Morgunblaðið - 17.12.2000, Page 25

Morgunblaðið - 17.12.2000, Page 25
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 17. DESEMBER 2000 25 ur verið um leyfi á á Austfjörðum. Taldi hann ekki vera hættu á ferð- um ef rétt væri að staðið.“ Það er talað um að laxalús drepi jafnt gönguseiði sem villtan lax. „Laxalús tengd fiskeldi er ekki vandamál í dag. Það má oft sjá í rökum manna gegn fiskeldi að laxa- lús muni ganga af villtum laxi dauð- um. Slíkar staðhæfingar eru lýs- andi fyrir málflutning þeirra sem ekki til þekkja en hafa sig óspart frammi í fjölmiðlum. Mikil framfor hefur átt sér stað í þróun lyfja gegn laxalús. Þetta hefur leitt til þess að baráttan gegn lúsinni er á allt öðru stigi í dag en hún var fyrir nokkr- um árum. í Noregi eru kröfur um hámarksfjölda kynþroska kvenlúsa á eldisfisld 1-2 á hverjum laxi. Við höfum sett okkur það markmið að engin kynþroska lús finnist á fiski. Er það raunhæft markmið og í takt við það sem gerist í stærstu laxeld- isfyrirtækjum Noregs. í því slát- urhúsi sem ég rek er varla að finna nokkra lús á þeim fiski sem þar kemur inn. Ástæður þess eru vel skipulagðar og samhæfðar afiúsun- araðgerðir sem framkvæmdar eru á hverju svæði fyrir sig. Annar misskilningur sem þrá- staglað er á er sníkillinn G salaris. Menn hafa lýst ótta sínum við að hann berist með tUkomu sjókvía- eldis í vUltan laxastofn. Sníkillinn er ferskvatnssníkill sem lifir ekki í söltum sjó og er heldur ekki að finna á íslandi." Þörungablóma fyrst lýst í Biblíunni Það er líka talað um gífurlega líf- ræna mengun og eitraðan þörunga- blóma sem strádrap eldislax á Austfjörðum á sínum tíma? „Slíkum þörungablóma var fyrst lýst í Biblíunni fyrir daga fiskeldis. Það atvik á Austfjörðum sem verið er að vitna tU verður ekki skýrt með mengun frá fískeldi. Menn blanda oft saman búsifjum í fiskeldi við mengun frá fiskeldi. Þekktast er dæmið um áföll í fiskeldi vegna þörunga var þegar eitraðir þörung- ar bárust með leysingavatni frá Þýskalandi upp að ströndum Nor- egs. Mikið var rætt um þau áföll sem drápu 1% norskra eldislaxa. Aðrir fiskar gátu betur forðað sér. Ekki er hætta á að umhverfið verði fyrir neikvæðum áhrifum vegna fyrirhugaðs eldis. Ekki er ástæða til að óttast umhverfis- mengun í Berufirði þar sem dýpt fjarðarins er ákjósanleg og straum- ar góðir. Helsta mengun frá fisk- eldi er næringarefnalosun sem eru köfnunarefni og fosfór. Engin dæmi eru um ofgnótt næringarefna hér við land og því er ekki ástæða til að óttast vandamál tengd nær- ingarefnamengun. Berufjörður er opinn, breiður og djúpur. Þynning- arhraði þar er mikill og lítil hætta á ofnæringu, uppsöfnun næringar- efna eða súrefnisþurrð og í hann berst í dag óverulegt magn efna frá annarri starfsemi. í Berufirði er straumþunginn 6-7 cm/sek og þyk- ir það verulega góður straumur.“ Það er ennfremur mjög algengt að heyra rifjað upp hin fjölmörgu gjaldþrot í fiskeldi á sfnum tíma og að menn hafl greinilega ekki lært af reynslunni. „Menn hafa lært af reynslunni bæði hér og í Noregi. Það má ekki gleyma því að fyrir 10 til 12 árum urðu 60% eldisstöðva í Noregi gjaldþrota. Eftir það, þegar stærri fyrirtæki komu inn í greinina með stóraukið fjármagn, hófst uppbygg- ingin á ný og nú er fiskeldi blóm- lega rekinn atvinnuvegur. Það er mikilvægt að fyrirtæki sé vel í stakk búið fjárhagslega til að tak- ast á við viðfangsefni af þessari gerð. Einnig er mikilvægt að byggja á bestu þekkingu, tækni og reynslu sem völ er á. Þetta er sú leið sem við förum nú. Fyrir mér sem menntuðum fiski- fræðingi og fiskeldismanni eru sportveiðar og fiskeldi ekki tvö andstæð fyrirbæri sem þarf að stilla upp hvoru á móti öðru heldur tvær greinar sem geta vel dafnað hlið við hlið.“ Hvað heldur þú að gerist næst? „Ég veit það ekki. Ég vona að sjálfsögðu að ákvörðun Skipulags- stofnunar, sem byggð er á áliti fjölda fagmanna, verði staðfest með úrskurði umhverfisráðherra." Bók er best vina Sköðið Bókatíðindin „ Félag íslenskra bókaútgefenda FERSKI • FRflfilftNOI • FRUMLEGT Thai Choice Toppurinn frá Tælandi Suöurlandsbraut 6 • s. 568 3333 219. ooo.-stir. Sígilt sófasett Opið laugardag 10 - 18 og sunnudag 14-16 HUSGAGNAVERSLUN REYKJAVÍKCIRVEGI 66 HAFNARFIRÐI SlMI 565 4100 íþróttir á Netinu GEFÐU HENNI ÁSKRIFT AÐ VELLÍÐAN ALLA MÁNUÐI ÁRSINS EINU SINNII MÁNUÐI FYRIR AÐEINS 6.900 KR. SKIPTIÐ, ÁSKRIFTARVERÐ

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.