Alþýðublaðið - 19.06.1959, Blaðsíða 4

Alþýðublaðið - 19.06.1959, Blaðsíða 4
Útgefandi: Alþýðuflokkurinn. Ritstjórar: Benedikt Grön- dal, Gísli J. Ástþórsson og Helgi Sæmundsson (áb.). Full- trúi ritstjórnar: Sigvaldi Hjálmarsson. Fréttastjóri: Björg- vin Guðmundsson. Ritstjórnarsímar: 14901 og 14902. Aug- lýsángasími; 14906 Afgreiðslusími: 14900. — Aðsetur: Al- þýðuhúsið. Prentsmiðja Alþýðublaðsins. Hverfisg. 8—10. Fulltingi við Breta KOMMÚNISTAR reyna mjög þessa dagana að gera landhelgismálið að deiluefni í kosninga- baráttunni með getsökum og brigzlum í garð annarra flokka. Slíkt má alls ekki takast. íslend- ingar hafa borið gæfu til þess að standa sem einn maður að stækkun landhelginnar. Þeir, sem vilia rjúfa þá einingu af hvatvísi og ofstopa, eru varg- ar í véum. Þjóðin verður að hafa vit fyrir þvílík- um óhappamönnum. Áróður kommúnista í þessu sambandi blekkir engan. Þeim finnst ekkert til um það j afrek Guðmundar í. Guðmundssonar utanríkis- ráðherra og samstarfsmanna hans að hafa unnið stækkun landhelginnar slíkt fylgi, að Bretar eru í einangraðir í andstöðunni við okkur. Þeir forð- ast sömuleiðis að viðurkenna, hversu vel tókst i til um framkvæmd landhelgisgæzlunnar eftir | stækkunina, og var þó sannarlega mikið vanda- verk að ganga í því efni hvorki of stutt né of ] langt. Eigi að síður má vera lýðum ljóst, að j Hermanni Jónassyni fór yfirstjórn þeirra mála vel úr hendi sem dómsmálaráðherra í vinstri stjóminni. En þessi mikilvægu atriði skipta lcommúnista engu máli. Hitt finnst þeim heims- [ söguleg hetjudáð, að Lúðvík Jósepsson skrifaði j nafnið sitt undir reglugerðina um stækkun í landhelginnar með ríkisstjórnina, alþingi og | þjóðina á hak við sig. Pennastrikið á að gera 1 Lúðvík að þjóðhetju á horð við Jón Sigurðsson f'. og aðra frægustu baráttumenn frelsishreyfing- arinnar. Auðvitað er allt gott að segja um þetta verk Lúðvíks, en áróður kommúnista nær engri í átt. Hann er hlægilegur. Jafnframt leggja kommúnistar sig alla fram um að bera svik á aðra í landhelgismálinu. í því efni flíka þeir blekkingum brezku íhaldsblaðanna, sem eru í vandræðum að verja stefnu stjórnar sinnar heima fyrir vegna sívaxandi óánægju með athæfi herskipanna og veiðiþjófanna á íslands- miðum. Og síðustu dagana hefur Tíminn tekið undir þennan söng kommúnista. Hann er líka í vanstilltu kosningaskapi. Þetta er eina vopnið, sem Bretum getur hit- T ið í baráttunni við íslendinga í tilefni af stækk- un landhelginnar. Þeirra eina von er sú, að ís- lenzka þjóðareiningin rofni. Til þess mun ekki koma. íslendingar eru staðráðnir að sigra í land helgisdeilunni. En þess vegna her þeim skylda til að hafa vit fyrir þeim óhappamönnum, sem heimska sig til fulltingis við Breta með níð- ingsskap við samlanda sína af pólitísku hatri. 1 Og Tímanum væri sæmst að láta kommúnista eina um asnaspörkin í landhelgismálinu. Honum ætti að nægja að gera sig að viðundri í kjördæma- málinu. E Hópferðir. ITT fyrsta verk de Gaulle, er hann tók við völdum í Frakklandi fyrir rúmu ári síð- an, var að leggja grundvöll að kjarnorkupólitík Frakka. Hann skipaði sérfræðing í kjarnorkumálum varnar- málaráðherra, því næst setti hann á fót varnarmálanefnd og loks skipaði hann fyrir um algera nýskipan franska hers- ins. Hernum verður skipt í smáar herdeildir annars veg- ar og kjarnorkuvopnaðar sveitir hins vegar. Ætlunin er, að franski herinn verði ein- göngu búinn kjarnorkuvopn- um og eldflaugum framleidd- um í Frakklandi sjálfu. Franska ríkisstjórnin ákvað fvrir skömmu að hraða mjög framleiðslu sprengjuflugvéla og eldflauga. Talið er, að Frakkar verði innan skamms komnir jafnlangt Bretum, Bandaríkjamönnum og Rúss- um í þessum efnum. Þeir eiga þó við tvo erfiðleika að etja: styrjöldin í Alsír er kostnað- arsöm og þar er gífurlegur her bundinn og í öðru lagi hefur framleiðslu kjarnorkusprengj unnar frönsku seinkað af ein- hverjum ástæðum. 'V Hernaðarheimspeki í Alsír. Styrjöldinni í Alsír lýkur 'vart í náinni framtíð. Franski herinn þar er að mestu sjálf- ráður um aðferðir og þar hef- ur myndazt sérstök hernað- arheimspeki, sem einhvers konar sambland af þjóðern- isrembingi, krossferðaráhuga á vegum vestrænnar menn- ingar, kenningum Mao Tse Tungs um skæruhernað og gamaldags nýlenduherförum. Hvað verður um franska her- inn, þegar styrjöldinni í Alsír lýkur, er ekki gott að segja um. En vafalaust skapast þá vandamál, sem erfitt verður að leysa. 'v' Hirðir ekki um al- menningsálitið. De Gaulle leggur alla á- herzlu á að koma á laggirnar her vopnuðum kjarnorkuvopn um. Fyrsta skilyrði þess er framleiðsla kjarnorkuvopna í landinu sjálfu. Aðgerðir for- setans gegn NATO eru tilraun til að fá Bandaríkj amenn og Breta til þess að viðurkenna að Frakkar hafi jafnmikinn rétt og þeir til þess að ráða yfir slíkum vopnum. De Gaulle hefur farið þess á leit við Bandaríkj astj órn að honum verði afhent kjarnorku vopnaleyndarmál til þess að Frakkar geti strax hafið fram- leiðslu slíkra vopna, og hann kveður Frakka ekki bundna af neinu samkomulagi Breta, Bandaríkjamanna og Rússa um bann við tilraunum með kjarnorkuvopn nema um leið verði samið um algert bann við notkun og framleiðslu slíkra vopna og allsherjaraf- vopnun á því .sviði. "V' Treystir ekki Banda- ríkjamönnum. Fréttaritarar í París eru flestir á þeirri skoðun, að Frakkar hyggist verja sjálfan tilverurétt sinn í þessu máli. Þeir álíta, að stefna Banda- ríkjamanna í hermálum, sem byggist á langdrægum eld- flaugum, leiði til einangrun- arstefnu í framtíðinni, og varn ir Frakklands séu þegar of háðar stefnu Bandaríkja- manna til þess að vera trygg- ar. Einasta leiðin til að tryggja þær sé að þeir komi sér sjálfir upp kjarnorkuvopn um og hafi ákvörðunarrétt um notkun þeirra kjarnorku- vopna, sem eru þegar til á franskri grund. Búast má við að franska stjórnin hóti að segja sig úr NATO nema komið verði til móts við kröfur hennar í þessu efni. De Gaulle vill ekki gera neina nýja samninga við NA- TO fyrr en ljós't er,^ hvað Bandaríkjamenn eru fúsir að láta undan í þessu máli. Franska þjóðin virðist sam- mála ráðamönnum í deilunni 'og má því reikna með alvar- H a n n es á h o r n i n u Höfum allar stærðir hópferðabifreiða til lengri skemmri ferða. Kjartan Ingimarsson sími 32716. Ingimar Ingimarsson, sími 34307. Afgre&ðsla Bifreiðastöð íslands, sími 18911. og ★ Kaupgjald og vaxandi framleiðsla. ★ Skilyrði fyrir batnandi hag og öryggi. ★ Að æsa til launadeilna og hrópa húrra þegar erlend vara hækkar. TVEIR af forustumönnum Al- þýðuflokksins, ráðherrarnir Em il Jónsson og Gylfi Þ. Gíslason, hafa á fundum undanfarið gert kaupgjaldsmálin og launadeil- urnar sérstaklega að umtalsefni. Emil ræddi málið rækilega á kjósendafundi Alþýðuflokksins í Hafnarfirði og Gylfi á Alþýðu- flokksfundinum í Iðnó. Ummæli j þeirra voru samhljóða: „Það er lífsnauðsyn fyrir þjóðina að stöðva dýrtíðarflóðið. Það verð ur ekki gert nema með því að halda niðri vöruverði og að laun þegar gæti hófs í kröfum sínum. LAUNAHÆKiKANIR geta ekki orðið meðan á þessari bar- áttu stendur. Launahækkanir eru óeðlilegar nema í hlutfalli við framleiðsluaukningu þjóðar innar. Framleiðslan fer sífellt vaxandi og þegar hún hefur náð vissu marki er nauðsynlegt að vinnandi fólk njóti hennar í réttu hlutfalli. Það er ekki hægt að miða við annað þegar um kaupgjaldsmál er að ræða. Laun- þegasamtökin verða að miða starf sitt við framleiðsluaukn- inguna — og ekki annað.“ ÞETTA SÖGÐU ráðherrarnir og þetta er ótvíræð stefna Al- þýðuflokksins. Hún byggist á því, að við verðum að hætta að eyða meiru en við öflum. Allir eiga að geta sagt sér það sjálfir, því að þannig er reynsla hvers eins og einasta heimilis. Hins vegar höfum við í.hálfan annan áratug ekki farið eftir þessari meginreglu. VIÐ HÖFUM EYTT MEIRU en við höfum aflað. Það getur ekki leitt til annars en glötunar. í raun og veru hefur hver ein- staklingur með kapphlaupinu verið að safna skuldum, sem hann verður að greiða. Þessu verður nú að vera lokið. Eins og hver einstaklingur má ekki eyða meiru en hann aflar, alveg eins verður kaup og kjör að miðast við framleiðslumagn þjóðar- heildarinnar. j | ÖRYGGISLEYSIÐ er alltaf verst. Öryggi heimilanna er fyr- ir öllu. Undirstaða öryggisins er atvinnan. Örugg atvinna byggist á því, að verðmætin, sem vinn- an og tækin, sem þjóðin á, skapa, sé seld fyrir lífsnauðsynjum þjóð arinnar. Þess vegna má aldrei ríða atvinnuvegina á slig. Það er sama eins og að ráðast á varp- hænuna og éta hana, það er eins og að naga rætur trésins og koma þannig í veg fyrir að það geti borið ávöxt. ALÞÝÐUFLOKKURINN stendur og fellur með þeirri stefnu, sem ríkisstjórn hans tók er hún settist að völdum og lýst var yfir í ræðu Emils Jónssonar um síðustu áramót. Sú ræða vakti gífurlega athygli og eins þær ráðstafanir, sem gerðar voru um sama leyti. Þær komu fólki á óvart. Það kom fyrst á óvart, að stóru flokkarnir skyldu neita að taka á sig erfiðleikana og ábyrgð ina — og það kom á óvart, að stj órninni skyldi takast að gera það, sem gert var. ÉG HELD að það sé að verða mönnum Ijóst, að með hverjum degi skilur þjóðin betur hvar hún stendur. Það er erfitt að æsa upp til launadeilna. Þeir sem hrópa húrra þegar vörur hækka í verði mæta fyrirlitningu. Þessi fyrirlitning mun koma skýrt i ljós á sunnudaginn annan en kemur. Hannes á horninu. Gólfteppahreinsun Hreinsum gólfteppi, dregla og mottur. Breyt- um og gerum einnig við. Sækjum, sendum, Gólfteppagerðin h.f. Skúlagötu 51. Sími 17360. 4 19. júní 1959 — Alþýðublaðið

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.