Morgunblaðið - 17.12.2000, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 17.12.2000, Blaðsíða 10
10 SUNNUDAGUR 17. DESEMBER 2000 MORGUNBLAÐIÐ NýbyggingáhorniTúngötuog Aðalstræti 16 Hús landfógeta Nýtt hús f mynd Fjaiar- ísafold flutt úr Austur- Aðalstræti 10 Elsta hús Reykjavíkur Aðalstrætis verður reist 2000 1796-1828, endurbyggt 2001 kattarins verður reist 2002 stræti, endurbyggt 2000 upphaflega byggt um 1766 AÐALSTRÆTIÐ OG GÖTIMYND ÞESS Minjavernd var svo breytt í hluta- félag snemma á þessu ári í eigu rík- isins og sjálfseignarstofnunarinnar Minjar (sem gömlu Torfusamtökin standa að). Síðar á árinu gerðist Reykjavíkurborg hluthafi í félaginu, þannig að þeir eru nú þrír. Þetta er skattlaust hlutafélag enda fer ágóð- inn allur í starfsemina. Reykjavíkur- borg lagði inn í félagið sem sitt fram- lag homlóðina Aðalstræti 2,14,16 og 18, sem og Túngötu 2 og 4. Þar er einmitt álitið að gamli Reykjavíkur- bær hafi staðið í upphafi, þar er að finna leifar af landnámshúsi. Endurnýja á elsta hluta Aðalstrætis 16 Eitt af verkefnum Minjavemdar á næstu ámm er að vinna að götu- myndinni í Aðalstræti. Afangi í því er bygging hótelsins sem rætt var um í upphafi. Við hugsum okkur að endurnýja elsta hluta hússins Aðalstræti 16, sem snýr að götu og nær afturundir álmuna sem gengur til norðurs. Þetta hús á sér langa og merka sögu, eitthvað af íyrstu hæðinni er frá dög- um Innréttinganna. Húsið sem snýr í norður-suður verður rifið, það er ekki talið hafa varðveislugiidi. Ný hús verða reist í kringum gamla hús- ið sem endurbyggt verður, en mun standa nokkuð sjálfstætt. Það verður tengt nýbyggingunum með gleryfir- byggingum. Það mun mynda mið- punktinn í þessari húsaheild. Hvað snertir Fjalaköttinn þá er ekki ætl- unin að endurreisa hann í upphaf- legri mynd á sínni gömlu lóð, þótt Hörður Agústsson hafi mælt það hús allt upp á sínum tíma og séð til þess að bjargað var ýmsum hlutum úr því sem fóru upp á Árbæjarsafn. Það á hins vegar að reisa hús á lóðinni Að- alstræti 14, sem mun sækja útlits- mynd sína að hluta tU Fjalakattarins og er það gert vegna götumyndar- innar. Gaflarnir sem snúa eiga út að götunni taka mið af húsunum sem þarna voru áður, sem fyrr sagði Fjalakettinum og einnig Uppsölum. Aðalstræti var öldum saman aðalgata Reykjavíkur Haustið 1994 komu fulltrúar frá Reykj avíkurborg fyrst að máli við Minjavernd til þess að spyrjast fyrir um hvort við treystum okkur til þess að taka það húsið Aðalstræti 16 til endurbyggingar á svipuðum for- sendum og húsin á Bernhöftstor- funni. Við mátum það svo að ekki væri raunsætt að endurbyggja það hús eitt og sér án þess að það hefði einhverja stærri heild sér til stuðn- ings með útlit þeirra húsa sem stóðu við götuna á hennar gullaldartíma að leiðarljósi. Aðalstæti var aðalgata Reykjavíkur og það var augljóst að ekki yrðu til frambúðar lausar lóðir í fréttum hefur komið fram að til stendur að byggja hótel í kringum Aðalstræti 16. Guðrún Guðlaugsdóttir ræddi við þá Þorstein Bergs- son og Skarphéðin Steinarsson, fram- kvæmdastjóra og for- mann Minjaverndar hf., um þessar framkvæmd- ir og hugmyndir þeirra félaga um Aðalstræti og götumynd þess Til stendur að endur- byggja Aðalstræti 16 og byggja hús á homi Að- alstrætis og Túngötu og hafa þarna 73 her- bergja hótel. Það er Minjavemd hf. í félagi við Þyrpingu hf. sem stendur að þessum framkvæmdum með til- styrk Reykjavíkurborgar sem tekið hefur að sér að framkvæma og kosta fomleifarannsóknir á lóðinni en þær verða að fara fram áður en fram- kvæmdir geta hafist. Hótelið sem byggt verður upp verður með því yf- irbragði sem var á húsum Aðalstræt- is á íyrri hluta 20. aldar. „Til dæmis mun forhlið Fjalakattarins verða endurbyggð," sögðu þeir Þorsteinn Bergsson framkvæmdastjóri og Skarphéðinn Steinarsson formaður Minjavemdar hf. í samtali við blaða- mann Morgunblaðsins fyrir skömmu uppi á lofti í Humarhúsinu, veitinga- húsi sem rekið er í einu af hinum gömlu húsum Bernhöftstorfunnar. „Minjavernd varð til úr Torfusam- tökunum er þau gengu í apríl 1985 í samstarf með fjármálaráðuneytinu og Þjóðminjasafninu um uppbygg- ingu hér á Torfunni og rekstur þar,“ halda þeir félagar áfram. „Torfusam- tökin höfðu frá 1972 sýnt mikið fmm- kvæði á sínum tíma í þessum málum, sem þó var umdeilt. Torfusamtökin hófu uppbyggingu á þessum húsum af eigin ramleik en 1985, þegar um- rætt samstarf kom til, var gerður langtíma leigusamningur um húsin. Ríkið átti öll húsin á Torfunni og stofnuð var sjálfeignarstofnun sem hlaut nafnið Minjavemd. Tekjur af rekstri fóru í að greiða niður lán og halda við húsunum, sem og sinna ýmsum öðrum verkefnum sem Minjavemd hefur haft á sinni könnu. Skarphéðinn Steinarsson og Þorsteinn Bergsson fyrir framan Aðalstræti 16 Morgunblaðið/Ásdís Saga Aðalstrætis 16 Á lóðinni Aðalstræti 16 stóð eitt af fyrstu húsum Innréttinganna. Þegar hús verksmiðjanna höfðu verið reist aftur eftir brunann 1764 var lóskurðarstofan á þessum stað. Hún var timburhús sem sneri göflum austur og vestur. Þetta var grindarhús með múrsteinum og grágrýti í grindinni, ein hæð með háu risi. Þak og veggir voru klædd tjörguðum borðum. Gluggar voru sagðir með ensku gleri, átta til _ sextán rúður í hverjum þeirra. I vesturenda lóskurðarstofunnar var stórt herbergi sem tók yfír fulla breidd hússins, sem var 11,5 alin og 28,5 alin á lengd. í austur- hluta hússins var stórt eldstæði með reykháfi yfir. Við austurgafl hússins voru tvö herbergi. Árið 1791 eignaðist maddama Margrethe Angel húsið og rak hún þar veitingasölu. Hún ræktaði lóð- ina við húsið og seldi garðávexti, slíkt hafði ekki áður tíðkast. Hún fékk 1792 verðlaun danska Land- búnaðarfélagsins fyrir garðrækt. Árið 1796 keypti stjórnin húsið fyrir landfógetabústað og bjuggu þrfr slíkir í því. Þá var húsinu breytt nokkuð. Á jarðhæð var íbúð fógeta en skrifstofa hans í risinu, þar bjuggu líka tveir starfsmenn hans. Þegar Rasmus Frydenberg tók við húsinu af P.M. Finne land- fógeta Iátnum árið 1805 kvartaði hann undan því við stjómina að fjósalykt bærist um húsið sem þá var talið bcsta ibúðarhús bæjarins. Bréfi hans fylgdi greinargóð tcikning af herbergjaskipan húss- ins. Árið 1813 fór fram ítarleg skoðunargerð og virðing á húsinu, sem þá var í hörmulegu ástandi, skakkt og bjagað, þakið lekt og gólfin fúin. Árið 1818 er húsið enn skoðað og var það enn (slæmu ástandi þrátt fyrir nokkrar við- gerðir. Þegar U.C. Ulstrup varð land- og bæjarfógeti árið 1828 flutti hann að Aðalstræti 9. Þá varð Aðalstræti 16 barnaskóli, sá fyrsti í Reykjavík. Enn var það í lélegu ástandi. Árið 1848 eignaðist Jón Guðmundsson ritstjóri Þjóð- ólfs húsið og bjó þar með fjöl- skyldu sinni. Heimili þeirra var eitt helsta menningarheimili bæj- arins á þeim ti'ma. Hann og Hólm- fríður Þorvaldsdóttir kona hans létu bæta húsið mikið og lengja það til vesturs. Árið 1876 keyptu bræðurnir Eyjólfur og Páll Þor- kelssyni gullsmiðir Aðalstræti 16. Hans Andersen klæðskeri eign- aðist það árið 1889 og bjó fjöl- skylda hans þar í rúma sjö áratugi og breytti því mikið og stækkaði. Fyrir um hundrað árum fékk það svipað útlit og það hefur enn í dag þótt gerðar hafi verið breytingar á gluggum og dyrum jarðhæðar. Aðalstræti 16 er eitt þeirra stóru timburhúsa sem byggð voru í mörgum áföngum en heillegt þó. Ekkert verður sagt afdráttarlaust um aldur hússins en það á þó tví- mælalaust rætur sínar að rekja til Innréttinganna. Helstu útlits- einkenni þess eru um hundrað ára gömul. Útskorið timburskraut við þakbrún og á kvisti ásamt lágum þakhalla gefaþessu gamla húsi í hjarta bæjarins nýklassískan svip.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.