Alþýðublaðið - 28.04.1959, Qupperneq 5
BYGGINGAFÉLAG
ALÞÝÐU ' í Hafnarfirði
er 25 ára í dag. Það var
stofnað 28. apríl 1934. Það
á nú 28 hús í Hafnarfirði
með 106 íbúðum samtals,
en eitt hús með 10 íbúð-
um er í smíðum, verða
því íbúðir félagsins ails
116 áður en langt líður.
Sjö af hundraði Hafnfirð
inga búa í verkamanna-
bústöðum, og vegna bvgg
ingar þeirra slapp Hafn-
arfjörður við húsnæðis-
vandræðin eftir styrjöld-
ina.
Frá stofnun féiagsins hafa
formenn félagsins verið fjór-
ir. Óskar .Tónsson var formað-
Óskar Jónsson,
fyrsti formaourinn.
ur fyrstu 15 árin, Jóhann Þor-
steinsson var formaður í
fimm ár, Guðmundur Þor-
láksson í 4 ár, en á síðastliðnu
hausti var Kjartan Ólafsson
kosinn formaður. Páll Sveins-
son yfirkennari hefur átt
sæti í stjórninni frá byrjun.
Hann er því af eðlilegum á-
stæðum allra manna kunnug-
astur síarfsemi félagsins, og
átti Alþýðublaðið tal við hann
af þeim sökum í tilefni afmæl-
isins.
— Það er bezt að rekja for-
sögu málsins fáeinum orðum,
segir Páll. — Hér í Hafnar-
firði mun ástandið aldrei hafa
verið mjög slæmt í húsnæðis-
málum, aldrei talað um okur,
fáar íbúðir í niðurgröfnum
kjöllurum. Um 1920 mun í-
búatalan hafa verið 2340 og
húsin í bænum 303, eða 7
manns í hverju húsi. Næsta
áratug jókst íbúatalan u,m
1200. og hefði þá þurft að
bypgja að jafnaði 15—20 í-
búðir á ári. Þá fór að bera á
húsnæðisvandræðum og farið
var að ræða um byggingu
verkamannabústaða. Málið
mun hafa verið rætt fyrst í
Verkamannafélaginu Hlíf, en
eigi komst þó skriður á málið
fyrr en Fulltrúaráð Alþýðu-
flokksins tók það fyrir, en það
var gert éftir áramótin 1934.
Þriggja manna nefnd var
kjörin. Skyldi hún kynna sér
vilja manna til félagsstofnun-
ar. Nefndin kynnti sér hús-
næðismál og komst að raun
um, að tekið var að sverfa að
fólki í þessum efnum. Lagði
hún til, að félag yrði stofnað.
Fulltrúaráðið fól henni að
hafa forgöngu í málinu.
FÉLAGÍÐ STOFNAÐ.
— Stofnfundur var hald-
inn í Bæjarþingsalnum, hélt
Páll áfram, — og flutti for-
maður nefndarinnar, Óskar
Jónsson, erindi um lögin um
verkamannabústaði. Síðan
lagði hann fram tillögu um
félagsstofnun. Þrjátíu gerðust
stofnendur. Fundurinn fól
stjórninni að hefja fram-
kvæmdir. En um þessar mund
ir var krennan búin að lama
atvinnulífið og örðugt var um
útvegun lána, og erfiðleikar á
innflutningi sökum gjaldeyr-
isskorts. Það fyrsta, sem
stjórnin gerði, var að útvega
teikningar, og gerði þær húsa-
meistari ríkisins félaginu að
kostnaðarlausu. Þá var og
skvggnzt um eftir byggingar-
lóðum, leitað eftir kaupend-
um o. fl.
FYRSTU BYGG-
INGAP.FR •' MKVÆMMR.
— Hvernig tókst svo um
lánsútvegun?
— Samkvæmt lögunum um
verkamannabústaði skyldi
hver kaupstaður eiga bygg-
ingarsjóð. Bæjarsjóður lagði
til ákveðna upphæð og ríkis-
sjóður jafnháa á móti. En lít-
ið var bvggt fyrir það fé.
Stjórn sjóðsins átti að útvega
fé, en það var sannarlega ekki
létt verk. Formaður sjóðs-
stjórnar var þá Emil Jónsson,
sem þá var bæjarstjóri. Hann
Verkamannabústaðir — 2 ..
tók málinu frá upphafi ágæta
vel og honum tókst samsum-
ars að útvega lán.
— Og svo hófust fram-
kvæmdir?
: NÚVERANÐI stjórn Bygg- ;
Z ingarfélags AlþýSu, Hafn-»
; arfirði. Frá vinstri: Gunn-:
■ laugur Guðmundsson, Páll:
: Sveinsson, Kjartan Ólafs-;
: son, form., Gísli Guðjóns- j
; son, Þórður Þórðarson. :
— Já, það var árla morguns
15. sept., að hópur verka-
manna mætti við Selvogsgötu
og hófu vinnu, og um jólaleyt-
ið voru fjögur hús risin af
grunni. Hér varð höndin að
vinna flest, vélar engar,
steypa hrærð af palli og síðan
dregin upp með handafli.
Og bóndinn í Selvognum,
sem geymt hafði hesta sína
á túninu um haustið, varð
undrandi, er hann kom í
kaupstaðinn um vorið. Hann
spurði hverjir byggðu svo
veglega. Honum var tjáð að
hús þessi væru verkamanna-
Páll Sveinsson,
fyrsti ritarinn, gjaldk. frá 1938.
bústaðir. „Þetta kalla ég nú
hallir“, svaraði bóndi.
í maí. vorið 1935 bauð fé-
lagsstjórn bæjarbúum að
skoða íbúðirnar og um mán-
aðamótin fluttu eigendur í
12 íbúðir. Mánuði síðar höfðu
allar íbúðirnar verið teknar í
notkun. Eín tveggja herbergja
íbúð var seld Þöntunarfélagi
Verkamannafélagsins Hlífar,
(Frflmhald á lfl. síðu)
í TILEFNI 25 ára afmælis
Byggingarfélags alþýðu í
Hafnarfirði, átti blaðið stutt
viðtal við Óskar Jónsson, sem
var formaður þess fyrstu 15
árin.
Óskar sagði, að mjög miikil
þörf hafi verið fyrir verka-
mannabústaðina er félagið var
stofnað. Útgerðin var takin að
aukast og iðnaður mjög að
vaxa og þar af leiðandi fjölg-
aði fólkinu í bænum.
Fannst okkur því, sagði Ösk
ar Jónsson, brýn þörf fyrir
þ\d að hafizt yrði handa um
stofnun byggingarfélags, sam-
kværnt lögum' una verka-
mannabústaði, sem höfðu- ver-
ið samþykkt á alÞingi nokkr-
um árum áður.
Félagið var stofnað í apríl
1934. Fyrsta verkefnið var að
fá lán til þygginganna. Tókst
Emií Jónssyni að útvega lán,
þótt erfitt væri um slíkt á
þeinoi árum,
Fyrst var hafizt handa um
að byggja 16 íbúðir við Sei-
yogsgötu. Var áhugi mikill hjá
mönnum til að reýna að fá
sér íbúðir. Til dæmis, er frétt-
ist um félagsstofnunina, barst
skeyti frá sjómanni úti á sjó,
sem bað um að fá að gerast
félagi og fá eina af fýrstu í-
búðunu'm. Og hann fékk líka
íbúðina,
Þau 15 ár sem ég var for-
maður, voru fyrst byggðar 16
íbúðir við Seivogsgötu,- þar af
ein sölubúð. Næsti áfangi, —
nokkrum árum síðar, var 20
íbúðir yið Skúlaskeið ;og ,enn
nokkru síðar 32 íbúðir við
Skúlaskeið og Alfaskeið. Var
Álfaskeiðið lagt í sambandi-
við byggingu verkamannabú-
staðanna. Síðan var hafizt
handa um bvggingu 12 íbúða
við Suðurgötu.
OoO
Forgöngumenn félagsins:
settu sér það höfuðtakœaijí,
að skilsemi væri í öllum vifib
skiptum. Ég held að það hall
tekizt frá uppihafi. Bæði hafa
íbúðareigendur staðið í skiL
um við félagið og það aftttr
ávallt getað innt af höndum
vaxtagreiðslur og ai'borganir
af lánumi á réttum gjalddiaga ..
til Byggingasjóðs verka»
Verkamannabústaðir við Skúlaskeið { Hafnarfirði.
Þóroddur Hrcinssou,
fyrsti gjaldkerinn.
manna, sem hefur verið sy<í>
að segja eini lánardrottinni
la'gsins. Hins vegar ’heiíMt
Sparisjóður Hafnarfjarðar
hlaupið undir bagga á nnleða®
á byggingu húsannai hefur stí®
ið, auk þess sem hann hefua'
hjáipað mörgum einstaklin®-
um við það að geta keypt sés*
íbúðir í verkamannabústöðuitt..
um.
Magnús heitinn Sigurðssftls,
bankastjóri, var aMa jtíð f«r-»
maður Byggingasjóðs verfca,
rnanna frá stofnun ,og þar tiJ.
hann lézt. Sýndi hann félagillil.
ætíð sérstakan velvilja.
Þegar Magnús féll frá, vatrS
Jón Maríasson, bankastjórþ
formaður sjóðsstjórnar. Sýnöíl
hann félaginu einnig góðar.
skilning. Vil ég sem sagfe
þakfca þsssum tveim fyrrvtftf-
andi formönnum sjóðsstjóína?
innar og sjóðsstjórninni yfir-
leitt, fyrir velvild 'alla tíð í
garð Byggingarfélags alþyðn.
Magnús heitinn bankastjóiit
sagði eitt sinn við mig, a8
byggingafélögin útl um latfá.
gætu tekið Byggingarfélag
þýðu í Hafnarfirði sér íil iyrii?
myndar í ýmsu- Miin 'h&xm
einkumi hafa haft í huga -
semi félagsins við sjóðinn. ,
Framhald á 10. sí®,m» (
AlþýSublaðið — 28. apríl 1959 _