Alþýðublaðið - 26.04.1959, Blaðsíða 12
ÞAÐ er siður í Englandi,
að ef brúðhjón á leið
heim frá kirkju sjá sót-
ara, ]já þarf brúðurin
endilega að fá koss hjá
honum, því að sótarakossi
á brúðkaupsdag kvað
fylgja miikil gæfa. Brúð-
urin, sem þarna er að fá
sinn koss, heitir Belinda
og á heima í Beaulieu í
Englandi. Maðurinn henn
ar heitir Montague og er
lávarður.
kmimmmhmhummmmwm
Fræðslukvöld GarS
yrkjufélags íslaiids
ANNAÐ fræðslukvöld Garð-
yrkjufélags fslands var haldið
síðasta vetrardag. Fræðsluna
önnuðust þaú Ölafíá Einars-
dóttir og Jónas Sig. Jónsson.
Aðsókn var góð og var fræðsl-
unni vel tekið.
Þriðja fræðslukvöldið verður
haldið mánudaginn 27. apríl kl.
C,30 í Iðnskólanum, stofu 202.
Efni: Trjágróður og runnar
(Óli Valur Hansson) og Trjá-
klipping (Jón H. Björnsson).
Fólki er ráðið til þess að not-
f$era sér þetta tækifæri til að
fá ókeypis hagnýta og fjöl-
breytta fræðslu um gróður og
ggrðyrkj ustörf.
Uppréísnarmenn í Tíbet
enn
HÖNG KONG, 25. apríl
(REUTER). Tilraunir Nehrus,
forsætisráðherra Indlands, til
þess að jafna deilu Kínverja
og Tíbetbúa, hafa vakið reiði
og grunsemdir í Kína. Hin op-
inbera fréttastofa Pekingstjórn
arinnar sakaði í dag Indverja
um útþenslustefnu og kvað
Nehru miða að því, að gera Tí-
bet að Ieppríki Indlands. Pek-
ingblaðið Ta kung po skrifar;
„Ræður indversku heims‘valda-
sinnanna undanfarna daga
benda eindregið til þess að þeir
hafi í hyggju að hlutast enn
frekar cn orðið er í innanríkis-
mál Kína og losa Tíbet algey-
lega undan Icínverskum yfirráð
um. Þessi afstaða getur valdið
vinslitum Kína og Indlands ef
Nehiu Iætur ekki af þeirri fyr-
irætlan að gera Tíbet að lepp-
ríki Indlands.”
Neíhru og Dalai Lamia hittust
í gær í Mussoorie þar sem indr-
verska stjórndn hefur fengið
hinum lándflótta þjóðhöfðingja
aðsetur.
'Néhrú sagði fréttamönnum í
gær, að honum væri mikið í
mun að sættir tækjust í Tíbet
og Dalai Lama fengi að hverfa
aftur til lands síns.
Kínverskir kommúnistar
hafa undanf arið sakað Indverja
um útþenslustefnu. veg'na af-
skipta þeirra ,af máli Dalai
Lama.
Kínverskur hershöfðingi
flutti ræðu í dag á þingi Kína,
sem nú stendur yfir í Peking.
Skoraði hann á uppreisnar-
menn í Tíbet að gefast upp, að
öðrumi kosti yrðu þeir brytjaðir
niður. Hershöfðinginn kvað
Kínverja hafa alla mikilvæga
staði í landinu á valdi sínu.
í fréttum frá Formósu segir,
að enn sé barizt af hörku í Sin-
kiangfylki norður af Tíbet og
hafi uppreisnarmenn þar náið
samiband við uppreisnarmenn x
Tíbet. Riúmlega 4000 m-anns
hafa þar verið teknar af Mfi af
herrmönnum komimiúnista.
FíckkskaSfiS
ídag
FLOKKSKAFFI Fulltrúa-
ráðs Alþýðuflokksins í Rvík
verður í Iðnó, uppi, kl. 3 í
dag. Þorsteinn Pétursson,
ráðsma^ir Fulltrúaráðs
Verkalýðsfélaganna. í Rvík,
mun ræða þar um 1. maí, og
er þess vænzt að Alþýðu-
flokksfólk í Reykjavík og
nágrenni fjölmenni.
Sérstök athygli skal vakin
á því, að Flokkskaffið er að
þessu sinni í IÐNÓ en ekki
Ingólfs Cafó eins og verið
hefur. Þá eru þeir sem tek-
ið hafa að sér störf við vænt-
anlega hlutaveltu beðnir að
koma, þar sem fundur um
það mál verður að Flokks-
kaffinu loknu.
Tónverk við 7 kvæi Laxness
frumflutt í Þýxkalandi í gær
DAGARNIR 24. til 26. apríl
eru helgaðir nútímatónlist í
Stuttgart í Þýzkalandi. i gær
var frumflutt þar verk eftir hið
kunna tónskáld Hermann Reut-
ter. Nefnist tónverkið „Welt-
licht“ eða Heimsljós og er sam-
ið við sjö kvæði eftir Halldór
Kiljan Laxness. Er það gert fyr
ir djúpa karlmannsrödd og
hljómsveit.
Verkið var flutt af sinfóníu-
hljómsveit suður-þýzka útvarps
ins, en ekki er kunnugt hver
syngur. Eftir því sem blaðið
veit bezt, er Halldór Kiljan
Laxness nú staddur í Þýzka-
landi, og mun hann að öllum
líkindum vera viðstaddur frxim
flutning verksins.
Hermann Reutter er eitt af
kunnustu tónskáldum Þjóð-
Enska koaft-
spyrnan
ÚRSLIT í ensku deilda-
keppninni í dag urðu sem hér
segir:
Arsenal — Portsmouth 5:2.
Birmingham — Chelsea 4:1.
Bolton — Blackburn 3:1.
Burnley — Newcastle 2:2.
Wolverhampton — Everton 1:0.
Leicester — Manch. Utd. 2:1.
Luton — Blackpool 1:1.
Manch. C. — Aston ViIIa 0:0.
Preston — Tottenham 2:2.
W. B. Albion — Nottingh. 2:0.
verja, fæddur árið 1900. Hanra
hefur samið nokkrar óperur,
margar kantötur og er sérlega:
þekktur.sem ,,Lieder“-tónskáld.
í tónsmíðum sínum hefur
Reutter leitazt við að sameina
nýtízkulegt form alþýðlegum
stíl.
jiiiiniiniiiiiiiiiiHinnniiiiniiniiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiii
| Elly, Ragnar, KK
| ofl „Fi¥e Keys"
| K.K. sextettinn hefur verið
= ráðinn til að leika með banda
| ríska söngkvintettinum Five
| Keys, sem skemmtir hér til
| ágóða fyrir Blindravinafé-
| lagið. Eily Vilhjálms og Ragn
= ar Bjarnason munu þá m.a.
| syngja nokkur lög. Fyrstu
| hljómleikarnir eru 1. maí og
| er forsala hafin (sjá auglýs-
| ingu á 11. síðu).
1 Myndin sýnir 2/6 hluta
| KK-sextettsins, Ólaf Gauk,
| gítarleikara, og Jón Sigurðs-
| son bassaleikara.
Yalur-Víkingur
leika í dag.
ANNAR leikur Reykjavíkur-
meistaramótsins fer fram á
Melavellinum í dag kl. 2 e.h. i
Þá leika Valur og Víkingur.!
Dómari verður Magnús V. Pét-
ursson, línuverðir Jón Bald-
vinsson og Ragnar Magnússon.
ElSilífeyrir
á að hækka
um 20%
ÞEGAR Jóhanna Egils-
dóttir tók um skeið sæti á
alþingi fyrir meira en ári
síðan, hreyfði hún þegar
tryggingamálunum og benti
séistaklega á, hversu ófull-
nægjandi ellilífeyrir væri
hér á landi. Var máli hennar
vel tekið, tillaga hennar sam
þykkt með nokkrum brey-
ingum, og nefnd sett á lagg-
irnar til að athuga um hækk-
un bóta og lífeyris. Þessi
nefnd hefur starfað af krafti
og þegar skilað áliti. Félags-
málaráðherra, Friðjón Skarp
héðinsson, hefur heldur ekki
beðið, en flutt frumvarp til
laga um hækkun ellilífeyris
frá næstu áramótum, sem
nemur í heild yfir 20 mill-
jónum króna,' og hækkun á
öðrum bótum um 13,5 mill-
jónir. Þegar þetta mál nær
fram að ganga, hefur ís-
lenzkt þjóðfélag bætt veru-
lega hag gamalla, sjúkra og
örkumla, og þar með greitt
siðferðislega óroiðuskuld.
Alþýðuflokknum tóksí úö
Hún hratt málinu af stað á
' alþingi.
fá bætur Trygginganna
hækkaðar tvisvar á síðasta
ári, en það var aðeins til
samræmis við grunnkaups-
hækkanir flestra stétta lands
fólksins. Nú er ætlunin að
hækka ellilífeyrinn um 20%,
en það samsvarar því að líf-
eyrinn hækki úr 17% af
verkamannalaunum, sem
liann er nú, í 23,8 í Sví-
þjóð og Danmörku er þessi
lífeyrir yfir 30% verka-
mannalauna.
Þá verða einnig hækkanir
á örorkulífeyri, örorkustyrk,
fjölskyldubótum, barnalíf-
eyri, mæðralaunum, fæðing-
arstyrk og ekknalífeyri. Eru
hækkanirnar mjög mismun-
andi, langmestar á elli- og
örorkulífeyri, en minni á
hinum greinunum. Nái frum
varp þetta fram að ganga,
koma breytingarnar til feam
kvæmda á næstu áramótum.
Þegar tillaga Jóhönnu Eg-
ilsdóttur var samþykkt af
alþingi, skipaði Guðmundur
I. Guðmundsson, þáverandi
trýggingamálaráðh., nefnd
til að undirbúa málið: í
henni áttu sæti Jólianna Eg-
ilsdóttir, Gunnar Möller,
Hjálmar Vilhjálmsson, Adda
Bára Sigfúsdóttir, Helgi Jón
asson, Ragnhildur Helgadótt
ir, Sverrir Þorbjörnsson, frú
Aðalbjörg Sigurðardóttir og
um skeið frú Þóruun Magn-
úsdóttir. Það er þessi nefnd,
sem nú hefur skilað störfum.
iiiilllllSill||||IIMIIl|lI|lll9fl«IIIIIIIIIII198IIIIIIIIIII9ll«lllillllIllllllllllllimillllllII(IIIIII!!!!!IM*'