Alþýðublaðið - 04.04.1959, Blaðsíða 3

Alþýðublaðið - 04.04.1959, Blaðsíða 3
Það fekur lamann langan tíma að komast til Nýju Delhi, NÝJU DEHLI, 3. apríl, (NTB- REUTER). Hinn andlegi leið- togi Tíbetbúa, Dalai Lama, er kominn til Indlands, þar sem lionum hefur verið tekið sem heiðruðum gesti, tilkynnti Jawaharlal Nehru, forsætis- ráðherra, á þingi í dag. Hann liefur beðizt liælis sem póli- tískur flóttamaður, en góðar heimildir telja, að liann muni ekki fá leyfi til að setja á lagg- irnar útlagastjórn í Indlandi. Mikil fagnaðarlæti brutust út, er Nehru tilkynnti þing- heimi, að Dalai Lama væri kominn til Indlands. — Hann kom yfir landamæri norð-aust ur Indlands s.l. þriðjudag. Tveim dögum áður hafði per- sónulegur sendimaður hans komizt til Indlands og beðið um hæli fyrir Dalai Lama, sem kom yfir landamærin með fá- mennu fylgdarliði. TVÆR VIKUR. Opinberir aðilar í Nýju Dehli segja, að það muni senni lega líða tvær vikur enn, áður en Dalai Lama og fylgdarlið hans komast yfir fjöllin og frumskóginn frá Tawang, þar sem hann nú er, og til járn- brautarstöðvarinnar Balifara í Assam. í Tawang er eitt stærsta búddista-klaustur Indlands. KÍNVERJUM TILKYNNT. Síðdegis í dag var tekið á móti sendiherra Kínverja í indverska utanríkisráðuneyt- inu, þar sem honum var fengin ræða sú, er Nehru flutti í þing- inu. Var það fyrsta opinbera tilkynningin, sem indverska stjórnin hefur fengið kínversku stjórninni um Dalai Lama. FJÖLSKYLDAN MED. Áreiðanlegar heimildir. í Kalimpong segja, að 57 ára gömul móðir lamans, Gyuam Chemo, hefði farið með hon- um yfir landamærin. í för með honum hefði einnig verið 14 ára gamall bróðir hans, 26 ára gömul systir, fjórir ráðherrar og tveir kennarar. Eldri bróðir hans, sem komst burt úr Tíbet fyrir mörgum árum, býr nú í Bandaríkjunum. LÖNG OG ERFIÐ FERÐ. Ferðin frá Lhasa til landa- mæranna tók 11 daga og var mjög erfið. Lá leiðin um mjög erfitt fjalllendi, þar sem kín- verskar orrustuþotur voru á stöðugu varðbergi. Ekki er vit- að, hvort fylgdarlið lamans lenti saman við Kínverja á leiðinni. ENGINN FLUGVÖLLUR. Tawang liggur í um 3000 metra hæð og er enginn flug- völlur þar í grenndinni. í Ind- landi eru engir helikoptar til, er geti flogið svo hátt, að þeir geti sótt Dalai Lama. Stendur bærinn í einhverju afskekkt- asta héraði Indlands og eru í- búar af næstum því sama kyn- stofni sem Tíbetbúar. Jafnvel Indverjar fá venjuplega ekki leyfi til að heimsækja þetta svæði. TIL SAMEINUÐU ÞJÓÐANNA? Tillaga um að leggja mál Tíbets fyrir Sameinuðu bióð- irnar er nú ákaft rædd í Nýju Delhi, en búizt er við, að Dalai Lama muni ráðfæra sig við vin sinn Nehru, áður en hann taki nokltra afstöðu til þess máls. Vatn fekið að sjatna á Mada- gaskar en mafvætaskortur ríkir Húsnæðisvandræðin ógurleg. Dauðs- föll miklu færri en talið var. TANANARIVE, 3. apríl, (NTB- REUTER). Hin ógurlegu flóð, sem s.l. viku hafa herjað á stóra hluta af Madagaskar, hafa náð hámarki og lækkar vatnið nú óðum. Jafnframt liafa björgunarstörf verið auk- in verulega, en ennþán er of snemmt að áætla heildartjón það, sem flóðin liafa valdið. Erfiðasta vandamálið þessa stundina er að fá þeim rúm- lega 40.000 mönnum, er misst | hafa heimili sín, húsnæði. Mat- vælaskortur er einnig mikill á mörgum stöðum, en gert er ráð fyrir, að úr rætist, þegar sam- göngur ntilli Tananarive og umheimsins hafa batnað. Farsóttir hafa ekki brotizt út, en yfirvöldin óttast enn sjúkdóma meðal hinna mörgu flóttamanna. Tala þeirra, er farizt hafa, mun vart fara fram úr einu hundraði. Hér sjást þeir á myndinni æðstu yfirmenn andlegra mála í Tíbet, Panchen Lama, sem kom- múnistar hafa gert að stjórnanda landsins og Dalai Lanta t. h., sem nú er landflótta í Ind- landi eftir ævintýralegan flótta yfir Himalaya niður í Asam. Kommúnislar beifa sfór- Khömbum Aðstaða Indlands nú erfið INDLAND er komið í mjög erfiða aðstöðu við það, að Dalai Lama hefur beðizt hælis þar. Indland hefur viðurkennt að Tíbet sé hluti af Kína og þar i úti. með skuldbundið sig til að skipta sér ekki af málum þar. Opinberir aðilar og stjórnmála menn eru þeirrar skoðunar, að frá sjónarmiði Kínverja hafi það verig hið bezta, sem hent hefði getað, að Dalai I.ama skyldi komast undan til Ind- lands. Hefðu hermenn kom- múnista náð honum og ef til vill sært hann hefði það aukið andstöðuvilja Tíbetbúa um- fram það, sem sennilegt sé nú, þegar hann bafi fengið hæli í Indlandi. öðrum fluttir nauðugir frá bæjum. Útgöngubann er um nætur og menn mjög varkárir með að láta sjá sig á götum BANASLYS--------- Framhald af 1. síðu. kom út úr húsi kranans, lá bóman á skurðbarmin- umi og hafði Vialdimar orð ið undir 'henni. Mun hann hafa verið að fara niður í skurðinn er slysið vildi til. Var þegar sótt sjúkra- bifreið og Valdimar flutt- ur á slysavarðstofuna. En er þangað kom, var hann látinn. Valdimar lætur eftir sig konu og einn son. Segir Kongressfíokkur Nepals. Högg andlit „friðsamlegri sambúð.“ STÓWSKOTALIÐI BEITT ENN. Frá Kalimpongo berast enn í dag fréttir af miklum bardög um í Tíbet. Beita Kínverjar stórskotaliði gegn Tíbetönum við Nethang, 40 km. fyrir sunn an Lhasa. Hafa Kínverjar í flýti sent liðsstyrk þangað, en jafnframt er haldið áfram að flytja menn hópum saman frá höfuðborginni. Varlega er á- ætlað, að milli 10 og 15 þúsund manns hafi verið flutt frá Lhasa, en einnig séu menn WASHINGTON og LONDON, 3. apríl, (NTB-AFP). Banda- ríkjastjórn er mjög ánægð með, að Dalai Lama skuli hafa tekizt að ná til Indlands, sagði talsmaður utanríkisráðuneyt- isins í Washington í kvöld. Góðar heimildir þar segja, að enn sé alltof snenimt að tala um, hvort Bandaríkjastjórn muni fara með Tíbet-málið fyrir Sameinuðu þjóðirnar. í Reutersfregn frá London segir, að talsmaður utanríkis- ráðuneytisins hafi látið í ljós ánægju yfir því, að Dalai Lama skuli vera öruggur. MÓTMÆLI FRÁ NEPAL. Kongressflokkurinn í Nepal, sem í gær sigraði í þingkosn- ingum landsins, sendi í dag út yfirlýsingu, þar sem segir, að atburðirnir í Tíbet séu algjör- lega samsvarandi atburðunum í Ungverjalandi 1956, og þeir, sem haldið hafi, að samskipti milli landa á grundvelli svo- kallaðrar „friðsamlegrar sam- búðar“ mundu veita öryggi hafi orðið fyrir sorglegum von- brigðum. „Harmleikurinn í Tíbet ætti að vera hverju Asíu ríki til varnaðar“, sagði í yfir- lýsingunni. Lokaður fundur ráðherranefndar NATO í Washington í gær, .. WASHINGTON, 3. apríl, (NTB —REUTER). Ráðherranefnd NATO hélt áfram umræðum sínum í dag í Wasliington kl. 16 eftir ísl. tíma. Á lokuðum fundi gerðu evrópskir uían- ríkisráðherrar grein fyrir skoð unum sínum á liinu hernaðar- lega og pólitíska ástandi. Sögðu NATO-menn, að Pella hinn ítalski væri á móti því, að kom ið væri á lierlausu og hlutlausu svæði í Mið-Evrópu, en ef til vill væri hægt að taka til at- hugunar að „frysta“ menn og vopn innan vissra, afmarkaðra svæða, svo framarlega sem komið væri á öruggu eftirlits- kerfi. Rýssum vísað frá Haxíko. Mexikó City, 3. apríþ (Reuter). TVEIM sovézkum diplómöt- um hefur verið vísað úr landi vegna meintra aðgerða í sam- bandi við verkfall á járnbraut- um landsins í s.l. viku, og fóru þeir héðan flugleiðis til Toronto í Kanada í dag. Rússar neita ásökununum. Danski ráðherrann, Jens Otto Kragh, er sagður hafa stungið upp á, að fulltrúar Austur- og Vestur-Þýzkalands hæfu tæknilegar undirbúnings viðræður um framkvæmd sam einingar landshlutanna. Miiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiin | Þjofur fegiun | j handiðku. j I LONDON, 3. apríl. REUTER. 1 | Tugir kvenna í mannþröng § | á neðanjarðarjárnbrautar- | = stöð í London brugðu liart | | við í dag, er kona heyrðist | | kalla „Grípið hann, stúlk- | i ur“. Náungi, sem reynt hafði | | að lirifsa til sín tösku kon- | | unnar, er kallaði, reyndi að f | flýja. Hann komst þó ekki | | í lönd eða strönd, því að 1 | hann var umkringdur tug- | 1 um ofsareiðra skrifstofu-1 | stúlkna. — Lögreglumaður f | hrauzt gegnum kvennaskar- | 1 ann, sem otáði regnlilífum f | og handtöskum að vesalings | | þjófnum, og bjargaði honum § i á brott. Varð þjófurinn feg- = | inn handtökunni. | iiiiiHiitiuiMiiiiiiiniiiitiiiiuiitiuiiiiiiiiiiiimiHiiiiiivfffi Alþýðublaðið — 4. apríl 1959 3

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.