kom að því að kallaður var til krists, á köldum vetri. Jón Þór. Jæja, elsku afi minn, nú ertu kominn á staðinn leyndardómsfulla og veist svarið við stóra spurning- unni. Ég vildi að þú gætir sagt mér hvemig er um að litast þarna uppi, skrifað það á lítinn miða og kastað honum til jarðar, ég finn hann svo á flötinni hjá mér og segi engum. Það myndi hvort eð er enginn tráa mér. Ég læt mig dreyma þangað til ég finn miðann frá þér og í mínum huga svífa þar allir um á rjómabolluskýi, öllum líður vel og enginn liggur þar í sjúkrarámi með næringu í æð. Þar ríkir friður og ró og blómin fölna ekki. Englar fljúga þar um og ráða ríkjum, þeir eru með stóra bleika ind Huld Bergmann, f. 11.5. 1965. Afabörn Sveins eru nítján talsins og langafabörnin tólf. Sveinn starfaði lengst af sem bif- reiðastjóri á Hreyfli, hann starfaði einnig við ýmis önnur störf til lands og sjávar. títför Sveins fer fram frá Dóm- kirkjunni mánudaginn 18. desemb- er og hefst athöfnin klukkan 13.30. vængi sem þeir vefja svo utan um þig og alla hina ef þið finnið fyrir söknuði. Þeir kunna að spila bridge og laga kaffi og þú ert örugglega búin að þiggja nokkra bolla af svörtu kaffi hjá þeim og setja marga mola ofan í hvern bolla. Elsku hjartans. afi minn, mér líður vel af því ég veit að nú líður þér vel. Þú ert ekki lengur rúm- fastur, það fór þér líka svo illa og það var sárt að horfa á þig veslast upp inni á sjúkrastofnunum. í huga mér varstu alltaf á ferðinni, þú keyrðir daglega niður að höfn að skoða bátana og komst ávallt við á Grandakaffi til að spjalla við Rúnar vin þinn. Þú hafðir gaman af því að horfa á fótbolta í sjón- varpinu og ekki síður á Tomma og Jenna. Þú kunnir að steppa og að spila og mér þótti vænt um þig. Þú varst mér og Sæþóri bróður ávallt góður og ég þakka þér samfylgd- ina. Guð og allir englarnir með bleiku vængina geymi þig, elsku afi minn, við sjáumst aftur þegar minn tími er kominn. Sigriður Elín Ásmundsdóttir.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.